Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 Fréttir Skipting skulda í bönkum: Einstaklingarnir skulda mest allra - meö húsnæðislánum eru skuldir þeirra tæpir 300 milljarðar 50 milljarðar 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 45,7 44,6 25,8 Einstakl. Sjávarútv. Verslun 17 Utlan i bonkum staöa í lok 1996. Allar tölurl milljöröum króna - 11,9 5,3 5,2 4 Þjónusta iönaður Sveitarfélög Landb. Ríki Skuldir einstaklinga við við- skiptabankana voru um síðustu ára- mót 45,7 milljarðar króna. Sjávarút- vegurinn skuldar minna, eða 44,6 milljarða. Skuldir i bönkum segja ekki allt því útlán byggingasjóð- anna voru 233 milljarðar um síð- ustu áramót. Heildarskuldir ein- staklinga, við banka og bygginga- sjóði, voru því nærri 280 milljörðum króna um síðustu áramót. Sam- kvæmt þessu skuldar hver Islend- ingur ellefu hundruð þúsund krón- ur. Þriðji mesti skuldarinn í við- skiptabönkunum er verslunin en hún skuldar 25,8 milljarða, önnur þjónusta skuldar 17 milljarða, iðn- aðurinn 11,9, sveitarfélögin 5,3 og landbúnaðurinn aðeins minna, eða 5,2. Skuldir ríkisins í bönkunum voru fjórir milljarðar króna í lok ársins 1996. íslandsbanki hefur lánað ein- staklingum mest, eða 17,5 milljarða, Landsbanki 16,5 milljarða og Búnað- arbanki 11,7 mUljarða. Hlutfallslega lánar Islandsbanki mest tU einstakl- inga, eða 38,4 prósent, af öllum út- lánum bankans í lok siðasta árs, Búnaðarbanki 29,7 prósent og Landsbanki 20,4 prósent. Landsbanki lánaði hins vegar mest til sjávarútvegs, eða 26,4 mUlj- arða sem var 32,7 prósent af öUum útlánum bankans i lok siðasta árs. íslandsbanki átti 12,7 milljarða hjá sjávarútveginum á sama tíma, sem er 27,9 prósent af öUum útlánum bankans og Búnaðarbanki 5,5 mUlj- arða, eða 14 prósent af útlánum bankans við áramótin. Húnavatnssýsla: Kona slasað- ist alvarlega Eldri hjón frá Skagaströnd slös- uðust í bUveltu við Vatnsdalsá í gærkvöld. Þau voru flutt tU skoð- unar á sjúkrahúsið á Blönduósi en þaðan var konan flutt áíram með þyrlu á Landspítalann tU aðhlynn- ingar þar sem hún reyndist alvar- lega slösuð. BUlinn fór út af veginum norð- an við Hnausabrúna rétt fyrir miðnætti í fyrrinótt og valt þijár veltur. Að sögn lögreglunnar á Blöndu- ósi eru tUdrög slyssins nokkuð óljós en þar sem slysið varð er nokkuð hár malarhryggur á veg- inum. Hugsanlegt er að skepna hafi hlaupið fyrir bUinn. Hálku- vottur var á veginum og nokkur ísing. -ST Alþingi sett í dag Alþingi verður sett eftir hádegi í dag. Guðsþjónusta hefst í Dóm- kirkjunni klukkan hálftvö og eftir hana verður gengið tU þings. For- seti íslands, herra Ólaftir Ragnar Grímsson, setur Alþingi. Annað kvöld verður stefnuræða forsætisráðherra, Davíðs Odds- sonar, og verður hún með nýju sniði. Forsætisráðherra fær 25 mínútur tU að flytja ræðuna og talsmenn annarra Uokka en Sjálf- stæðisUokks fá átta mínútur. Síð- an verður önnur umferð þar sem hver Uokkur fær sex mínútur og í lokaumferö fær hver Uokkur þrjár mínútur. -sme íslenskt kvenfólk færir út kvíarnar: Auglýsir blíðu sína í Danaveldi Þær vændiskonur frá ýmsum heimshornum sem gera út frá Kaupmannahöfn í Danmörku hafa nú fengið aukna samkeppni ef marka má auglýsingu sem birtist sl. fostudag í Ekstra Bladet. Auglýs- ingin er frá íslenskri stúlku þar sem hún tilkynnir komu sina i bæ- inn, gefur til kynna að hún sé tilbú- in í harkið og hvar hana sé að finna. Samkvæmt forvitnum landa hennar í Kaupmannahöfn, sem hafði strax samband til að kanna verðlagið, mun grunngjaldið vera 300 krónur danskar, sem samsvarar ríUega 3000 íslenskum krónum, en fer síðan hækkandi til samræmis við aukna þjónustu. Þetta ku vera nýjung á dönskum vændismarkaði þar sem íslenskt handbragð á að tryggja gæðin. -ÖB A NEW ISLANDSK model, forkæler den kræsne gentlemen. 17 - 23. 0re- sundsvej 22. Auglýsingin sem birtist í Ekstra Bladet sl. föstudag. Á dögunum afhenti útgerö Vik- artinds, Peter Döhle Schiffahrts KG, Slysavarnaskola sjómanna aö gjöf björgunarbát sem var um borö í Vik- artindi þegar skipiö strandaöi viö ís- landsstrendur. Um er aö ræöa lok- aöan björgunarbát af nýjustu gerö, svo kallaðan frífallsbát. Hér má sjá Bert König (t.h.), framkvæmdastjóra útgeröar Vikartinds, afhenda Gunn- ari Tómassyni, forseta Slysavarna- félagsins.þessa höföinglegu gjöf. DV-mynd Pjetur Fullur á staur Ölvaöur, réttindalaus ung- lingur stal bíl og endaði ökuferð sína á ljósastaur á Óðinsgötu í fyrrakvöld. Hann slapp ómeidd- ur en svaf úr sér í fangageymslu lögreglunnar. -ST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.