Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
Préttir
Hlutdeildar 1 270 milljóna króna gróða krafist í hjónaskilnaðarmáli:
Tekist á um kvóta og
Vestfjarðaaðstoð
- skilnaður að borði og sæng fyrir tveimur árum
Fyrir héraðsdómi úti á landi er
nú uppi endurkrafa í skilnaðar-
máli þar sem krafist er hlutdeildar
í 270 milljóna króna gróða sem
varð til vegna samruna fyrirtækja
í sjávarútvegi. Það sem er merki-
legt við máliö er að hjónin hafa
verið skilin að borði og sæng í
rúm tvö ár. Það er fyrrverandi eig-
inkona stærsta eiganda sjávarút-
vegsfyrirtækis á Vestfjöröum sem
hefur neitað að gefa eftir lögskiln-
aö og krefst þess að skipti í búi
þeirra hjóna verði tekin upp að
nýju vegna breyttra forsendna.
Um er aö ræða hagnað sem varð
til þegar fyrirtæki fyrrum eigin-
manns hennar sameinaðist öðru
stærra á Suðvesturlandi en við
það jókst verðmæti þess um allt að
hálfan milljarð króna.
Eiginmaðurinn fyrrverandi átti
helming í fyrirtækinu sem rann
saman við hið stærra og hans
skerfur er talinn vera um 270
milljónir króna sem konan vill nú
hlutdeild í. Þess má geta að á sin-
um tíma fékk þetta sama fyrir-
tæki Vestfjarðaaðstoð í formi
víkjandi láns sem er væntanlega
hluti hins umdeilda bús. Vest-
fjarðaaðstoðin sem var að upp-
hæð 75 milljónir króna er nú
komin suður á land.
Tekist á um kvóta
í raun snúast átökin í hjóna-
skilnaðarmálinu um verömæti
sprottin af óveiddum flski og Vest-
fjarðaaðstoð sem hvort tveggja
urðu til þess að umrætt fyrirtæki
komst á laggirnar. Fyrirtækið átti
erfitt uppdráttar í óbreyttum
rekstri en veiðiheimildir þess
gerðu að verkum að sunnanlands
þótti það vænlegur sameiningar-
kostur.
Skilnaður hjónanna að borði og
sæng átti sér stað í september 1995
og þá var gerður eignaskiptasamn-
ingur út frá þeim eigum sem þá
voru til staðar. Eiginmaðurinn
fyrrverandi hélt áfram að fjárfesta
og sameina fyrirtæki með þeim af-
rakstri að við samruna við fyrir-
tækið sunnan heiða stóð eftir um
hálfur milljarður króna í hluta-
bréfum. Sá hagnaður er nú orðinn
að bitbeini í deilu hjónanna fyrr-
verandi. Konan hefur lagt fram
gögn sem sýna verðmætaaukning-
una og réttað verður í málinu inn-
an skamms. Réttarhaldið verður
þó lokað vegna þess hversu við-
kvæmt málið er. -rt
Kvótinn á 800
krónur kílóið
- segir Kristján Pálsson
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur vð vlnnu sína á Veðurstofu íslands. DV-mynd Pjetur
Styrkveiting ESB:
Fær milljónir út á lægdirnar
- styrkur til Haralds Ólafssonar
DV, Suðumesjum:
Stjóm Regins, eignarhaldsfélag
Landsbanka íslands, undirritaði samn-
ing í gær við Kaldafell, dótturfyrirtæki
Úgerðarfélags Akureyringa, um sölu á
1500 þorskígildistonna kvóta ásamt
skipum, Aöalvík og Njarðvík. Þar af
þúsund tonn af þorski. Þrjú tilboð bár-
ust og bauð Kaldafell hæst, 1110 mihj-
ónir á borðið.
Skipin hafa verið gerð út ffá Suður-
nesjum. Landsbankinn eignaðist kvót-
ann og skipin þegar ísl. aöalverktakar
urðu hlutafelag. Áður en samningurinn
var imdirritaður var Kaldafell óskráð
einkahlutafélag. Rétt áður en samningar
vom undirritaðir í gær var Kaldafell
skráð í hlutafélagsskrá með 500 þús.
krónur í hlutafé, skráð í Njarðvík.
Mikill urgur er í útgerðarmönnum á
Suöumesjum ef kvótinn fer norður.
Talsmenn ÚA segja að ekki hafi verið
tekin endanleg ákvörðun hvaða leið
verður farin.
„Það er með ólíkindum hvaö hægt
er að borga fyrir aflaheimildir. Það er
dálítið einkennilegt þegar óskráð fyrir-
tæki býður í þennan kvóta á um 1,1
milljarð og þegar fyrirtækið er skráð
hefur það aðeins 500 þúsund í hlutafé
og engan ársreikning. Þetta er að sjáif-
sögðu pappírsfyrirtæki. Það er ekki
hægt að áfellast bankann fyrir það að
taka tilboðinu. Það er ljóst að verið er
að greiða fyrir kilóið á þorski yfir 800
krónur með tilboðinu. Fyrirtæki á
Suöumesjum ráða ekki við það verð.
Norðlendingar em að verða kvótarík-
ustu menn þjóðarinnar. Þeir seldu
leigukvóta frá sér á fiskveiðiárinu
1995-96, um 11 þúsund þorsk-
ígildistonn sem var að mestu keypt af
Suðumesjamönnum, útgerðarmenn
vom að fiska fyrir Norðlendinga,"
sagði Kristján Pálsson, alþingismaður
Reyknesinga. -ÆMK
Rcmnsóknarstofa í veðurfræði,
sem Haraldur Ólafsson veðurfræö-
ingur rekur, hefur hlotið nokkurra
milljóna króna styrk frá Evrópu-
sambandinu. Haraldur hefúr nú um
nokkurra ára skeið stundað rann-
sóknir í veðurfræði. Meginverkefni
rannsóknarstofunnar á næstunni
verður að rannsaka lægðir yfir
Norður-Atlantshafi.
Haraldur segir styrk ESB mjög
kærkominn þar sem hann geti nú
keypt tölvur og tækjabúnað sem
þarf til að setja rannsóknarstofuna
upp hérlendis. Hann hefur undan-
farin ár starfað erlendis, mestmegn-
is í Frakklandi.
Styrkur Evrópusambandsins
nemur 90 milljónum íslenskra
króna. Átta aðrir aðilar deila hon-
um með Rannsóknarstofu í veður-
fræði og segir Haraldur aö veriö sé
að deila styrkveitingunni á milli
þeirra. Hann býst við að bera
minnst úr býtum, en að minnsta
kosti verði um einhverjar milljónir
króna að ræða.
Haraldur vill í engu spá um hvort
rannsóknarstofa hans komi til með
að fara í beina samkeppni við Veð-
urstofu íslands, til dæmis með því
að selja veðurspár. Hins vegar sé
það Ijóst að þar sem þekking safnist
fyrir skapist viðskiptatækifærin og
því sé hann mjög ánægður að geta
nú loks unnið að rannsóknum sín-
um á íslandi. s.ól
Valiö hefur veriö f hlutverk f söngleiknum Bugsy Malone sem sýndur veröur
f Loftkastalanum. Börn fara meö hlutverkin. Titilhlutverkiö leikur Þorvaldur
Davfö Kristjánsson en Tallullu leikur Álfrún Örnólfsdóttir. Hún sést hér f hópi
annarra leikara. DV-mynd Hilmar Pór
Samherji:
Hagnaður 275 milljón-
ir á 8 mánuðum
DV, Akuieyri:
Hagnaður Samherja hf. og dótt-
urfyrirtækja innanlands, Fiskimjöls
og lýsis hf. og Friðþjófs hf. fyrstu 8
mánuði ársins nam 275 milljónum
króna. Reikningsskilum erlendra
dótturfélaga Samherja fyrir þetta
tímabil er ekki lokið.
Niðurstaðan er samkvæmt áætl-
unum forráöamanna fyrirtækisins
að undanskildu því að kostnaöur
við sameiningu Samheija og dóttur-
félaga og breytingar þeim tengdum
var töluvert hærri en reiknað hafði
verið með. Þá var gengisþróun fé-
laginu óhagstæð og gengistap vegna
langtímaskulda nam 87 milijónum
króna.
Veltufé Samheija var á þessu
tímabili 835 miiljónir króna sem
samsvarar 17% af rekstrartekjum
tímabilsins sem námu 4,8 milljörð-
um. Hagnaður fyrir afskriftir nam
1.044 milljörðum, afskriftir 477 millj-
ónum, fjármagnskostnaður var 259
milljónir og veltufé frá rekstri 835
milijónir króna. -gk
Sjúkrahús Reykjavíkur:
Fleiri upp-
sagnir
unglækna
Fjórir unglæknar til viðbótar sögðu
upp hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur í gær.
Samtals hafa þá tíu deildarlæknar og
aðstoðarlæknar sagt upp á sjúkrahús-
inu á síðustu tveimur dögum.
Uppsagnir unglæknanna eru til
komnar vegna lágra launa, mikils
vinnuálags og ófullnægjandi aðstöðu.
Þá hefur seinagangur í samningavið-
ræðum Læknafélags íslands og við-
semjenda þess haft sitt aö segja.
í gær hafði enginn unglæknir sagt
upp á Landspítalanum, að sögn Þor-
valds Veigars Guðmundssonar, lækn-
ingaforstjóra þar. -JSS
Stuttar fréttir
Trúnaðarbrestur
Verkamannafélögin Dagsbrún
og Framsókn telja að allir kjara-
samningar við Reykjavíkurborg
séu í uppnámi og trúnaðarbrestur
sé milli þeirra og borgarinnar.
Úrskurður Félagsdóms í deilu
borgarinnar og félaganna um
skólaliða féll í gær, borginni í vil.
Listskreytingar
Menntamálaráðherra hefur
skipað stjóm Listskreytingasjóðs.
í henni eiga sæti Sverrir Kristins-
son framkvæmdastjórir formaöur,
Jóhanna Þórðardóttir og Valgerð-
ur Hauksdóttir myndlistarmenn,
Tryggvi Tryggvason arkitekt og
Þuríður Backman frá Sambandi
ísl. sveitarfelaga.
SH á veröbréfamarkað
Á hluthafafundi í Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna á morgun
verður afgreidd tillaga um að gefa
viðskipti með hlutabréf í SH frjáls
og að hlutaféð verði aukiö með
sölu nýrra hluta.
Ustasafn í Hafnarhúsiö
Borgarráð samþykkti í gær
teikningar að Listasafni Reykja-
víkur í Hafriarhúsinu og ætlunin
er að veita 150 milljónum króna
til framkvæmda við safnið á
næsta ári. Sjálfstæðismenn í borg-
arráði eru andsnúnir þessum
framkvæmdum.
Feöur fá fæðingarorlof
Borgarráð samþykkti i gær til-
lögu borgarstjóra um að veita
feðrum í starfi hjá borginni
tveggja vikna fæðingarorlof í
tengslum við fæðingu bams. Sam-
þykktin tekur gildi 1. janúar 1998.
-SÁ