Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Blaðsíða 3
3
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
dv Fréttir
Uppskerubrestur hjá gulrófnabændum:
Kálmaðkurinn veldur
tugmilljóna króna tjóni
DV, Akureyri:
„Það fór víða mjög illa hjá okkur
gulrófnabændum í vor og sumar.
Vegna kulda í vor verpti kálmaðks-
flugan óvenju seint þannig að
virknitími varnarlyfja var runninn
út þegar hún verpti. Það eru mjög
stífar reglur varðandi það hversu
áhrif varnarlyfja mega vara lengi
þannig að þau séu ekki til óhollustu
fyrir neytendur og þau voru einfald-
lega hætt áð Vlfká þegar flltgán fóf
að vérpa,“ segir Tryggvi Stefánsson,
bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóska-
dal, en hann og gulrófnabændur
víða um land hafa orðið mjög illa
úti vegna kulda í vor.
Vegna þess hversu seint flugan
verpti má segja að um algjöran upp-
skerubrest hafi verið að ræða hjá
gulrófnabændum víða um land.
„Það má segja að uppskerubrestur-
inn hafi orðið 95% hjá mér og
þannig er það sjálfsagt víða. Ég hef
verið með rófur á um tveimur hekt-
urum lands og I eölilegu árferöi hef
ég verið að fá 20-30 tonna uppskeru.
Nú er þetta hins vegar allt handó-
nýtt, mikið af rófunum drapst en
þær sem lifðu voru eins og drullu-
kúlur, sundurnagaðar og allar löðr-
andi. Þær eru ekki til neins nýtan-
legar og fólk myndi ekki vilja þær
þótt þær væru ókeypis," segir
Tryggvi.
Ekki er annað að sjá en að gul-
rófnabændur verði sjálfir að taka á
sig þennan skell. „Það er til Bjarg-
ráðasjóður sem ætti eitthvað að geta
korniö inn i mál eins og þetta en sá
sjóður virðist vera eitthvað van-
máttugur. Um annað er ekki að
ræða,“ segir Tryggvi.
Tugmilljóna tjón
„Það er alveg óhætt að tala um
tugmilljóna króna tjón, þetta er svo
víða og svo mikið og Bjargráðasjóð-
ur er ekki þess megnugur að bæta
þetta tjón,“ segir Hrafnkell Karls-
son, bóndi á Hrauni i Ölfusi, en
hann er formaður Félags gulrófna-
bænda. Hrafnkell segir að maðkur-
inn hafi náö aö váída tjöni á rófun-
um nánast um allt land, en þó mis-
mikið. „Það er allt frá þvi að um
20% af uppskerunni séu ónýt og upp
í algjöran uppskerubrest. Þannig
hefur ekki verið hægt að anna eftir-
spurn eftir rófum að undanfornu, á
þeim árstíma þegar framboðið hefur
venjulega verið mest,“ segir Hrafn-
kell.
Hann segir að þetta hafi haft í för
með sér að verðið á rófunum hafi
hækkað talsvert, eða um 25 krónur
kílóið til bænda, og sé nú skilaverð
til bænda 75-80 krónur.
-gk
Alvöru jeppi á verði jepplings
1VITARA 1998
Suzuki Vitara er ekta jeppi.
Hann er með háu og lágu
drifi, sterkbyggður á grind,
upphækkanlegur, með feiki-
lega stöðuga fjöðrun
og
• VERÐ: JLX 3-D. 1.675.000 KR., JLX 5-D. 1.940.000 KR.,
DIESEL 5-D 2.180.000 KR.,V6 2.390.000 KR.
• Snar í viðbragði, hljóðlátur, lipur í akstri
- og ekki bensínhákur.
• Gott pláss - mikill staðalbúnaður.
Komdu og sestu inn!
Sjáðu plássið og alúðina við smáatriði.
Vitara er vinscelasti jeppinn á íslandi.
Og skyldi engan undra.
"SUZIJKI^
AFLOG I
t Qryggi J
SUZUKI BÍLAR HF
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, slmi 471 20 11. Skeifúnni 17, 108 Reykjavík.
Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Sími 568 51 00.