Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
7
DV Sandkorn
Bókaormar
Það hefur
ekki farið
framhjá Akur-
eyringum að
undanfomu að
Leikfélag Ak-
ureyrar er
starfandi og
fyrsta frum-
sýning vetrar-
ins er skammt
undan. Liður í
auglýsingaher-
ferð félagsins
hefur verið að senda bókamerki í
öll hús í bænum en á bókamerk-
inu er getið allra verkefna leikárs-
ins. Forsvarsmenn leikfélagsins
gera einnig vel við ýmsa starfs-
menn fyrirtækja eins og venjulega
og t.d. fékk einn send á skrifstofu
sína 12 bókamerki (fyrir utan þau
sem komu heim til hans). En þó
menn reyni að lesa mikið og þykj-
ast vera bókaormar, þá er nú samt
varla hægt að ætlast til þess að
þeir séu með einar 12-15 bækur í
takinu í einu, eða er það?
Það vakti
nokkra athygli
á dögunum
þegar sagt var
frá erjum
tveggja bænda
sem búa á
kirkjujörðinni
Stóra-Núpi á
Suðurlandi.
Ýmislegt mun
hafa gengið á
í samskiptum
bændanna og
hafa klögumál-
in gengið á vixl. Á dögunum hitt-
ust þeir t.d. á fórnum vegi og not-
aði þá annar sem hafði skita-
dreifara sinn meðferðis tækifærið
til að úða skit yfir nágrannann.
Friðrik Steingrímsson, hagyrðing-
ur í Mývatnssveit, greip þetta á
lofti og til varð þessi vísa:
Kölska gamla kætir það,
á kirkjujarðarbleðli.
Að sitjendumir sitt á hvað,
sýna skítlegt eðli.
Allt á hreinu
Á Dalvik er
til félagsskap-
ur aldraðra
sem heitir
Veðm-klúbb-
urinn á Dalbæ
og gefa klúbb-
félagar af og
til út langtima
„veðurspá"
sem hefiu-
ótrúlega oft
staðist. Nú
hefur klúbbur-
inn gefíð það
út að veðrið á Norðurlandi í októ-
ber verði gott, hitastig verði yfir
meðallagi þótt nokkuð vindasamt
verði, það komi rigningarkaflar og
þótt gráni í rót taki það fljótt upp.
Það eina sem vefst fyrir klúbbfé-
lögum er að þeir þykjast sjá ein-
hverja veðurbreytingu 16. október
en gera sér ekki almennilega grein
fyrir hver hún verður. En fara
ekki veðurfræðingarnir að veröa
ónauðsynlegir?
Óvinsælt efni
Svokallaðar
„eldhúsdags-
umræður" á
Alþingi, sem í
dag ganga
reyndar undir
nafhinu „um-
ræður um
stefnuræðu
forsætisráð-
herra“, verða
annað kvöld
og væntanlega
gefst landslýð
kostur á að
hlýða á þær í útvarpi og e.t.v. að
fylgjast með á sjónvarpsskjánum.
Það hefur viðgengist í áratugi að
útvarpa þessum umræðum og nú
síðustu ár að sjónvarpa einnig frá
þeim, þó vitað sé að yfirgnæfandi
meirihluti tslendinga hafi engan
áhuga á þessu efni, hvorki i út-
varpi né sjónvarpi. Nú þykjast for-
svarsmenn þingsins hafa gert þetta
efni áheyrilegra og athyglisverðara
og er breytingin fólgin i því að
gert er ráð fyrir andsvörum í 2.
umferö umræðnanna! Skyldi þetta
breyta einhveiju um það hvort
menn kjósa að eyða kvöldinu í
þingmennina? Varla.
Umsjón Gylfi Kristjánsson
Skítlega
Fréttir
Snarræöi 16 ára stúlku á Fáskrúðsfirði:
Bjargaði telpu frá drukknun
Sextán ára stúlka á Fáskrúðsfirði,
Tinna Hrönn Smáradóttir, sýndi
mikið snarræði sl. laugardag þegar
hún bjargaði 12 ára telpu sem var
hætt komin í sundlauginni á staðn-
um. Telpan var að leika sér ásamt
nokkrum 11-12 ára börnum í sund-
lauginni þegar atvikið átti sér stað.
„Krakkarnir höfðu verið að
keppa í að synda í kafi,“ sagði
Tinna Hrönn. „Stelpan var búin að
synda tvær og hálfa ferð, þegar
þetta gerðist. Hún kom aöeins með
höfuðið upp úr, en fór síðan í kaf
aftur. Siðan flaut hún á maganum
og maraði í hálfu kafi. Við héldum
að hún væri að grínast og vorum að
kalla á hana. Hún svaraði ekki og
þá vissi ég að það var eitthvað að.“
Telpan var orðin meðvitundar-
laus þegar komið var að henni.
Tinna Hrönn fór með hana í áttina
að bakkanum, kallaði í sundlaugar-
vörðinn og bað hann að hjálpa sér.
„Við lögðum hana á bakið og opnuð-
um fyrir öndunina. Hún fór fljótlega
að hósta og svo kom vatn upp úr
henni. Hún komst til meðvitundar
eftir að hún fór að hósta."
Tinna Björk er í unglingadeild
björgunarsveitarinnar á Fáskrúðs-
firði og kvað hún þau björgun-
amámskeið sem hún hefði tekið
þátt í hafa verið sér til mikils gagns
þegar atvikið varð. -JSS
Mjög fjölbreytt úr-
val af flíspeysum á
börn og fullorðna
Cortina Sport
Skólavörðustíg 20
Slmi 552 1555
Núlifandi formenn SÁÁ komu saman á blaöamannafundi vegna 20 ára afmælis samtakanna. Peir eru Björgólfur
Guömundsson, Hendrik Berndsen, Pjetur Maack og Þórarinn Tyrfingsson. Að baki þeim er mynd af Hilmari Helga-
syni, fyrsta formanni SÁÁ.
20 ára afmæli SÁÁ:
Viðamikil ráðstefna
um áfengis- og
vímuefnavanda
- vegleg afmælishátíð og útgáfa bókar
SÁÁ, samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann,
fagnar 20 ára afmæli sínu nú í
október.
í tilefni afmælisins efna samtök-
in til þriggja daga ráðstefnu um
áfengis- og vímuefnavandann.
Þetta er viðamesta ráðstefna sem
haldin hefur verið hér á landi um
þetta viðfangsefni. Ráðstefnan
verður haldin á Hótel Loftleiðum
dagana 16.-18. október.
Þá verður haldin vegleg afmæl-
ishátíð og gefin út vönduð bók um
þessa fyrstu tvo áratugi í sögu
samtakanna. -RR
Steinunn Thorlacius
og Selma Jónsdóttir
Hafa hafiö störf á
hárgreiðslustofunni
Hótel sögu
Tímapantanir
í síma
552 1690
Hárgreiðslustofan
Hótel sögu
Hagatorgi
Með tvær kennitölur:
„Frekar óþægilegt"
- segir Ásmundur Sveinsson
„Mér finnst þetta alveg stórfúrðu-
legt. Ástæðan fyrir þessu er sú að þeg-
ar ég fæddist fékk ég vitlausan fæðing-
ardag á kennitöluna mína. Réttur fæð-
ingardagur er 12.01.79. en í stað þess
var fyrri hluti kennitölunnar skráður
130179. Samkvæmt einhvetjum reglum
fékk ég þessu síðan ekki breytt fyrr en
ég var orðinn 16 ára gamall," sagði Ás-
mundur Sveinsson, starfsmaður Hótel
Borgamess, við DV í gær.
„Það sem hefúr hins vegar vakið
undrun mína að undanfómu er að enn
virðist ég skráður með báðar kennitöl-
umar. Það er frekar óþægilegt þegar
maður er til dæmis að fara í bankann
og gefúr upp aðra kennitölu en er
skráð hjá bankanum. Það gæti litið út
eins og ég sé á sakaskrá á annarri
kennitölunni en góði gæinn á hinni.
Þessi leiðrétting hlýtur að fara að
ganga í gegn í þjóðskránni en síðast
þegar ég fékk afhent eitthvert skírteini
var það með gömlu og vitlausu kenni-
tölunni,“ sagði Ásmundur.
„Kominn með rétta
kennitölu"
„Það hefúr svo sem gerst áður að
fólk hefúr verið skráð i upphafi með
vitlausa kennitölu, til dæmis vitlausan
fæðingardag, en það hefur ávallt verið
leiðrétt. Hins vegar getur verið að
gamla kennitalan sé enn í gangi á ein-
hverjum-'gömlum skrám. Eg sé að í-
þessu tilviki hefúr villan verið leiðrétt
19. janúar 1995 í skránni hjá okkur. Því
er hann í rauninni ekki með tvær
kennitölur en það getur verið að ein-
hveijir aðilar séu enn með það gamlar
skrár að þar sé leiðréttingin ekki kom-
in inn. Bankamir ættu allir að vera
komnir með réttu kennitöluna þar sem
þeir úpþffhra kérfið hjá sér mánaðar-
lega. En þetta hefúr gerst, ég hef séð
það áður,“ sagði starfsstúlkan í kenni-
töludeOd Hagstofu íslands sem varð
fyrir svörum á þeim bænum þegar
spurst var fýrir um þetta einstaka mál.
-ÖB
Fossvogsskóli:
Sjö kennarar
sögöu upp
Sjö kennarar í Fossvogsskóla í
Reykjavík hafa sagt upp störfum.
Ástæðuna fýrir uppsögnunum
segja þeir vera að starf kennara
hafi verið forsmáð og einskis met-
ið tO launa og ótrúlegt skilnings-
leysi sé ríkjandi gagnvart starfi
þeirra. -RR
Vélstjórar - vélamenn!
Einstakt tækifæri
Sýningarbíll í tvær vikur á íslandi
Dagana 30. september til 13. október verður sýningarbíll frá James Walker
verksmiðjunum í Bretlandi á fslandi. James Walker er einhver stærsti fram-
leiðandi pakkningarefna og pakkninga í heiminum og G.J. Fossberg véla-
verslun er búin að bjóða þessar vörur beint frá framleiðanda í 60 ár!
Fyrri vikuna verður sérfræðingur frá James Walker í för með bílnum og
veröur þá höfuðborgarsvæðið og nágrannabyggöir heimsóttar.
Seinni vikuna fer bíllinn í hringferð um landið.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband viö G. J. Fossberg vélaverslun
(Gunnar/Pétur) og kynna sér ferðir bílsins.
Þeir sem koma í sýningarbílinn og panta JW-vörur fá 20% afslátt!
og 561 302,7 grænt númer 800 6560