Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 2
16 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 UV kýikmyndir Contact: Skilaboð til jarðarbúa Tólf ár eru frá því stjamfræðingurinn frægi Carl Sagan skrifaði skáldsögu sína, Contact, og varð bókin strax metsölubók enda baðaði Sagan sig á þessum árum í frægð hinnar frábæru sjón- varpsseríu Cosmos þar sem hann útskýrði á mannamáli þá stóru veröld sem umlykur jörð- ina. Strax eftir útkomu bókarinnar fengu kvik- myndaframleiðendur í Hollywood áhuga á að kvikmynda söguna, en ekki varð af því fyrr en þeir hittust Sagan og Robert Zemeckis og urðu sammála um leiðir til að gera myndina. Carl Sagan fylgdi síðan eftir kvikmyndagerðinni þar til hann lést á síðasta ári. Aðalpersónan er Dr. Eleanor Arroway sem alla sína ævi hefur leitað svara. Sem lítil stúlka vakti hún á nóttunni og hlustaði á raddir svara sinni eigin í talstöðvarsambandi. í menntaskóla hóf hún síðan að leita radda utan úr geimnum og dag einn í eyðimörkinni fær hún skilaboð frá stjömunni Vega sem er 26 ljósár frá jörðu. Skila- Heisti mótleikari Jodie Foster f Contact er Matthew McConaughey. Stjörnubíó/Kringlubíó - My Best Friends Wedding •kick í My Best Friend’s Wedding leikur Jul- ia Roberts matargagnrýnandann Julianne Potter, sjálfstæða konu sem ekki er gefin fyrir óþarfa tiifinnmgasemi. Þegar besti vinur hennar og gamall kærasti, Michael O’Neal (Dermot Mulroney), ákveður að gifta sig kemur það þó sem reiðarslag þvi Julianne uppgötvar skyndilega að hún hefur elskað hann árum saman. Hún heldur því í brúðkaupið með það í hyggju að endurheimta kærastann. Þetta reynist henni erfitt því að brúðurin (Cameron Diaz) er nánast fullkomin, fjölskylda hennar óflekkuð af auði sínum og Michael er svo ástfanginn að Julianne verður að grípa til sóðalegri bragða en hún hafði gert ráð fyrir. Ronald Bass er virtur handritshöfundur í Hollywood og hefur meðal annars skrifað handrit- in að myndunum Sleeping With the Enemy, Dangerous Minds og Waiting to Exhale. Ég myndi seint teljast aðdáandi hans og því kom það mér á óvart hversu vel hann nær að spinna saman léttleika og alvöru í My Best Friend’s Wedding. Myndin minnir um margt á klassískan ærsla- leik (slapstick), en margar af bestu gamanmyndum gullaldaráranna tilheyra þeirri grein og nægir að nefna þrjár af myndum Carys Grants, Bringing up Baby (1938), My Favorite Wife (1940) og His Girl Friday (1940). í þeirri síðastnefndu leikur Cary hjónadjöful, sem líkt og Julia Roberts vinnur að því leynt og ljóst að endurheimta gömlu elskuna sína. I aukahlutverkum eru margir ágætir leikarar, s.s. Rachel Griffiths, sem lék vinkonu Muriel í samnefndri brúðkaupsmynd leikstjórans (Arabella í Jude). Bestur er þó Rupert Everett sem leikur vin Julianne. Everett, sem lýsa má sem hæfileikaríkum Hugh Grant, á alla athygli áhorfandans í fyndnustu senum mynd- arinnar og engin furða, hann er frábær leikari. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér feril hans nánar ættu að leigja Dance with a Stranger (1985), The Comfort of Strangers (1990) og The Mad- ness of King George (1994), þar sem hann leikur prinsinn af Wales. Á heildina litið er My Best Friend’s Wedding ágætis afþreying sem hægt er að mæla með, þótt ekki væri nema fyrir margar óborganlegar hliðarsenur. Leikstjóri: P.J. Hogan. Handrit: Ronald Bass. Aðalhlutverk: Julia Roberts, Dermot Mulroney, Cameron Diaz, Rupert Everett, Philip Bosco og Rachel Griffiths. Guðni Elísson . .. ,. . .ÆÉÉS. boðin fela í sér að búa til farar- tæki sem getur flutt mann- eskju út í geim- inn. Þeg- ar fjöl- miðlar taka að ókyrrast vegna þessara skilaboða verður Ellie um- deild og álit- in hættuleg vörnum Bandaríkjanna. Hún þarf að berjast fyrir því að fá að stjórna rannsókn málsins og verða fyrst jarðarbúa til að komast í samband við íbúa reiki- stjömunnar Vega. Það er Jodie Foster sem leik- ur Ellen Arroway, nýstirnið Matthew McConaughey leikur Palmer Joss, sem er ráðgjafi hjá Bandaríkjastjórn, en hann og Ellie höfðu átt í ástarsam- bandi sem endaði þegar Ellie lagði alla áherslu á feril sinn sem visindamaður. Aðrir leikarar í stórum hlutverkum eru James Woods, John Hurt, Tom Skerritt og Angela Bas- sett. Carl Sagan hefur sagt að Contact sé gjöf sín til þeirra sem eru for- Jodie vitnir um veröldina í kringum okkur og tilbúnir til að trúa. Robert Zemeckis hef- ur sínar skoðanir á sögunni: „Contact er um manneskjuna og hvernig viðbrögð hennar eru gagnvart boðum sem eru óskiljanleg flestum. Contact er ekki um geimverur. Hún er fyrst og fremst um okkur sjálf, hvað verður um okkur þegar hin staðfasta trú okkar á okkur sjálf verður fyrir áfalli. Ég hef alltaf haft þá trú að geimferðir nútímans séu fyrst og fremst til að leita svara um okkur sjálf og Contact er gerð í þeim anda.“ Þeir félagar Robert Zem- eckis og Carl Sagan unnu saman að útlínum myndar- innar og hvar mörkin ættu að vera á milli áhuga hins venjulega manns og vísinda- mannsins og segir Zemeckis að hann sem venjulegur áhorfandi og Sagan sem vís- indamaður hafi ekki alltaf lit- ið hlutina sömu augum: „Við áttum góðar stundir saman, ég og Carl,“ segir Zemeckis. „Þegar við fórum að huga að handriti eftir sögunni varði hann vísindin af öllum kröftum og passaði upp á að allt væri rétt með farið á meðan ég var að hugsa um dramtíska athurðarás með það í huga að myndin yrði ekki um of tæknileg, reyndi eins og ég gat að gera vísindin áhugaverð. Hann kom siðan á móts við mig og ein- faldaði flókna hluti sem nauðsyn- legt var að hafa með.“ Til að skapa hina flóknu sviðs- mynd og ná sem mestu út úr tækninni fékk Robert Zemecikis til liös við sig sömu menn og gerðu með honum Forrest Gump. Sviðshönnuðinn Ed Verreaux, kvikmyndatöku- manninn Don Burgess, klipparann Arthur Schmidt, búninga- hönnuðinn Johnston, meistarann Ralston og Joanna brellu- Ken tón- skáldið Alan Silvestri. -HK Foster leikur vísindamanninn dr. Ellie Arroway. Robert Zemeckis Robert Zemeckis er sá leikstjóri sem hefur nýtt sér tæknifram- farir einna best og skynsamlegast. Nægir að benda á tvær mynd- ir, Who Framed Roger Rabbit og Forest Gump, sem dæmi. Þá má ekki gleyma Back to the Future-myndunum sem einnig voru frá- bærlega vel gerðar tæknilega. Zemeckis hefur tekist það sem fáum hefur verið fært, að sameina tækni og kvikmyndalist. Robert Zemeckis er alinn upp í Chicago og hóf að búa til eigin kvikmyndir á 8 mm vél þegar í gagnfræðaskóla. Meðan hann nam kvikmyndafræði í háskóla í Kaliforníu fékk hann verðlaun fyrir kvikmynd sem hét Field of Honor. Steven Spielberg sá þessa mynd og réð hann í vinnu við kvikmyndina 1941 og í framhaldi skrifaði hann handrit og leikstýrði I Wanna Hold Your Hand. Auk þess að leikstýra eigin kvikmyndum hefur Zemeckis ver- ið afkastamikill framleiðandi og unnið jöfnum höndum í sjón- varpi, meðal annars leikstýrt þáttum í sjónvarpsseríunum Amazing Stories og Tales from the Crypt. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Robert Zemeckis hefur leikstýrt: I Wanna Hold Your Hand, 1977 Used Cars, 1980, Romancing the Stone, 1984 Back to the Future, 1985 Who Framed Roger Rabbit, 1988 Back to the Future, Part II, 1989 Back to the Future, Part III, 1990 Death Becomes Her, 1992 Forrest Gump, 1994 Contact, 1997 -HK Terence Malick snýr aftur Á áttunda áratugnum urðu til margar klass- ískar kvikmyndir, áratugur sem byrjaði með því að Robert Altman sendi frá sér MASH og endaði á meistarverki Francis Ford Coppola, Apocalypse Now. Meðal nýrra leikstjóra, sem komu fram á áratugnum og mörkuðu spor í al- heimskvikmyndagerð, var Terence Malick sem sendi frá sér tvær myndir, Badlands, 1973, sem af mörgum er talið eitt sterkasta byrjandaverk sem gert hefur verið, og Days of Heavens, sem sömu viija meina að sé fallegasta litmynd sem gerð hefur verið. Terence Malick, sem var í kjöl- farið hælt sem nýjum Orson Welles, hvarf síðan af sjónarsviðinu. Næsta ár mun marka endurkomu Malick í kvikmyndaheiminn en þessa dagana er hann staddur í Quensland i Ástralíu við leikstjórn á A Thin Red Line. Skrifaði hann sjálfur handrit- ið eftir skáldsögu James Jones. Þetta er engin smámynd heldur epísk stórmynd sem hefur fjárhagsáætlun upp á 50 milljón dollara. Ekki er hægt að kvarta yfir leikaravalinu hjá Malick. í aðalhlutverkum eru John Travolta, Sean Penn og Nick Nolte. Þess má geta að Malick hafði ætl- að John Travolta aðalhlutverkið í Days of Hea- vens á sínum tíma en þegar Travolta fékk sig ekki lausan frá sjónvarpinu fékk Richard Gere hlutverkið. The Thin Red Line fjallar um orrustu sem hófst 9. nóvember 1942 og er ein blóðugustu orr- usta sem háð var á Kyrrhafinu í seinni heims- styrjöldinni. Margir hafa undrast að þegar Malick loks boðaði endurkomu sína skyldi hann ekki vera með frumsamið handrit því vitað var að hann hafði verið að vinna að mörgum hand- ritum; staðreyndin er að hann er mikill aðdá- andi skáldsögunnar og hafði meðfram öðriun verkefnum verið með handritið í smíðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.