Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Blaðsíða 15
14 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 íþróttir ENGLAHD Bryan Robson, knattspymustjóri Middesbrough, er reiðubúinn aö greiða 2 milljónir punda fyrir n- írska landsliösmanninn Mark Kennedy hjá Liverpool. Emmanule Petit, franski landsliðsmaöurinn hjá Arsenal, reyndist ekki ökklabrotinn eins og óttast var en hann meiddist í æfingaleik með franska landsliðinu. Hann ætti að vera orðinn leikfær eftir hálfan mánuð. Tomas Brolin verður sektaður af forráðamönnum Leeds í annað sinn á skömu tíma en hann lét ekki sjá sig á æfmgum félagsins um helgina. Brolin sem er hundóánægður með vistina hjá Leeds skrapp í 50 ára afmæli hjá föður sínum í Svíþjóð. Roy Evans, framkvæmdastjóri Liverpool, var í Svíþjóð um helgina en þar var hann að fylgjast meö eistneska vamarmanninum Marek Lemsolv í landsleik Svía og Eista. Alan Shearer, marka- hrókurinn mikli hjá Newcastle, mætti á sína fyrstu æfmgu hjá félaginu í langan tima en sem kunnugt er gekkst hann undir aögerð í sumar. Shearer æfði á þrekhjóli en hann hefur verið varaður við að fara of geyst í sakimar. Paul Ince veröur ekki meö Liverpool í kvöld þegar liðiö mætir WBA í deildabikarkeppninni. Ince meiddist á höfði í landsleik Englendinga og Itala um síðustu helgi og Roy Evans, stjóri Liverpool, viil hvíla Ince fyrir nágrannaslaginn gegn Everton um helgina. Howard Kendall, stjóri Everton, hefur mikinn hug á að kaupa Allan Kelly, markvörð Sheffield United, og er reiðubúinn að punga út 2 milljónum punda. Kendall þekkir vel til Kellys enda var hann við stjórnvölinn hjá Sheffield United. Glen Hoddle, landsliðsþjálfari Englendinga, er íarinn frá konu sinni en þau hafa verið gift í 18 ár. Frá þessu var greint á Sky-sjónvarps- stöðinni í gær en ekki var sagt hver ástæðan væri. Saman eiga þau þrjú böm. Deildabikarinn - 3. umferð: Arsenal-Birmingh . .. e. framl 4-1 Bamsley-Southampton .........1-2 Bolton-Wimbledon . . . e. framl 2-0 Grimsby-Leicester............3-1 Ipswich-Man.Utd..............2-0 Oxford-Tranmere . . . e. vitasp 6-5 Reading-Wolves...............4-2 Walsall-Sheff.Utd............2-1 1. deild: Huddersfield-Charlton........0-3 Manchester Vnited lék gegn Ipswich án margra af sínum sterkustu leikmönnum. Ipswich skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik, það fyrra gerði Alex Mathie á 13. mínútu og það síðara Argentínumaðurinn Maurico Taricco á þeirri 45. Arsenal mætti einnig til leiks með varalið sitt og tókst að leggja Birmingham að velli í framlengdum leik. Arsenal skoraöi þrjú mörk i framlengingunni og voru David Platt, Luis Boa Morta og Alberto Mendez þar að verki. Jason Crowe lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal og hann var í meira lagi eftirminnilegur fyrir hann. Crowe var skipt inn á í síðari hálfleik en fékk rauða spjaldið 33 sekúndum síðar fyrir ljótt brot. Guóni Bergsson lagði upp annað mark Bolton í sigrinum á Wimbledon. Þetta var fyrsti sigur liðsins á hinum glæsilega Rebock-leikvangi félags- íns. Celtic tryggöi sér sæti í úrslitum skosku deildabikarkeppninnar þegar liöið lagði Dunfermline, 0-1. Andstæðingur Celtic verður annað hvort Aberdeen eða Dundee Utd. -GH Lazio burstaöi Napoli, 4-0, í 3. umferö ítölsku bikarkeppninnar í gær. Alen Boksic og Giuseppe Signori skoruðu tvö mörk hver. Barcelona náði 7 stiga forskoti í spænsku 1. deildinni með því að sigra Mallorca, 0-1. Luis Enrique skoraði sigurmarkið á 5. mínútu. „Stólarnir“ fara vestur Dregið var í 32-liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ og Renault í gær. I forkeppni mætast ÍR-b og Grinda- vík annars vegar og hins vegar KR- b og Keflavík-b. Leikirnir fara fram 22.-28. október. í 32-liða úrslitunum eigast þessi lið við: SnæfeU-KR Hrönn-Höttur KFÍ-TindastóU FjöInir-SkaUagrímur Reynir S-ÍR-b/Grindavík-b Þór Ak-Keflavík Smári-Skotfélag Akureyrar ÍS-Haukar Reynir HeUisandi-Þór Þorláksh. Njarðvík-KR-b/KeUavík-b Breiðablik-Valur ÍV-ÍR Stafholtstungur-Grindavik Stjaman-Hamar Fylkir-Akranes HK-Selfoss Leikirnir fara fram 1. og 2. nóv- ember. Körfuknattleikssamband íslands og Bifreiðar- og landbúnaðarvélar skrifuöu undir nýjan þriggja ára samning og mun bikarkeppni karla og kvenna bera heitið bikar- keppni KKÍ og Renault. -GH Styrkur til Kristins Undirritaður hefur verið styrktarsamningur á vegum Skíðasambands íslands tU handa Kristni Bjömssyni skíðamanni frá Ólafsfirði. Ólafsfjarðarbær og fyrirtæki í bænum hafa nú sem áður fyrr stutt vel og dyggUega við bakið á Kristni en eftirtaldir aöUar stóðu að samningnum: Ólafsfjarðar- bær, Sparisjóður Ólafsfjarðar, Vélsmiðja Ólafsfjarðar, Þormóð- ur rammi, Sæberg ehf., Árni Helgason, Garðar Guðmundsson hf., Sigvaldi Þorleifsson ehf. og Kristbjörg ehf. Styrkur þessa aðUa hljóðar samtals upp á krónur 735.000. Tekur þátt í öllum heims- bikarmótum vetrarins Kristinn er um þessar mundir búsettur, ásamt unnustu sinni, í LiUehammer í Noregi. Á næstu dögum er hann á fórum tU Hintertux í Austurríki þar sem hann mun vera við æfingar hjá finnska landsliðinu. Hann mun fara tU Bandaríkjanna í byrjun nóvember þar sem hann mun taka þátt í fyrsta heimsbikarmóti vetrarins í svigi. -GH Zii ÞÝSKALAWD Wolfsburg-Bremen ..........1-0 Preger (90.) Dortmund-Leverkusen........0-1 Beinlich (67.) Köln-Schalke...............0-2 Held (44.), Mulder (86.) Hertha Berlin-Bochum .... 2-2 Dinzey (26.), Burik (63.) - Karl sjáffs- mark (40.), Vosz (53.) Hamburg-Karlsruher..........3-1 Dembinski (42.), Gravesen (54.), Ye- boah (90.) - Wueck (33.) Staöa: Kaisersl. 9 7 1 1 20-10 22 B.Múnchen 9 6 2 1 21-9 20 Schalke 10 5 3 2 11-8 18 Duisburg 9 5 13 11-11 16 Hamburg 10 4 3 3 17-17 15 Köln 10 3 1 6 13-21 10 Dortmund 10 2 3 5 15-15 9 1860 Múnch 8 2 3 3 11-13 9 Bochum 10 2 2 6 14-21 8 H.Berlin 10 1 3 6 7-18 6 Eyjólfur Sverrisson lék allan tímann með Hertha Berlin og átti góðan leik. Rheinisch Post útnefndi Eyjóff til að mynda besta mann Herthu í leikn- um. -GH Reykjanesbær: Endurbætur gerðar á knattspyrnuvöllum DV, Suðurnesjum: „Æfingaaðstaða knattspymu- manna hefur verið mjög bágborin. Með þessum samningum teljum við að æfingaðstaðan ætti aö geta orðið mjög góð. Þetta er fagnaðarefni fyr- ir knattspyrnumenn," sagði Ragnar Örn Pétursson, formaður íþrótta- ráðs Reykjanesbæjar, við DV. Ný- lega var undirritaður samningur við knattspyrnudeild Keflavíkur og Njarðvíkur. Ellert Eiríksson bæjar- stjóri undirritaði samninga fyrir hönd bæjarins. Helstu framkvæmdir hjá knatt- spyrnudeild Keflavíkur verður upp- bygging á nýjum knattspymuvelli að Iðavöllum i Keflavík, sem er ætl- aður keppnisvöllur fyrir yngri flokka, breyting á húsinu að Iðavöll- um 7 í búningsaðstöðu, bygging stál- grindarhúss, 400 m2, fyrir tæki og tól, stækkun á núverandi æfingaað- stöðu að Iðavöllum og skjólmanir umhverfis nýja völlinn. Um verður að ræða verksamning og ræður knattspyrnudeildin framkvæmda- hraðanum. Framkvæmdirnar kosta 40.3 milljónir. Bærinn mun greiða rúm- ar 32 milljónir til deildarinnar á næstu 5 árum og er upphæðin verð- tryggö. Bærinn greiðir 80% af kostnaðaráætlun en deildin 20%. Sams konar samningur var gerður við knattspyrnudeildina í Njarðvík. Þar em helstu framkvæmdir stækk- un og tyrfing æfingasvæöa, nýjar vatnslagnir fyrir vellina og skjólm- anir við svæðið. Framkvæmdimar kosta 28 millj- ónir. Kostnaðarhlutur bæjarins veröur 22.4 milljónir en deildin greiðir 20%. Hjá Njarðvík veröur framkvæmdum skipt í tvo áfanga sem samtals kosta 68.5 milljónir en í þetta sinn var samið um 1. áfanga. Heildarverð beggja samninganna er 68.3 milljónir, hlutur Reykjanesbæj- ar er 54.6 milljónir. Á fundinn voru nýkrýndir bikameistarar Keflavík- ur boðnir. Þeir fengu 150 þúsund úr afreks- og styrktarsjóði. Völlurinn 30 ára gamall „Næsta verkefhi okkar verður að halda áfram þeim hugmyndum að geta bætt aðstöðu meðal knatt- spyrnumanna og annarra. Við þurf- um að huga að knattspyrnuvellin- um í Keflavík, sem er orðinn 30 ára, en hann er ekki í nógu góðu ástandi," sagði Ragnar Öm Péturs- son. -ÆMK DV DV Teitur Örlygsson körfuknattleiksmaður heimsóttur: „Gott að vera kominn heim“ DV, Suðurnesjum: Þaö hefur ekki farið á milli mála hjá körfúboltaunnendum að leikmaðurinn snjalli, Teitur Örlygsson, er kominn heim frá Grikklandi og er farinn að spila fyrir sitt gamla félag, Njarðvík. Teitur spilaði i fyrra sem atvinnu- maður með Larissa en allan sinn feril hefur hann leikið með Njarðvíkingum. Hann hefur sett skemmtilegan svip á körfuboltann meö spilamennsku sinni. DV hitti Teit á nýjum vinnustað hans í Njarðvik og tók púlsinn á honum. Teit- ur vinnur sem trésmiður hjá Ragnari Halldórssyni, foður Friðriks Ragnars- sonar, sem leikið hefur um árabil með Njarðvíkingum, og Ragnars yngri bróður Friðriks. „Mér likar trésmíðin mjög vel og það er gaman að læra hana. Þetta er mjög fljótt að koma en smíðin er alveg ný fyrir mér. Þá er hér mjög góður fé- lagsskapur," sagði Teitur. En hvernig fmnst Teiti að vera kom- inn heim og farinn að spila aftur á ís- landi? Tók mig tíma aö aðlagast körf- unni hér aftur „Það er ljómandi gott og gaman að vera kominn heim. Það tók mig smátíma að aölagast körfunni hér aft- ur. Ég var að spila gjörólíkan körfu- bolta í Grikklandi. Þegar maður gerir hlutinn tvisvar sinnum á dag í heilt ár, eins og ég gerði í Grikklandi, þá er ekki létt að venja sig af því. Friðrik þjálfari er búinn að vera að hjálpa mér að komast inn í körfuna hér aftur. Ég var farinn að hafa smááhyggjur af þessu en þetta er allt að koma og ég er að komast í mitt gamla góða form. Mitt hlutverk í Njarðvík er gjörólíkt því sem ég var að gera með Larissa. Ég fæ stærra hlutverk hjá Njarðvík og leyfi fyrir því að gera miklu meira. Þetta er allt að koma og ég hlakka mikið til að takast á við verkefnið sem fram undan er,“ sagði Teitur. Teitur segir að ekki hafi verið mikl- ar breytingar á körfuboltanum hér á landi frá því hann fór út. Breiddin aö aukast „Mér finnst hins vegar breiddin vera að aukast. Það er miklu meira af frambærilegum körfuboltamönnum i dag. Nú er ekki hægt að trassa það að gefa mönnum tækifæri á opnum skot- um. Það hitta allir núorðið í úrvals- deildinni sem gerir þetta miklu skemmtilegra. Þá eru fleiri sterk lið núna og mér sýnist það á fyrstu um- ferðunum að öll lið eigi eftir að tapa nokkrum leikjum í vetur.“ Grindvíkingar sterkastir „Mér finnst Grindvíkingar vera sterkastir að sjá það sem af er. Þeir eru með gríðarlega sterkan Bandaríkja- mann en ég held að þegar menn fara að þekkja aðeins betur inn á hann þá fara þeir eflaust að tapa einum og einum leik. Við stefnum að sjálfsögðu á að vinna mótið. Það verður að vísu mjög erfitt. Þetta er ekki eins og var áður hér í Njarðvík en þá var þetta mjög auðvelt og við vorum oftast búnir að tryggja okkur titilinn löngu áður en mótið var búið,“ segir Teitur. Suðumesjaliðin hafa verið griðar- lega sterk í gegnum árin og nánast unnið alla titla sem eru í boði i meist- araflokki. Við spurðum Teit hvort ein- hver lið gætu ógnað stórveldunum af Suðumesjunum. Tindastóll í toppbaráttuna „KR er með gríðarlegan sterkan hóp. Svo skilst mér að Tindastóll sé með sterkt lið en ég er ekki búinn að sjá lið- ið enn. Liðin sem spiluðu á Reykja- nesmótinu, Keflavík, Haukar, Grinda- vík og Njarðvik verða í toppbaráttunni ásamt KR og Tindastóll gæti blandað sér í þessa baráttu. En það er ómögu- legt að segja í dag hvaða lið endar á toppnum." En hver er skýringin á því hvers vegna Suðumesjaliðin em svona sterk að mati Teits? Heföin gríöarlega sterkt „Það hefur skapast mikil hefð í kringum körfuboltann hér. Þessi hefð er gríðarlega sterk og myndaðist fyrir mörgum árum og fyrir mína tíð i körfuboltanum. Þegar ég var smágutti fór ég á leiki með Njarðvík og þá var alltaf troðfullt hús alla laugardaga. Þama myndaðist sterkur kjami góðra leikmanna. Síðan hefur regluleg end- umýjun átt sér stað. Karfan á Suöurnesjum verðum ekki á niðurleið í náinni framtíð og það þarf mikið að gerast ef svo á að verða. Hér á þessu svæði er mjög mikiö framboð af góðum leikmönnum," sagði Teitur að lokum. -ÆMK Teitur Örlygsson segir að sér líki trésmíöin vel en hún er alveg ný fyrir honum. Ul T w ~ ‘ f ll liÍ 1 • lí iu H 'í w 1 Bræðurnir Ragnar og Friðrik Ragnarssynir eru samherjar Teits í Njarðvíkurliðinu og enn fremur vinnufélagar. DV-myndir ÆMK/Suöurnesjum 35 Iþróttir «iw»íiK Siguröur Baidursson, framkvæmdastjóri Getrauna, setur Lengjuhattinn góða á höfuð Tryggva Guðmundssonar sem gerði tvær þrennur í sumar. Við hlið hans, einnig með hatt, er félagi Tryggva í Eyjaliöinu, Sverrir Sverrisson, sem skoraði fjögur mörk í einum og sama leiknum. DV-mynd E.ÓI Körfuknattleikur: ^ Bjarm DV, Akranesi: Svo kann að fara að þriggja stiga skyttan hjá Haukum og fyrrver- andi leikmaður Skagamanna, Bjarni Magnússon, gangi til liðs við ÍA í kvöld eða á morgun. Bjami hefúr verið að leika mjög vel með Haukum en persónulegar aðstæður munu hafa ráðið því að hann ákvað að ganga til liös við til IA? Skagamenn. Bjami var á æfmgu hjá Skaga- mönnum í gærkvöldi og sam- kvæmt heimildum DV þá er Bjami ekki samningsbundinn Haukum og verður hann því löglegur með Skagamönnum þegar þeir mæta ís- firðingum eftir fjórar vikur. End- urkoma Bjama er Skagamönnum mikill liðsstyrkur í baráttunni i úrvalsdeildinni í vetur. Markahrókar verðlaunaðir í efstu deild - Lengjan greiddi alls tólf hundruð þúsund Lengjan verðlaunaði í gær sjö knattspymumenn sem skomðu þrjú mörk „hat-trick“ i efstu deild í sum- ar. Fyrir að skora þrjú mörk vora greiddar 100 þúsund krónur. Tveir leikmenn gerðu gott betur en það en Andri Sigþórsson, KR, skoraði fimm mörk í einum og sama leiknum og Sverrir Sverris- son, ÍBV, íjögur mörk. Tryggvi Guö- mundsson, úr ÍBV og markakóngur deildarinnar í ár, skoraði tvívegis þrennu í sumar. „Tókum vissa áhættu í sumar" Sigurður Baldursson, fram- kvæmdastjóri Getrauna, sagði við afhendingu peninganna í gær, að þeir heföu tekið vissa áhættu i sum- ar en reiknað hefði verið með að greiða 300-500 þúsund í þrennur sumarsins. f stað þess þurfti Lengj- an að greiða alls tólf hundruð þús- und. „Við byrjuðum með þennan leik í fyrra en hugmyndin er fengin frá Svíum. í fyrra greiddum við 500 þúsund krónur en núna þurftum við að greiða helmingi hærri upp- hæð. Við erum ákveðnir í því aö halda þessum leik áfram næsta sumar. Spurningin er hvort form- inu verði eitthvað breytt en það kemur í ljós þegar nær dregur," sagði Sigurður Baldursson. Þess má geta og hefur reyndan-. áður komið fram að Andri Sigþórs- son, sem halaði inn 400 þúsund krónur með markheppni sinni í sumar, ákvað að sú peningaupphæð rynni óskipt til krabbameinssjúkra bama og verða samtökunum afhent- ir peningamir á fimmtudaginn kemur. „Hat-trick“-menn „Hat-trick-leikmenn sumarsins í efstu deild vora eftirtaldir: Rstislav Lazorik: 3 mörk 100 þúsund. 25.5 Valur-Leiftur, 0-5. Sverrir Sverrisson: 4 mörk 200 þúsund. 18.6 Valur-ÍBV, 0-4. Þorvaldur Makan Sigbjörns- son: 3 mörk 100 þúsund. Leift- ur-Grindavík, 4-1. ♦ Einar Þór Daníelsson: 3 mörk 100 þúsund. 2.7 KR-ÍA, 4-0 Andri Sigþórsson: 5 mörk 300 þúsund. 6.8 Skallagrímur-KR, 2-6. Andri Sigþórsson: 3 mörk 100 þúsund. 17.8 KR-Valur, 6-1. Ragnar Hauksson: 3 mörk 100 þúsund. 17.8 ÍA-Stjaman, 6-2. Tryggvi Guðmundsson: 3 mörk 100 þúsund. 3.9 ÍBV-Valur, 3-0. Tryggvi Guðmundsson: 3 mörk 100 þúsund. 21.9 ÍBV-Keflavík, 5-1. -JKÍ?* KA-menn í verðugum riðli meistaradeildar: Spenntir - tvö efstu liðin komast upp úr riðlinum „Það skipti raunar engu máli í hvaða riðil við drógumst. Þeir era allir jafnsterkir. Mannskapurinn ætlar að hafa gaman af þessu verk- efni og að sjálfsögðu ætlum við að standa okkur. í fljótu bragði sýnist mér að slagurinn um annað sætið komi til með að standa á milli okk- ar og Celje frá Slóveníu,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA, í samtali við DV í gær eftir að drátturinn á Evrópumótunum i handknattleik lá ljós fyrir. KA leika í A-riðli meistaradeild- ar með Badel Zagreb, Celje Pivo- vama og Trieste frá Ítalíu. Badel lék til úrslita í keppninni í fyrra en beið lægri hlut fyrir Barcelona. KA-liðið á verðugt verkefni fyrir höndum en erfitt er að gera sér grein fyrir möguleikum norðan- manna. Badel telst sterkast enda uppistaðan í liðinu sjálft króatíska landsliðið. KA-menn eiga sterkan heimavöll sem á eflaust eftir að nýt- ast þeim vel í keppninni. Útvega sér upplýsingar um andstæðingana „Þátttaka í þessari keppni er að- eins viðbót fyrir strákana og þeir vita að þetta verður erfitt. Við hlökkum öll til, viss spenna ríkir, en þaö sem skiptir mestu máli er að allir era staðráðnir í að standa sig. Við megum ekki gleyma íslands- mótinu en á næstunni eigum við þar erfiða leiki fyrir höndum,“ sagði Atli við DV. Atli sagði enn fremur að hann ætlaði að útvega sér upplýsingar um andstæðingana. í gær bauðst KA myndbandsspóla frá leik Trieste í siðustu umferð gegn pólsku liði. Celje sigraði Redbergslid í for- keppninni og sagðist Atli ætla að setja sig í samband við Svíana. „Við hjá KA munum reifa þá hug- mynd okkar við Evrópusambandið að leika tvo leiki í sömu ferðinni fyrir áramót. Það er við Celje og Badel um miðjan nóvember. Með því myndum við spara mikla pen- inga,“ sagði Atli. -JKS Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureldingar: Kostur að eiga síðari leikinn í Mosfellsbænum „Mér líst vel á dráttinn. í fyrsta lagi er vegalengdin til mótherjanna þægilega löng en við hefðum hæglega getað lent á móti liði þar sem ferðakostnaðurinn hefði getað orðið helmingi hærri. Ég tel okkur eiga jafna möguleika og við bíðum bara spenntir," sagði Skúli Gunsteinsson, þjálfari Aftureldingar, þegar DV innti hann eftir drættinum i borgarkeppni Evrópu. Afturelding dróst á móti norska liðinu Runar í 16-liða úrslitunum og verður fyrri leikurinn háður í Noregi. „Við teljum okkur eiga hauk í homi í Noregi. Bjarki Sigurðsson, sem leikur með Drammen, á eflaust eftir að veita okkur upplýsingar um Runar. Ég veit að Drammen tapaði fyrir Runar í deildakeppninni fyrir skemmstu. Það er kostur að eiga síðari leikinn heima í Mosfellsbænum. Markmið okkar er að fara áfram í keppninni," sagði Skúli. -JKS Drátturinn Meistaradeild A. riðill: Trieste, Italíu, KA, Celje Pivo- vama, Slóvenía, Badel Zagreb, Króatía. B. riðill: Rauða Stjaman, Júgóslavía, Drammen, Noregur, Pfadi Winterthur, Sviss, Loen, Spánn. C. riðill: Braga, Portúgal, Hapoel Ris- hon, ísrael, Virun Sorgenfri, M. Danmörk, Bracelona, Spánn. D. riðill: Cabot Zubri, Króatía, Lemgo, Þýskalandi, Veszprem, Ung- verjaland, Promet Resen, Makedónía. Tveir leikir verða fyrir ára- mót. Fyrsti leikur KA verður gegn Celje í KA-húsinu á Akur- eyri 8. nóvember. Síðan gegn Badel í Zagreb 15. nóvember. Borgarkeppnin: Vigo (Spániý-Schaffhausen (Sviss) Skövde (Svlþjóð)-Savinesti (Rúmen- ía) P.S.G (Frakklandij-Szeged (Ungverj.) Astrakhan (Rússlandi-Brixen (Italía) ^ Massenheim (Þýskl.HJubliana (Slóv.) Benfica (Portúgal)-Trabzon (Tyrkl.) Runar (Noregi)-Afturelding (ísland) Nettelstd. (Þýskal.ý-Bogdanci (Maked.) Fyrri leikimir í keppninni fara fram helgina 8.-9. nóvember og síðari viðureignirnar helgina 14.-15. nóv- ember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.