Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 Rómantískir * ^ Rómantík er margslungið hugtak og menn ekki á einu máli um hvernig beri að skilgreina það. Tilveran hitti að máli þrjá karlmenn og lékforvitni á að vita hvað róman- tík merkir í huga þeirra og hvernig þeir upplifa hana. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur: Kynhvötin - hreyfiafl mmantískrar ástar karlmenn í vor kom út bókin Menntun, ást og sorg eftir Sigurð Gylfa Magnússon sagnfræðing. Þar er líf 19. aldar manna skoðað í ljósi persónulegra heimilda með aðferðum einsögunnar. Meðal annars er komið inn á ást og rómantík. „Á 19. öldinni er gjarnan talað um tvenns konar nálgun á rómantík. Ann- ars vegar að hún sé í sama farvegi og við þekkjum, sem sagt sterk tilfinn- ingaleg tenging tveggja einstaklinga. Hins vegar hefur verið bent á að róm- antíkin hafi verið mjög sterklega bundin efnahag. Menn hafi ekki leyft sér að nálgast rómantíska ást fyrr en að uppfylltum ákveðnum efnahagsleg- um skilyrðum," segir Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur. í bókinni Menntun, ást og sorg velt- ir Sigurður Gylfi því fyrir sér hversu mikið foreldrar hafi haft hönd í bagga með makavalinu. Ljóst er að í efri stéttunum höfðu þeir mikið um það að segja. Eftir því sem neðar dró i þjóðfé- lagsstiganum þurfti minna að hugsa um gott makaval því lítið var til skipt- anna. Alþýðan virðist þó sjálf hafa sett á sig ákveðnar hömlur. Hún gerði sér grein fyrir því að ef hún ætlaði að koma ár sinni vel fyrir borð varð hún að hemja ástina. „Með öðrum orðum held ég að hin rómantíska ást hafi ver- ið mjög skilyrt á 19. öld.“ Sigurður Gylfi segir kynhvötina vera hreyfiafl hinnar rómantísku ást- ar. „Á 19. öldinni voru greinilegar hömlur á henni og stór hluti fólks var kynferðislega óvirkur fram undir þrí- tugt áður en hann fékk að gifta sig. Það gerir 19. öldina svo áhugaverða í þessu tilliti." En hvemig er nútímaástin? Er hún hömlulaus? Er það ekki bara ímynd Ásgelr Kolbeinsson dagskrárgerðarmaður: Nœring kœrleikans Rómantískir tónar hljóma á öldum ljósvakans á sunnu- dagskvöldum milli klukkan 22 og 1 á Bylgjunni. Sá sem þá situr við hljóðnemann er dag- skrárgerðarmaðurinn Ásgeir Kolbeinsson. Hann lítur á rómantíkina sem næringu kærleikans. „Kærleikurinn getur ekki lifað og dafnað nema að fá næringu. Þessi næring er rómantíkin. Þess vegna er rómantík ekki væm- in heldur aðeins mjög heil- brigð þörf fyrir að viðhalda kærleika," segir Ásgeir. Að mati Ásgeirs skiptir rómantíkin öllu máli. Hann stórefast um að nokkur maður geti lifað án þess að hafa svolitla rómantík innra með sér. Rómantíkin sé hluti mann- legra tilfinninga sem kvikni við vissar kringumstæður. „Ailir eiga sér einhverja róman- tíska drauma og minningar. Þeir sem eiga fáar rómantískar minning- ar og hafa sjaldan upplifað virkilega rómantík geta jafnvel verið enn rómantískari en hinir vegna þess að þeir geta látið sig dreyma róman- tíska drauma og þróað þá í huga sér áður en þeir rætast. Alltaf er eitt- hvað sem kveikir í manni róman- tískar kenndir, hvort sem maður er harður nagli eða venjulegur, tilfinn- ingasamur einstaklingur." Ásgeir segir fólk alltaf vera að leita að ást og virðingu. Rómantísk- ar kvikmyndir snerti óneitanlega ákveðnar taugar. „Það eru allt of margir, og þá fyrst og fremst karl- menn, sem vilja alls ekki viður- kenna að þeim hafi þótt kvikmynd Kolbeinsson dagskrárgeröarmaö- sorgleg og að hún hafi haft tilfinn- ingaleg áhrif á þá. Það er töff! Reyndin er sú að sá sem getur ekki sýnt tilfinningar á bágt. Það er mannlegt að finna til með fólki og þykja kvikmyndir þar af leiðandi sorglegar. Margir áttu bágt með að hemja sig á kvikmyndum eins og Sleepless in Seattle og When a Man Loves a Woman." Sjálfur kveðst Ásgeir rómantískur og segir að þeir sem hlusti á hann á Bylgjunni á sunnudagskvöldum kynnist í raun hans innri manni. „Ég lít kannski ekki út fyrir að vera þessi rómantíska týpa. Það kemur fólki, sem hittir mig úti á götu, jafn- vel á óvart að ég skuli vera þessi „rómantíski í útvarpinu," eins og ég læt stundum. Þetta er allt spurning um tíma og rúm. Þegar ég er búinn að dempa hjá mér ljósin og velja flotta rómantíska tónlist líður mér afskaplega vel og læt það hljóma út til hlustenda." -VÁ Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur. DV-mynd S kvikmyndanna? „Rómantísk ást er taumlaus tilfinning til annarrar per- sónu, óháð öllum ytri aðstæðum. Draga má í efa að hún sé raunveru- lega til. Rómantík er í einhverjum skilningi ímyndun. Bókmenntir, kvik- myndir og tónlist geta ýtt undir slíka hugaróra. Við lifum að nokkru leyti í ímynduðum heimi en á 19. öldinni var það miklu fremur blákaldur raun- veruleikinn sem blasti við.“ Sigurður Gylfi telur sig hiklaust vera rómantískan. „Ég upplifi róm- antík þó ekki endilega i konfektmol- um og kertaljósi heldur miklu fremur í samkennd með annarri persónu. Þegar ég næ að tengjast henni andlega og líkamlega, til dæmis með upplestri úr Alþingistíðindum!" -VÁ Ástarfrekja og girnd „Ingibjörg vann að útiverkum hjá Rakel á Brekku um vorið og svaf þá í hærri bænum. En er ég kom heim á helgum svaf ég í rúmi Ingibjargar en hún þá í öðru rúmi. Er mér minnisstætt hvern- ig hún lét þá vilja komast í rúm tU mín. Var það eitt sinn að hún klagaöi mig í áheym alls heimUis- fólksins á Brekku og kvað mig vera „líðilegan" að vilja ekki lofa sér að sofa hjá mér og njóta blíðu minnar, sem væri sitt „mesta yndi“. Var mér órótt innanbrjóst er Ingibjörg var að tala um þetta, mænandi upp á mig við rekk- justokkinn er ég var að afklæða mig. HryUti mig ærið við að sofa hjá Ingibjörgu, sökum hennar voðalegu veiki, slagaveikinnar. Auk þess var hún ófríð ákaflega, andfúl og leiðinleg og var það merkilegt, að mér fannst hún aldrei leiðinlegri en þegar hún hló. í stað þess að aðrir menn verða engilfagrir ásýndum, sýnist mér Ingibjörg verða djöfuUega ljót. Mikla sálarþraut og bölvun get- ur ástarfrekja og girnd eins kven- manns gert að verkum. Seinni hluta þessa dags bjó ég rúm handa mér, vUdi ég framvegis njóta ánægju þeirrar, að sofa einn.“ Þessi hundrað ára gamla frá- sögn er dæmi um óróman- tíska gimd. Hún er úr dagbók Magnúsar Hj. Magnússonar (f. 1873), sem var fátækur lausamaður. Frásögnin birt- ist 1 bók Sigurðar Gylfa Magnússonar, Menntun, ást og sorg. Sveinn Yngvi Egilsson bókmenntafræðingur: Þjóðernisrómantíkin enn aö verki í huga Sveins Yngva EgUssonar bókmenntafræðings er rómantíkin fyrst og fremst nafn á ákveðnu menn- ingarfyrirbæri á 19. öld. „Ég á við bók- mennta- og listastefnuna sem köUuð er rómantík. Þetta er heiUandi tímabU í bókmenntum heimsins, ekki síst í bókmenntum Norður-Evrópu og ís- lands, sem ég þekki best tU,“ segir Sveinn Yngvi. Hugtakið rómantík er reyndar ekki vandræðalaust í þessu samhengi. Fræðimönnum hefur ekki gengið sem best að skUgreina það í eitt skipti fyr- ir öU. „Þó þykjast þeir sjá sameiginleg einkenni á bókmenntum ólíkra landa á þessu tímaskeiði sem meðal annars lýsir sér í upphafningu á hinu ein- staka, skáldsins sjálfs. Því fylgir líka meiri krafa um frumleika en áður. Skáldskapurinn á að tjá emstaka upp- lifun enda er hugmyndin um skáldið sem sniUing eða séní til orðin á þess- um tíma.“ Rómantíkin er sem sagt mikil ein- staklingshyggja. „Þó má ekki gleyma því að rómantísk skáld höfðu yfirleitt mikinn áhuga á náttúrunni. Kvæði þeirra bera vott um sterkan samhljóm manns og umhverfis. Náttúran er jafn- vel dýrkuð eins og guð.“ Sveinn Yngvi segir marga hafa að- hyllst eins konar lífheildarhyggju og álitið aUa skapaða hluti eina lifandi heild, „mann og náttúru aUt hvað er“, Þetta hafi auðvitað myndað mótvægi við aUa einstaklingshyggjuna. „Náttúru- og lífheildarhyggja róm- antikurinnar á auðvitað brýnt erindi við okkur sem nú lifum. Pólitískar áherslur rómantíkurinnar eru „græn- ar“, eins og það heitir víst í þjóðmála- umræðunni. En það er annað ein- kenni á rómantíkinni sem birtist skýrt hér á landi og í Norður-Evrópu á 19. öld. Það er hin svokaUaða þjóð- ernisrómantík. Fjölnismenn og fleiri voru mjög hrifnir af íslenskri fornöld og tóku hana að mörgu leyti sér til fyrirmyndar. Þeir vildu endurreisa Alþingi eins og það hafði verið að fomu og dustuðu rykið af menningar- arfi miðalda. Um leið er þetta ættjarð- arrómantík. Fjölnismenn reyndu að opna augu íslendinga fyrir fegurð landsins sem þeir byggja. íslenskt landslag og menningararfurinn renna í eitt í skrifum þeirra." Þjóðernisróman- tíkin hefur lifað góðu lifi langt fram eftir þess- ari öld og það er fyrst á sið- ustu áratug- um sem menn eru farnir að skoða hana gagnrýnum augum. „Svo er auðvitað um hina róman- tíkina að ræða - þá rómantík sem maður sér í kvikmyndum og kaffiaug- lýsingum. Hugguleg, ástleitin og stemningsfull rómantík, lýst með kertaljósum. Sjálfur er ég nokkuð rómantískur maður í kertaljósaskiln- ingnum en mér finnst gamla róman- tíkin bara enn meira spennandi. Ekki síst þjóðernisróman- tíkin, sem ég held að sé enn að verki í okkur íslendingum." -VÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.