Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1997, Blaðsíða 4
18
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
um helgina
Tvær sýningar í Nýlistasafninu:
tilfinningabókasafn
„Ég hafði að sumu leyti hugsað mér þessa
sýningu sem ádeilu á heim þar sem tamin nátt-
úra er til á hveiju einasta heimili," segir Olga
Bergmann, ung íslensk listakona sem nýlega
opnaði sýninguna „Borðstofusafarí" í Nýlista-
safninu. „Það sem ég deili fýrst og fremst á er að
í heimi þar sem tamin náttúra er til á hverju
einasta heimili verður ómögulegt að greina
milli hins eðlilega og óeölilega. Þessi fjarstæðu-
kenndu samskipti okkur við náttúruna koma
m.a. fram i því að goggunarröðinni er hafhað
um leið og hún er dáð.“
Sýning Önnu Halin; „Bókasafn tilfmning-
anna“ samanstendur af ljósmyndum og skúlpt-
úrum. „í ljósmyndunum reyni ég að fanga þá til-
fmningu að vera milli draums og veruleika,"
segir listakonan um verk sín. „Oft upplifir mað-
ur þetta ástand í s'æfnrofanum á morgnana, þ.e.
maður hefur annan fótinn í drauminum en hinn
í vökunni þannig að báðir þessir heimar verða
jafnvægir."
Af öðrum sýningum i Nýlistasafhinu má
nefna sýningu Amars Herbertssonar í setustof-
unni, sýningu Hafdísar Helgadóttir í Svarta og
Bjarta og sýningu Nikolajs Pavlovs í Súm-saln-
um. Pavlov kemur frá Jakútíu, landi í Norðaust-
ur-Síberíu sem heitir opinberlega Lýðveldið
Sakha. Nikolaj Pavlov er hingað komin á vegum
Isjaka en svo nefnist vinafélag Islands og
Jakútíu.
Sýningarsalir Nýlistasafnsins eru opnir alla
daga nema mánudaga.
Á leikfangasýningunni í Perlunni
veröa leikföng í öllum regnbogans litum.
Sjón er sögu ríkari. DV-mynd ÞÖK
Borðstofusafarí og
Myndlistarsýning
á Jómfrúnni
Þessa dagana stendur yfir sýn-
ing á veitingastaðnum Jómfrúnni,
Lækjargötu 4, á málverkum Krist-
bergs 0. Péturssonar. Verkin á
sýningunni voru unnin í júlí og
ágúst meðan Kristbergur dvaldist í
gestavinnustofunni „Kunstler-
haus“ í Cuxhaven í Þýskalandi.
Sýningin er opin frá 11 til 22
meðan á Rúrek-djasshátíðinni
stendur en frá klukkan 11 til 18 aö
hátíðinni lokinni.
Mikið verður um
að vera í Perlunni
um helgina þar sem
opnuð verður glæsi-
leg leikfanga- og
spilasýning. Sýning
þessi er að mestu
leyti kynning á nýj-
um leikföngum, þar
á meðal sérstakri
tegund byggingar-
leikfanga. Meöal
þess sem fyrir augu
ber í Perlunni eru
20 parísarhjól, eld-
flaug, dýr og margs
konar farartæki.
Fjöldi annarra leik-
fanga og spila verður á
sýningunni, m.a. þrí-
víddarpúsl af heims-
frægum mannvirkjum
á borð við Taj Mahal-
hofið á Indlandi, Eiffel-
turninum og Breska
þinghúsið.
Sýningin verður
opin á laugardaginn
frá 11 til 18 en á
sunnudaginn frá 12 til
18.
Krakkar!
Nú gefst ykkur tækifæri til aö gerast félagar í Krakka-
klúbbi DV. Það eina sem þiö þurfiö aö gera er aö fylla
út seöilinn sem er hér fyrir neöan og senda til Krakka-
klúbbs DV, Þverhoiti 14, 105 Reykjavík. Krakkaklúbbur
DV er fyrir alla hressa krakka, 12 ára og yngri.
Krakkaklúbbur DV sendir öllum nýjum meölimum í
klúbbnum Krakkaklúbbsskírteini.
Á skírteininu er númer sem þiö notiö þegar þiö sendiö
lausnir eöa þrautir úr Krakkaklúbbshorninu. Skírteinið
er einnig afsláttarskírteini sem veitir ykkur afslátt á
margvíslegri vöru og þjónustu. Aö auki fá allir Krakka-
klúbbsmeölimir glaðning frá Tígra í afmælisgjöf.
Barna-DV, sem kemur út á hverjum laugardegi, nýtur
mikilla vinsælda.
Tilgangur klúbbsins er einnig samvinna milli DV og
yngri lesenda um skemmtilegt og fræöandi Barna-DV á
laugardögum.
() Já, takk, ég vil svo sannarlega gerast meölimur í
Krakkaklúbbi DV.
() Kortiö mitt er týnt og ég vil gjarnan fá nýtt kort.
Naf n:_________________
Heimilisfang:__________
Póstfang:________Sími:
Kennitala:_____________
.
rrr
w
QaJ7
l
w
•-v
Úlfur Chaka
fer eflaust
hamförum á
sviðinu f
kvöld eins
hans er von
og vísa. DV-
mynd Hari.
í kvöld
Hljómsveitin Stjömukisi gaf nýverið út hljómdiskinn
Geislaveisla og fagnar þvl á útgáfutónleikum á
efri hæö l'unglsins í kvöld. Stjörnukisi er
tveggja manna sveit, skipuð þeim Úlfi
Chaka, textasmið og söngvara, og Gunn-
ari Óskarssyni áem sér um forritun og
gítarleik. Geisláveisla er fyrsti diskur
þeirra félaga en margir muna eflaust
eftir þeim úr hljómsveitinni 2001.
Sérstakir gestir Stjörnukisa í
kvöld verða DJ.Kári og Súrefni.
Tónleikarnir heíjast
klukkan 24 í kvöld.
Gallerí Sævars Karls
I dag opnar Aöalheiður Skarphéðinsdóttir sýningu í
Galleríi Sævars Karls i Bankastræti 9. Á sýningunni eru
tréristur og myndir, unnar með blandaðri tækni, og era öll
verkin unnin á þessu ári. Þetta er áttunda einkasýning Að-
alheiðar en hún hefur auk þess tekið þátt í fjölda samsýn-
inga um allan heim, þar á meðal í Kína, Japan, Skandin-
avíu og víðar í Evrópu.
Sýningin er opin á verslunartíma alla virka daga frá 10
til 18 og henni lýkur 3. október.