Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
Spurningin
Á hvaöa stjórnmálamanni
hefur þú mest álit?
Hjördls Jónsdóttir kennaranemi:
Halldóri Ásgrlmssyni.
Ingi Jóhannesson bifreiðastjóri:
Ég hef ekki mikið álit á stjórnmála-
mönnum.
Amdís Hjaltadóttir: Ég segi það
ekki.
Ögmundur Guðmundsson mat-
reiðslunemi: No comment.
Díana Jónasardóttir nemi: Davíð
Oddssyni.
Erlingur Einarsson matsmaður:
Davíð.
Lesendur__________
Spíritistar
í sókn?
Ijósiö í þjóðkirkju okkar sem er yfir 90% landsmanna.“
H.V. skrifar:
Haustátak íslenskra spíritista er
hafið, vandlega skipulagt í sam-
vinnu við hliðholla fjölmiðla.
Þannig var í Dagsljósi Sjónvarps 30.
sept. sl. mættur skeleggur hópur
þeirra undir forystu sr. Sigurðar
Hauks Guðjónssonar, fyrrv. Lang-
holtskirkjuprests, samverkamanns
sr. Árelíusar Níelssonar heitins.
Stjórnandinn fór mikinn þetta
kvöld og spurði m.a. hvort spírit-
ismi samrýmdist ekki kristinni trú.
Til andsvara voru biskupsritari og
Gunnar Þorsteinsson frá Krossin-
um. Var hann svo forsjáll að taka
með sér eintak af Biblíunni, trúar-
bók okkar kristinna manna, sem úr-
skurðarvald um hvað okkur kristn-
um er leyft og hvað bannað. Auk
þessara tveggja fóru Dagsljóssstjórn-
endur í smiðju til hins nýkjörna
biskups sem sat fyrir svörum inni í
sjálfum þjóðarhelgidóminum, Hall-
grímskirkju. Urðu margir fyrir von-
brigðum af svörum hans, vandræða-
legu svipmóti og loðnum svörum.
Þegar upp var staðið þetta kvöld
var það utan-þjóðkirkjumaðurinn
Gunnnar Þorsteinsson sem talaði
tæpitungulaust og skýrustu máli
kirkjunnar í samræmi við Guð orð.
Biskup sendi ritara sinn til að túlka
viðhorf þjóðkirkju í afstöðunni til
spíritismans. Sjálfur hefði hann átt
að vera ábyrgur fyrir þeirri túlkun,
líkt og nú, þegar mjög á reynir og
svo margir vilja halda áfram að
vera „leitandi", þrátt fyrir að fram-
rétt hönd hins lifandi Guðs og
himneska föður bjóðist hverjum
þeim sem vill við henni taka. - Þar
þarf hvorki milliliði né miðla.
Já-menn spíritismans höfðu
greinilega undirbúið sig og sitt lið
vel þetta kvöld og fengu 61% svörun
fyrir sinn hatt. Við sem vitum betur
hvað Guðs bók segir reyndumst
hálfvolgir og sofandi. Þjóðkirkjan
hefur brýnt verk að vinna og má
minnast orða Ritningarinnar:
Vakna þú sem sefur og rís upp frá
dauðum, þá mun Kristur lýsa þér.
Framhald haustátaks spíritista
kom í ljós næsta morgun í blaði
allra landsmanna. Þar birtist vel
„hausaður“ ritdómur um nýja bók
sr. Sigurðar Hauks Guðjónssonar er
nefnist Varnarræða spíritistans og
fær ritverkið háa einkunn hjá dóm-
aranum. Umsögnin hefst með orð-
unum: „Þetta eru kröftugar predik-
anir.“ Höfundur veigrar sér hvergi
við að kveða fast að orði en segist
efasemdamaður. - Gott hjá honum.
Vonandi efast hann um vinfengi sitt
við kuklið sem Biblian bannar. Ég
vil honum vel og bið þess að hann
komist sem fyrst úr myrkrinu inn í
ljósið - ljósið í þjóðkirkju okkar
sem er yfir 90% landsmanna.
Foreldrar og fósturheimili
Rósa Guðmundsd. skrifar:
Kynferðisofbeldi gagnvart stúlku-
barni sem nýlega var gert opinbert
vekur upp margar spumingar. Um-
rætt heimili er alls ekki fyrsta fóst-
urheimilið á íslandi sem þetta kem-
ur upp á en málin hafa verið þögguð
niður.
Ég er yflr mig hneyksluð og reið
en læt reiðina þó ekki stjórna mér.
Ég er nefnilega ein þeirra sem hef
verið svipt tveimur börnum og
kæmi svipað atvik upp á fóstur-
heimili þeirra barna þá spyrði ég
ekki um lög og reglu í þessu landi.
Það má líka spyrja hvers vegna
umrætt stúlkubarnn var tekið af
foreldri sínu. Var það t.d. vegna
þess að konan eða maðurinn fengu
sér í glas? Slíkar aðstæður eru
nokkuð algengar á heimilum hér.
Og það er alltaf erfltt fyrir börnin,
séu foreldrar ekki allsgáðir vegna
ölvunar. En hvað sem veldur, er
þetta ævilangt sálarmorð sem þessi
litla stúlka verður fyrir. Hver lækn-
ar hana? Geta geðlæknar það?
Ég hef sjálf ótrúlega reynslu af
svona málum og finnst mér raunar
kraftaverk að maður skuli vera lif-
andi í dag. Ég er þó tiltölulega sátt
við guð minn, en ekki suma menn.
Hins vegar kemur dómsdagur yfir
alla sem framkvæma voðaverkin.
Ég vildi óska að ekki kæmu upp
fleiri svona mál hér á landi.
Þingmenn Austurlands: Arnbjörg Sveinsdóttir, Egill Jónsson, Halldór Ásgrímsson, Hjörleifur Guttormsson og Jón
Kristjánsson. - Láta sem þeir heyri ekki umræöuna.
Þingmenn Austurlands þegja
Kristinn Guðmundsson skrifar: að undangenginni byggingu raforku-
Nú eru ræddir möguleikar á að vers til viðbótar þeim sem fyrir eru.
Norsk Hydro byggi hér stóriðjuver Hefur Austurland verið nefnt sem
einn valkosturinn fyrir slíka stór-
iðju. Raunar eru Austfirðingar búnir
að bíða lengi eftir að fá þær gleði-
fréttir að Fljótsdalsvirkjun verði að
veruleika. - Og verið ákaflega þohn-
móðir. Austfirðingar hafa þó ekki
reitt sig mikið á þingmenn sína í
þessum efnum. Þeir hafa verið enn
„þolinmóðari" en íbúarnir sjálfir.
Kannski eðlilegt þar sem þingmönn-
ununum hefur verið tryggð föst
vinna af kjósendum Austurlands og
eru mestan tíma ársins í höfuðborg-
inni. Þeir hafa enda þagað þunnu
fl^f^í#1fD)/g\ þjónusta
allan sólarhringinn
Aðolns 39,00 mínútlrr'
eða hringið í síma
5000
tfíilli kl. 14 og 16
hljóði. Þeir hafa svo sem heldur ekki
rokið upp þótt stóriðja sé rædd í kjör-
dæmi þeirra. - Hafa hugsanlega eng-
an áhuga á henni, fremur en jarð-
gangagerð sem þeir þegja líka um. -
Það var þingmaður af Vestfjörðum
sem benti á að jarðgöng nú væru
brýnni á Austurlandi en á Vestfjörð-
um eða á Norðurlandi.
Þótt eitt starf á einum firði Aust-
fjarða jafngildi um 100 störfum í
Reykjavík þykjast þingmenn Aust-
urlands ekkert sjá eða heyra. Þeir
þegja, láta sem þeir heyri ekki um-
ræðu um stóriðju á Austurlandi. Til
hvers kjósum við þessa menn á
þing?
DV
Fjárkúgun Rík-
isútvarpsins
Þorleifur Guðlaugss. skrifar:
Hvemig er landsþing statt sem
geíúr út framlag úr sjóði lands-
manna til að verðlauna fyrirtæki
sem beitir valdniðslu og fiárkúgun
á þegna þess? Hver er staða aldr-
aðs fólks sem greiddar em mútur
til að þegja um yfirgang og mann-
réttindabrot? Hvemig er sú þjóð
stödd sem meinað er að horfa á
kristilegar sjónvarps- og útvarps-
stöðvar, nema hlíta afarkostum
glataðs valdboðs Ríkisútvarpsins?
Hvað segið þið, lögmenn íslenska
lýðveldisins, mn það? Hvað segja
forsetavald og þingforseti um beit-
ingu fjárkúgunar í viðskiptum af
hálfúRÚV?
Úttekt á rekstri
Seðlabankans
H.J. hringdi:
Ég er skattgreiðandi og tel mig
eiga rétt á að vita hvemig pening-
um mínumn er varið. Ég fer því
fram á að allar greiðslur og kostn-
aður við rekstur Seðlabankans sé
birtur opinberlega. Þar á engin
bankaleynd við. Alls konar sögu-
sagnir era í gangi um eyðslu og
ferðagleði yfirmanna þessarar
stofnunar - og það á dögum nýj-
ustu og fúllkomnustu fjarskipta-
þjónustu. Ýmsum finnst bankaráð
og bankastjórn ein og sama klík-
an. Þama á ekki að þurfa að fela
neitt. Því segi ég: Upp á borðið
með allar þessar upplýsingar.
Verðið er núm-
er eitt
Þórunn skrifar:
Ég las ágætan pistil í DV sl.
fostudag um Gallupkönnunina þar
sem neytendur vora m.a. spurðir
um hvað skipti mestu máli í versl-
un þeirra: staðsetning verslunar-
innar, vöraúrval, þjónusta eða
verð. Langflestir sögðu verðið
skipta mestu máli. Þessu er ég
100% sammála. Auðvitað er það
verðið. í dag eru ekki seldar
skemmdar matvörar eða úr sér
gengnar þannig að í flestum versl-
unum er um sama úrval að ræða í
matvörunni. Það er því verðið og
tilboðin niður á við sem ráða inn-
kaupum flestra. Nóg er dýrtíðin
samt, eins og t.d. verðið á kjötvör-
um sem fólk nánast forðast vegna
ofurverðsins.
Seðlabanka- og
Steingrímsmálin
Óðinn hringdi:
Það er hætt við því að svonefnd
Seðlabanka- og Steingrímsmál
sem nú eru uppi á borðum fjöl-
miðla verði drepin og þurrkuð út
aftur. Venjan er sú að þegar svona
mál eru dregin fram í sviðsljósið
er þeim venjulega eytt með aula-
fyndni af þeim sem síst skyldi; fjöl-
miðlmium sjálfum, starfsmönnum
þeirra eða yfirboðurum sem hugs-
anleg eru tilbúnir að verja
ósómann íyrir einhvern smágreið-
ann - nú, eða bara samkvæmt
skipunum úr skúmaskotum
stjómsýslunnar. Þau era því mið-
ur mörg og sum maðksmogin. -
Og svo tölum við um Mið-Amer-
íkuríkin með tilbúnum klígjusvip.
Ja svei!
Radar-þátturinn
Auna Sigurðardóttir skrifar:
Ég horfði (þvi miðm-) á nýjan
þátt í Sjónvarpinu sem fékk nafn-
ið Radar. Er þetta splunkunýr af-
þreyingarþáttm- með skemmti-
gildi, fyrst og fremst sniðinn að
þörfúm ungs fólks. - Mikið óskap-
lega var þátturinn leiðinlegur -
ómerkilegur, vil ég segja. Þetta
voru mest grettur og meira að
segja var rekin framan í mig tung-
an undir lokin. Er Sjónvarpið að
syngja sitt síðasta? Lokum
apparatinu bara strax. Ég meina
fyrir fullt og allt.