Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1997, Side 9
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
V
HLJÓMPLQTU
LflTIN JflZZ at Ronnie Scott’s
Þær upptökur sem hér um
ræðir voru gerðar „live“ í djass-
klúbbi Ronnie Scott’s sáluga árið
1993 og gefnar út á hljómdiski í
fyrra. Þetta er svona sýnishoma-
diskur frá tónleikum fimm
hljómsveita sem leikið hafa í
klúbbnum. Fyrsta ber að telja
hina kúbversku 11 manna mini-
stórsveit, Irakere, en í diskbæk-
lingi stendur einmitt að hún sé
trúlega merkasta útflutnings-
vara Kúbu, að sykri meðtöldum.
Það má til sanns vegar færa.
Undirritaður hefur fylgst svolítið með Irakeré í rúmlega tiu ár og þeir
eru í einu orði sagt stórkostleg hljómsveit sem hefur m.a. framleitt tvær
djassstjörnur á heimsmælikvarða, trompetleikarann Arturo Sandoval og
saxafón- og klarinettleikarann Paquito D’Rivera. Þriðji snillingurinn er
svo núverandi hljómsveitarstjóri Irakere og meistari píanósins, Chucho
Valdes. Þeir ellefumenningamir eiga hér þrjú lög, sem reyndar má finna
ásamt fleirum á sérstökum diski „Irakere, Live at Ronnie Scott’s".
Það má segja að músíkin á þessum diski skiptist nokkuð i tvö hom.
Annars vegar er djass-samba og hins vegar djass-salsa. Hin kunna brasil-
íska djasssöngkona, Flora Purim, og eiginmaður hennar, slagverksleik-
arinn Airto, em fulltrúar sömbunnar með stórfinni hljómsveit sinni, Fo-
urth World, og era þau líka með þrjú lög. Síðan era það hljómsveitir
víbrafónleikarans Ron Ayers, áðumefnds Sandovals og spænska saxafón-
leikarans Perico Sambeats sem eiga eitt lag hver. Hljómsveit Ayers flyt-
ur „Philadelphia Mambo“ eftir Tito Puente og sérstaka athygli vekur gít-
aristinn, Zachary Breaux sem er alveg frábær og það sama má einnig
segja um gítarleikarann í Fourth World.
Á þessum diski er samba kannski ívið meira áberandi en salsa,
kannski vegna þess að Brassar halda sig venjulega við músik síns heima-
lands en láta rúmbur, cha-cha og þvíumlíkt eiga sig, en Kúbanimir era
hins vegar alltaf alveg ófeimnir að reyna við sömbur. Lagið „Johana"
með Irakere er t.d. bossanova-lag og Sandoval og hljómsveit flytja lagið
„Sambeando" sem er ekta samba en inniheldur dálítið af kúbönskum
framefnum á borð við „ostinato" og „montuno", t.d. er hljómsveitin syng-
ur bút úr laginu yflr slagverkssóló. Lagið sem Sambeat flytur er
„Lament" eftir J. J. Johnson og telst varla vera eiginlegur latin-djass,
þótt það sé í bossanovatakti.
Maður hefur það stundum á tilfinningunni að Kúbanir séu mestu
skemmtikraftar djasstónlistarinnar. Það er næsta víst að þeir eru ógur-
legir stuðboltar og óhræddir að sýna leikni sína á blásturshljóðfæri t.d.
með ótrúlegum glissandóum og hálsbrjótandi hröðu spili og svo þegar
þeir flytja döpur lög þá era þau líka ógurlega dapurleg. Brasilíska mús-
íkin með flóknari hljómastrúktúr sinum freistar kannski djassleikara
annars staðar úr heiminum meira en salsa og hún er „mýkri" áferðar, en
djassspilarar sem hafa kynnt sér salsa (eða öfugt) geta búið til mikinn
töfraheim tóna sem sannast vel hér. Ingvi Þór Kormáksson
The Wannadies - Bagsy Me:
Kröftugt og Ijúft **★
Sænska hljómsveitin The
Wannadies hefur starfað allt
frá árinu 1989 og olli þá þó
nokkru uppnámi í sænsku tón-
listarlífi. Nýjasta plata sveitar-
innar, Bagsy Me, veröur að telj-
ast með betri rokkplötum sem
geöiar hafa verið út af skandin-
avískum sveitmn að undan-
fornu. Lagið Someone
Somewhere ættu allir að
þekkja en það skaust upp lista
víðsvegar um álfuna á þessu
ári. You And Me Song er okkur
heldur ekki ókunnugt úr myndinni Romeo And Juliet. Af öðrum lög-
um plötunnar ólöstuðum verð ég að nefna lagið Oh Yes (It's A Mess),
That's All og Silent People sem er frábært lag og minnir um margt á
Smashing Pumpkins og Prefab Sprout. Stórgóð sveit sem er orðin
orðin þroskuð og vænta má mikils frá. -ps
Limp Bizkít—Three Dollar Bills Yall$:
Geggjað rokk ★★★
Floridadrengimir í Limp
Bizkit hafa starfað saman frá
1994. Nafn sveitarinnar var
einfaldlega fengið þegar einn
meðlima sveitarinnar sagðist,
líða eins og hann væri mátt-
laus kexkaka. Sveitarmeðlimir
eru frægir fyrir grafifitilist sína
sem meðal annars prýðir um-
slag disksins. Tónlistin minnir
um margt á sveitir eins og
Rage Against The Machine og
stundum örlar á fönktakti líkt
og þeir séu undir áhrifum frá
Red Hot Chili Peppers. Annars er tónlistin blanda af hörðu rokki,
rappi og fonki. Three Dollar Bills Y'allS er kraftmikil plata sem lum-
ar á stórgóðum lögum eins og Pollution, Stalemate, Stinkfinger,
Indigo Flow og Everything. Ekki má heldur gleyma frábærri útgáfu
sveitarinnar af lagi George Michael, Faith. Það verður enginn
rokkunnandi svikinn af þessum diski.
-ps
-saman á nýrri safnplötu
Björk og U2 eru meöal þeirra hljómsveita sem eiga lög á safndiskinum sem kemur út í nóvember.
4*
í nóvember næstkomandi verður
gefin út þriggja diska safnplata sem
inniheldur lög frá tíbetsku frelsis-
tónleikunum 1996 og 1997. Diskur-
inn innheldur lög allra þá lista-
menn sem komu fram í ár þar á
meðal Eddie Wedder og Mike
MacCready úr Pearl Jam, Patti
Smith, Radiohead og U2 og hluta
þeirra sem komu fram í fyrra. Björk
Guðmundsdóttir var á meðal þeirra
sem stigu á svið í fyrra og flutti þá
lagið Hyper-Ballad sem verður á
diski númer 2 á safnplötunni. Allur
ágóði af útgáfunni rennur í
Milarepasjóðinn en samtök þau er
standa að sjóðnum vinna að þvi að
frelsa tíbetsku þjóðina undan áþján
kínverskra stjómvalda.
Úheppnin eltir Red Hot
Chili Peppers
Trommari hljómsveitarinnar, Red
Hot Chili Peppers, Chad Smith lenti nú
nýverið í mótorhjólaslysi með þeim af-
leiðingum að hann meiddist illa á öxl.
Smith var að aka hjóli sínu niður Sun-
set Boulevard í Los Angeles þegar slys-
ið varð. Fyrir mánuði lenti söngvari
hljómsveitarinnar, Anthony Kiedis, í
svipuðu slysi en slapp með úlnliðsbrot.
Hljómsveitin hefur frestað öllum tón-
leikum á næstunni.
Morrison handtekinn
Þótt ekki séu liðnir nema tveir mán-
uðir síðan Mark Morrison var látinn
laus úr fangelsi á Bretlandi hefúr hann
aftur komist í kast við lögin. Eins og i
fyrra skiptið er Morrison ákærður fyr-
ir ólöglega vopnaeign og nú lítur út fýr-
ir að kappinn muni aftur lenda á bak
við lás og slá.
Tónleikarnir sem Björk kom hundrað þúsund manns og söfnuð-
fram á í fyrra vora haldnir í San ust um 56 milljónir íslenskra króna.
Francisco og sóttu þá rúmlega -ps
Barbarella til
sölu á netinu
r1
ÍJÁJJLTJ
jIJJJJJJJJj'
C
HJjómsveitin Duran Duran hef-
ur nýlega sent frá sér smáskífuna
Electric Barbarella. Með útgáfu
lagsins hefur útgáfufyrirtæki Dur-
an Duran, Capitol Records, ákveð-
ið aö fara nýjar leiðir en fyrsta
mánuðinn veröur eingöngu hægt
að nálgast og kaupa lagið á Inter-
netinu. Þetta mun í fyrsta skipti
sem smáskífa er seld með þessurn
hætti á netinu. Hægt er að hlaða
niður tveimur útgáfum iagsins og
er verði mjög stillt í hóf.
Margir kannast vafalaust nú
jtegar við lagið Electric Barbarella
enda nokkuð síðan það fór fyrst að
heyrast hér á landi. Það situr nú í
sautjánda sæti íslenska listans.
Titill lagsins, Electric Bar-
barella, er engin tilviljun. Þaö má
segja að með þessum titli séu með-
limir Dm-an Duran sveitarinnar
aö leita í sömu smiöju og þegar
þeir nefndu hljómsveit sína upp- J;
haflega. Hér er að sjálfsögðu átt
við kvikmyndina Barbarella,
Queen of Galaxy, en þar gengm-
eitt af illmennum myndarinnar
undir nafninu Duran Duran. m
Það er tilvaliö fyrfr Duran Dur-
an aðdáendur að heimsækja
Capitol-útgáfufyrirtækið á netinu
og hlýða á lagið þar. Smáskífan er
væntanleg í verslanir eftir mán-
uð.