Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 #» helgina I9 Söngvari Dubliners Málverkasýning Ignacis Pacas ignacis Pacas, sem er frá Brasiliu, sýnir þessa dagana olíumálverk á mat- stofunni Á næstu grösum. Pacas, sem hefur veriö búsettur hér á landi í fjög- ur ár, er greinilega ýmislegt til lista lagt þvi auk þess aö sinna myndlistinni eldar hann gómsæta rétti á Á næstu grösum. Fræðslu- og umræðu- fundur á vegum SÁÁ SÁÁ efnir til fræðslu- og um- ræðufundar fyrir foreldra ungs fólks í vímuefnavanda í kvöld. Fundurinn hefst kl. 20 og er haidinn á göngudeild SÁÁ, Síðu- múla 3-5. Á fundinum verður rætt um þá meðferð sem ungu fólki i vímuefnavanda er veitt, hvaða hugsun býr að baki henni og hvemig unga fólkið bregst við. Foreldrum er einnig boðið að tjá hug sinn og fá nánari skýringar. Fmmmælendur verða Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi, og Hjalti Bjömsson, dagskrárstjóri göngudeildar SÁÁ. Þórarinn Tyrfingsson er annar frum- mælenda á fræöslufundi SÁÁ. á íslandi Jim McCann, sem var söngv- ari Dubliners i 10 ár, mun spila á írlandi Kringlunni í kvöld og annað kvöld. Jim náði alþjóðlegri frægð með hinni vinsælu írsku hljóm- sveit en hefúr síðan hann hætti með henni verið einn á ferð. Hann hefur stjómað mörgum sjónvarpsþáttum í heimalandi sínu og hvað tónlistina varðar þá sat lag hans „Grace“ á írska vinsældalistanum í 36 vikur. Með McCann í for er írski tón- listarmaðurinn Dennis Murray. Hann hefúr einnig átt topplag á írska vinsældalistanum. Verk eftir Hjört Marteinsson sem ber heitiö Lúöurhöföi. Lágmyndir og þrívíð verk Um 35 unglingar koma fram á tónleikunum. Danskt rokk í Norræna húsinu Á morgun kl. 16 verða tónleik- ar í Norræna húsinu þar sem 35 böm og unglingar frá Kaup- mannahöfn koma fram. Þau koma öll frá Vesterbro Ungdoms- gard. Leikin verða rokklög og tón- list í rólegri kantinum. Þá lesa unglingamir frumsamin ljóð. Hópurinn hefur árum saman unnið við að spila, semja lög, syngja og yrkja ljóð. Oft hafa þau fengið leiðsögn atvinnumanna í listrnn og geta tónleikagestir því átt vona á fjörugum tónleikum með hressum og kátum krökkum. Aðgangur er ókeypis. Á morgun opnar Hjörtur Mart- einsson aðra einkasýningu sína á lágmyndum og þrívíðum verkum í Forsal og Gryfiu Nýlistasafns- ins í Reykjavík. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Undirheim- ar og himinhvel, kallast Hjörtur á við hugmyndir írska einsetu- mannsins Augustine O’Sullivan (1687-1734) er helgaði líf sitt rannsóknum á fuglum og flugi þeirra. Þar skipaði heiðlóan sér- stakan sess en í skrifum O’Sulli- vans tengdi hann flug þessa leir- fugls Drottins á milli íslands og írlands við kristnu hugtökin trú- festu, þjáningu og fóm, svo að til varð einstakur heimur dulmögn- unar og myrkurs sem upplýstur var af voninni um betri og náðar- samlegri heim-öllum verum til handa-aðeins ef þær hefðu þjáðst. í huga O’Sullivans varð ísland að eins konar hreinsunareldi og íverustað þessa heims písla sem farfuglarnir urðu að þola en þján- ing þeirra vitraðist honum í villusýnum eigin vitimdar. unni 4 Allijóölegur matur útbúinn ai (juómundi Þórssyni 054 Úlíari Fi'nnbjörnssyni, okkar færustu matreiöslumeisturum. Tveir af bestu tónlistarmönnum Irlands JIM McCANN (í'yrruni me.öliimir i’lie Du'bliners) " °g DENNIS MURREY „Live” á Írlandí „...Jhn ci ('inn ulbesli lijhiUuxa.yíinx'vari Irlands jrd ujijihaji.” „...\cn 1 son^vuri I hc Dublincrs, kotn Jirn rnc.6 alsfiiMfö&antúiau hljótn í j^joMa^alónlislina. ” „...D cnnis Áíumn c( ánaju cinn vinswUS 11 lónLbilarrnafiur J* -í 'fcíl - á liylandi í dag,” hinkasalir jásl lcigóir fyrir allar ujijrákornur s.s afmœlisvcislur og fyrirlestra. Pantiil 1 síma SHhi 4567 .»27. september (Fimmtudags, föstudags- og laugardagskvöld) Pantið tímanlega!!! Grensásvegi 7 • 108 Reykjavík Símar 553 3311 • 896 2288 Réttur dagsins 590.- til 790.- | Lambasteik 790.- Lambakótilettur 790.- Pönnusteiktur fiskur 590.- Súpa og salatbar 490.- Kaffi og vaffla 300.- Opnum snemma 8-23.30 virka daga og 10.00 til 23.30 um helgar Borðið morgunmatinn hjá okkur Saumaklúbbar ath. sértiiboð á mánud.- og þriðjudagskvöldui vinsamlega pantið tímanlega. 1 L gtg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.