Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Síða 28
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 32 Sviðsljós Besta samband Woodys Allens Kvikmyndaleikstjórinn Woody Allen segir að samband sitt og Soon-Yi Previn, dóttur Miu Far- row, sé besta sambandið sem hann hefur átt í. Allen kveður niður orðróm um að Soon-Yi sé bamshafandi. Hann vísar því jafnframt á bug að þau hafi ný- lega verið að kaupa giftingar- hringa hjá Tiffany’s. Leikstjórinn neitar því hins vegar ekki að ein- hvem tíma eigi hann eftir að gift- ast Soon-Yi. Hann langar til að eignast barn. H Þótti Madonna sóðaleg Leikkonan Joan Collins þekkti ekki Madonnu fyrst þegar hún lenti með henni í veislu. Collins þótti Madonna sóðaleg. Hún blés stöðugt kúlur með bleiku tyggjói og þefaði af hverjum rétti, rak síðan tunguna í matinn og þefaði aftur áður en hún þorði að taka til matar síns. Madonna var þá 34 ára. Heimspressan snýr sér að Viktoríu Viktoría krónprinsessa af Sví- þjóð vakti næstum þvi jafnmikla at- hygli við brúðkaup Kristínar Spán- arprinsessu um helgina eins og prinsessan sjálf. „Viktoría hefur allt. Hún er fal- leg, hefur útgeislun og svo er hún á giftingaraldri. Hún er auk þess krúnuerfingi," hefur hirðpenni sænska blaðsins Aftonbladet eftir breskum kollega sínum. „Það er hægt að skrifa endalaust um hana. Næst þegar konungleg hátíðarhöld verða í Stokkhólmi munum við fara þang- að,“ bætti Bretinn við. Þegar handboltamaðurinn Ur- dangarín fékk prinsessuna sína í Barcelona um helgina vom fulltrú- ar fjörutíu konungsfjölskyldna við- staddir. Samkvæmt prótókollinu vora Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning fínustu gestirnir. Ját- varður prins var fulltrúi bresku konungsfjölskyldunnar i stað Elísa- betar drottningar, að því er Afton- bladet greinir frá. Allir hirðpennar, sem blaðamað- ur Aftonbladets ræddi við, vom sammála um að nú þegar Díana prinsessa væri öll myndi athyglin, Duchovny vill vera nær Teu David Duchovny er þreyttur á vera í fjarbúð með nýju eiginkon- unni, Teu Leoni. Tímaritið People greinir frá þvi að Duchovny hafi beðið framleiðendur sjónvarps- myndaflokksins Ráðgátur um að flytja aðalstúdíóið frá Vancouver, þar sem þættirnir hafa verið tekn- ir upp síðan 1993, til Los Angeles. Tea er með bækistöðvar í spila- vítaborginni Los Angeles. Að sögn vinnuveitenda Davids Duchovnys hefur verið rætt um að flytja stúdíóið frá Vancouver. Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama dag er 50% afsláttur af annarri auglýsingunni. aW mii// him/, Smáauglýsingar 550 5000 Viktoría Svfaprinsessa kemur hér til brúökaups Kristínar og Urdangaríns í Barcelona í fyigd Filipps prins af Belgíu. Viktoría vakti gífurlega athygli heimspressunnar. Slmamynd Reuter sem hún fékk að miklu leyti snúast að Viktoríu prinsessu. Viktoríu var vísað til sætis fram- arlega í kirkjunni i Barcelona þar sem fjöldi prinsa keppti um athygli hennar, að því er fullyrt er. Sá sem varð þess heiðurs aðnjót- andi að leiða hana út úr kirkjunni var Albert prins af Mónakó sem set- ið hafði þremur bekkjum fyrir aft- an Viktoríu. Það leið nokkur stund áður en þau fímdu réttan langferða- bO sem flytja átti þau til veislunn- ar. Vel virtist fara á með prinsess- unni og prinsinum. Brúðkaupsveislan stóð fram á nótt og allir skemmtu sér vel. Skál- að var fyrir brúðhjónunum í spænsku kampavíni. Borin voru fram skeldýr, eggjakökur og góm- sætir katalónskir réttir. Brúð- kaupstertan var fímm hæða há. Kristín og Urdangarín kynntust á ólympíuleikxmum í Atlanta í fyrra. Hann er Baski og vinsæll handknattleiksmaður á Spáni. Kristín er einnig ákaflega vinsæl meðal landa sinna. Nærstaddir tóku eftir því að Jóhann Karl Spánarkonungur þurrkaði tár af hvörmum þegar yngri dóttir hans var gengin í það heilaga. Ég má líka taka mynd, hugsaði bandaríska leikkonan Demi Moore með sér þegar hún tók upp litlu vasavélina sína á tískusýningu Donnatellu Versace í Mílanó um helgina. ítölsku tískuhúsin eru komin á fulla ferð að kynna vor- og sumartískuna 1998. Vel klæddar konur eins og Demi geta því ekki verið þekktar fyrir annað en að mæta á staðinn. Maður verður jú alltaf að vera á undan samkeppninni. Sfmamynd Reuter Víngerð drottningarmannsins í Frakklandi: Hinrik í essinu sínu Hinrik drottningarmaður í Dan- mörlcu kann svo sannarlega til verka þegar hann flokkar vínber og sinnir öðmm störfum við víngerð- ina í kastala sínum í Frakklandi. Prinsinn er bókstaflega með nefið ofan í öllu þegar víngerðin er ann- ars vegar. Hann kannar ástand berj- anna áður en þau eru tínd, hann flokkar þau, með dyggri aðstoð Mar- grétar Þórhildar drottningar, og svo er hann að sjálfsögðu yfirsmakkar- inn, eins og allir almennilegir vin- bændur. Ef marka mátti bros þeirra Hin- riks og Margrétar við uppskeruna í haust verður vínið gott í ár. Drottning og prinsinn verja drjúgum hluta sumarsins í kastal- anum í þorpinu Caix í Frakklandi suðvestanverðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.