Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTOBER 1997 : r ennmg 11 Rólegt og rómantískt Nú fer vetur að og kvöldin gerast kaldlynd, úti á nesi og inni í vogum. Hvað er þá betra en vera bara heima, hafa það notalegt, „dempa niður ljósin, kveikja á kerti, koma sér fyrir með kakóbolla undir sæng og hlusta á rólegt og rómantískt"? Nokkum veginn þannig orðar hann það, hann Stefán Sigurðsson, sem sér um einn uppáhaldsþátt undirritaðs í is- lensku útvarpi: „Rólegt og rómantískt" á FM á sunnudags-, mánudags-, þriðju- dags- og fimmtudagskvöldum milli kl. 23 og 1. Hér eru rólegu og hugljúfu lög- in leikin fyrir fólk á leið í háttinn, elsk- andi pör og einmana sálir, hjartbrotna drengi og dreymandi stúlkur. Stefán Sigurðsson er þarna ákaflega réttim maður á réttum stað og trúir 100% á það sem hann er að gera sem ekki er alltof algengt hér á landi. „Ef þetta lag vekur ekki upp ein- hverjar hugljúfar minningar þá veit ég ekki hvað...“ segir Stefán með þægileg- ustu og kvöldlegustu rödd ljósvakans og kynnir svo „Where do broken hearts go?“ með Whitney Huston. Upphafið frá New York Þetta rólega og rómantíska þáttar- form að kveldi dags er vel kunnugt víða um heim og rekur upphaf sitt til New York. Um miðjan síðasta áratug hóf hin sálar-svarta útvarpsstöð KISS FM að senda út vangalög á sunnudags- kvöldum í þætti sem hét „The Sunday Night Kiss Cool out“. Þama voru leikin ró- leg R- og B-lög með Anitu Baker, Luther Vandross, Sade, Freddie Jackson, A1 B. Sure og fleirum að ógleymdum upphafs- meistara púðursykurtónlistarinnar, Barry White. Nýbreytni þessi féll svona svakalega vel í kramið hjá Manhettingum að úr varð daglegur þáttur sem síðar fékk nafhið „The Soft Touch“ og á samkeppnisstöðinni WBLS hóf göngu sína alveg eins þáttur sem bar nafnið „The Quiet Storm". Fleiri stöðv- ar fylgdu svo á eftir, enda einhver ómót- stæðileg stórborgar- stemning sem fylgdi þessum takthægu og sexí rólegheitum. Það veit sá sem allt veit að sá maður hefur ekki lifað sem ekki hefur siglt yflr Brooklyn-brú um lágnættið, í gulum leigubíl með ljósum prúða Manhattan-skyline í hliðargluggan- um og græjumar stilltar í botn á Keith Stefán Sigurösson er réttur maður á réttum staö og trúir 100% á það sem hann er aö gera. Fjölmiðlar Hallgrímur Helgason Sweat að syngja „Right and a Wrong Way“. Það er enn eitt merki þess að Reykjavík sé orðin borg meðal borga að þetta þátta- form hefur skflað sér hingað upp eftir. Á Bylgjunni sér Ásgeir Kolbeinsson um sams konar þátt og Stefán á FM og em þeir um margt líkir, röddin þægileg og seiðandi og svæfandi. Tónlistin sem þeir leika er einnig svipuð, reyndar full gítar-hvít fyrir minn smekk en mest em þetta þau Toni Braxton, R. Kelly og Babyface í bland við Eric Clapton og Elton John auk sjálfs meistar- ans; George Michael. Fullmikið af Celine Dion en sem kunnugt er er hún kanadísk. Allar kynningar í „Rólegt og ró- mantískt" og áminningarorð frá styrktaraðilanum Lækjarbrekku era lesnar af Helga Skúlasyni. Óneitanlega öðlast þátturinn sígilt yfirbragð fyrir vikið en ég er enn að velta því fyrir mér hvort ekki sé það smekkleysa að látinn maður sé notaður til að lesa auglýsingar í útvarpi og sjón- varpi. Að minnsta kosti era áhrif- in all sérkennileg en kannski er þetta bara einfaldlega framtíðin; með digital tölvu- og sampler- klippi-tækni verður hægt að láta Jón Múla lesa fréttirnar alla næstu öld. Meinleg hugsanavilla er í auglýsingum frá veitingahús- inu Lækjarbrekku sem segist vera „alltaf sígild". Nema eitt- hvað sé til það sem er „stundum sígilt". Bréf frá hlustendum Á miðnætti á sunnudagskvöld- um kemur siðan klímaxinn í „Ró- legt og rómantískt", þegar Stefán les bréf frá dyggum hlustanda. Oftast, eða reyndar alltaf, eru þetta ástarsögur úr úthverfunum, stúlka úr Árbæ hittir pilt frá Sel- fossi á útihátíð í Þórsmörk fyrir tveimur árum. Þau skiptast á nokkram orðum en hún er á föstu og ekk- ert gerist næsta árið þar til okkar mann- eskja er „búin að koma sér út úr því dúller- íi“ og vinkona hennar flytur austur á Sel- foss og hún þarf að ná í hana en hún er ekki heima og hún hringir í partí þar sem hann svarar óvart í símann og þau gera sér stefnumót og búa nú saman í Nökkvavogin- um og fara saman í Sambíó á kvöldin og kannski barn á leiðinni og þau biðja um lagið „Kannski er ástin eins og sæluhús" með Bergþóri og Eyva. Það er lagið þeirra. Það er dásamleg einlægni í þessum bréf- um og um fram allt sannleikur. Þetta era svo sannar sögur að enginn situr ósnortinn við hlustir. Hér væri t.d. kjörið fyrir ís- lenska rithöfúnda að leita fanga, þeir sem alltaf eiga svo erfitt með að búa til söguþráð. Gleði í stað gagnrýni „Línan er eiginlega það sem gleður - það sem kveikir í okkur. Allt efni verður undir hattinum menning og listir, en það eru auð- vitað víð hugtök," segir Valgerður Matthí- asdóttir - Vala Matt. - og sendir blaða- manni landsfrægt sjónvarpsbros. Hún er að fara af stað með nýjan þátt á Stöð 2 sem heitir Ljósbrot. Þetta verður hennar einka- þáttur, hún ræður hvað hún tekur fyrir og verður ein með hann, fyrir utan tæknilið. „Ég mun fara í leikhús, bíó, á danssýn- ingar, myndlistarsýningar, tónleika og segja frá þeim. Ég fæ einnig til mín í beina útsendingu gest eða gesti sem hafa farið á sýningu eða upplifað eitthvað sem hefur hrifið þá og þeir vilja vekja athygli á. Þetta er undir formerkjunum „mælt með“ - ekki gagnrýni heldur gleði. Það er svo rosalega mikið um að vera í listalifi þjóðarinnar að venjulegt fólk á fullt í fangi með að fylgjast með því. Þess vegna er nauðsynlegt að fá meðmæli frá öðrum. Ég verð ekki með neina fasta menn, að minnsta kosti ekki að sinni. Þegar ég byrjaði í sjónvarpi fyrir áratug fannst mér skemmtilegt að brjóta upp hefð- bundin mynstur. Við á Stöð 2 urðum fyrst þá til þess hér á landi að fara baksviðs hjá listamönnum. Ég verð dálítið á þeim nótum líka núna. Þetta verður samsettur þáttur úr mörg- um atriðum en ég á líka möguleika á að leggja allan þáttinn undir eitt atriði. Við og við ætla ég að skreppa til útlanda: London, Parísar eða New York, og taka viðtöl við fólk. Ég hef gert það áður, til dæmis í kvik- myndaþáttunum mínum í Sjónvarpinu. Það efni gæti orðið viðameira en þetta venju- lega. Ég var viku í New York núna um dag- inn og hitti nokkra íslendinga sem era að vinna skemmtileg og skapandi verkefni þar. Ég tók viðtöl við þá sem við dreifum um fyrstu þættina. Það gefúr þættinum annað yfirbragð að vera svona á faralds- fæti. Vala Matt.: Orkuna fær hún úr gulrótarsafa og græn- metisfæði og óbilandi góöu skapi. DV-mynd BG Ég var lika við spennandi opnun á Gug- genheim-safninu í New York á myndum eft- ir Robert Rauschenberg sem hefur lengi ver- ið mitt eftirlæti. Ég rakst meira að segja á hann sjálfan og náði örstuttu viðtali við hann. Ég fékk hreinlega gæsahúð upp á enni frammi fyrir fegurðinni og listinni sem voru sameinaðar í þessu glæsilega húsi. Það er stórkostlegt að geta upp- lifað svona lagað, komið svo heim og miðlað því til annarra. Við verðum með sérstaka mann- eskju á okkar vegum í París, Lindu Björgu fatahönnuð - sem vann verðlaun í alþjóðlegri keppni fyrir kjól úr vömbum fyrir fáeinum árum. Hún hefur aðgang að öllum helstu tískuhönnuðum Parísar- borgar og ætlar að senda okkur eíni frá tiskusýningum þar.“ - Þetta er sem sagt fokdýr þátt- ur? „Já, svona þáttur kostar sitt og ég er mjög stolt af því að Stöð 2 skuli núna, eins og í byrjun, leggja fé i íslenska menningu. En auðvit- að er mikilvægt að nota hugmynda- flugið og gera hlutina á hagkvæm- an hátt og það ætlum við að gera. Við fórum til dæmis bara tvö til New York. Félagi minn, Jón Karl Helgason, var bæði pródúsent, tökumaður og klippari! Enda er hann einn reyndasti kvikmynda- tökumaður landsins. Þessi þáttur verður kannski fyrst og fremst prófraun á úthald mitt og áhuga. En ég sef alveg enn þá, enda er ég vön svona álagi. Ég er vinnufikill og kem mér alltaf í verkefni sem era of stór. En það gengur ef ég passa ævinlega að fara í jógað og leikfimina og borða holla grænmetismatinn og byrja morgn- ana á gulrótarsafa eða ferskum app- elsínusafa. Það eru lykilatriði ef ég ætla að halda dampi. Ekki má heldur gleyma næringunni sem maður fær við að vinna að verkefnum sem eru svona ótrúlega gefandi.“ Þáttur Völu Matt., Ljósbrot, verður í fyrsta skipti á dagskrá á fimmtudagskvöldið kemur, kl. 20, í læstri dagskrá. Hönnun á 20. öld Dr. Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur verður með fyrirlestraröð og námskeið um hönnun á 20. öld hjá fræðsludeild Myndlista- og handíða- skóla íslands í Laugarnesi og hefst hún á mánudaginn kemur, 13. október. Þar mun hún meðal annars fjalla um art nouveau, módernis- mann, art deco og upphaf nútíma iðnhönnun- ar, pop art og póstmódemisma. Fyrirlestramir verða fluttir á mánudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum kl. 20-22.30 og er þátttöku- gjald 9.000 krónur. Laxness-fyrirlestur Sjötti fyrirlestur Laxnessársins verður, á fimmtudaginn kl. 17.15 í Norræna húsinu. Þá ætlar Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur að tala um lífsviðhorf í bókum skáldsins. Fyr- irlestraröðin er á vegum bókaútgáfunnar Vöku-Helgafells. Frumsýning í Mosfellsbæ Áhugaleikfélög landsins eru mörg hver kom- in á fullan skrið í vetrarstarfinu og á fóstudag- inn framsýnir hópur ungmenna úr Leikfélagi Mosfellssveitar „Svindlið" eftir Patrik Bergner og Ursulu Fogelström. Guðjón Sigvaldason leikstýrir verkinu sem gerist í lokaðri skóla- stofu. Einn af nemendum bekkjarins svindlaði á lokaprófi en óvist hver það var. Enginn fær að fara út fyrr en sökudólgurinn er fundinn... Fiskur, sérsveit stráka og vinabönd Bamabókaútgáfan hefur gefið út þrjár nýjar bama-, bækur með myndum eftir , íslenska rithöfunda og ( myndlistarmenn. Ljótasti fiskur í heimi, er eftir Áma Ámason , með myndum eftir, Halldór Baldursson., Þar segir frá því þeg-, ar svo ljótur fiskur, kemur í netið hjá, pabba Ásu að hon-, um dettur í hug að , selja hann á sæ-1 dýrasafn. Eina manneskjan' sem finnur til með aumingja kvikindinu er Ása. Sagan er sér- staklega gerð fyrir lítt vana les- endur, letur stórt, gott línubil og mikið myndefni. Skarpi og sérsveitin eftir Birgi Svan Símonarson með myndum eftir Halldór ^Bald- ursson er sjálfstætt fram- hald sögunnar Dagur í lífi Skarpa sem kom út I fyrra og fékk góðar viðtökur. Skarpi og vinir hans taka til sinna ráða þegar innbrots- þjófar láta greipar sópa um heimili eins úr hópnum. Þeir stofna sína eigin lögreglusveit sem lendir í miklum ævin- týram. Vinabönd er fyrsta skáld- saga Sigrúnar Oddsdóttur, myndskreytt af Freydísi Kristjánsdóttur. Þar segir frá Hildi sem er nýflutt í sjávarþorp úti á landi og þarf að kynnast nýj- um félögum og ná fót- festu í nýju umhverfi. Einnig segir frá foreldrum hennar og þeirra lífsbaráttu og fjöldamörgu öðru sem snertir daglegt líf barna og fullorðinna. Við samningu og hönnun allra bókanna eru þarfir lesenda hafðir í fyrirrúmi, enda miðar Bamabókaútgáfan að þvi að sinna þörfum 6-12 ára bama fyrir fjölbreytt lestrarefni. íslenskar miðaldakirkjur Hjörleifur Stefánsson arkitekt talar um ís- lenskar miðaldakirkjur í Þjóðminjasafninu á fimmtudaginn kl. 17. Erindi hans er hið síðasta í fyrirlestraröð safnsins í tilefni af sýningunni Kirkja og kirkjuskrúð sem nú stendur yfir í safninu. Síðasti sýningardagur er 18. október; þá verða allir munirnir fluttir til Noregs og sýningin opnuð á nýjan leik í Norsk folkemu- seum á Bygdoy um miðjan nóvember. Áhugamenn um miðaldir og kirkjulist era hvattir til að sjá þessa merku sýningu áður en hún fer úr landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.