Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
17
Innan borgar-
markanna er að
finna eitt hundahót-
el. Það er staðsett að
Leirum á Kjalarnesi.
Eigendur þess eru
Hreiðar Karlsson
hundaræktarmaður
og fjölskylda hans en
þau hafa rekið það í
þrjú ár. Tilveran brá
sér út á Kjalames og
heilsaði upp á hótel-
gesti, sem dvöldu þar
í góðu yfirlæti.
Eg er búinn aö eiga hunda í
fimmtán ár og hef ræktað þá í
ein átta ár. Þetta byrjaði allt
ineð þvi að ég fékk mér einn setter-
hund. Það var bara eins og að taka
enn eitt bamið inn á heimilið. Síðan
hefur þetta undið upp á sig og áhug-
inn vaxið stöðugt með ári hverju,"
segir Hreiðar Karlsson, hundaræktar-
maður og eigandi hundahótels að
Leirum á Kjalamesi.
Hreiðar hefur stundað gæsaveiðar í
aldarfjórðung. Veiðamar vom helsta
kveikja þess að hann fékk sér sinn
fyrsta hund. „Það er mjög þægilegt að
hafa hundinn með sér á veiðar. Hann
tekur stand á fuglinum og sækir hann
þegar búið er að hæfa hann. Hundur-
inn getur sparað manni óheyrilega
vinnu við veiðamar. Hann hleypur
upp og niður djúp gil og hlíðar i leit að
fugli.“
Fimm stjörnu hótel
Hreiðar hefur ásamt eiginkonu
sinni rekið hundahótel á Kjalamesi i
þrjú ár. „Þetta hefur verið áhugamál
hjá okkur hjónum og reyndar allri
fjölskyldunni í mörg ár og svo létum
við loks verða af því. Þessi staðsetning
hentaði í alla staði vel. Við erum öll
mikið dýrafólk og eigum auk hund-
anna hesta.“
Hreiðar segir þau bjóða upp á funm
stjömu hótel. Hundamir hafa allir
sérherbergi og útihús. Einnig eiga
þeir kost á að leika sér með öðrum
hundum í leiktækjum á stóru úti-
svæði. Hundarnir hafa mikla ánægju
af hóteldvölinni og þar fer í alla staði
vel um þá.
Komast í sund
„Stöðugt færist í vöxt að fólk láti
vista hunda sína hjá okkur. Hundarn-
ir dvelja hér allt frá einum degi upp í
marga mánuði. Lengst hef ég haft
hund í sjö mánuði. Algengast er þó að
þeir séu hér í um það bil þrjár vikur
meðan fólk fer í þessar hefðbundnu
sumarferðir. Ýmsar ástæður geta þó
legið að baki þess að fólk lætur vista
Irski
írski rauði setterinn er sennilega
best þekktur og vinsælastur allra
írskra hundategunda. Hann er jafn-
útbreiddur í Bretlandi og Bandaríkj-
unum og á írlandi. Þó er uppruni
hans, eins og hann lítur út nú, ekki
gamall þó ætla megi að hann sé síð-
an snemma á átjándu öld. Sennilegt
er talið að setterar séu komnir af
landspanielum sem notaðir voru við
að reka bráð í net. Setteramir urðu
fyrst vinsælir á írlandi á átjándu
öld þegar þeir voru þjálfaðir tU þess
að fínna veiðibráð fyrir skotveiði-
menn. Hundabein sem fundist hafa
við fornleifauppgröft og eru frá
fyrstu árum tímatals okkar eru
sömu stærðar og bein irsks nútima-
setters.
hunda sína hjá okkur. Stundum eru
heimilisaðstæður ástæðan eða deilur
um hundahald i fjölbýlishúsum, svo
eitthvað sé nefnt."
Sólarhringsvistun fyrir einn hund á
hótelinu kostar 750 krónur. Innifalið í
þvi verði er fæði og allt tilheyrandi.
Eins og á öllum fimm stjömu hótelum
eiga hótelgestir auðvitað kost á að
bregða sér í sund. Þá er gengið með þá
að á í nágrenni hótelsins, sem þeir
geta svamlað í að vild.
Einn fremsti ræktandi
setters
Hundaræktin hefur gengið von-
um framar hjá Hreiðari. Hann hefur
sex sinnum fengið heiðursverðlaun
fyrir ræktunarhópa sem hann hefur
sýnt og alltaf unnið þegar hann hef-
ur tekið þátt. „Ég mundi segja að ég
væri með fremstu ræktendum irsks
setters á íslandi i dag. Undanfarin
ár hafa mínir hundar eða hundar
frá mér verið í öllum toppsætum á
hundasýningum. Darri, 16 ára hund-
ur sem ég hef ræktað, er ósigrandi
írskur setter. Hann hefur unnið
þess að áður en langt um líður fjölgi
í hópnum. Framtíð írsks setters á ís-
landi virðist því björt.
-VÁ
h u n d a
nota þau
til undan-
eldis og
hvf von til
þrjár stórar hundasýningar og í
flestum tilfellum unnið i flokki sett-
era. Bræður hans og hálfbróðir
fylgja honum fast á eftir.“
í dag eiga Hreiðar og fjölskylda
fjóra hunda á aldrinum 2 til 11 ára,
þijá írska og einn enskan setter.
Þ e s s a
£ *
:éÉ
setterinn
Lýsing á írskum setter
írski rauði setterinn er fyrst og
fremst léttbyggður en sterklegur
hundur og háfættari en hin enska
hliðstæða hans. Útlit hans leiðir
hugann fremur að stáli og hval-
skíðum en krafti og vöðvum.
Feldurinn er síður, liðast hvorki
né hrekkur. Hann er ekki einlitur
dökkrauður heldur miklu fremur
blanda rauðra lita, frá djúpma-
hónírauðum til kastaníurauðs.
Litnum hefur verið líkt við lit ný-
brotinnar hrossakastaníu. Sú sam-
líking er reyndar ekki svo fjarri
lagi því hvít slikja í hnetunni
minnir á hvítu hárin á bringu,
höku, tám og stundum blesu á
miðju höfði fram á trýni sumra
settera. Reyndar er irski rauði
setterinn nú oftast án nokkurra
hvítra hára.
Höfuðið er langt og grannt og
ferkantað að ofan. Kjálkamir eiga
að vera jafnlangir, hvorki yfir- né
undirbit. Feldurinn aftan á fót-
leggjum og á rófu er síðari en ann-
ars staðar á hundinum og kallast
fanir. Rófan á ekki að ná lengra
niður en að hækli. Hún er sterkleg
við rótina en mjókkar í mjóan
brodd aftast.
Hundurinn á ekki að bera rófu-
na yfir hrygglínu. Þó er leyfilegt
að hann beri hana svolítið hærra
þegar hann stendur á bráð.
Rifbein eiga að vera vel hvelfd,
án þess þó að vera tunnulaga. Yfir-
lína (bak) hundsins á að slúta i
jafnri lfnu frá herðakambi að rófu.
Kviðlína á að vera hallandi en þó
bein.
-VÁ
Bæn hundsins
Ég lifi varla lengur en 15 ár. Mér
líður illa án þín. Hugleiddu það,
áður en þú tekur mig að þér.
Gefðu mér tíma og svigrúm til að
skilja til hvers þú ætlast af mér.
Hrós þitt og umbun er sem sólar-
geisli, refsing sem þungur dómur.
Reiðstu ekki sakleysi mínu, ég vil
þér vel.
Þú hefur þina atvinnu, átt þina
vini og ánægjustundir. Ég á aðeins
þig-
Talaðu við mig. Enda þótt ég skilji
ekki mál þitt, þá skil ég tón raddar
þinnar. Augu min og látbragð eru
mín orö.
Áður en þú slærð mig, bið ég þig
að muna, að með beittum tönnum
get ég kramið hönd þína, en ég
mun aldrei beita þig ofbeldi.
Ef þér finnst ég leiðinlegur vegna
annríkis þíns, mundu þá að stund-
um líður mér illa og verð pirraöur,
til dæmis í sólarhita.
Annastu mig þegar ég verð gamalL
Án þín er ég hjálparvana.
Deildu með mér gleði þinni og
sorgum. Veittu mér hlutdeild í lifi
þinu, því ég elska þig. -VÁ