Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 27* Iþróttir íþróttir Mál Magnúsar Más: „Bjartsýnn á lausn" Félagaskipti Magnúsar Más Þórðarsonar handknattleiks- manns úr ÍR í Aftureldingu hafa enn ekki gengið í gegn. Lögfræð- ingar félaganna hafa hist á fund- um og Mosfellingar hafa boðið ÍR-ingum greiðslu fyrir Magnús. „Boltinn er hjá ÍR-ingum og ég er bjartsýnn á að lausn finnist í þessu máli innan skamms," sagði Jóhann Guðjónsson, for- maður handknattleiksdeildar Aftureldingar, viö DV. Félagaskiptin hafa þegar verið lögö inn til HSÍ en frestur til að skipta um félag rann út 1. nóv- ember. -GH Ásmundur til Þróttar Ásmundur Haraldsson, sóknarmaður úr FH, leikur nær örugglega með nýliðum Þróttar úr Reykjavík í úr- valsdeildinni i næsta sumar. Ásmundur er 22 ára sóknar- maður sem lék með KR þar til hann skipti yfir til Hafnarfjarð- arliðsins í vor. Hann stundar nám í Bandaríkjunum en er væntanlegur heim um tíu dögum áður en íslandsmótið hefst næsta vor. -VS Missti af leik gegn Man. Utd Þorvaldur Makan Sigbjörns- son, knattspyrnumaður úr Leiftri, gat ekki leikið með vara- liði Stoke gegn Manchester United í fyrrakvöld þar sem til- skilin leyfi bárust ekki i tæka tíð. í gærkvöldi átti hann hins vegar að spOa með varaliðinu gegn utandeildaliöinu Hednes- ford. -VS knattspyrnu Um helgina Evrópukeppni í handbolta: Afturelding-Runar.........S. 20.00 1. deild karla HK-ÍBV....................L. 16.00 1. deild kvenna Stjaman-Grótta KR.........L. 16.30 Fram-ÍBV..................L. 16.30 FH-Valur ............... . . L. 16.30 Haukar-Víkingur ..........L. 16.30 2. deild karla Hörður-Ármann ............F. 20.00 Fjölnir-Selfoss...........F. 20.30 Grótta KR-HM .............F. 20.30 Úrslit eggjabikars í körfubolta Keflavík-Tindastóll.......L. 15.00 1. deild karla Leiknir, R.-Stjaman ......F. 20.00 Breiöablik-Hamar..........L. 15.00 Snæfell-Höttur ...........L. 20.00 Stafholtstungur-Höttur . .. . S. 14.00 Afturelding-Runar á sunnudagskvöldið: Fimm ekki mikið toppliðin í íslenska og norska handboltanum eigast við ftureldine oe norska liðið Run- oe viö meeum alls ekki láta bað eer- Liðið sé iafnt. með eóðar skvttui Afturelding og norska liðið Run- ar leika síðari leik sinn í 16-liða úr- slitum í borgakeppni Evrópu í handknattleik í Mosfellsbæ klukkan 20 á sunnudagskvöldið. Þar þurfa Mosfellingar að vinna upp fimm marka forskot en Runar vann heimaleikinn í Sandefjord um síð- ustu helgi, 30-25. Leikmenn Aftureldingar eru hvergi bangnir við þetta verkefni og segjast eiga góða möguleika á að slá lið Runar út úr keppninni en Runar trónir í toppsætinu í norsku úrvals- deildinni og Mosfellingar eru í sama sæti í Nissan-deildinni. En hvað segir Bergsveinn Bergsveinsson, markvörður Aftureldingar og lands- liðins, um möguleika sinna manna? „Ef við fáum fullt hús og mikla stemningu er ég sannfærður um að við klárum þetta. Fimm marka munur í Evrópukeppninni er ekki mikill. Við þurfum að leggja áherslu á að spila sterka vöm og hafa góðar gætur á leikstjómanda Runar sem er mjög sterkur og prímusmótor í liðinu. Ég var nánast kaffærður í hraöaupphlaupum í fyrri leiknum og við megum alls ekki láta það ger- ast aftur. Það er rífandi stemning í liðinu. Við vitum að við þurfum góðan leik tO að takmarkið náist og Leik Aftureldingar og Runar á sunnudagskvöld dæma þýsku bræð- urnir Wolfgang og Manfred Gremmel en þeir hafa nokkrum sinnum dæmt hér á landi og þykja hátt skrifaöir í dómarastéttinni. Sjónvarpsstööin Sýn mun sjónvarpa leiknum beint klukkan 20 á sunnu- dagskvöldiö. Leikmenn Aftureldingar hafa sjálfir staðið strarnn af þátttöku liðsins i Evrópukeppninni. Kostnaðurinn hingað til er 1,8 miiijónir en leik- mennimir eru reiðubúnir að hækka þessa tölu með því aö komast áfram. við ætlum okkur áfram í næstu um- ferð,“ sagði Bergsveinn. Viljum ekki hætta núna Skúli Gunnsteinsson, þjálfari og leikmaður Aftureldingar, segir að norska liðið sé léttleikandi og besta félagslið Noregs um þessar mundir. Liðið sé jafnt, með góðar skyttur báðum megin, sterka homamenn og snjallan leikstjómanda. Hann segir að aðalstyrkleiki liðsins sé hraða- upphlaupin og það hafi berlega komið í ljós í fyrri leiknum. „Við eigum töluvert góða mögu- leika, svo framarlega sem við náum upp góðum leik og fáum góðan stuðning frá áhorfendum. Menn hafa lagt hart að sér í peningasöfn- un til að vera með i þessari keppni og menn vilja ekki hætta núna,“ sagði Skúli. Mosfellingar geta teflt fram sinu sterkasta liði í leiknum á sunnu- dagskvöld. í fyrri leiknum voru Gunnar Andrésson og Þorkell Guð- brandsson meiddir en hafa báðir náð sér að fullu. Það ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að Aftur- elding slái norska liðið út. Heima- völlur Mosfellinga hefur löngum þótt mjög sterkur og skemmst er að minnast þess þegar Afturelding vann góðan sigur á austurríska lið- inu Stockerau í 1. umferð keppninn- ar á heimavelli, 35-28. -GH NBA í nótt: Sex í röð hjá Lakers Shaquille O’Neal og félagar hans annars þessi: í LA Lakers unnu sjötta sigur sinn New Jersey-Cleveland.74-85 í röð í nótt þegar þeir lögðu SA Cassell 32, J. Williams 13, Gill 11 - Per- Spurs á útivelli í framlengdum son 20, Ilgauskas 20, Knight 12. leik. Shaq fór fyrir sínum mönn- Minnesota-Washington.88-91 um, skoraði 34 stig, þar af 5 í fram- Marbury 26, K. Gamett 20, Carr 18 - lengingunni, þegar Lakers-menn Webber 22, Strickland 21, Cheaney 12. hreinlega skelltu vöm sinni í lás Dallas-Philadelphia.98-99 og Spurs skoraði ekki stig í um Bradley 20, Finley 18, Reeves 14 - Iver- fjórar mínútur. Úrslitin í nótt urðu son 31, Coleman 25, Stackhouse 21. SA Spurs-LA Lakers .......100-109 Robinson 27, Duncan 19, M.Willimas 14 - Shaq 34, Jones 26, Van Exel 14. Seattle-Detroit.............95-89 Payton 25, Baker 24, Schrempf 17 - Hill 20, Hunter 16, Sealy 14. LA Clippers-Milwaukee .... 94-102 Murray 25, Rogers 18, Martin 17 - Robinson 32, Allen 23, Gilliam 15. -GH Birgir Örn Birgisson skorar fyrir Keflvíkinga gegn KR í undanúrslitum eggjabikarsins í körfuknattleik í gærkvöldi. Nökkvi Már Jónsson horfir á og eftirleikurinn er því auöveldur fyrir Birgi sem skoraði alls 6 stig í leiknum. Keflvíkingar mæta Tindastóli i úrslitaleik á laugardaginn en Keflvíkingar eiga titil aö verja i þessari keppni. DV-mynd Brynjar Gauti. Torrey engum likur - Tindastóll í fyrsta skipti í úrslitaleik í stórmóti - mætir Keflavík í úrslitaleik eggjabikarsins á morgun Það verða Tindastóll og Keflavík sem leika til úrslita í eggjabikarnum í körfuknattleik en leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Undanúrslitaleikimir fóru fram í Höllinni í gærkvöldi. I fyrri viður- eign kvöldsins sigmðu Keflvíkingar lið KR-inga, 90-80, og í þeirri síðari sigraði Tindastóll lið Njarðvíkinga í háspennuleik, 102-90, eftir framlengd- an leik. Viðureign Tindastóls og Njarðvík- inga var leikur kvöldsins og bauð upp á allt sem leikur af þessu tagi hefur upp á að bjóða. Hann var þræl- skemmtilegur á að horfa, spenna lengstum, glæsileg tilþrif og hittnin á stundum var ævintýraleg. Njarðvíkingar byrjuðu betur og náðu um tíma 15 stiga forystu í fyrri hálfleik. Tindastólsmenn vom ekki af baki dottnir og minnkuðu bilið fyrir hálfleik en þá var staðan 48-44 fyrir Njarðvík. Síðari hálfleikur var vægast sagt hlaðinn spennu. Tindastóll komst i fyrsta skiptið yfir í leiknum, 56-59, með þriggja stiga körfu frá Torrey John og þar með var tóninn gefinn. Torrey hrökk í gang svo um munaði en alls skoraði hann ellefu þriggja stiga körfur í leiknum. Njarðvíking- um tókst að jafna metin rétt undir lok venjulegs leiktíma, 78-78. Tindastólsmenn voru mun at- kvæðameiri í framlengingunni og sigu jafht og þétt fram úr. Njarðvík- ingar vora þá búnir að missa Petey Sessoms út af með fimm villur og var það blóðtaka fyrir þá. Teitur Örlygs- son reyndi hvað hann gat með frá- bærum leik en hann mátti ekki við margnum. Þáttur Torreys Johns í þessum leik gleymist seint. Þegar kappinn hrekk- ur í gang stöðvar hann ekkert. Hann hitti á ótrúlegustu stöðum og hirti einnig fjölda frákasta. „Þetta var stórkostlegt" „Þetta var stórkostlegt. Við áttum það takmark að komast í úrslit í þess- ari keppni og það gekk eftir. Þetta er í fyrsta sinn sem liðið kemst alla leið í úrslitaleik í stórkeppni. Þetta er eitt besta liö sem Tindastóll hefur teflt fram. Hópurinn er breiður og sterk- ur. Við ætlum að njóta þess að spila þennan úrslitaleik og að sjálfsögðu stefnum við að sigri. Við eigum von á miklum stuðningi frá fólki heima á Króknum. Þaðan eiga margir eftir að koma akandi í bæinn gagngert til aö styðja við bakið á okkur gegn Kefla- vík,“ sagði Tindastólsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson við DV eftir leikinn í gærkvöldi. Torrey John skoraði 50 stig fyrir Tindastól. Amar Kárason og Sverrir Þór Sverrisson skomðu 12 stig hvor og Láms Dagur Pálsson 9 stig. Alls gerði liðið 15 þriggja stiga körfur. Hjá Njarðvík var Teitur Örlygsson yfirburðamaður. Hann skoraði 30 stig en Petey Sessoms 32 stig og skotnýt- ing hans var ekki sérstök. Páll Krist- insson skoraði 16 stig og vann geysi- lega vel. Öruggt hjá Keflvíkingum Keflvíkingar unnu öruggan sigur á KR, 90-80, í hinum undanúrslitaleik kvöldsins. Keflvikingar voru sterkari á öllum sviðum, hittu vel og vörnin var lengstum í góðu lagi. Það sama verður ekki sagt um KR-inga. Það var eins og alla baráttu vantaði en það kann aldrei góðri lukku að stýra. Hálfgerð uppgjöf kom upp hjá vestur- bæjarliðinu um miðjan síðari hálfleik og var eftirleikurinn því auðveldur hjá Keflvíkingum. Dana Dingel og Guðjón Skúlason vom bestu menn Keflvíkinga í leiknum. Dingel skoraði 28 stig og Guðjón 22 stig. Hjá KR-ingum var Hermann Hauksson langatkvæðamestur, skor- aði 27 stig og reyndi hvað hann gat en samherjar hans fylgdu ekki frum- kvæði hans og því fór sem fór. Kevin Tuckson náði sér ekki á strik og skor- aði aðeins 13 stig. Nökkvi Már Jóns- son var ágætur í síðari hálfleik og gerði alls 14 stig. „Allt á réttri leiö hjá okkur“ „Ég er ánægður með leik okkar. Við héldum út í 40 mínútur og vöm- in var góð. Við lékum af skynsemi í síðari hálfleik, þá sem ein liðsheild og þjöppuðum okkur vel saman. Þetta er allt saman á réttri leið hjá okkur," sagði Keflvikingurinn Guðjón Skúla eftir leikinn við DV. -JKS Framkvæmdastjórn ÍSÍ: „Máiið úr •• Stf sogunm DV hefur borist samþykkt framkvæmdastjómar íþrótta- og Ólympíusambands íslands frá fundi stjómarinnar 12. nóvember sl. Á fundinum var eft- irfarandi bókun samþykkt: „í DV i gær og í fyrradag er fjármálastjórn fyrr- verandi formanns Óí gerð að umtalsefiii með vís- an til bókunar gjaldkera neftidarinnar þann 20. ágúst sl. Án þess að fara frekar ofan í efnisatriði þessa máls vill framkvæmdastjóm ÍSÍ taka fram að hún lítur svo á að með þeim skýringum sem þáverandi gjaldkeri Óí, Torfi Tómasson, hefur gefið 26. sept- ember sl. sé málið úr sögunni. Enda í fullu sam- júlíus Hafstein, fyrrver- ræmi við niðurstöðu síðasta fundar ÓI16. október andi formaður Óí. sl. Stjómin harmar að þetta skuli hafa orðið að blaðamat.“ Sigríöur Jónsdóttir veröur varaforseti Á fyrsta fundi framkvæmdastjómar íþrótta- og Ólympíusambands íslands var einróma samþykkt verkaskipting innan stjómar ÍSÍ. Ellert B. Schram var kosinn forseti íþrótta- og Ólympiusambandsins á fyrsta þingi sambands- ins um síðustu mánaðamót. Á fundi framkvæmdastjómar var samþykkt að Sigríður Jónsdóttir yrði varaforseti, Friðjón B. Friðjónsson gjaldkeri og Benedikt Geirsson ritari. Þá var einnig samþykkt einróma að ráða Stefán Snæ Konráðsson sem framkvæmdastjóra sambandsins. -SK Bland i poka Framarar halda herrakvöld sitt I Safamýrinni I kvöld. Ræöumaður veröur Ámi Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður. Jóhannes Kristjáns- son skemmtir. Skemmtimin hefst kl. 19.00. Gunnar Einarsson og félagar i MW unnu mikilvægan útisigur á De Graafschap, 1-2, i hollensku úrvals- deildinni í knattspymu i gærkvöld. Þetta em mikilvæg stig fyrir MW í fallbaráttunni. Gheorghe Muresan, stærsti leikmaö- ur NBA-deildarinnar í körfuknatt- leik, leikur ekki með Washington Wizards næstu sex vikurnar. Rúmen- inn er meiddur á ökkla og var settur í gips í gær. Barcelona steinlá fyrir Athletic Bil- bao, 3-0, í spænsku 1. deildinni í knattspymu í gærkvöld. Forysta liös- ins á Real Madrid og Celta Vigo er nú aðeins eitt stig og eitthvað mikið virðist nú að hjá Barcelona eftir góða bytjun á tímabilinu. David Howell frá Bretlandi er með forystu eftir fyrsta hringinn á stór- móti í golfi sem hófst í Marokkó í gær. Hann lék á 67 höggum. Henrik Nyström frá Svíþjóð er á 68 en marg- ir kunnir kappar náðu sér ekki á strik í gær. Grikkir unnu góðan sigur á Englend- ingum, 2-0, I fyrri leik þjóðanna í 8- liöa úrslitum Evrópukeppni 21-árs landsliða í knattspymu í gær. Leikið var á hinum sterka heimavelli OFI á Krlt sem KR-ingar fengu að kynnast í haust. Tryggvi Guömundsson gæti leikið með Stockport gegn Swindon I 1. deild ensku knattspymunnar á morg- un ef marka má fréttir í enskum fjöl- miðlum í gærkvöld. Hann hefur sem kunnugt er verið til reynslu hjá félag- inu að undanfömu. Bland i poka Vujadin Boskov er tekinn á ný við , þjálfun ítalska 1. deildar liðsins Sampdoria en Argentínumaðurinn Cesar Luis Menotti ákvað að segja starfi sínu lausu hjá félaginu þar sem forráðamenn félagsins vildu ekki ganga að hans ósk og styrkja liðið með tveimur sterkum leikmönnum. Héöinn Gilsson skoraði 9 mörk fyrir lið sitt, Fredenbeck, í þýsku 2. deildinni i handknattleik i fyrrakvöld. Þaö dugði þó ekki til sigurs því Fredenbeck tapaði með einu marki og er í neðri hluta norðurriðilsins. Jevgeny Kefelnikov frá Rússlandi sigraði i gær Bandaríkjamanninn Michael Chang, 6-3 og 6-0, á heims- meistaramóti átta bestu tennisleikara heims sem fram fer i Hannover í Þýskalandi þessa dagana. Júlíus Jónasson skoraði 5 mörk fyr- ir St. Otmar þegar liöið tapaði fyrir Suhr, 29-25, í svissneska handboltan- um i fyrrakvöld. Þetta voru fyrstu stigin sem St. Otmar tapar á timabil- inu. Ron Atkinson verður væntanlega næsti framkvæmdastjóri enska knatt- spyrnufélagsins Sheffield Wednesday. Atkinson hefur áður stýrt málum þar á bæ en félagið varð deildabikar- meistari 1991 undir hans stjóm. Manchester United ætlar að fylgjast með hinum efnilega framhetja frá Chile, Marcello Salas, í landsleik um helgina. Salas leikur með River Plate í Argentínu, sem hefur sett á hann 1,4 miUjarða króna kaupverð en Alex Ferguson, stjóri United, hefur sagt að það væri sem slíkt engin hindrun. Heiðar og Hilmar búnir að semja - fara til Lilleström og Tromsö Knattspyrnumennimir Heiðar Helguson (áður Sigurjónsson) úr Þrótti í Reykjavík og Hilmar Bjöms- son úr KR leika báðir í norsku úr- valsdeildinni á næsta ári. Heiðar skrifaði undir fiögurra ára samning við Lilleström í fyrrakvöld og Hilm- ar komst að munnlegu samkomu- lagi við Tromsö í gær. Heiðar er tvítugur sóknarmaður frá Dalvík og hefur spilað með Þrótturum undanfarin þrjú ár. „Draumurinn um að gera knatt- spymuna að atvinnu er orðinn að veruleika og nú er að standa sig,“ sagði Heiðar við DV í gærkvöld. Hilmar er 28 ára kantmaður sem hefur spilað með KR alla tíð nema hvað hann lék hálft tímabil með FH árið 1993. Samningur hans er til þriggja ára en Hilmar verður þó væntanlega laus eftir tvö ár. Hann var samningsbundinn KR og félögin hafa náð saman um kaupverðið. „Þetta er mjög spennandi en um leið sárt að yfirgefa KR,“ sagði Hilmar við DV í gærkvöld. -VS Hörður til Valsmanna Hörður Már Magnússon er genginn tO liðs við úrvalsdeildarlið Vals í knattspymu á ný eftir eins árs dvöl hjá Leiftri á Ólafsfirði. Hörður Már er 26 ára miðju- eða sóknarmaður og lék meö Val í fimm ár en fram að því með Kópavogsliðinu ÍK. Þar með hafa Valsmenn krækt í þrjá nýja menn en áður höfðu þeir fengið Ingólf Ingólfsson frá Stjörnunni og Ólaf Stígsson frá Fylki. -VS Robson ánægður með Pétur - fékk leyfi til að spila með Middlesbrough gegn Leicester Pétur H. Marteinsson fundaði í gær með Bryan Robson, fram- kvæmdastjóra enska knattspymufé- lagsins Middlesbrough. Robson lýsti yfir mikilli ánægju með frammi- stöðu Péturs í leiknum með varaliði Boro gegn Notts County. Eins og fram kom í DV í gær var þjáifari liðsins, Gordon McQueen, einnig mjög jákvæður í garö Péturs. Pétur hafði aðeins leyfi frá Hammarby í Svíþjóð tO að spila þennan eina leik. í gær náðist síðan samkomulag við sænska félagið um að hann yrði áfram hjá Middles- brough og léki með varaliðinu gegn Leicester á mánudaginn kemur. Talsvert hefur verið fjallað um dvöl Péturs hjá Boro, bæði í Englandi og Svíþjóð, og ummæli í hans garð verið lofsamleg. Ljóst er að Hammarby vOl ógjaman missa hann, enda hefur Pétur verið jafn- besti leikmaður liðsins tvö undan- farin ár. Hann var valinn leikmaður ársins hjá félaginu í fyrra og gæti hæglega hlotiö þann titO aftur í ár. Pétur er samningsbundinn Hamm- arby sem vann sér sæti í sænsku úr- valsdeOdinni. Samningur hans við félagið rennur út um næstu mán- aðamót en þá tekur nýr samningur gOdi. -VS Sverrir Sverrisson úr IBV fékk tilboð frá St. Johnstone í morgun: „Þarf að vera mjög gott“ Sverrir Sverrisson. Sverrir Sverrisson, landsliðsmaður í knattspymu og íslandsmeistari með ÍBV, fékk í morgun tilboð frá skoska úrvalsdeOdarliðinu St. Johnstone. Sverrir hefur dvalið hjá félaginu í þrjá daga og forráðamenn þess vOja semja við hann eftir að hafa séð hann í einum æfingaleik. „Ég spOaði einn óopinberan leik og gekk vel í fyrri hálfleOmum en var al- veg búinn í þeim síðari. En þeir virð- ast hafa séð nóg, þeir vOdu fá mig í annan leik á mánudag og þegéu ég sagðist ekki geta verið svo lengi tO- kynntu þeir mér að ég fengi tOboð frá þeim í fyrramálið,“ sagði Sverrir við DV í gærkvöld. Hann sagði að þó málin hefðu þró- ast svona væri aUs ekki víst að hann myndi yfirgefa ÍBV. Á eftir að ræða við Eyjamenn „Mér líst ágætlega á mig hjá félag- inu en spumingin er sú hvort ég vOji fóma öðrum hlutum í staðinn fyrir að fara í atvinnumennskuna. Þetta tO- boð frá St. Johnstone þarf að vera virkUega gott tU að ég taki því. Svo á ég eftir ræða við Eyjamenn, ég geri ekkert án samráðs við þá,“ sagði Sverrir. St. Johnstone sigraði í skosku 1. deUdinni í fyrra. Liðið hefúr farið ágætlega af stað í úrvalsdeUdinni og er þar í fimmta sætinu sem stendur. -VS Grótta/KR - Þór í kvöld, föstudaginn 14. nóvember, kl. 20.30 mætir sameinað lið Gróttu og KR Pór, Akureyri, í stórleik á Nesinu. Stuöningsmenn mæti á Rauða Ijóninu kl. 19.30. Vesturbæingar og Seltirningar eru hvattir til að mæta og hvetja sitt nýja félag. Grótta KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.