Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
5
DV
Fréttir
Norðmenn kynna sjávarafurðir undir einu merki:
íslendingar ættu að taka
sér það til fyrirmyndar
- segir Magnús Þór Hafsteinsson í Tromsö
DV, Tromsö:
Norsk stjórnvöld reka mjög öfl-
ugt starf í því skyni að markaðs-
setja sjávarafurðir sínar. Allir þeir
framleiðendur í sjávarútvegi sem
vilja mega kynna vörur sínar und-
ir slagorðinu „Seafood from Nor-
way“ sem er á þar til gerðu vöru-
merki. Norska sjávarútvegsráðu-
neytið stjómar stofnun sem hefur
það eina hlutverk að kynna og aug-
lýsa norskar sjávarafurðir erlend-
is. Stofnunin, sem heitir Eksportut-
valget for fisk, er rekin með
framlagi sem er hlutfall af
útflutningstekjum sjáv-
arafurða. Engin sam-
bærileg stofnun er á
íslandi en þar sjá
sölusamtök að mestu
um kynningar- og
sölustarf, hver fyrir
sína vöru.
„Markaðssetning á
norskum sjávarafurðum
mjög góð. Hér er starfrækt
stofnun sem hefur það eina hlut
íeð verk
verk að auglýsa og kynna nor-
skar sjávarafurðir undir
einu merki. Að minu
mati er þetta farsælla
en að hver framleið-
andi sé einn að berjast
í markaðssetningu af-
urða sinna. Þarna eru
allar norskar sjávaraf-
urðir settar undir einn
hatt og boðskapurinn er
einfaldlega norskt sjávar-
fang er best,“ segir Magnús Þór
Hafsteinsson, fiskifræðingur og
kennari í Tromsö, um þessa aðferð
Norðmanna að markaðssetja sjáv-
arafurðir sínar. Hann segir að ís-
lendingar ættu að huga að því
hvort slíkt fyrirkomulag sé ekki
skynsamlegt þeim.
„Ég tel að íslendingar eigi að
taka sér þetta kerfi til fyrirmyndar.
Þeim veitir ekkert af því að vanda
til markaðsmála og mönnum er
óhætt að gera sér ljóst að þeir eru í
bullandi samkeppni við Norðmenn
sem og aðrar sjávarútvegsþjóðir,"
segir Magnús. -rt
Megninu
af slátr-
inu hent
Frá því að sláturtíð hófst á
Patreksfirði hefur megninu
af innmat og hausum verið
hent á haugana og urðað. Að
sögn Hauks Sigurðssonar,
rekstrarstjóra Odda hf., var
ekki tekið að hirða innmat-
inn af fullum krafti fyrr en
síðastliðinn mánudag vegna
þjálfunar nýrra starfsmanna
við slátrunina. Þjálfunin
hefði fengið forgang og því
hefði innmatnum verið fórn-
að fyrir gæði kjötsins.
Alls er um 6700 dilkum slátr-
að á Patreksfirði og eru 5000
slátur hirt. í vikulokin hefst
slátursala Odda til Patreksfirð-
inga sem munu væntanlega
taka um 2000 slátur.
-ST
X ytMLAIW Em
3 REIÐHJÓL
10 SKÓLATÖSKUR
if^lOOBOLIR j
Lengi hefur staðið til að byggja
sundlaug við íþróttahúsið I Stykkis-
hólmi en það var fyrst eftir að heitt
vatn fannst rétt utan við bæinn að
skriður komst á málið og framkvæmd-
ir hafnar.
Fyrsti hluti verksins, jarðvinna og
lagnir, var boðinn út í ágústlok og fyr-
irtækið Kolli ehf. bauð best. Fyrsta
skóflustungan var síðan tekin fyrir
nokkrum dögum. Það voru tveir efrii-
legustu sundmenn Snæfells, þau Rún-
ar Gunnarsson og Hrefna Gunnars-
dóttir, sem það gerðu. Áætlað er að
sundlaugarbyggingin verði fúllgerð
haustið 1998. Arkitekt er Ormar Þór
Guðmundsson. -BB
PU,
HJALPAR
MEÐ
HVERJUM
BITA
I Myllan leggur
>kr. af nverju
Heimihsbrauði
til hjálparstarfs.
, I \ <SÍT HJÁLPARSTOFNUN
VIÞ\> KIRKJUNNAR
DV, Stykkishólmi:
Taílenskar gjaíavörur
Handgeröir blævængir.
Styttur úr gleri, beini,
keramiki og haröviö.
Prinsessukjólar.
Barnafatnaöur.
Töskur og bakpokar.
Tuskudúkkur.
Innrömmuö fiörildi.
Útsaumuö silkipúöaver.
Skartgripir.
Laugavegur 53
S-552 2922
Stykkishólmur:
Sundlaug
í sjónmáli
KALLA KAKIMVLUKURIKK
Mestle
og sendid til:
I C.C; 1.1
Box 4033
124 Reykjavik
T Gkx-aírt/fomr
Scm/'-Stm’Tied.Wjí-thnit
Nafn:
nnerxjr.-.-
Heimili:
ffPgaZ-
¥
Simi
Skuafrestur til 15. október
María Valdimarsdóttir sundþjálfari
og sonur, Hrefna Gunnarsdóttir,
Ólafur Hilmar Sverrisson bæjar-
stjóri og Rúnar Gunnarsson meö
skófluna. DV-mynd Birgitta
Skýrsla umboðsmanns barna fyrir 1996:
Mikið grund-
vallarstarf
óunnið
i skýrslu umboðsmanns bama fyrir
árið 1996 kemur fram að 514 munnleg
erindi voru skráð hjá embættinu það
ár. Þetta er 60% aukning ffá árinu 1995
sem var fyrsta starfsár embættisins.
Unnið var að 57 skriflegum erindum
hjá embættinu þetta ár. Frumkvæðis-
málum umboðsmanns bama fiölgaði
einnig töluvert. 14 sltk mál voru ný-
skráð á árinu. Alls var því ijallað um
585 erindi hjá embættinu á síðasta ári.
Flest erindi sem bárust embættinu
vörðuðu málefrii grunnskólans, t.d.
ábendingamar um einelti, skólaakst-
ur, samræmd próf, agaviðurlög o.fl.
Einnig vora mörg erindi um ágreining
foreldra um forsjá bama og rétt þeirra
til umgengni við foreldra í kjölfar
skilnaðar eða sambúðarslita. Umboðs-
maður bama fullyrðir að hér á landi
vanti sárlega ráðgjöf fyrir fólk sem á
erfitt með að búa saman eða hyggst
sækja um skilnað. Mörg böm eigi við
vanlíðan að stríða vegna aðstæðna á
heimilum.
Umboðsmaður bama telur eúmig að
mikið grundvallarstarf í málefnum
bama sé óunnið og íslendingar séu
langt á eftir öðrum norrænum þjóðum
t þessum efnum. Böm þurfi að vera
sýnilegri í allri þjóðfélagsumræðu og
fjölmiðlar verði einnig að gefa gaum
því jákvæða sem böm fást við í dag-
legu lífi. -HI