Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Blaðsíða 36
iFRÉTTASKOTIÐ
Hsimimn sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá T síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sóiarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
Óveðrið í gær:
Þotan fauk
Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflug-
velli unnu í allan gærdag við að
koma þotunni upp úr moldarflaginu
og inn á akstursbraut á ný. Potan er
í eigu kanadíska hersins.
DV-mynd Ægir Már
DV, Suðurnesjum:
„Rokið var svo rosalegt á hlið að
vélin snérist og fór út af akbrautinni
( og út í möl. Flugstjórinn gaf vélinni í
botn vegna þess að hjólin sukku niður
og hann náði að rífa vélina áfram en
krafturinn var það mikill þegar hann
sveigði inn á brautina, að vélin fór á
fleygiferð og endaði hinum megin og
festist," sagði Haraldur Stefánsson,
slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli,
en rétt fyrir klukkan átta í gærmorg-
un fauk lítil þota frá kanadíska hern-
um út af á Keflavíkurflugvelli. Vélin
var á leið inn á flughlað hjá varnarlið-
inu. 5 manna áhöfn var i vélinni en þá
sakaði ekki. Þotan var á leið til Bos-
** níu. Að sögn sjónarvotta lyftist þotan
tvívegis upp áður en vindhviða feykti
henni út af brautinni. Á flugbrautinni
má sjá svartar rákir eftir hjól þotunn-
ar. Hvassviðri, 10-11 Vindstig, var á
Keflavíkurflugvelli þegar atvikið átti
sér stað. Slökkviliðsmenn náðu þot-
unni upp úr moldarflaginu á fimmta
tímanum i gærdag. Þotan er lítið
skemmd en hjólabúnaður hennar
verður skoðaður vandlega ásamt því
að yfirfara hana alla. -ÆMK
Hvirfilbylur
feykti bátun-
um um koll
Öflugur hvirfilbylur feykti fimm
smábátum um koll við smábáta-
höfnina nærri Slippstöðinni á Akur-
eyri um miðjan dag í gær. Bátamir
voru allir uppi á landi en einn
þeirra hafnaði í höfninni þegar
hann fauk.
Hvirfilbylurinn myndaðist nærri
smábátahöfninni og hreinlega tók
bátana og skellti þeim um koll. Um
er að ræða trillur sem teknar höfðu
verið upp á land og einn nokkuð
voldugan hraðbát sem hafnaði á
hvolfi. Einn hinna bátanna lenti á
öðrum og má reikna með að heildar-
tjón vegna þessa nemi milljónum
u króna þar sem einn bátanna er talinn
ónýtur og hinir mikið skemmdir.
■gk
L O K I
Ung hjón með þrjú lítil börn sluppu úr eldsvoða á Stokkseyri í nótt:
Á náttfötunum
út úr eldinum
- örvænting, segir faðirinn sem bar son sinn út úr brennandi húsinu
Eldurinn gaus upp
„Við fengum tilkynningu korter
fyrir eitt í nótt. Við komum tveir
strax á staðinn og skömmu síðar
kom slökkviliðið á Selfossi á þrem-
ur bílum. Fólkið var þá allt komið
út. Það gaus upp eldur á takmörk-
uðu svæði en mikill reykur var um
allt húsið og mikill hiti. Slökkvi-
starf gekk vel en húsið er mjög mik-
ið skemmt. Þetta var gamalt hús úr
blönduðum byggingarefhum. Eldur-
inn kom upp í stofunni og grunur
leikur á að hann hafi kviknað út frá
sjónvarpinu," segir Birkir Péturs-
son, slökkviliðsmaður á Stokkseyri.
-RR
„Við hjónin vöknuðum skyndi-
lega við aðvörunarhljóð í reyk-
skynjaranum. Við stukkum á fætur
og konan mín fór með tvö yngstu
börnin út. Ég fór inní herbergi sonar
míns og hugsaði um það eitt að ná
honum út. Það var mikill reykur og
hiti í íbúðinni. Drengurinn steinsvaf
og ég varð að bera hann út úr
brennandi húsinu. Þegar við vorum
nýkomin út gaus eldurinn upp í
húsinu. Þetta var mikil örvænting.
Það munaði svo litlu en guði sé lof
komumst við öll heO á húfi út úr
húsi,“ sagði Amar Guðlaugsson,
sem bjargaðist ásamt konu sinni og
þremur ungum börnum úr eldsvoða
á Stokkseyri í nótt.
Krístín Sigmðardóttir, nágranni
fjölskyldunnar, kom fyrst á
vettvang.
„Ég var stödd í eldhúsinu. Það
var ró og kyrrð en allt í einu heyrði
ég einhver læti fyrir utan. Ég hljóp
út og þá sá ég að nágrannahúsið var
að brenna. Fólkið var að koma út úr
reyknum á náttfötunum og sem bet-
ur fer voru þau öll heil á húfi. Þau
rétt komust út úr brennandi húsinu
því örstuttu síðar gaus eldurinn upp
og rúða í stofunni sprakk vegna hit-
ans. Þau voru auðvitað í miklu
sjokki en við hlúðum að þeim eins
og við gátum,“ sagði Kristín.
Hjónin vöknuðu við reykskynjara
sem var ofan á ísskáp í eldhúsinu.
Húsið Gerðar sem brann í nótt.
Eldurinn var þá í stofunni en reyk-
ur var kominn um alla íbúðina.
„Þegar ég ætlaði aftur inn í húsið til
að hringja á slökkvilið varð ég frá
að hverfa vegna hita og reyks. Ég
veit ekki hvar við stöndum núna
eftir að heimili okkar er brunnið,"
sagði Arnar.
Landsmenn fengu margir að finna fyrir haustinu þegar ofsaveður gerði viða um land í gær. A Akureyri tókust smá-
bátar á loft í rokinu. Hér má sjá einn bátanna á hvolfi við smábátahöfnina á Akureyri.
DV-mynd gk
Veðrið á morgun:
Milt fyrir
sunnan
Hæg norðlæg átt vestan til en
NV-kaldi eða stinningskaldi norð-
an til. É1 á Norðausturlandi, fram
að hádegi en léttskýjað annars
staðar. Á Vesturlandi fer að rigna
með SA-stinningskalda undir
kvöld. Hiti verður á bilinu 1 til 8
stig, mildast sunnan til.
Veðrið í dag er á bls. 37
Reyðarfjörður:
Segist hafa
ekið franska
ferðamanninum
Reyðfirðingur, Jóhann Pétin- Hall-
dórsson, segist þess fullviss, að hann
hafi tekið franska ferðamanninn,
Michael Leduc, upp í bíl sinn þann 9.
september sl. Jóhann Pétur gaf
skýrslu þessa efnis hjá lögreglunni á
Eskifirði í gær. Fram til þessa hefur
Leducs verið leitað á sunnanverðu
landinu.
„Ég þekkti hann strax á myndinni
þegar hún birtist í blöðum,“ sagði Jó-
hann Pétur.
Hann sagðist hafa tekið manninn
upp í bUinn rétt ofan við loðnubræðsl-
una á Fáskrúðsfirði. „Ég spurði hann
að því hvort hann væri enskur en
hann sagðist vera franskur. Þegar
hann kom auga á veginn yfir I Vöðla-
vík spurði hann hvort þetta væri veg-
urinn tU Norðfjarðar. Hann var með
landakort af íslandi i nokkrum hlut-
um og ég benti honum á rétta leið tU
Norðflarðar."
Jóhann Pétur sagði að klæðnaður
og útbúnaður mannsins hefði svarað
til þess sem lýst var í tilkynningunni
frá lögreglunni. -JSS
•TyyJ Coí-jh
1