Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 4
helgina FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 33"V Au6ur Vésteinsdóttir sýnir ofin myndverk úr ull og hör. Bjarni Tryggva hefur lengi feng- ist við spilamennsku og lagt land undir fót um margra ára skeið til að leika fyrir landsmenn. Bjami er laga- og textahöfundur og notar gít- arinn til að tjá sig. Bjarni verður á Akureyri um helgina og í kvöld og annað kvöld mun hann syngja og tralla fyrir þá sem leggja leið sína á Ráöhúskaffi. Á laugardagskvöldið verður sér- stakur línudans á ferðinni en þá mætir Jóhann Örn línudansmeist- ari og stjómar og kennir fólki hina margfrægu og skemmtilegu 'línu- dansa. Fiöiarinn á þakinu er sígiit verk sem var frumsýnt á Broadway áriö 1964. Bjarni Tryggva ætlar aö skella sér noröur yfir heiöar og skemmta á Ráöhús- kaffi á Akureyri um helgina. Aö sjálfsögöu veröur gítarinn meö í för. Bjarni Tryggva á Ráðhúskaffi Síðasta sýningarhelgi Þorvaldar Nú fer i hönd síðasta sýningar- helgi á verkum Þorvaldar Skúlason- ar í nýjum húsakynnum Gallerí Borgar í Síðumúla 34. Á sýningunni eru 42 verk unnin með olíu-, krítar- og vatnslitum um og rétt eftir 1940. Verkin hafa ekki verið sýnd hér á landi áður. Sýning- unni lýkur á sunnudagjnn en hún er opin um helgina frá kl. 12 18. Verk eftir Þorvald Skúlason. r Það stendur mikið til hjá Sniglun- um um helgina. Á morgun kl. 14 verð- ur haldin svokölluð Enduro-keppni við Litlu kaffistofuna. „Þetta mót er nú haldið öðru sinni en það má segja að það sé liður í und- irbúningi fyrir íslandsmótið á næsta ári. Keppt verður á Enduro-hjólum og er keppnin svipuð og rallí nema hún fer fram á torfæruhjólum. Farin er sérleið sem tekur tæpa klukkustund. Bæði er um hraðan akstur á beinni braut að ræða svo og torfærur. Það verður m.a. farið undir Þjóðveg 1 en á leið þessari er brú sem fáir vita að hægt er að fara undir. Við höfum líka gert áhorfendavæn svæði og er eitt þeirra í gryfjunum uppi í Jósepsdal,“ segir snigillinn Njáll Gunnlaugsson. Um 40 sniglar tóku þátt í keppninni í fyrra og sagðist Njáll búast við því að fjöldinn yrði svipaður í ár. Þess má geta að aðgangur er ókeypis. -gdt Auður Vé- steinsdóttir í Listhúsi 39 Auður Vésteinsdóttir opnar sýn- ingu á ofnum myndverkum úr ull og hör í Listhúsi 39, Hafnarfirði, á morgun kl. 15. Verkin eru unnin á þessu ári. Sýningin ber heitið „tún- ið í sveitinni“ og er viðfangsefnið framhald af einkasýningu hennar í Hafnarborg 1995. Auður hefur unnið i myndvefnaði siðan 1980 og er þetta fimmta einka- sýning hennar. Jafnframt hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningin stendur til 13. október og er Listhúsið opið virka daga kl. 10-18, laugardaga 12-18 og sunnu- daga kl. 14-18. Þaö má búast viö haröri lagt í sölurnar. Þaö skal og spennandi keppni og miklum hraöa í Enduro-keppninni um helgina þar sem allt veröur þó tekið fram að hér aö ofan eru eru á ferð erlendir mótorhjólatöffarar. íslenskir blómadagar - uppskeru- látíð Þessa dagana standa yfir ís- lenskir blómadagar. Blóma- dagarnir eru samvinnuverk- efni framleiðenda, heildsala og blómakaupmanna. Til- gangurinn er að kynna ís- lenska blómaframleiðslu og það sem henni tengist. Risavandatilboð stendur yfir til loka blómadaga eða fram á sunnudag. Vöndurinn kostar 990 krónur. Einnig er boðið upp á pottaplöntur á til- boðsverði í öllum blómaversl- unum. Um næstu helgi, dagana 27. og 28. september, verður hald- in viðamikil rósasýning í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýning- in stendur frá kl. 12-18 bæði laugardag og sunnudag. Skreytingafólk sýnir milli kl. 14 og 16 báða dagana. Fiðlarinn upp á þak á ný Um helgina heQast á ný sýningar í Þjóðleikhúsinu á söngleiknum Fiðlar- anum á þakinu. Fiðlarinn var frum- sýndur í vor sem leið og sýndur fyrir fullu húsi til loka leikársins. Jóhann Sigurðarson fer með hlut- verk mjólkurpóstsins Tevje og Edda Heiðrún Backman leikur eiginkonu hans. Dætur þeirra leika Sigrún Edda Björnsdóttir, Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, ir. Skipt hefur verið um leikendur i tveimur hlutverkum. Atli Rafn Sig- urðarson kemur inn í stað Jóhanns G. Jóhannssonar í hlutverk Fyedka. Atli Rafn útskrifaðist í vor úr Leiklistar- skóla íslands og vakti m.a. athygh fyr- ir leik sinn í Að eilífu hjá Hermóði og Háðvöru. Snorri Wium kemur inn í stað Gylfa Þ. Gíslasonar sem 2. Rússi en Snorri stundaði söngnám í Vín og söng um hríð í Þjóðleikhúskómum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.