Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Síða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
23
Iþróttir
Iþróttir
Badminton:
Magnús Ingi
vann Tryggva
Magnús Ingi Helgason, TBR,
varð sigurvegari í einliðaleik
karla á Haustmóti TBR, um síð-
ustu helgi.
Keppt var með forgjöf. Sumir
keppendur fengu plús en aðrir
mínus. Magnús Ingi lék til úr-
slita í einliðaleik karla gegn
Árna Þór Hallgrímssyni, TBR og
sigraði, 15/—12 og 15/—12 eftir að
hafa sigrað íslandsmeistarann
Tryggva Nielsen í undanúrslit-
um.
Ámi Þór Hallgrímsson og
Tryggvi Nielsen sigruðu í tví-
liðaleik karla.
Ragna Ingólfsdóttir, TBR,
sigraði í einliðaleik kvenna og
þær Elsa Nielsen og Katrín Atla-
dóttir í tvíleiðaleik kvenna.
Systkynin Ingólfur R. Ingólfs-
son og Ragna Ingólfsdóttir sigr-
uðu í tvenndarleik.
-SK
Karate:
Edda meistari
Þriðja bikarmót Karatesam-
bands íslands fór fram um helg-
ina. Keppt var í tveimur flokk-
um karla og í einum opnum
flokki kvenna.
í karlaflokki -74 kg sigraði
Jón I. Þorvaldsson, Þórshamri.
Hrafn Ásgeirsson, Karatedeild
Akraness, varö annar og Bjarki
Birgisson, Karetefélagi Reykja-
víkur, þriðji. í flokki karla +74
kg sigraði Ingólfur Snorrason,
Selfossi, Helgi Hafsteinsson,
Akranesi, varð annar og Ólafur
Nielsen, Þórshamri, þriðji.
Hjá konunum sigraði Edda
Blöndal, Þórshamri, Sólveig K.
Einarsdóttir, Þórshamri, varð
önnur og Helga Símonardóttir,
Karatefélagi Reykjavíkur, þriðja.
Eitt mót er eftir í bikarkeppn-
inni. Edda Blöndal á bikarmeist-
aratitilinn vísan hjá konunum
en keppnin er hörð um titilinn
hjá körlunum. -GH
Miðilsfundur hjá FH
Kvennadeild FH verður með
miðilsfund í Kaplakrika klukkan
19.30 í kvöld. Það er enginn ann-
ar en Þórhallur miöill sem
stjómar fundinum.
Hilmar löglegur
Hilmar Bjarnason, sem gekk í
raðir íslandsmeistara KA frá
þýska liðinu Hildesheim, er orð-
inn löglegur með KA-mönnum
og leikur sinn fyrsta leik með fé-
laginu gegn Fram annað kvöld.
-GH
Sigur hjá AEK
AEK Aþena, lið Arnars Grét-
arssonar, sigraði Iraklis Salon-
ika, 1-4, í grisku 1. deildinni í
knattspymu í gærkvöld. Þegar
fimm umferðum er lokið em Ion-
ikos og Panathinaikos efst með
15 stig og AEK kemur þar á eftir
með 13 stig.
-GH
KR-ingar unnu
íslandsmeistarar Grindavík-
inga töpuðu fyrir KR-ingum,
53-59, í stórleik 1. deildar
kvenna í körfuknattleik í gær en
leikurinn fór fram i Grindavík.
Leikurinn var jafn allan tímann
og í hálfleik haföi KR eins stigs
forystu, 33-34.
Penni Peppas skoraði 18 stig
fyrir Grindavík og Anna Dís
Sveinbjörnsdóttir 15 en stiga-
hæst hjá KR var Kristín B. Jóns-
dóttir meö 17 stig.
Þessi lið mættust í úrslitum
um Islandsmeistaratitilinn á
síðustu leiktíð og þá haföi
Grindavik betur. -GH
Gunnar Oddsson með eiginkonu sinni, Kristínu Bauer, og börnum sínum, Oddi, 7 ára og Evu Siv, 2 ára. Bikarinn er
að sjálfsögðu með á myndinni. DV-mynd Ægir Már
DV í heimsókn hjá Gunnari Oddssyni:
Upplifun
DV, Suðurnesjum:
„Það var alveg stórglæsilegt að
ná þessu takmarki loksins, og það
bæði sem þjálfari og leikmaður.
Þetta er eitthvað sem ég hef ekki
upplifað áður. Það er stórkostlegt að
vera þátttakandi í þessu. Keflavík
hefur unnið 6 titla og við strákarn-
ir, sem stóðum í þessu í sumar, eig-
um einn af þeim,“ sagði Gunnar
Oddsson, þjálfari og leikmaður
Keflavíkur, þegar DV tók hús á hon-
um gær en hann varð bikarmeist-
ari með liði sínu á sunnudaginn og
fyrsti stóri titillinn hjá félaginu í 22
ár staðreynd.
Við komuna til Keflavíkur eftir
leikinn var vel tekið á móti leik-
mönnum Keflvíkinga. Mikill mann-
fjöldi beið eftir strákunum og flug-
eldum var skotið á loft.
Loksins eftir 14 ár
„Stemningin var alveg meirihátt-
ar og það var alveg ótrúlega gaman
að fá að upplifa það að koma með
bikarinn heim í rútunni og allur
mannfjöldinn sem beið og tók á
móti okkur á íþróttavellinum. Þetta
var góð tilfinning. Það rann upp fyr-
ir mér á þessari stundu að þetta var
loksins komið eftir 14 ár í meistara-
flokki. Ég var orðinn nokkuð svart-
sýnn í fyrri bikarúrslitaleiknum
þegar þeir komust yfir en fyrst að
Gestur Gylfason jafnaði í lokin með
þessu ótrúlega marki þá held ég að
örlögin hafi komið á okkar band,“
sagði Gunnar.
- En hvernig fannst Gunnari
að spila og þjálfa liðið og halda
þeir Sigurður Björgvinsson
áfram með liðið?
„Dæmi hafa sýnt að það er mjög
erfitt að einbeita sér að hvoru
tveggja. Við erum búnir að vera
tveir og verðum við áfram með lið-
ið verður þetta auðveldara fyrir
mig á næsta ári. Fyrsta árið er mjög
erfitt. Maður verður að hugsa um
heilan hóp af leikmönnum í staðinn
fyrir að hugsa um sjálfan sig eins
leikmaðurinn gerir.
Langar aö halda áfram
Okkur Sigurð langar til að halda
áffam. Ef svo yrði mundi ég vilja
styrkja hópinn. Við vorum með 14
leikmenn 20 ára og eldri og síðan 2.
flokkinn. Við teljum að við verðum
að styrkja liðið, þétta hópinn enda
liðið í Evrópukeppninni á næsta
tímabili. En við munum samt
byggja á þeim mönnum sem fyrir
eru,“ segir Gunnar.
- En hvað segir Gunnar um val
á landsliðinu í undanförnum
leikjum. Eiga Keflvíkingar skilið
að eiga mann í A-landsliðinu?
„Kannski ekki í dag en ég held að
það styttist óðum í að það komi
landsliðsmenn frá Keflavík.
Spiluöum yfir getu í byrjun
Keflvíkingar byrjuðu íslandsmót-
ið með látum en í síðari umferðinni
gekk liðinu Ula.
„Síðari hlutann skapaðist spenna
bæði hjá leikmönnum og stuðnings-
mönnum. Að mínu mati vorum við
að spila töluvert yfir getu í byrjun
móts miðað við raunverulega getu
hjá liðinu. Það má segja að vel-
gengnin hafi orðið okkur að falli.
Við vorum ekki með mannskap í að
halda þetta mót út á sama dampi og
í byrjun.“
- Hvemig hefur knattspyrnan
verið í sumar að mati Gminars?
„Ég held að sumarið í heild hafi
ekki verið neitt sérstakt knatt-
spymusumar. En lið eins og ÍBV
hefur verið að spUa góða knatt-
spymu í upphafi og einnig í öðmm
leikjum síðari hluta mótsins. ÍA og
Grindavík voru einnig að spila
ágætan bolta en síðan voru lið eins
og KR að spUa langt undir getu.
Leiftur náði að rifa sig upp í restina
en þeir ætluðu sér stærri hluti."
Hesthúsið hans Valla
Gunnar segir að efniviðurinn sé
mikill í Keflavik en aðstöðuna vantar.
„Við eigum í rauninni bara einn
vöU og svo æfingasvæði sem er
mjög lélegt. Að vera með aUa yngri
flokkana og horfa á þessa aðstöðu
er gjörsamlega óþolandi. Ég vU að
eitthvað verði gert í þessum málum.
Það sem reddaði okkur í vetur var
bara hesthúsið hans Valla í Mána-
grund.“
Gunnar fórnaði hárinu tvisvar í
sumar. I fyrra skiptið lögðu hann og
Sigurður hárið að verði fyrir góða
byrjun. Fyrir bikarúrslitaleikinn á
sunnudaginn voru allh' leikmenn
búnir að aflita hárið.
Konan ekki hress
„Við ætluðum að sýna samstöðu
þannig að maður mátti ekkert verða
neinn eftirbátur. Krakkarnir mínir
eru ánægðir með nýja háralitinn en
eiginkonan er ekki hress með
þetta,“ sagði Gunnar að lokum.
-ÆMK
Bernhard Langer lék síöustu 18
holurnar á aöeins 60 höggum.
Símamynd Reuter
Golf:
Ótrúlegur
árangur
hjá Langer
Þýski kylfingurinn Bernhard
Langer náði stórkostlegum árangri á
opna þýska meistaramótinu í golfi
sem lauk um síðustu helgi.
Langer sigraði á 267 höggum, 21
höggi undir pari vallarins á 72 hol-
um. Langer innsiglaði sigurinn á
síðasta hring. Þá lék hann á aðeins
60 höggum, 12 höggum undir parinu
á 18 holum. Langer jafnaði þar með
met sitt. Þetta var 38. sigur Langers
á móti á mótaröð atvinnumanna í
Evrópu og 51. sigur hans á golfmóti
á ferlinum. Sannarlega glæsilegur
árangur hjá þessum snjalla kylfingi
sem fékk 13,5 milljónir króna fyrir
sigurinn.
Fleiri léku vel
Það voru fleiri en Langer að leika
vel á þýska meistaramótinu. Bretinn
Colin Montgomerie varð í öðru sæti
og lék holurnar 72 á 273 höggum, að-
eins 6 höggum lakar en Langer.
Montgomerie lenti í vandræöum á
lokahringnum og var um tíma í 6.
sæti. Hann lék síðustu þrjár holurn-
ar á höggi undir pari og vippaði sér
með því í annaö sætið.
Daninn Thomas Bjöm varð í 3.
sæti á 274 höggum. Constantino
Rocca, Ítalíu, Svíinn Patrik Sjöland
og Spánverjinn Jose-Maria Olazabal,
urðu jafnir í næstu sætum og léku
allir á 276 höggum.
Montgomerie þénar mest
Montgomerie er enn efstur á list-
anum yfir tekjuhæstu kylfinga Evr-
ópu á leiktíðinni en Langer er í öðm
sæti. Aðeins eitt mót er eftir, Volvo
masters sem fram fer á Spáni um
næstu mánaðamót.
-SK
Athugasemd:
Ábyrgð
þjálfarans að
sjálfsögðu
langmest
Dómaranefnd KSÍ leggur ekki í vana
sinn að gera athugasemd við skrif um
frammistöðu dómara í leikjum. Sem
formaður nefndarinnar get ég þó ekki
látið hjá líða að gera athugasemdir við
ummæli Bjarna Jóhannssonar þjálfara
ÍBV í DV i gær og sérstaklega ásakan-
ir hans í garð Sæmundar Vígiundsson-
ar, dómara bikarúrslitaleikjanna
tveggja, sem fram hafa farið að undan-
fömu.
Það er afar ódrengilegt hjá þjálfara
nýkrýndra íslandsmeistara ÍBV að láta
hafa eftir sér að Sæmundur Víglunds-
son sé svo óheiðarlegur dómari, að
hann hafi getað klæðst búningi Kefla-
víkur í seinni leiknum og að hann hafi
einnig eyðilagt leikinn. Það er ekki síð-
ur furðuleg ósvífni af þjálfaranum að
tala um að dómarinn hafi fengið fall-
einkunn fyrir að dæma fyrri úrslita-
leikinn og gefa þannig óbeint í skyn að
óeðlilegt hafi verið að Sæmundur lyki
þessu verkefhi eins og leikmenn hðanna
Raunar er erfitt að átta sig á hvað
þjálfarinn á við eða hvaða aðilar hafi
gefið þá falleinkunn. Að minnsta kosti
kom hún ekki ffam á skýrslu eftirlits-
manns, ekki að áliti dómaranefndar og
ekki í fjölmiðlum. Hvemig það getur
síðan verið knattspymusambandinu til
vansa að nota einn reyndasta dómara
landsins á slíkan úrslitaleik, er auðvit-
að skot langt yfir markið. Það sýnir því
miður ekki annað en tapsáran þjálfara,
sem gleymir eða kannast ekki við hátt-
vísi og drenglyndi í leik.
Frammistaða dómara í leikjum er
misjöfn, jafnt innanlands sem utan, og
þeir sæta eðlilegri gagnrýni. Frammi-
staða leikmanna er ekki síður misjöfn
og ræður að sjálfsögðu mestu um úrslit
leikja sem betur fer. Frammistaða
þjálfara ræður vafalaust og vonandi
einhverju.
Öllum þessum aðilum er skylt að
bera virðingu fyrir sjálfum sér og hver
fyrir öðrum í starfi og leik og er ábyrgð
þjálfarans að sjálfsögðu langmest.
Drengileg framkoma að loknum tapleik
er ágæt próffaun á mannkosti og hæfni
þjálfara. Því miður fékk Bjami Jó-
hannsson falleinkunn á því prófi að
mínu áliti og margra annarra.
Halldór B. Jónsson, varaformaður
KSÍ.
HM 2ja manna liða í golfi:
Eins og að leika
golf í gufubaði
- Birgir og Sigurður í 14. sæti
Gunnar Oddsson og lærisveinar hans á sigurstundu f Laugardalnum á sunnudaginn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Sigurður Pétursson og Birgir Leifur
Hafþórsson náðu mjög góðum árangri í
undankeppni HM atvinnumanna í
golfi sem lauk á Jamaíka um síðustu
helgi.
Keppt er í tveggja manna liðum og
komust 12 bestu liðin áfrarn í loka-
keppnina um heimsmeistaratitilinn.
Alls kepptu 41 lið á mótinu.
Þeir Sigurður og Birgir Leifur stóðu
sig mjög vel, höfnuðu í 14. sæti og voru
mjög nálægt því að komast í úrslita-
keppnina eða aðeins tveimur höggum.
Heföi nægt að leika síöustu
holuna á pari
„Við vorum nærri þessu. Við vissum
í lokin að við ættum möguleika en van-
mátum stöðuna. Við töldum okkur
þurfa að leika síðustu holuna á einu
höggi undir pari, reyndum allt til þess
en enduðum á einu höggi yfir parinu.
Þar með var draumurinn úti. Við vor-
um í hörkukeppni við finnska liðið. í
lokin kom í ljós að þeir höfðu leikið síð-
ustu holuna á höggi yfir pari og þrí-
púttað á flötinni. Okkur hefði því nægt
að leika síðustu holuna á pari til að
komast áfram,“ sagði Sigurður Péturs-
son í samtali við DV í gær.
Þetta var mikil þrekraun
„Þetta var mikil þrekraun. Hitinn
var um 40 gráður alla dagana og við átt-
um erfitt með svefn. Samt náðum við
okkur vel á strik. Birgir Leifur lék sér-
staklega vel. Rakinn var mjög mikill og
það má segja að þetta hafi verið eins og
að leika golf í gufubaði. Engu að síður
var þetta skemmtileg keppni og lær-
dómsrik," sagði Sigurður.
-SK
Lúkas Kostic ráöinn þjálfari Víkings:
„Rífa félagið upp“
Lúkas Kostic var í gær ráðinn
þjálfari 1. deildar liðs Víkings í
knattspyrnu og skrifaði hann undir
þriggja ára samning við félagið.
Víkingar hafa verið í miklum
öldudal síðustu árin en félagið varð
íslandsmeistari undir stjórn Loga
Ólafssonar árið 1991. Síðan hefur
leiðin legið niður á við og félagið
hefur tvö síðustu ár sloppið naum-
lega við fall í 2. deild (gömlu 3.
deildina).
„Þetta verður gífurlega erfitt en
þetta er mikil áskorun fyrir mig.
Þetta er félag með mikla hefð sem
var stórveldi á knattspyrnusviðinu
en hefur verið í mikilli lægð á und-
anförnum árum,“ sagði Lúkas við
DV í gærkvöld en hann var sem
Lúkas Kostic var í gær ráöinn
þjálfari Víkings.
kunnugt er rekinn frá KR-ingum
snemma í sumar.
„Ég mun gera mitt besta til að
rífa félagið upp og gera það aftur að
góðu liði. Auðvitað tekur það ein-
hvern tíma en stefnan er að styrkja
leikmannahópinn. Það eru margir
ungir og efnilegir leikmenn í liðinu
ásamt eldri og reyndari mönnum og
ég hlakka mikið til að vinna með
þeim,“ sagði Lúkas en hann segist
ætla að halda fund með leikmanna-
hópnum einhvern næstu daga og
hefja svo æfingar í næsta mánuði.
Lúkas tekur við starfi Magnúsar
Þorvaldssonar.
-GH
Landsliðið í handknattleik:
Kemur saman í Þýskalandi
fyrir leikinn gegn Litháen
Þorbjörn Jensson er byrjaöur að
undirbúa íslenska liðiö fyrir leikina
gegn Litháum.
Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik, stefnir að því að
koma liðinu saman í Þýskalandi
fyrir leikinn gegn Litháen sem verð-
ur I Kaunas 29. október. Þorbjöm
telur mikla hagræðingu í því að
kalla liðið saman á svæðinu á milli
Wuppertal og Essen heldur en að
stefna mannskapnum heim til ís-
lands.
Tíminn nýtur betur
„Ég er að leggja drög að því að
liðið komi saman í Þýskalandi
mánudaginn 27. október. Það er
hugmynd mín að taka þar létta æf-
ingu fýrri part dags og leika síðan
jafnvel æfingaleik um kvöldið. Ég
tel nauðsynlegt að hefja undirbún-
inginn í Þýskalandi en þaðan kem-
ur stærsti hluti landsliðsmanna.
Með því getum við nýtt tíma miklu
betur fram að leiknum við Litháa.
Ég vil sem minnst þurfa að dveljast
í Kaunas, iniklu frekar í Þýsklandi
þar sem menn eru nánast eins og
heima hjá sér,“ sagði Þorbjöm Jens-
son í spjalli við DV í gær.
Þorbjörn sagðist enn fremur vera
búinn að skoða litháíska landsliðið
á myndbandi frá HM í Japan en þar
beið það lægri hlut fyrir Islending-
um.
„Mér skilst að uppistaðan í lit-
háiska landsliðinu komi frá Granit-
as Kaunas, mótherjum KA í Evr-
ópukeppni meistaraliöa, og ætlar
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, að láta
mig hafa myndbandsupptöku frá
fymi leik liðanna í Kaunas um síð-
ustu helgi. Ég mun svo halda norð-
ur á Akureyri á sunnudag og horfa
á síðari leik liðanna," sagði Þor-
björn. -JKS
Boris á góðar
minningar
frá Kaunas
Boris Bjarni Akbachev, að-
stoðarmaður Þorbjörns lands-
liðsþjálfara, á góðar minningar
frá Kaunas þar sem Litháar og
íslendingar etja kappi i riðla-
keppni Evrópumótsins siöar í
þessum mánuði.
Sovéskur meistari meö
Kaunas
Boris Bjarni var liðtækur
handknattleiksmaður á sínum
yngri árum og lék meö Kunseva.
í íþróttahöllinni i Kaunas varð
Boris Bjarni sovéskur meistari
með Kunseva í fyrsta sinn að
það var árið 1966. Þá fór úrslita-
keppnin um sovéska titilinn
fram á einni helgi.
-JKS
Enska úrvalsdeildin:
Derby í efri hlutann
- eftir sigur á Leicester í gærkvöld
Með sigri sínum á Leicester, 1-2,
er Derby komið í sjötta sætið í
ensku úrvalsdeildinni. Derby sótti
Leicester heim á Filbert Street í
gærkvöldi og vann sanngjaman sig-
ur.
ítalinn Baiano, sem slegið hefur í
gegn með Derby það sem af er tíma-
bilinu, gerði það ekki endasleppt í
leiknum og skoraði bæði mörk liðs-
ins. Fyrra markið kom á 21. mínútu
og það síðara á 62. mínútu. Elliott
minnkaði muninn fyrir Leicester á
67. mínútu.
Staða Derby er sterk en liðið á
tvo leiki inni á liðin fyrir ofan en að
vísu bara einn leik á Chelsea.
Staða efstu liðanna er þessi:
Chelsea 9 5 1 3 24-14 16
Derby 8 5 0 3 16-8 15
Liverpool 9 4 3 2 16-10 15
Newcastle 7 5 0 2 7-5 15
-JKS
Arsenal 10 6 4 0 27-10 22
Man. Utd 10 6 3 1 1A4 21
Blackburn 10 5 4 1 20-9 19
Leicester 10 5 3 2 14-8 18
ítalinn Francesco Baiano skoraöi
bæöi mörk Derby í gær og. hér
fagnar hann síöara markinu. Reuter
ti-ii SVÍÞJÓO
. --------------
Gautaborg-AIK .................4-0
Vastarás-Örgryte...............0-4
Helsingborg-Ljungskile.........7-0
Norrköping-Örebro..............0-1
Staðan i deildinni er þessi: Halmstad
49, Gautaborg 48, Malmö 44, Örebro
42, Helsingborg 40, Elfsborg 40,
Örgryte 37, AIK35, Norrköping 27,
Trelleborg 24, Öster 21, Degerfors 19,
Vástersás 19, Ljungkile 17.
Tvær umferðir eru eftir. Tvö neðstu
liðin falla og liðin í 3. og 4. neðsta
sætinu spila í úrslitakeppni um að
halda sæti sinu.
Sigurður Jónssoti var eini
íslendingurinn sem lék með Örebro í
gær. Arnór Guðjohnsen var i
leikbanni og Hlynur Birgisson er
meiddur í læri.
Sigurður lék vel í vörnmni og fékk 3
í einkunn af 5 mögulegum hjá
staðarblaðinu í Örebro. örebro á
góða möguleika á að hreppa
Evrópusæti.
Hlynur Birgissson tognaði á læri í
Evrópuleik Örebro i síðustu viku.
Hann sagði í samtali við DV í
gærkvöldi að hann yrði nær
örugglega ekki með íslenska
landsliðinu gegn Liechtenstein um
næstu helgi en hann átti að vera í
landsliðshópnum sem tilkynntur
verður í dag.
Dun Sahlin skoraði sigurmark
örebro. Þetta var 14. mark hans í
deildinni og er hann markhæstur.
-EH/Svíþjóð
.
ENGLAND
Steve Clarridge framherji Leicester
er nú orðaður við Bolton en hann á
að fylla skarð Peters Beardsley sem
að öllum líkindum er á leið tii Ful-
ham.
Faustino Asprilla, Kólumbíumaöur-
inn snjalli í liði Newcastle, gæti þurft
aö hvíla næstu þrjá mánuði. í ljós
hefur komið aö meiöslin sem hann
hlaut í Evrópuleiknum gegn Kiev
reyndust alvarlegri en haldið var í íyrstu.
Ronnie Johnsen, Norðmaðurinn
sterki i liði Manchester United, hefur
gert nýjan samning við félagið. Samn-
ingurinn er til ársins 2003 og er met-
in á 360 milljónir króna. Johnsen
hefur fallið vel inn í lið United og
ljóst er Alex Ferguson gerði frábær
kaup þegar hann keypti
Norðmennina Johnsen og Solskjær.
Paul Merson, fyrrum leikmaður
Arsenal og nú liðsmaður með Midd-
lesbrough i 1. deildinni, er á ný kom-
inn í enska landsliðshópinn. Merson
var valinn í hópinn eftir að Robert
Lee, Newcastle, varð að draga sig út
úr hópnum sökum meiösla.
Brian Horton var í gær látinn taka
poka sinn sem þjálfari Huddersfield.
Liöinu hefur vegnað illa í 1. deildinni
og hefur ekki unnið léik í fyrstu niu
umferöunum.
Gianluca Vialli, Italinn sem leikur
með Chelsea, tippar á að Englending-
ar fari meö sigur af hólmi gegn lönd-
um hans en þjóðirnar mætast I und-
ankeppni HM í Róm á laugardaginn.
ítalir hafa þurft að gera breytingar á
liði sinu. Fabio Galanete, miövöröur
Inter Milan, er kominn i hópinn i
stað Ciro Ferrara, Juventus, sem
getur ekki leikiö með vegna meiðsla.
Paul Gascoigne segist vel geta hugs-
að sér að ljúka knattspymuferlinum i
Bandaríkjunum. „Ég hefði gaman af
því aö leika knattspyrnu í Bandaríkj-
unum í nokkur ár eftir að hætti hjá
Rangers og fara svo út í þjáifun,"
sagði Gascoigne. -GH
Guðmundur Benediktsson:
„Gaf hnénu góða einkunn"
Guðmundur Benediktsson, knattspyrnumaður úr
KR, kom heim um helgina eftir fimm daga dvöl hjá
norska úrvalsdeildarliðinu Bodö/Glimt.
„Ég fékk ekkert formlegt tilboð frá félaginu og veit í
raun ekki hvort ég fæ það. Það jákvæðasta í ferðinni
var að læknir sem skoðaði hnéð á mér gaf því góða ein-
kunn og sagði að ekkert ætti að geta komið í veg fyrir
að ég gæti einbeitt mér að þvi að spila knattspyrnu
næstu árin,“ sagði Guðmundur við DV í gær en sem
kunnugt er hefur Guðmundur orðið illa fyrir barðinu
á hnémeiðslum á knattspyrnuferli sínum.
Nýr Albert Guðmundsson?
Þess má svo til gamans geta að Guðmundur og
unnusta hans, Kristbjörg Ingadóttir, létu skíra son
sinn á sunnudaginn og ekki er hægt að segja að nafn-
ið hafi komið mönnum á óvart. Drengurinn hlaut nafn-
ið Albert Guðmundsson, var skírður eftir afa sínum,
fyi-rum ráðherra og sendiherra sem margfr telja hafa
verið besta knattspyrnumann íslendinga. -GH
Guömundur Benediktsson.