Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1997, Page 11
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
V
* tónlist
L ; * & *
- standa á eigin vegum án hjálpar frá Bob Dylan
einu fór boltinn aö rúlla.
Wallflowers hafði líka fengið til
liðs við sig reyndan pródúsent, að
nafni T-Bone Burnett, lagasmið og
tónlistarmann, sem kom með góðar
tillögur sem sveitin samþykkti við
gerð plötunnar. Upptökur á plötunni
voru hafnar áður en gítarleikari
hafði verið endanlega tekinn í sveit-
ina og því eru nokkrir gestagítar-
leikarar á plötunni. Gítarleikararnir
Fred Tackett úr Little Feat, Mike
Campbell úr Heartbreakers og Gary
Louris úr Jayhawks setja ákveðinn
svip á sum lög plötunnar enda réðst
það hver kom best út í hverju lagi
þegar hljóðupptökur fóru fram.
Jakob Dylan segir þó að þetta sé
eitthvað sem hljómsveitin vilji ekki
endurtaka enda erfitt að starfa með
gítarleikara sem maður veit ekki
fyrir fram hvernig kemur út.
Jakob sem semur bæði texta og
lög sveitarinnar er eina barn Bobs
Dylans sem haldið hefur út á braut
tónlistarinnar. Hann segir texta sina
koma alls staðar að, líkt og textinn í
6th Avenue Heartache. Dylan bjó
um tíma í New York og í hvert
skipti sem hann fór fram úr rúminu
á morgnana sá hann út um gluggann
náunga einn sitja á tröppum hinum
megin við götuna. Náunginn spilaði
á gítar fyrir vegfarendur og fékk
smáaura fyrir og yfir nóttina lagðist
hann til hvíldar á tröppunum. Einn
daginn var hann horfinn en dótið
hans lá eftir og brátt fóru hinir og
þessir að taka eitthvað af því þar til
allt var horfið. Jakob Dylan fannst
eins og hann sæi sjálfan sig í hnot-
skurn í lífi þessa manns og samdi út
frá því textann við 6th Avenue He-
artache.
Tónlistin
Tónlist Wallflowers er sálartón-
list og ósjálfrátt fer maður að raula
með og hreyfa sig í takt við hana.
Lög eins og One Headlight, 6th
Avenue Heartache, Three Marlenas
og Invisible City bera vitni um frá-
bæran tónlistarmann og hljómsveit.
Ýmsir hafa sagt að raddir þeirra
feðga séu ólíkar en í sumum lögum
er eins og Bob Dylan sé sjálfur kom-
inn, hvort sem röddinni eða tilfinn-
ingunni sé um að kenna. Það er eins
með Van Morrison og Wallflowers,
þegar maður er orðinn áttavilltur í
tónlistinni þarf aðeins að skella
diski með þeim undir geislann og
þú ert einhvern veginn kominn að:
rótum „filingsins" og hefur náð átt-
um að nýju. -ps
söngvari, gítarleikari og lagasmiður
Wallflowers. „Það leit út eins og út-
gáfufyrirtækið væri að reka okkur
og ég var sonur Dylcms. Fólk hlaut
að halda að við værum virkilega lé-
legir!“
Eftir þetta leystist hljómsveitin
nánast upp þvi trommuleikarinn,
bassaleikarinn og gitarleikarinn
fóru að sinna verkefnum á öðrum
vígstöðvum og aðeins hljómborðs-
leikarinn var eftir ásamt Dylan. Þeir
íhuguðu að breyta nafni sveitarinn-
ar en það varð úr að halda nafninu
og halda áfram þar sem frá var horf-
ið frá fyrstu plötunni.
Jakob Dylan hefur ekki farið var-
hluta af frægð fóður síns enda er
erfitt að vera sífellt stimplaður sem
arftaki hins fræga tónlistarmanns.
Þegar fyrsta plata Wallflowers kom
út neitaði Jakob viðtölum við tón-
listarpressuna og
vildi að tónlist sin
gæti staðið á eigin
fótum án viðmiðun-
ar við tónlist Bobs
Dylans. Hann segir
áhrif foður sins
ekki mikil, hann
hafi sem unglingur
hlustað á hljóm-
sveitir eins og
bresku pönksveit-
ina The Clash og
síðar orðið alæta á
tónlist.
Jakob Dylan hefur ekki fariö varhluta af frægö fööur síns
enda er erfitt aö vera sífellt stimplaður sem arftaki hins
fræga tónlistarmanns.
Átoppinn!
í fyrra kom út
platan Bringing
down the Horse sem
skaut sveitinni upp
á toppinn og lagið
6th Avenue He-
artache af plötunni
hefur nánast mettað
útvarpsmarkaðinn
vestra. Platan hefur
þegar selst í þremur
milljónum eintaka.
Hljómsveitin hafði
gert samning við út-
gáfufyrirtækið
Interscope og allt í
Wallílowers
T
ZE
Fyrir fjórum árum var hljómsveit-
in Wallflowers á samningi hjá Virg-
in Records. Útgáfufyrirtækið gerði
lítið sem ekkert fyrir sveitina og eft-
ir að fyrsta plata Wallflowers seldist
í litlu upplagi varð það að samkomu-
lagi hjá báðum aðilum að rifta
samningnum. „í þessari aðstöðu var
mjög erfitt að vera sonur fóður
síns,“ segir Jakob Dylan, hinn 26
ára gamli sonur hins heimsfræga
tónlistarmanns Bobs Dylans og
‘m
«4
ll
e
±
n
4
li|e|l|gli|n
Skítamórali íVestmanna-
eyjum
Hljómsveitin Skítamórall mun spila í
Vestmannaeyjum um helgina. í kvöld
spilar hún á framhaldsskólaballi en á
morgun spilar hljómsveitin i Höfða.
Þetta er í fyrsta sinn síðan um verslun-
armannahelgina sem hljómsveitin spil-
ar í Eyjum.
Björgúlfsson sem leikur líka á tromm-
ur. Einnig er Todmobile- bassaleikar-
inn Eiður Arnarson í hljómsveitinni.
Moon Boots á Gauknum Sóldögg í Stapanum
Skítamórall veröur í Vestmannaeyjum
um helgina.
Hljómsveitin Moon Boots heldur
uppi stuðinu á Gauki á Stöng um helg-
ina. Hún leikur þar bæði föstudags- og
laugardagskvöld.
Á sunnudag mun hins vegar Snigla-
bandið slá á létta strengi á Gauknum.
Fánar á Kaffi Reykjavík
Skemmtikvartettinn Fánar ætlar að
skemmta á Kaffi Reykjavík annað
kvöld. Þrír söngvarar eru nú í hljóm-
sveitinni, Seyðfirðingamir Magnús
Einarsson og Tómas Tómasson, sem
leika einnig á gítar, og Bergsteinn
Hljómsveitin Sóldögg leikur á sjálf-
stæðisballi í Stapanum í Keflavík ann-
að kvöld. Hljómsveitin hefur verið að
gera það gott í sumar og hefur verið að
spila víða um land.
Ruth og Birgir Jóhann
í kvöld og annað kvöld leika Ruth
Reginalds og Birgir Jóhann danstónlist
við allra hæfi á Kaffi Akureyri.
Ultra á Barbró
Hljómsveitin Ultra mun annað kvöld
Ultra veröur á Akranesi annaö kvöld.
spila á Barbró á Akranesi. Að þessu
sinni verður spilað haustrokk með Evr-
óvisjónlögum í bland.