Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER.1997
Fréttir
Sendiherra Kína:
Islendingar taki
afleiðingunum
Það var mikið um aö vera í Leifsstöö ( gærdag þegar Lli Chen, varaforseti Taívans, kom til landsins. Fjölmennt
fylgdarliö var í för meö varaforsetanum og fréttamenn þyrptust að honum. DV-mynd Ægir Már
„Erindi sendi-
herrans var að
flytja mótmæli
kínverskra
stjómvalda við
því að Lli Chen,
varaforseti Taí-
vans, væri að
koma hingað tfl
lands og sérstak-
lega að hann
hitti forsætisráð-
herra. Hann hafði orð á því að ís-
lendingar yröu að gera sér grein
fyrir málinu og taka afleiðing-
unum en það var ekki farið neitt
nánar út í það,“ sagði Ólafur Dav-
íðsson, ráðuneytisstjóri í forsætis-
ráðuneytinu, við DV.
Sendiherra Kína á Islandi átti í
gær viðræður við Ólaf Davíðsson
og Sigríði Snævarr, sendiherra og
prótókollsstjóra í utanríkisráðu-
neytinu. Sigríður er æðsti yflr-
maður þar í fjarveru Halldórs Ás-
grímssonar utanrlkisráðherra og
Helga Ágústssonar ráðuneytis-
stjóra.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hittir Lli Chen, varaforseta Taí-
vans, á Hótel Valhöfl á Þingvöllum
á miðvikudagskvöld og munu þeir
snæða saman kvöldverð. Ólafur
sagði að að ööm leyti myndu ís-
lensk stjórnvöld ekkert vita um
ferðir varaforsetans. Hann væri
hér á eigin vegum og hann og
fylgdarlið hans hefðu fengið vega-
bréfsáritun sem ferðamenn. Ólafur
kvað sér ekki kunnugt um að von
væri frekari mótmæla frá kin-
verskum stjórnvöldum. -JSS
Óheppinn þjófur:
Festist í
glugga
Hann hafði ekki erindi sem
erfiði innbrotsþjófurinn sem
lögreglan í Reykjavík gómaði í
gærkvöld. Hann hafði skrúfað
úr glugga á eldhúsi í húsi við
Freyjugötu og reyndi að troða
sér þar inn. Ekki vfldi betur tfl
en svo að hann sat fastur í
miöjum glugganum, hálfur úti
og hálfur inni, þegar húsráð-
endur vöknuðu og gerðu lög-
reglu viðvart. Hún gekk að
þjófnum í prísundinni. Hann
var að sjálfsögðu frelsinu feg-
inn þótt ekki yrði það varan-
legt. Maðurinn var færður í
hefðbundnari geymslur lög-
reglu og þar verður hann yfir-
heyrður í dag. Óheppni þjófsins
mun ekki verða rakin til
reynsluleysis hans í innbrot-
um. -sv
Varaforseti Taívans á íslandi:
A einkaferöalagi
- sagöi Lli Chen varaforseti viö DV
„Ég er hér í vinsamlegri einka-
heimsókn, það mætti kannski nefna
það upplýsingaöflunarferð. Ég vil
freista þess að skoða og skflja þróun
og almennt ástand í þessum heims-
hluta,“ sagði Lli Chen, varaforseti
Taivans, við DV við komuna til
Reykjavíkur í gær.
Varaforsetinn gaf ekki kost á við-
tali við komuna á Hótel Sögu í gær,
en DV spurði hann hvort hann væri
hingað kominn til að leita stuðnings
forsætisráðherra og íslenskra
stjómvalda við utanríkisstefnu
lands síns, ekki síst gagnvart Kína-
veldi. Hann óskaði ekki eftir að til-
greina væntanleg umræðuefni sín
og heldur ekki hvort hann hygðist
hitta fleiri þjóðarleiðtoga en forsæt-
isráðherra íslands í yfírstandandi
Evrópuíor sinni. -SÁ
Lli Chen, varaforseti Taivans, viö komuna á Hótel Sögu í gær, umkringdur líf-
vöröum og aöstoðarfólki. í fylgdarliði hans er meðal annars ráöherra i ríkis-
stjórn landsins. DV-mynd ÞÖK
Utanríkisráðherra vegna heimsóknarinnar:
Engin viðurkenning á Taívan
- viðbrögð Kínverja koma á óvart
„Utanríkisráðuneytinu hefúr verið
kunnugt um að þessi maður ætli sér
að koma hingað í algjörum einkaer-
indum. Þaö lítur þannig á að hann
komi hér sem óopinber aðfli," sagði
Halldór Ásgrímsson utanrikisráð-
herra í gær. Hann var staddur í París
þegar DV ræddi við hann.
„Við teljum að ferð þessara einstak-
linga breyti á engan hátt samskiptum
Islands og Kína og feli ekki í sér
nokkra viðurkenningu af okkar hálfu
á Taívan. Stefna Islands hefur verið
og verður áfram sú að viðurkenna
ríkisstjómina i Peking sem löglega
stjóm Kína. Okkur hefur hins vegar
alltaf skilist af Kín-
verjum sjálfum að
það sé ekkert þvi
til fyrirstöðu að
það eigi sér stað
einstaklingsvið-
skipti milli íbúa ís-
lands og Taívans,
m.a. í ferða- og við-
skiptamálum. Við
höfúm aldrei talið
því neitt tfl fyrir-
stöðu að veita
vegabréfsáritanir
til eða frá Taívan í þeim erindum. í
Ijósi þessa koma viðbrögð Kínveija
okkur á óvart, vegna þess að við höf-
um alltaf skflið það svo að um einka-
heimsókn sé að ræða.“
Halldór sagði íslensk stjómvöld
ekki telja sér stætt á því að mismuna
mönnum eftir stöðu í því sambandi.
Það hafi áður komið fyrir að stjóm-
málamenn frá Taívan hafi heimsótt
ísland.
„Taívan er með viðskiptaskrifstof-
ur í mörgum löndum og ýmis lönd
reka viðskiptaskrifstofur þar. Ég
ræddi þessi mál lauslega við utanrik-
isráðhema Kína í tengslum við heim-
sókn forseta íslands fyrir um tveimur
árum. Hann tjáði mér að þeir teldu
ekkert því tfl fyrirstöðu að það ættu
sér stað viðskipti milli íslands og Taí-
vans.“
Um fúnd Davíðs Oddssonar forsæt-
isrðherra og varaforseta Taívans
sagði utanríkisráðherra að hann væri
óopinber og það mundu engar viðræð-
ur eiga sér stað. Því breytti hann í
sjálfu sér engu um eðh heimsóknar-
innar, sem væri einkaheimsókn þessa
einstaklings.
„í ljósi framkominna mótmæla
munum við koma fram okkar skoð-
imum á málinu og ítrekum að af okk-
ar hálfu hefur ekki átt sér staö nein
stefhubreyting." -JSS
Björk Guömundsdóttir.
Björk
komin
heim
Björk Guðmundsdóttir hefur
dvalist hér á íslandi frá því að
nýjasta hljómplata hennar,
Homogenic, kom út.
Björk býr í íbúð sinni í miðbæ
Reykjavíkur, sem hún keypti
áður en hún fluttist til Bretlands
til að hlúa að tónlistarferli sín-
um. Söngkonan mun ætla að
verja mestum tíma sínum hér-
lendis i það minnsta fram yfir
jól, ef undanskflin er þriggja tfl
fjögurra vikna tónleikaferð
hennar um Evrópu sem hefst í
lok október. -sól
Stuttar fréttir
Prófkjör í Hafnarfirði
Sjálfstæðismenn í Hafiiarfirði
halda prófkjör innan flokksfélag-
anna í Hafnarfirði 22. nóvember
vegna bæjarstjómarkosninga
næsta vor. Framboðsfrestur renn-
ur út 29. október. RÚV sagði frá
þessu.
Verkfall 27. október
Grunnskólakennarar hafa sam-
þykkt með 95% greiddra atkvæða
að fara í verkfall 27. október hafi
ekki samist fyrir þann tíma. RÚV
sagði frá.
Hafnar vegi
Skipulagsstjóri ríkisins hefur
hafhað því að lagður verði nýr
spotti við hringveginn milli
Langadals að Ármótaseli austan
Grímsstaða á Fjöllum. Hann telur
að vegarlögnin hafl of mikil
óæskileg áhrif á umhverfi. RÚV
sagði frá.
Sýndarveruleiki
Minnihluti fjárlaganefndar telur
að ýmis kostnaður upp á sjö millj-
arða, svo sem lífeyrisskuldbinding-
ar, séu ekki færöar í fjárlagafrum-
varpinu. í raun verði milljarða
halli á fjárlögunum verði þau að
lögum. RÚV sagði frá.
íslenskt bóluefni
RÚV segir að íslenskir visinda-
menn séu að þróa nýtt bóluefni
gegn pneumokokkabakteríum
sem valda m.a. lungnabólgu.
Pneumokokkar hafa undanfama
áratugi myndað ónæmi gegn
venjulegum sýklalyfjum.
R-listinn í kiípu
Stöð 2 segir að uppnám sé innan
R-listans vegna þess að aðstand-
endur hans geti ekki með nokkm
móti komið sér saman um hvemig
eigi að raða upp lista fyrir næstu
borgarstjómarkosningar i vor.
Uppnám
Morgunblaðið segir frá því að
uppnám sé í fjármálaráðuneytinu
vegna þess að upplýsingar um
innihald fjárlaga komu fram á
Stöð 2 áöur en frumvarpið hafði
verið afhent Alþingi, ríkisstjóm
og fjöhniðlum. Fréttastjóri Stöðv-
ar 2 mótmælir því að hann hafi
brotið trúnað. -SÁ