Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Side 32
vinmngur
, vínjtcá
FRETTASKOTIÐ
aaSÍMINN SEM ALDREI SEFUR
cc o
UJ
LO
v> O
->
2 lo
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í nverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
Bankaráð Seðlabanka:
Steingrímur
á skammar-
bekk
Bankaráð Seðlabanka íslands
hefur sent frá sér yfirlýsingu
vegna kostnaðar bankans af utan-
ferðum Steingríms Hermannsson-
ar bankastjóra. Eins og komið hef-
ur fram í DV sækir Steingrímur
fundi á kostnað bankans til ann-
arra landa þar sem rætt er um
umhverfismál og framtíðarþróun
þeirra.
Steingrímur hefur sagt í viðtali
við DV að hann hafi gert Þresti
Ólafssyni, formanni bankaráðs,
grein fyrir áhuga sínum á um-
hverfismálum og hann hafi talið
víst að bankinn hafi þar með fall-
ist á greiða fyrir ferðirnar.
^ í upphafi yfirlýsingarinnar seg-
ir: „í tilefni af frétt af utanferðum
Steingríms Hermannssoncir seðla-
bankastjóra á kostnað bankans í
DV laugardaginn 20. september sl.
og viðtal við Steingrím í sama
blaði fimmtudaginn 25. september
sl. óskar bankaráð Seðlabanka ís-
lands að koma eftirfarandi á fram-
færi.“ Síðan eru raktar þær at-
hugasemdir sem gerðar hafa verið
vegna ferðalaganna og áður hafa
komið fram í DV.
í yfirlýsingunni segir meðal
annars: „í umræðum innan
bankaráðs Seðlabanka íslands hef-
ur ríkt einhugur um þá lagatúlk-
un að Seðlabankinn hafi ekki sér-
stöku hlutverki að gegna á sviði
umhverfismála." -sme
Akureyri:
Ekið á
hjólreiða-
mann
Ekið var á hjólreiðamann á
Hjalteyrargötu við Grenivelli á
iAkureyri klukkan 6 í morgun.
Maðurinn er fullorðinn. Hann
var fluttur meðvitundarlítill á
sjúkrahús. Maðurinn var ekki
með hjálm. -RR
C"«
^Kópavogur:
Arekstur
vegna hálku
Árekstur varð í Kópavogi um
áttaleytið í morgun.
Tveir bílar lentu saman á gatna-
mótum Álfaheiðar og Hlíðarhjalla.
Engin slys urðu á fólki en bílarnir
skemmdust töluvert. Að sögn lög-
reglu var mikil hálka í bænum í
morgun og má rekja áreksturinn
til hálkunnar. -RR
Fjölmennt lið leitaði konu í Mjóafirði í nótt:
Gekk þrjátíu
kílómetra í roki
- heilt þrekvirki, segir Anna bóndi á Hesteyri
Bylgja Magnúsdóttir, sem leit-
að var að á Mjóafjarðarheiöi í
nótt, kom í leitirnar á bænum
Hesteyri á níunda tímanum í
morgun.
„Hún var mjög köld og blaut
þegar hún kom hingað í hús.
Það er heilt þrekvirki að komast
alla þessa leið gangandi í
myrkri og roki. Það fýkur sjór-
inn hér,“ segir Anna M. Guð-
mundsdóttir, bóndi á Hesteyri í
Mjóafirði, I samtali við DV í
morgun en Bylgja kom fram þar
rétt fyrir klukkan 8 í morgun.
Hún hafði þá gengið í um 7
klukkustundir í myrkrinu, um
30 kílómetra leið, af heiðinni og
hálfa leið út Mjóafjörð.
Bylgja, sem er um fertugt, var
á ferð ásamt manni í bifreið á
leið frá Neskaupstað til Mjóa-
fjarðar. Skömmu eftir miðnætti
festu þau bílinn utan vegar á
Mjóafjarðarheiði. Bylgja fór þá
úr bílnum til að reyna að flnna
aðstoð. Hún var þokkalega
klædd en veður var slæmt á
heiðinni, rigning, slydda og kalt.
Anna segir að Bylgja hafi
villst af vegintnn og gengið nið-
ur í gil og snarbrattar hlíðar.
Hún óð m.a. yfir á. Anna segir
hana hafa séð bíl og veifað til
hans en bílstjórinn veitti henni
ekki eftirtekt.
Leitarmenn og hundar
Að sögn Jóns Þórarinssonar,
lögreglumanns á Egilsstöðum,
fór vinafólk þeirra í Mjóadal að
svipast um eftir þeim klukkan
eitt í nótt. Bifreiðin fannst
skömmu síðar og var þá maður-
inn einn í henni. Skömmu eftir
klukkan tvö voru lögreglu- og
björgunarsveitarmenn kallaðir
út til leitar. í morgun voru leit-
Týndist hér f\eskaUpstaöur
Mjóafjaröarheiði
^Eskifjörður
#Fáskrúðsfjörður
D \
tsrai
armenn um 50 talsins, þegar
mest var, auk tiltækra leitar-
hunda á Austurlandi.
-RR/-rt
Björk í
2. sæti
DV, Akranesi:
Plata Bjarkar Guðmundsdóttur,
Homogenic, var komin í annað sæt-
ið hjá UK Indie Albums á Bret-
landseyjum í gær þegar fyrirtækið
birti lista um 20 vinsælustu plötum-
ar allt frá rokki yfir í rapp.
Aðeins fyrir ofan Björk á listan-
um voru sjálfir snillingarnir i Oasis
með plötuna Be here now en sú
plata hefur notið gifurlegra vin-
sælda á Bretlandi og um allan heim.
íslandsvinimir í Skunk Anansie
féllu nú niður í 13. sæti en þeir vora
í 9. sæti vikuna á undan.
-DVÓ
Franski ferðamaðurinn:
Formlegri leit
líklega hætt
- eftir daginn í dag
Formlegri leit að franska ferða-
manninum, Michael Leduc, verður
að öllum líkindum hætt eftir daginn
í dag. Jónas Hallsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn sagði við DV í morg-
un að hann ætti eftir að ganga frá
nokkrum atriðum í dag sem hann
væri að kanna. „Eftir það verður
formlegri leit hætt ef ekkert kemur
út úr því.“
Sjá nánar á bls. 2
-JSS
Frá og með deginum í dag eiga allir krakkar 14 ára og yngri að vera með hjálm á hausnum þegar ferðast er um á reiðhjóli. Allir almennilegir hjólamenn ættu
að taka sér krakkana til fyrirmyndar og fara aldrei út í umferðina hjálmlausir. Bubbi Morthens, tónlistarmaður og hjólreiðakappi til margra ára, tekur nýjum
reglum fagnandi og leggur áherslu á að halda hausnum í lagi.
DV-mynd Hilmar Þór
L O K I
Veðrið á morgun:
Hlýjast
sunnan til
Á morgun verður sunnan- og
suðaustangola eða kaldi og súld
eða rigning með köflum sunnan
og vestan til en léttskýjað á
Norðausturlandi. Hiti 3 til 10
stig. Hlýjast sunnan til.
Veðriö í dag er á bls. 37
ÓDÝRASTI
_____ EINKAÞJÓNNINN
BÍLSKÚRSHURÐA-
OPNARI
Verð kr. 21.834,-
lýbýlavegi 28 Simi 554 4443
biother.
Litla
merkivélin
loksins
með Þ og Ð
Nýbýlavegi 28, sími 554 4443
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
s