Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997
mhst
25
fór um alla Evrópu, Japan, Ástral-
íu, Nýja-Sjáland auk borga og bæja
í Bandaríkjunum. Sveitin hvíldi
sig síðan á árinu 1990 og naut af-
raksturs erfiðis síns en lögin Pop
Song 89 og Stand hlutu frábærar
viðtökur almennings.
Green var síðan fylgt eftir með
plötunni Out of Time með lögum
sem hægt væri að kalla ástarlög,
eitthvað sem sveitin hafði fyrirliit-
ið á fyrri tímum. Out of Time end-
aði í fyrsta sæti Billboard-listans
og R.E.M. hlaut nokkur Grammy-
verðlaun auk MTV-verðlauna.
R.E.M. var nú á hvers manns vör-
um og lögin Radio Song, Losing
My Religion og Shiny Happy
People náðu víðtækri spilun í út-
varpi og myndbandið við Losing
My Religion er enn talið með þeim
betri sem gerð hafa verið.
Michael Stipe notaði nú tækifær-
ið þegar vinsældir sveitarinnar
stóðu sem hæst og kom á framfæri
við fjölmiðla ýmsum hjartans mál-
um, s.s. dýravemd, vopnaeftirliti
og notkun smokka.
Þegar velgengni Out of Time fór
að linna og það hægðist um hjá
sveitinni var aftur farið í hljóðver
og Automatic for the People tekin
upp. Nafn plötunnar var annars
slagorð skyndibitastaðar nálægt
Athens. Platan var álitin af mörg-
um aðdáendum einhver sú besta
og fallegasta til þessa og bera lögin
Everybody Hurts, Man on the
Moon og Nigtswimming vitni um
það. Það var síðan með næstu
plötu sinni, Monster, sem R.E.M.
hlaut hvað ólíkasta gagnrýni fyrir.
Hljómsveitin hafði ákveðið að gera
rokkplötu og mörgum áhangend-
um fannst það vera hreinustu svik.
Áhrifa gætti nú víða að og dauði
Kurts Cobains hafði sláandi áhrif á
meðlimi sveitarinnar þegar upp-
tökur voru hálfnaðar. Stipe var ná-
inn vinur Cobains og var i stöðugu
sambandi þar til viku fyrir sjálfs-
morðið. Nálægð sorgar og reiði er
á plötunni og lagið Let Me in
skírskotun til innilokaðs hugar-
heims Cobains. Önnur lög plötunn-
ar fjalla um mótmæli einstaklings-
ins við tölvuvæddan nútímann
sem engu eirir.
Veikindi og hliðarverk-
efni
Eftir fimm ára hvild frá tónleika-
ferðalögum tók sveitin að leggja land
undir fót á nýjan leik í janúar 1995.
Ferðalagið var hið versta í sögu
sveitarinnar því allir nema einn
veiktust alvarlega. Þrátt fyrir þessa
örðugleika tókst túrinn með ágætum
og margir frægir tónlistarmenn
heimsóttu R.E.M. á sviðið og tóku
lagið. Eftir að ferðalaginu lauk var
farið með nýtt efni á hljóðver og
meðlimir sveitarinnar fóru einnig að
sinna hliðarverkefnum á tónlistar-
sviðinu sem og öðrum sviðum.
Það var síðan í fyrra sem platan
New Adventures in Hi-Fi kom út en
upptökur fóru fram á meðan á Mon-
ster-tónleikaferðalaginu stóð. Platan
hefur hlotið frábæra dóma en sökum
þess að þetta var síðasta plata samn- '
ingsins við Wamer Brothers var
henni ekki fylgt eftir sem skyldi. Það
kom líka í ljós að hún stóð ekki lengi
við á listum. R.E.M. gerði nú nýver-
ið 80 milljóna dollara samning við
Warner Brothers og náði þeim vafa-
sama titli að vera hæstlaunaða
hljómsveit í heimi.
í tilefni af 100 ára afmæli E.M.I.
voru að koma á markað nú nýverið
nokkrar eldri plötur R.E.M. sem á
eru einnig live upptökur og B-hliðar
á singulum sem komið hafa út með-
fram stóru plötunum. Þetta verður
að teljast áhugavert efni fyrir R.E.M. 1
-aðdáendur.
Næstu plötu R.E.M. er síðan að
vænta annaðhvort mjög seint á
þessu ári eða um vor 1998. -ps
- frábær tónlist úr kvikmyndinni
Nú nýverið
og í kjölfar
myndarinnar
Spawn var gef-
inn út diskur
með lögum úr
myndinni.
Þetta er svo
sem ekki í frá-
sögur færandi
en við nánari
athugun er hér
mn merkan
viðburð að
ræða á sviði
tónlistar í dag.
Allmargar af
þekktustu
sveitum nýrokks, metalrokks og danstón-
listar hafa hér leitt saman hesta sina á þann
máta að tvær hljómsveitir sjá saman um
eitt lag. Og útkoman er rafmögnuð.
Platan byrjar með laginu Trip Like I Do í
flutningi Filter og The Crystal Method og er
með betri lögum sem undirritaður hefur
heyrt í langan tíma. Orbital og Kirk
Hammett eru einnig störgóðar saman i lag-
inu Satan. Metallica og Dr. Spooky eru
kynngimagnaðar og erfitt að greina áhrif
Metallica fyrr en söngurinn fer að hljóma.
Stabbing Westward og Wink sameinar bestu
eiginleika hvorrar sveitar í laginu Torn Ap-
art. Of langt er að telja upp allar sveitirnar
sem hér koma við sögu en nóg væri að
nefna Marilyn Manson, Korn, Mansun,
Prodigy, Atari Teenage Riot, 808 state,
Slayer og Dust Brothers.
Það var Happy Walters hjá Epic records
sem lét þessa hugmynd sína verða að veru-
leika en 1993 kom út svipaður þemadiskur
sem gerður var eftir hans hugmynd við
myndina Judgment Night. Þá komu saman
rokksveitir og rapparar eins og Sayer/Ice T
og Pearl Jam/Cypress Hill. Spawn er stór-
góð plata fyrir rokk-, metal og danstónlist-
anmnendur og reyndar fyrir alla sem áhuga
hafa á góðri og kraftmikilli tónlist.
-ps
Trip Like I Do í flutningi Filter og The Crystal Method er með betri lögum sem undirritaður hefur
heyrt í langan tíma.
~1
Y1
hel
Hunang á Kaffi Amsterdam
Hljómsveitin Hunang skemmtir gest-
um á Kaffi Amsterdam í kvöld og annað
kvöld.
Prinsessan á Hótel íslandi
Annað kvöld verður gleðisöngleikur-
inn Prinsessan fluttur á Hótel íslandi.
Það er leikhópur Regínu og Sniglabands-
ins sem sér um flutninginn. Að lokinni
sýningu verður stórdansleikur með SS-
SÓL til kl. 3.00.
8-villt á ferð um landið
Hljómsveitin 8-villt er á ferð um land-
ið þessa dagana. í kvöld spilar hljóm-
sveitin fyrir Selfyssinga í Gjánni og ann-
að kvöld verður hún á Ólafsfirði, á upp-
skeruhátíð knattspymunnar þar á bæ.
Hljómsveit þessa skipa söngkonurnar
Regína, Bryndís, Kata og Lóa Björk og
strákamir Ámi Óla á bassa, Andri á
trommur, Sveinn á gítar og Daði á hljóm-
borð.
\
iln
Hljómsveitin 8-villt spilar á Selfossi og
Ólafsfiröi um helgina.
Buttercup á Gauknum
í kvöld og annað kvöld sér hljómsveit-
in Buttercup um glaðværa og létta
stemningu á Gauki á Stöng.
Birgir Gunnlaugs í Dans-
húsinu
í kvöld og annað kvöld verður hljóm-
sveit Birgis Gunnlaugssonar með
stórdansleiki á Danshúsinu í Glæsibæ.
Hljómsveitina skipa Birgir sjálfur, sem
syngur og spilar á gítar, Finnbogi Kjart-
ansson á bassa, Baldur Þórir Guðmunds-
son á hljómborð og Gunnar Jónsson á
trommur.
Ríó og vinir á Sögu
Ríó og vinir spila á Hótel Sögu annað
Ríó og vinir spila á Hótel Sögu ann-
að kvöld.
kvöld og einnig laugardagskvöldið 4.
október. í síðasta Fjörkálfi var ranglega
sagt frá því að Ríó ætlaði að spila þar um
síðustu helgi. Svo reyndist ekki vera.
Beðist er velvirðingar á þessum mistök-
um.