Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Blaðsíða 12
'» myndbönd
.
t
♦
i
>
>
MYNDBAHDA
±m\\
o w \
Jjí
L'appat
Veruleikafirring
Myndin íjallar um þrjú frönsk ungmenni -
Nathalie, kærasta hennar og vin þeirra. Nathalie
notar fegurð sína til að kynnast vel stæðum mönn-
mn með sambönd, sem hugsanlega gætu komið
henni á framfæri, en kærasta hennar dreymir um að
komast til Bandaríkjanna, fyrirheitna landsins, þar
sem hann ætlar að stofna verslanakeðju. Til þess
þarf fjármagn og þau leggja því á ráðin um að ræna
einhverja af hinum ríku kunningjum Nathalie en gera sér enga grein
fyrir afleiðingum gjörða sinna. Öll þrjú eru veruleikafirrt draumórafólk
sem sækir sina visku í sjónvarp og kvikmyndir og hefur ekki sjálfsaga
til að vinna fyrir draumum sínum. Frábær lokasena kemur einmitt
þessari firringu vel til skila. Mikið er vísað í myndina Scarface og m.a.
spilað stefið úr henni til að leggja áherslu á hvernig þau sogast niður í
atburðarás sem þau ráða ekki við. Hlutverk ungmennanna eru mjög vel
skipuð og sérstaklega sýnir Marie Gillain stórleik í hlutverki Nathalie.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Bertrand Tavernier. Aðalhlutverk: Marie
Gillain, Olivier Sitruk og Bruno Putzulu. Frönsk, 1994. Lengd: 113 mín.
Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Box of Moonlight
Að finna barnið í sér ★★★
A1 Fountain er leiðindagaur sem lifír leiðindalífi.
Dag nokkurn tekur hann eftir fyrsta gráa hárinu
sínu og undarlegir hlutir fara að gerast í kringum
hann. Hann ákveður að taka sér nokkurra daga frí
og ekur af stað í leit að afskekktum skemmtigarði
sem hann kom í á bamsaldri. Á leið sinni hittir
hann ungan mann sem er algjör andstæða hans -
óagaður og óábyrgur stráklingur sem kemur honum
í alls kyns vandræði en þrátt fyrir að hafa megnustu
skömm á honum í fyrstu fer svo að A1 eyðir
nokknun dögum með honum. Þetta er ein af þessum
myndum sem sameinar svo vel að vera bæði mannleg og skemmtileg. A1
Fountain og stráklmgurinn em gerólíkar persónur en báðar áhugaverð-
ar á sinn hátt. John Turturro og Sam Rockwell fara vel með hlutverk
þeirra og sérstaklega er John Turturro alveg hreint yndislegur leiðinda-
púki. Það er mikið af táknum og duldum meiningum i myndinni til að
brjóta heilann um en fyrst og fremst er hún bara skemmtileg. Leikstjór-
inn Tom DiCillo er greinilega einhver sem vert er að fylgjast með en
hann gerði m.a. hina frábæm Johnny Suede þar sem Brad Pitt fór á
kostum í sínu fyrsta aðalhlutverki.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Tom DiCillo. Aöalhlutverk: John Turturro
og Sam Rockwell. Bandarísk, 1996. Lengd: 107 mín. Bönnuð innan 12 ára.
-PJ
Shanghai Triad
★★ Kínversk glæpaklíka
Zhang Yimou er þekktasti leikstjóri Kína um þess-
ar mundir og gerði meðal annars Rauða lampann.
Hérna tekur hann sér til fyrirmyndar amerískar
myndir um gangstera bannáranna og heimfærir upp
á Kína. Sveitastrákur kemur til Shanghai þar sem
frændi hans er meðlimur í Tang-bófaflokknum. Hon-
um er gert að þjóna hjákonu foringjans og í þjónustu
sinni verður hann vitni að miklum svikráðum. Hjá-
konan er fordekruð og yfirborðskennd en hann
kemst þó um síðir að því að það er meira í hana
spunnið og hún er eftir allt saman hálfgerð utan-
garðsmanneskja í þessum félagsskap, eins og hann.
Þetta er fremur einföld saga um grimm örlög og máttleysi hinna minni
máttar gagnvart yfirgangi hinna sterku. Það sem gerir myndina nokk-
uð athyglisverða er sú staðreynd að hún gerist í Shanghai á fjórða ára-
tugnum og býður þar með upp á óvanalegt sögusvið. Erfitt er að segja
til um frammistöðu leikara sem tala óskiljanlegt tungumál, þannig að
ég læt hana liggja milli hluta, en söngrödd Gong Li fór í taugarnar á
mér.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Zhang Yimou. Aðalhlutverk: Gong Li
og Li Baotiun. Kínversk, 1995. Lengd: 112 mín. Bönnuð innan 16 ára.
PERiy^
Shnnqhiii oenpið
Gorky Park
Morðrannsókn í Moskvu ★★★
-pj
1 WII.i l/VMIIUKi I.KL MARVIN
GORKYPARK
£.1 f*,. ,«■
WiUiam Hurt leikur rússneska rannsóknarlög-
reglumanninn Arkady Renko. Þrjú andlitslaus lík
finnast í Gorky-garðinum í Moskvu og hann fær mál-
ið til rannsóknar. Honum þykir KGB hafa óeðlilega
mikinn áhuga á málinu og ennfremur virðist sem
bandarískur viðskiptajöfur sé jafhvel eitthvað viðrið-
inn morðin. Annars er best að segja sem minnst um
söguþráðinn þvi þessi 14 ára gamla mynd er sann-
kölluð spennumynd af gamla skólanum þar sem
áhorfendur eru mataðir smám saman á sögufléttunni
og uppbygging spennunnar snýst um að áhorfandinn
viti ekki of mikið á hverjum tíma. Myndin byrjar á
áhugaverðri ráðgátu sem skapar dularfullt andrúmsloft og siðan er
smátt og smátt flett ofan af ráðgátunni. Annarlegt sögusviðið, þ.e.
Moskva á tímum kalda stríðsins, hjálpar til við að gera myndina dular-
fyllri og aðalsöguhetjan er óvanaleg og skemmtileg persóna, mjög vel
túlkuð af William Hurt. Atburðarásin er kannski svolítið hæggeng
stundum en það fyrirgefst auðveldlega þegar efniviðurinn er jafngóður
og hér.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Michael Apted. Aðalhlutverk: William
Hurt, Lee Marvin, Joanna Pacula og Brian Dennehy. Bandarísk, 1983.
Lengd: 123 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997 TTl'Vy
29. júlí til 4. áfúst júlí
j
SÆTI ;
1
FYRRI
VIKA
VIKUR
k Ll
TITILL
Skfíaa
Skffa
l
J
j
J
J
J
J
J
J
J
I
Ghost aod tfae Dirioess í eic-ayaouaé j Stwu
j
j
j
j
j
j
j
Metro
Romoo + Juliet
Jcny Mafulro
Miehael
Saporcop
Extromo Moasoros
Blood aod Wine
MarsAttacks
SpacoJam
Phaatom
Skffta
Skffaa
MyndfinB j
j
m______n_ J
j WaMT HjNr j
J J
J Wmrijidr )
) J
j CK-iyiAM j
J j j j j
12 i 13 1 19 J J 4 i « 1 MyFcdcwAmricais j WanMrayiWr j Caaa
15 i SheitheOnt i Skffaa i Caau
Thianor
Fled
Hijh School Hifh
Ransom
DayUfht
Chorokeo KM
InLovoandWar
Wmrayadr J Spiau
Skffaa
Kwtift
Hyadfma
Nánast engar breytingar eru á efstu sætum mynd-
bandalistans þessa vikuna. Þaö helsta er aö Romeo
+ Julia vinnur sig upp um þrjú sæti, fer í annað sæt-
ið en nær ekki að skáka Eddie Murphy í efsta sæt-
inu. Efsta nýja myndin er Blood and Wine sem er í
áttunda sæti. í henni leikur Jack Nicholson vínkaup-
mann sem er á barmi gjaldþrosts og tekur því til-
boöi félaga síns, sem Michale Caine leikur, um að
taka þátt í innbroti og stela dýrmætri hálsfesti. Inn-
brotið tekst en eftirleikurinn er ekki eins og þeir fé-
lagar ráögerðu. Vert er að minnast á My Fellow
Americans meö þeim Jack Lemmon, Dan Aykroyd
og James Garner í aðalhlutverkum. Þetta er gaman-
mynd um tvo forseta Bandaríkjanna sem snúa bök-
um saman gegn núvernadi forseta.
Metro
Eddie Murphy og
Michael Rapport
Samningamaður-
inn sjálfumglaði,
Scott Ropert, hefur
gert það að sérgrein
sinni að semja við
ræningja og gísla-
tökumenn. Fram til
þessa hefur gengið
nokkuð vel hjá
Scott. En hæfileikar
og tungulipurð
nægja ekki til að
koma honum út úr
þeim vandræðum
þegar geðveikur
morðingi tekur
unnustu Scotts í
gíslingu. Við þenn-
an mann er ekkert
hægt að tala' og
Scott verður að
grípa til annarra
ráða.
Romeo + Juliet
Claire Danes og Le-
onardo DiCaprio.
1 Verona Beach
gnæfa tveir skýja-
kljúfar ofar öllum
húsum. Þessi stór-
hýsi tilheyra tveim-
ur fjölskyldum og
þær hafa um árabil
eldað grátt siifur og
hafa þau átök leitt til
þess að yngra fólkið í
fjölskyldunni hefur
stofnað gengi til að
herja hvert á annað.
í viðleitni sinni til að
stilla til friðar hefur
verið ákveðið að
halda grímubcill þar
sem fjölskyldumar
koma saman. í þess-
ari veislu hittir hinn
ungi Romeo hina
heillandi Júlíu.
Jerry Maguire
Tom Cruise og
Cuba Gooding Jr.
Jerry (Cruise)
starfar hjá umboðs-
fyrirtæki og er sér-
fræðingur í að búa
til stjömur úr efni-
legum íþróttamönn-
um. Einn daginn tek-
ur hann upp á því að
fara að efast um sið-
gæðið innan fyrir-
tækisins. Þetta hefur
þau áhrif að hann er
rekinn. Einn skjól-
stæðinga hans, mðn-
ingskappi, viil hafa
hann áfram. Jerry
ákveður að gera
hann að stjömu og
sanna fyrir sér og
öðrum að hann hafi
rétt fyrir sér.
Michael
John Travolta,
Andie McDowell og
John Hurt.
Sögusagnir þess
efnis að erkiengill-
inn Michael sé stadd-
ur á bóndabæ í Iowa-
ríki í Bandaríkj-
unum verða til þess
að blaðamaður, en-
glasérfræðingur og
hundur fara á stað-
inn til að semja upp-
sláttarfrétt. Á leið-
inni era aílir sann-
færðir um að þetta sé
ekkert annað en
gaþþ en það breytist
er þau hitta Michael
(Travolta). Hann er
fiðraður mjög á bak-
inu og framleiðir
kraftaverk í bunum
ásamt því að ganga í
störf Amors.
The Ghost and
the Darkness
Michael Douglas og
Val Kilmer.
Myndin er þyggð á
atburöum sem áttu
sér stað í Austur-Afr-
iku 1896 þegar tvö
mannætuljón oUu
usla þar. Ljónin í
myndinni ofsækja
menn sem vinna að
byggingu brúar inni
í miðju landinu.
Veiðimaðurinn Rem-
ington og verkfræð-
ingurinn Patterson
fá það verkefni að
stöðva dýrin. Þeir
eiga þó fljótlega eftir
að komast að því að
ljónin virðast búa
yflr einhverju æðra
skilningarviti sem
gerir þeim kleift að
forðast allar gildrur.