Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Page 4
4
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997
Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum:
Svæfingalæknirinn
fór fyrirvaralaust
- sjúklingar sendir í aðgerð til Reykjavíkur
\
„Það er rétt, við höfum engan
svæfmgalækni hér nú eins og stað-
an er. Það er afar bagalegt og heftir
okkur ákaflega mikið varðandi allar
aðgerðir," sagði Gunnar K. Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri sjúkra-
hússins í Vestmannaeyjum við DV.
Svæfmgalæknirinn sem starfaði á
sjúkrahúsinu er pólskur. Hann
hafði ráðið sig í eitt ár en fór fyrir-
varalaust fyrir viku. Þá hafði hann
unnið á sjúkrahúsinu um tveggja
mánaða skeið.
„Það kom upp vandamál hér inn-
an húss og af persónulegum ástæð-
um treysti hann sér ekki til að vera
lengur en fór heim til Póllands. Ég
vil ekki fara nánar út í það mál,“
sagði Gunnar.
í kjölfar hins skyndilega brott-
hvarfs svæfingalæknisins hófú for-
ráðamenn sjúkrahússins viðræður
við sjúkrahúsin i Reykjavík, með
tilstuðlan heilbrigðisráðuneytis.
Eru þeir að kanna hvort möguleik-
ar eru á að fá sendan svæfíngalækni
til Vestmannaeyja einu sinni til
tvisvar í viku. Þær viðræður eru á
byrjunarstigi en forráðamenn
sjúkrahússins vonast til að þær beri
árangur innan tíðar.
„Sl. 4-5 ár höfum við verið með
pólska svæfingalækna og þeir hafa
reynst prýðilega," sagði Gunnar.
„Vandamálið með þá er að þeir hafa
ekki íslenskt lækningaleyfi og
starfa þvi á leyfi skurðlæknis, und-
ir hans umsjón og á hans ábyrgð.
En þeir hafa ágæta kunnáttu og
þeim hefur gengið mjög vel.
Ég á ekki von á að okkur takist
að fá íslenska svæfingalækna þótt
við myndum helst viija það því þeir
eru ekki á lausu. Við höfum leitað
fyrir okkur hér heima, á Norður-
löndunum og í Bandaríkjunum. En i
það hefur engan árangur borið '
hingað til.“
Gunnar sagði að ekki væri hægt
að gera neinar aðgerðir á sjúkra-
húsinu sem krefðust svæfinga. Þeir
sjúklingar sem þyrftu á slíkum að-
gerðum að halda væru sendir til
Reykjavíkur.
-JSS
Sá fágæti atburður átti sér stað í Undirfellsrétt í Vatnsdal í Húnaþingi á dög-
unum aö ær kom með jóösótt af fjalli eins og DV hefur greint frá. Myndarleg
gimbur sá skömmu síðar dagsins Ijós við réttarveginn og fékk strax umönn-
um móöurinnar. DV-mynd Þórhallur
Hæstiréttur:
Staðfestir fangelsisdóm
Hæstiréttur hefúr staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um 18
mánaða fangelsi yfir 18 ára pilti.
Hann réðst með hamri á afgreiðslu-
stúlku i sölutumi í Breiðholti í júli
í fyrra.
Pilturinn sló stúlkuna í höfuðið og
handlegginn með hamrinum. Auk
þess stal hann peningum úr af-
greiðslukassa. Héraðsdómur frestaði
fullnustu 15 mánaða af dómnum en
dæmdi piltinn einnig til að borga
stúlkunni 400 þúsund krónur í bætur
og greiða málskostnað. -RR
Héraðsdýralæknir gekk í „tamningarmálið“
Hesturinn leystur
um helgina
Hesturinn var bundinn viö staur langtímum saman. Vegna afskipta dýra-
læknis verður hann leystur nú um helgina. DV-mynd KE
„Ég er búinn að hafa símasam-
band við fólkið á bænum og það
verða gerðar ráðstafanir til þess að
breyta þessari skipan," sagði Grétar
Hrafli Harðarson, héraðsdýralæknir
á Suðurlandi.
DV greindi frá því í vikunni að
hestur hefði verið bundinn við
staur á bænum Syðri-Rauðalæk í
Rangárvallasýslu langtímum sam-
an. Höfðu allmargir haft samband
við blaðið vegna þessa og sagt að
hann hefði verið bundinn svo vik-
um skipti.
Þegar blaðið ræddi við Elsu Júní-
usdóttur, húsfreyju á bænum, sagði
hún að hesturinn væri í tamningu
en fengi hey og vatn og væri teymd-
ur á kvöldin. Mynd, sem birtist með
fréttinni, sýndi glögglega að hestur-
inn haföi verið mikið á rjátli í
kringum staurinn þvi mikið traðk
var umhverfis hann.
I framhaldi af frétt DV hafði Grét-
ar Hrafti Harðarson héraðsdýra-
læknir samband við Syðri-Rauða-
læk og beindi þeim tilmælum til
fólksins að hesturinn yrði leystur
frá staumum. „Það er mismunandi
mat á því hvað telst eðlilegt og hvað
óeðlilegt," sagði Grétar Hrafh, „en
þetta er allt komið í góðan farveg.
Ég hef ekki neina ástæðu til að ætla
annað en að tilmæli mín verði virt.
Þessu verður breytt og aðrar ráð-
stafanir verða gerðar nú mn helg-
ina.“ -JSS
Atvinnuleysi á íslandi:
4.475 voru
án atvinnu
- 236 störf á lausu á sama tíma
Atvinnulausir íslendingar voru
4.475 í ágúst að meðaltali, þaö er ef
mið er tekið af atvinnuleysisdögum.
Skráðir atvinnulausir í lok mánað-
arins voru hins vegar 4.985. Á sama
tíma voru laus störf hjá vinnumiðl-
unum 236. Flestir eru atvinnulausir
á höfuðborgarsvæðinu, eða 3.141, og
fæstir á Vestfjörðum, eða 46. Á
Austurlandi voru 75 atvinnulausir
og þar var 51 starf laust.
Til muna fleiri komu' voru án at-
vinnu í ágúst en karlar. Atvinnu-
lausar konur voru 3.049 en karlarn-
ir voru 1.426. Það sem af er þessu
ári hefur verið veitt 831 atvinnu-
leyfi til útlendinga. í ágúst voru
veitt 150 atvinnuleyfi.
í síðasta mánuði var atvinnuleysi
3,2 prósent sem er minna en í júlí en
þá voru 3,6 prósent án atvinnu. Fyr-
ir ári var atvinnuleysi í ágúst 3,9
prósent.
Hlutfall atvinnulausra skiptist
þannig að 70 prósent þeirra búa á
höfuðborgarsvæðinu, 8 prósent á
Norðurlandi eystra, 6 prósent á Suð-
urlandi, 5 prósent á Norðurlandi
vestra, 4 prósent á Suðumesjum og
á Vesturlandi, 2 prósent á Austur-
landi og eitt prósent á Vestfjörðum.
-sme
3000
2500
2000
1500
1000
500
(331
>o
S
8
>
cn
(0
U>
Fjöldi atvinnulausra
og
í boði
- ágúst 1997 -
(T1 Atvinnulausir |§| Störf í boöi
-a
c
(0
ti>
$
lr 1n 1
0>
••>••
TJ
C
CB
tf>
>»
O
T5
C
CB
«2
i .
4 □
•c «o
s? >■
o
■O
c
CB
tf>
3
<
T3
C
J5
*c
3
«o
3
</>
tf>
0>
c
Wi
—-~3—
iO
3
n
Landsbankinn:
Greiddi lánið
með öðru láni
- og háar fjárhæðir
Víkjandi lán, sem Landsbank-
inn fékk á árinu 1991 frá Trygg-
ingasjóði viðskiptabankanna og
Seðlabanka, hefur verið greitt.
Lánið nam um tveimur milljörð-
um króna. Landsbankinn tók
lán hjá erlendum banka til að
greiöa upp lánið.
„Lánið var á dýrum kjömm
og við höfum endurfjármagnað
það. Kjörin á nýja láninu em
hagstæðari en þau vom á eldra
láninu. Það eldra var verðtryggt
í íslenskum krónum en það nýja
í dollurum meö Liborálagi. Það
er erfitt að nefna eina tölu sem
sparast með þessu en það eru
einhver prósentustig,“ sagði
Haukur Þór Haraldsson hjá
Landsbankanum. -sme
i
\
\
i
\
i
I
i
i