Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 13 og lengi! Skylduaðild launþega að lífeyr- issjóðum viðkomandi stafsstéttar eða starfshóps. Skylduaðildin er forsenda þess að við getum dreift áhættunni jafnt, forðast mismun- un og tryggt öllum lifeyri, óháð efnahag, aðstæðum eða kyni. Sjóðsöfnun þannig að lífeyrir framtíðarinnar er tryggður með traustum sjóðum fremur er vax- andi skattbyrðum á afkomendur okkar. Samtryggingu sem byggist á samábyrgð og þátttöku allra laun- þega. Með þeim hætti er ellilífeyr- irinn tryggður ævilangt en ekki í skamman tíma eins og hjá séreign- arsjóðunum, auk þess sem við tryggjum einnig lífeyri þeirra sem verða fyrir áfóllum vegna slysa eða sjúkdóma eða vegna andláts sjóðfélaga. Hin jákvæða ímynd sem al- mennu lífeyris- sjóðimir hafa skapað í hugum landsmanna er mjög mikilvæg. Því er nú sér- stakrar aðgæslu þörf hjá lands- mönnum að verja helstu þætti al- menna lífeyris- sjóðakerfisins sem svo rækilega hefur sannað yfirburði sína á al- þjóðamælikvarða. Með ævilöngum ellilífeyri vilja almennu lífeyris- sjóðirnir fylgja þér alla ævi. Lifðu því vel og lengi! Hrafn Magnússon „Hin jákvæða ímynd sem al- mennu lífeyríssjóðirnir hafa skapað í hugum iandsmanna er mjög mikilvæg. Því er nú sér- stakrar aðgæslu þörf hjá lands- mönnum að verja helstu þætti al- menna lífeyrissjóðakerfisins..." íslenska lífeyriskerfið er al- þjóðleg fyrirmynd Okkur íslendingum hefur með þrautseigju tekist að byggja upp lifeyriskerfi sem talið er til fyrir- „Með ævilöngum ellilífeyri vilja almennu lífeyrissjóöirnir fylgja þér alla ævi,“ segir m.a. í greininni. Lifðu vel Lífeyrissjóðir á traustum grunni Almennu lífeyris- sjóðirnir eru tvímæla- laust eitt af óskabörn- um þjóðarinnar. Grundvöllur að nú- verandi lífeyrissjóða- kerfi á almennum vinnumarkaði var lagður í kjarasamn- ingum aðila vinnu- markaðarins vorið 1969, þegar launafólk ákvað að verja hluta af tekjum sínum til að tryggja sér lífeyri í framtíðinni. Kjallarinn Traustur grunnur í ræðu Más Guð- mundssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka íslands, sem haldin var á ráðstefnu um lífeyrismál aldraðra fyrir skömmu, kom m.a. fram að fjárhagslega staða al- mennu lífeyrissjóðanna væri mun betri en margur heldur, m.a. vegna góðrar raunávöxtunar og lækkandi rekstrarkostnaðar. Nú er svo komið að eignir flestra full- starfandi sjóða á almennum vinnumarkaði nægja fyrir skuld- bindingum, sérstaklega þegar tek- ið er tillit til endurmats eigna. Margir sjóðir hafa verið að auka réttindi að undanfórnu og líklegt er að sjóðimir muni halda áfram að auka við réttindi sjóðfélaga á næstu árum. Lifeyrissjóðimir byggjast því á traustum grunni. Allt er þetta fagnaðarefni því réttur launþega til öruggrar af- komu í framtíðinni er einn af hornsteinum okkar samfélags. Það öryggi sem almennu lifeyrissjóð- imir veita kostar litið í saman- burði við þær tryggingar sem bjóðast til kaups af tryggingafélög- unum. Aðstæður fólks eru mis- jafnar en áhættan dreifist á marga og því era almennu lífeyrisjóðirn- ir raunverulegt samtryggingar- kerfi. Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri SAL myndar á alþjóðleg- um vettvangi. Víða um lönd era lífeyris- kerfi byggð upp þannig að vinnandi fólk greiðir jafnóðum eftirlaun þeirra sem komnir eru á eftir- launaaldur. Þar sjá menn fram á mikinn vanda þegar sífellt færri vinnandi menn era á bak við hvem eftirlaunaþega. Al- gengt er erlendis að mikill hluti launa- fólks á ekki aðild að! lífeyrissjóðum og verður þannig án ör- uggrar afkomu í ell- inni. ESSIN-þrjú: Hér á landi höfum við borið gæfu til að byggja upp lífeyriskerfi sem byggist á eftirfarandi þremur meginþáttum sem hver og einn er mjög mikilvægur: Með tólið á róli Hér á áram áður átti sérhvert íslensk pláss sér eigin sérvitring, menn með „andlegar takmark- anir“ eins og það heitir nú á máli góðlyndra sérfræðinga. Þessir menn stóðu um miðjar götur eða við húshom með hönd eins og samvaxna kinninni, tuldrandi eitt- hvað ofan í handarkrikann, milli þess sem þeir gáfu frá sér hljóð eða flíruðu út í vindinn. Þetta voru meinleysisgrey sem sjaldan öbbuðust upp á fullfrískt fólk, vora ekki með hávaða á manna- mótum og vissu ekki nógu mikið til að geta farið sér að voða. Nú ganga þessir menn ekki lengur lausir í plássunum, heldur dunda sér á stofnunum. í þeirra stað eru komnir „gemsamir" sem ég kalla eftir við- hengjum þeirra, farsímunum, talandi eins og ofan í hnefa sér eða hvíandi út i bláinn hvar sem þeir eru staddir, á miðju Austurstræti, í sundlaugunum eða úti í búð. Gemsamir eru öllu hvimleiðari og hættulegri en takmarkaðir forver- ar þeirra, þar sem þeir ganga iðu- lega á svig við viðteknar reglur um mannasiði, era hávaðasamir og aukinheldur hættulegir undir stýri. Til þessa hefur aðeins verið sett út á hið síðastnefnda. (Raunar hef ég óbrigðult ráð að offra þeim sem líkar illa símarausið í bílstjór- um á fullri ferð; nefnilega að hafa í framsætinu gamlan striga- skó, vel stóran. Sjái þeir nálæga bílstjóra með símtólið á lofti í miðri föstudags- umferðinni, er gott að bregða skónum upp að vinstra eyra og hefja hrókasam- ræður við sjálf- an sig. Flestir gemsar skilja sneiðina og sleppa tólinu.) Hvimleitt mas Ég ætla ekki að halda þvi fram að farsímanotkunin sé alfarið af hinu illa. í sumar sökk bátur und- ir nokkrum ungum mönnum og náði einn þeirra að hóa á hjálp í farsímann áður en síminn blotn- aði og varð gagnslaus. Þarna bjargaði farsíminn klárlega lífi manns. Vonandi fer hann ekki aftur út á sjó án þess að hafa með sér alvöru fjarskiptatæki. Ugglaust er líka gott að vera með farsíma á sér þegar maður er vanbúinn í umferð- inni. Ég ætla ekki að halda því fram að ekki sé hægt að negla niður milljónasamn- inga eða láta eitthvað gott af sér leiða með því að tala í farsíma. Merkilegt nokk hef ég samt aldrei séð þá sem taka mikilvæg- ustu ákvarðanirnar í þjóðlífinu, til að mynda stjórnmálamenn og bankastjóra, tala í farsíma, hvorki í kyrrstöðu né á ferð. Þeir vita sem er að alvöru komm- únikasjónir fara ekki fram gegn- um hriplekan farsíma, heldur gegnum alvörusíma, fax og E-mil. Sannleikurinn er sá að langflest samtöl sem fram fara gegnum far- síma era fullkomlega ónauðsyn- legt og hvimleitt mas í fólki sem ekki nennir að ganga afsíðis og teygja sig í næsta alvörusíma. Fyrir nokkram dögum horfði ég upp á gemsa leggja inn peninga i banka í sömu mund og hann pant- aði afar flókna pizzu og máttu þá allir við- staddir hlusta á við- horf hans til áleggs- tegunda. Annar gemsi stóð i miðjum gangveginum í Hag- kaupi, þar sem mest var umferðin, og ræddi hátt og snjallt við kunningja sinn fjarstaddan um gæsaveiðar meðan biðröð hrannaðist upp sitt hvora megin við hann. Og verst af öllu, vegna þess að þar er um að ræða griðastað flestra, inn á ágætt veitingahús kom þekktur lög- maður og var ekki fyrr sestur en tólið hans var kom- ið á ról. Ræddi hann við skjól- stæðinga sína eða lét þá hringja til sín á borðiö. Þjónamir á staðn- um (og raunar á fleiri íslenskum veitingastöðum) virtust ekki hafa heyrt um þann sið amerískra veit- ingamanna að heimta af gestum bæði yfirhafnir og farsíma, til að tryggja kúnnum matarfrið. Fyrir alla muni, notum farsíma ef mikið liggur við, en gerum hann ekki að einum friðþjófnum til viðbótar. Þeir era nægir fyrir. Aðalsteinn Ingólfsson „Sjái þeir nálæga bílstjóra með símtólið á lofti í miðri föstudags- umferðinni er gott að bregða skónum upp að vinstra eyra og hefja hrókasamræður við sjálfan sig.u Kjallarinn Aöalsteinn Ingólfsson listfræðingur Með og á móti Er Akureyri draumasveit- arfélag? Allt til alls „Já, á því leikur enginn vafi í mínum huga. Akur- eyri er í mjög hentugri stærð fyrir sveitarfé- lag. Hér er gott að ala upp börn, það er því gott að vera ungur á Akureyri og það er einnig hugsað vel um gamla fólkið þannig að það er líka gott að vera gamall á Akureyri. Skóla- kerfið er gott og hægt að fylgja krökkunum alveg upp í gegnum framhalds- og háskólanám. Félags- og menningarlíf í bæn- um er með miklum blóma, bæði í höndum einstaklinga og bæjar- félagsins. Þá er hér mikil og þekkt veðursæld, það er stutt út í fagra náttúru og ég veit eigin- lega ekki hvað menn vilja meira. Undir forustu núverandi meiri- hluta i bæjarstjórn hefur verið gert stórkostlegt átak við að fegra umhverfi bæjarins, eins og t.d. má sjá í Strandgötunni. Þá er það ekki til að skemma fyrir að það er ekki leiðinlegt að eiga heima í bæjarfélagi þar sem 40% íbúanna eru framsóknarmenn, ef miðað er við úrslit síðustu bæj- arstjórnarkosninga." Alls ekki „Mitt álit er það að svo sé ekki, því mið- ur. Ég veit ekki hvað tímaritið Vís- bending, sem skipaði Akur- eyri í þetta sæti, leggur til Sverrlr Leósson, grandvallar útgeróarmaóur á sínum útreikn- Akuroyii- ingum á þessu, en það grund- vallast án efa á krónum og aur- um. Það er ekki nema ein ástæða fyrir því að Akureyri hreppti þetta sæti og hún er sú að bær- inn seldi hlutabréf sín í fiski- mjölsverksmiðjunni Krossanesi og í Útgerðarfélagi Akureyringa, en ég var og er mjög ósáttur við þessa gjörninga báða. Flokkarnir í meirihlutanum eiga eftir að gjalda fyrir þetta í kosningunum næsta vor, það er ég sannfærður um. Hlutabréfin í Krossanesi vora seld á allt of lágu verði og mistökin voru jafn- vel enn þá meiri með ÚA- bréfin. Það var alveg furðulegt að sjá bæinn efna til kapphlaups milli sölurisanna ÍS og SH um við- skipti ÚA. Staðreyndin er nefni- lega sú að ÚA á auðvitað að sjá um sin sölumál sjálft og sleppa þessum millilið sem sölusamtök era. En þetta var gert. Þess vegna komst Akureyri i efsta sætið hjá Vísbendingu sem draumasveitarfélagið 1997, bara vegna peninganna sem fengust fyrir þessi hlutabréf. Akureyri verður ekki í því sæti árið 1998.“ -gk Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.