Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1997, Side 12
26
iyndbönd
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MYNDB/HHDA
Murder in Mind
SáHræðitryllir
w
Ung kona, sem er handtekin og sökuð um morð á
eiginmanni sínum, segist ekkert muna. Afbrotasál-
fræðingurinn Dr. Mark Ellis er því fenginn til að-
stoðar. Hann reynir með dáleiðslu að laða fram
minni hennar. Dáleiðslan dregur fram bældar minn-
ingar hennar um illa meðferð eiginmannsins á henni og svo virðist sem
hann hafi ætlað að drepa hana. Eins og í flestum almennilegum sálfræði-
tryllum er sannleikurinn falinn undir mörgum lögum blekkinga. Hér er
um nokkuð flókna sögufléttu að ræða sem á að koma áhorfandanum á
óvart, svo það er best að rekja ekki söguþráðinn of langt. Þessi litla
mynd kemur nokkuð á óvart með því að vera oft ansi spennandi og ekk-
ert ótæpilega vitlaus, þótt fléttcm sjálf sé eðlilega ansi ólíkindaleg. Nigel
Hawthorne er skemmtilega yfirlætislegur í hlutveri sálfræðingsins og
Mary- Louise Parker stendur sig einnig vel. Aðrir leikarar eru af slapp-
ari sortinni.
Leikstjóri: Andrew Morahan. Aðalhlutverk: Nigel Hawthorne, Mary-Lou-
ise Parker, Jason Scott Lee og Jimmy Smits. Bandarísk, 1996. Lengd: 90
mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
SpaceJam
Körfuboltaskrípó
í Space Jam leika teiknimyndapersónur á móti
leikurum af holdi og blóði. Körfuboltasnillingurinn
Michael Jordan fer fyrir mennsku leikurunum, en
einnig koma Wayne Knight og Bill Murray nokkuð
við sögu. Fulltrúar teiknimyndanna eru Looney
Toons gengið með Bugs Bunny í fararbroddi, en í
hlutverki vondu kallanna eru nýjar teiknimyndaper-
sónur - nördarnir. Framundan er afar þýðingarmik-
ill körfuboltaleikur milli nördanna og Looney Toons
gengisins, en ótætis nördarnir stela hæfileikum allra
helstu stjarncmna í NBA-deildinni. Góðu gæjarnir
svara með því að fá Michael Jordan til liðs við sig. Leiklistarhæfileikar
Michaels Jordans virðast í álíka magni og hornaboltahæfileikar hans og
ætti hann heldur að halda sig við körfuboltann þar sem snilligáfa hans
fær að njóta sín. Reyndar er mennska hliðin öll á þessari mynd fremur
slöpp og allir bestu brandararnir koma frá teiknuðu persónunum, sem
gera myndina vel þolanlega. Nördarnir eru ekkert sérstaklega vel
heppnaðir og virka fremur þunnir samanborið við klassískar persónur
Looney Toons gengisins. Böm ættu að hafa gaman af þessari mynd og
fullorðnir hafa sjálfsagt séð margt verra.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Joe Pytka. Aðalhlutverk: Bugs Bunny
og Michael Jordan. Bandarísk, 1996. Lengd: 88 mín. Öllum leyfð. -PJ
Supercop
Ofurlögga
★★★
Jackie Chan hefur verið að ná fótfestu á bandaríska
kvikmyndamarkaðnum, einkum vegna vinsælda
Rumble in the Bronx. Þessari mynd er ætlað að fylgja
þeim vinsældum eftir þangað til hann hefur tíma til að
klára nýja mynd. Supercop er endurannin mynd sem
hann gerði fyrir nokkrum árum í Hong Kong, hét þá
Police Story 3 og var, eins og nafnið gefur til kynna,
framhald af framhaldsmynd. Jackie Chan hefur hér lát-
ið döbba myndina og einnig hefur hann látið einhvem
MTV-gæja gera nýja titla á hana. Þá er hún krydduð
með amerískri rapptónlist sem virkar hálfundarlega í
þessu umhverfi. Jackie Chan leikur löggu í Hong Kong
sem, í samfloti með kínverskri lögreglukonu, laumar sér inn í glæpaklíku
sem verslar með eiturlyf. Leikurinn berst víða, en að lokum kemst upp um
kauða og vondu kallarnir ræna kærustu hans. Það er hins vegar ekki sögu-
þráðurinn, heldur grínið og slagsmálaatriðin, sem bera þessa mynd uppi.
Ofurlöggan Jackie Chan er afar mannleg, gerir fullt af mistökmn og hagar
sér oft bjánalega. Þar með er hann mun viðkunnanlegri hasarhetja en
Hollywood-buffin. Þrátt fyrir ýmsa vankanta er myndin einfaldlega sniðug
og þrælskemmtileg og fær þvi þrjár stjömur.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Stanley Tong. Aðalhlutverk: Jackie Chan og Michelle
Khan. USA/Hong Kong, 1996. Lengd: 93 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
The Phantom *
í fjólubláum nærfötum
Lesendur Tímans sáluga muna margir eftir Skugga og
aðstoðardýrum hans, hestinum Hetju og úlfinum Djöfli.
í kjölfar vinsælda mynda um myndasöguhetjur mundi
einhver Hollywoodari eftir Skugga og hér er hann mætt-
ur á skjáinn. Bijálaði milljónamæringurinn Drax er að
reyna að safna saman Toganda- hauskúpunum þremur
sem eiga að gefa honum yfimáttúrulegan kraft. Skuggi
reynir að stoppa hann. Svo era einhveijir kvenmenn
þama líka, ein góð og ein vond (nema hún er ekkert svo
óskaplega vond í rauninni, hefur bara átt erfitt í uppeld-
inu eða eitthvað blabla). Þetta er fremur aldin mynda-
saga og í upphafi er myndin nokkuð skemmtilega úr takti við kvikmyndahefð
nútímans. Þetta verður hins vegar fljótlega þreytt og það eina sem heldur ein-
hveijum dampi í myndinni er glaðhlakkalegi bófinn Xander Drax, sem Treat
Williams leikur af krafti. Segja má að Billy Zane passi vel í aðalhlutverkið.
Skuggi var aldrei merkileg myndasögupersóna og Billy Zane er heldur ekki
merkilegur leikari. Þessi mynd er eins og hetjan í fjólubláu nærunum - lúða-
leg og leiðinleg.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjórí: Simon Wincer. Aðalhlutverk: Billy Zane
og Treat Williams. Bandarísk, 1996. Lengd: 97 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Myndbandalisti vikunnar
29. jálí til 4. ágúst júlí
FYRRI: VIKUR
j
t rvi i r i nni . vinun i
SIT,j' VIKA á LISTAj
TITILL
1 j j j 1 j j j, j j j 2 j j j Jeny Masuirc j j J Sktfaa J j j Braaa
2 j j j 2 2 j j j Michael J J J SaoHBynlUid j J J Camaa
3 j ' j 4 j J. „ 2 j j Ghost »4 the Dariness j CKhvwOM j SptftHI
lí
Ný
10 j 7
11
12 | 10
13 ] 12
14
15
10
13
17 j 14
1S 1 10
19
20 í Ný
MarsAttaeks
Spaceian
Extreme Measores
Fled
Ransem
MyFellewAmericans
She'stheOne
Hi{h Scheel Hifh
Twe Days ín the Valley
la Leve and War
Shlne
Preacher'sWHe
Setiteff
Murderin Mind
Jerry Maguire er í efsta sæti myndbandalist-
ans. Á myndinni er hinn ungi leikari, Jonathan
Lipnichi, sem leikur lykilhiutverk í myndinni
og sýnir aö margur er knár þótt hann sé smár.
Tvær nýjar myndir koma inn á listann yfir þær
tíu efstu, Space Jam, sem er blanda af teikni-
mynd og leikinni mynd, og spennumyndin
Supercop meö hinum eldfima slagsmála-
meistara Jackie Chan í aöalhlutverki.
Jerry Maguire
Tom Cruise og
Cuba Gooding Jr.
Jeiry (Cruise) starfar
hjá umboðsfyrirtæki og
er sérfræðingur i að búa
til stjömur úr efhilegujn
íþróttamönnum. Einn
dagirrn tekur hann upp á
þvi að fara að efast um
siðgæðið innan fyrirtæk-
isins. Þetta hefur þau
áhrif að hann er rekinn.
Einn skjólstæðinga hans
vill hafa hann áfram. Það
er Ron Tidwell (Gooding)
en hann er annars flokks
raðningskappi. Jerry ein-
setur sér að gera hann að
stjömu eftir heiðarlegum
leiðum og sanna fyrir sér
og öðrum að hann hafl
rétt fyrir sér.
Michael
John Travolta,
Andie McDowell,
John Hurt, Bob
Hoskins og Robert
Pastorelli
Sögusagnir þess efnis
að erkiengiJlinn Michael
sé staddur á bóndabæ í
Iowa-ríki í Bandaríkjun-
um verða til þess að hinn
útbrunni blaðamaður fer
á staðinn til að semja upp-
sláttarfrétt, sama hvort
sönn sé eða login. Hinn
önugi ritstjóri blaðsins
treystir honum þó ekki
betur en svo að hann
sendir englasérfræðing-
inn Dorothy Winters
(McDowell) og annan
álíka misheppnaðan
blaðamann með honum,
ásamt hundinum Sparky
sem. er lukkudýr blaðs-
ins.Á leiðinni eru allir
sannfærðir um að þetta sé
ekkert annað en gabb en
það breytist er þau hitta
Michael (Travolta). Hann
er fiðraður mjög á bakinu
og framleiðir kraftaverk í
bunum ásamt því að
ganga í störf Amors.
The Ghost and
the Darkness
Michael Douglas
og Val Kilmer
Myndin er byggð á at-
burðum sem áttu sér
staö I Austur-Afríku
1896 þegar tvö
mannætuljón ollu usla
þar.
Ljónin í myndinni of-
sækja menn sem vinna
að byggingu brúar inni
í miðju landinu. Þau
vinna saman og hræð-
ast ekkert, auk þess sem
þau virðast drepa sér til
ánægju, ekki til matar.
Veiðimaöurinn Rem-
ington (Douglas) og
verkfræðingurinn Patt-
erson (Kilmer) fá það
verkefni að stöðva dýr-
in.
Mars Attacks! SpaceJam
Jack Nlcholson,
Annette Bening
og Glenn Close
Myndin segir frá því
er geimskip byrja
skyndflega að streýma
tU jarðar frá Mars. Inn-
anborðs eru heldur
ófrýnUegir Marsbúar
sem ómögulegt er að
geta sér tU um hvað eru
aö hugsa. Það verður að
sjálfsögðu uppi fótur og
fit á jörðu mðri þar sem
fólk hefur enga hug-
mynd um hvemig taka
skuli á móti hinum
óvæntu gestum. Herinn
er þó í viðbragðsstöðu
og 1 ljós kemur að fuU
þörf er fyrft hann.
Michael Jordan,
Kalli kanína og
Danny DeVito
Hinn óforskammaði
foringi Njarðanna,
Svakahamar, hefur í
hyggju að ræna Kalla
kanínu og félögum og
Uytja þá í misheppnað-
an skemmtigarð sinn á
FávitafjaUi á Njarðar-
plánetunni. KaUi kan-
ína ákveður að skora
Nirðina á hólm í körfu-
boltaleik enda getur
hann ekki séð að þessar
pínulitlu geimverur eigi
nokkum séns í Geggj-
aða gengið. Nirðirnir
eru ekki aUir þar sem
þeir eru séðir og þótt
KaUi fái tU liðs við sig
sjálfan Michael Jordan
er ómögulegt að segja tU
um úrsiit leiksins.