Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 Fréttir DV Plastprent hf. hlaut íslensku gæðaverðlaunin 1997: Mikilvægt vopn í út- rás á erlenda markaði - sagði Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Plastprents „Þrátt fyrir töluvert hugmynda- flug og mikinn metnað þá get ég fullyrt það að starfsmenn Plast- prents áttu ekki von á að verða þessa mikla heiðurs aðnjótandi. Fyrirtækið er 40 ára og þessi verð- laun eru góð afmælisgjöf og mikil viðurkenning. Verðlaunin eru einnig mjög mik- ilvægt vopn í þeirri hörðu sam- keppni sem við eigum framundan í útrás fyrirtækisins á erlenda mark- aði,“ sagði Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Plastprents hf. sem hlaut í gær íslensku gæðaverð- launin 1997. Davíð Oddsson forsætisráðherra afhenti verðlaunin við hátíðlega at- höfn á Kjarvalsstöðum í gær en þá var Alþjóðlegi gæðadagurinn. Þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru veitt hér á landi. íslensku gæðaverðlaunin eru samstarfs- verkefni forsætisráðuneytisins, Há- skólans, Vinnuveitendasambands- ins, Framtíðarsýnar, útgáfufélags viðskiptablaðsins, Gæðastjórnun- arfélags íslands og Alþýðusam- bandsins. Stefnubreyting í fyrirtækinu „Við hófum stefnubreytingu í fyrirtækinu 1991 og það atriði sem við tókum á hvað fyrst voru gæða- málin. Við ákváðum gæðastaðalinn ISÖ-9002 sem við fengum í ársbyrj- un 1994. Þessi áfangi var mjög dýr- mætur og mikilvægur hluti af þeim áfanga sem við höfum náð. Síðan höfum við bætt ýmsum þáttum við þetta kerfi og reynt að þróa það. Við höfum nú ákveðið að sækja eft- ir vottun á ISO-14000 gæðastaðli," sagði Eysteinn. Hann sagði að stefnumið fyrir- tækisins væri að ná 10 prósentum af veltu fyrirtækisins í útflutningi fyrir aldamót. Eysteinn sagði það grundvöll góðs árangurs í gæða- starfi að stjórnvöld tryggi efnhags- legan stöðugleika. Þá benti hann á að mjög mikilvægt væri að huga betur að menntun í landinu, sér- staklega háskólanámi, þannig að þjóðin missti ekki sinn besta mannkost úr landi til samkeppnis- aðila erlendis. Verðlaunin erlend fyrirmynd Eyjólfur Sveinsson, formaður ís- lensku gæðaverðlaunanna, sagði að verðlaunin ættu sér erlenda fyrir- mynd. „Svipuð verðlaun hafa verið veitt í Bandaríkjunum og Japan. Þó má segja að þau séu alger hlið- stæða evrópsku gæðaverðlaunanna sem bæði eru veitt í hverju Evr- ópulandi fyrir sig og einnig á evr- ópska vísu. Mjög oft vinna stórfyr- irtæki sigur í sínu heimalandi og fylgja honum síðan eftir með um- sókn til evrópsku gæðaverðlaun- anna. Það er ekki aðeins í erlendri samkeppni sem ég tel að íslensku gæðaverðlaunin eigi eftir að setja svip sinn á íslenskt athafnalíf. Gæðaverðlaunin eru í raun eitt- hvert stærsta skref í viðleitni ís- lenskra fyrirtækja við að bæta starfsemi sína með það að marki að Verb ábur kr. 59.900 Black Line myndlampi Nicam Stereo hljóbkerfi Umbaðsmenn um land alltVESTURLAND: Hljómsýa Akranesi. Kaupfélag Borgfirðinga. Borgarnesi. Blómslurvellir. Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfiröi.VESTFIRfllfl: Rafbúð Jónasar Þórs. Palreksfirði. Póllina isalirJi. NDRDURIAND. íf Sieingrimsfjarðar. Hólmavík. tf V-Húnvetninga. Hvammstanga. If Húnvetninga. Blónduósi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. KEA Ðalvík. Bókval. Akureyri. Ljósgjafina Akureyri. Dryggi, Húsavik. KE Þingeyinga. Húsavik. Urð, Baufarhófn. AUSIURLAND: Kf Héraðsbúa. Egilsstöðum. Verslunin Vik. Neskaugssiað. Kauptún. Vopnafirði. Kf Vopnfiröinga, Vopnafirði. Kf Héraðsbúa, Seyöisfirði. Turnbræður, Seyöisfiröi.Kf fáskrúðsfjaröar. fáskrúðsfirði. KASK. Djúpavogi. KASK. Hðfn Homafirði. SUÐURLAND: Rafmaonsverkstæöi IH. HvoMli. Mosfell. Hellu. Heimslækni. Selfossi. KF Árnesinoa. Selfossi. Rás. Þorlákshöfn. Brimnes. Vesimannaevium. HEYKJANES: Rafborn. Grindavík. Rallaonavinnust. Sin. Inavarssonar. Garði. Rafmætlí. Hafnarfirði. Verðlaunasteinninn skoðaður. Frá vinstri Davíð Oddsson forsætisráðherra, Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Plastprents hf. og Eyjólfur Sveins- son, formaður IGV. Steinninn er eftir Pál frá Húsafelli. DV-mynd Brynjar Gauti verða samkeppnishæfari, starfs- mönnum sínum og hluthöfum til hagsbóta," sagði Eyjólfur við verð- launaafhendinguna. Breytingar í atvinnulífi Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að atvinnulífið í landinu hefði gengið í gegnum miklar breytingar á undanfornum árum. Hann sagði að skipst hefðu á skin og skúrir en í heildina hefði þó gengið býsna vel. „Fyrirtækin hafa styrkst, fag- mennska hefur aukist og tæknium- hverfí hefur tekið gífurlegum fram- förum. Búast má við að þessi gæða- verðlaun komi að miklu gagni við erlenda markaðsstjórn og verði þekkt merki. Þá er þess einnig von- andi ekki langt að bíða að íslensk fyrirtæki geti sótt óhikað um evr- ópsku gæðaverðlaunin og er ekki að efa að íslensk fyrirtæki gætu náð langt í þeim efmun," sagði Davíð m.a. við verðlaunaafhend- inguna. -RR Davíð Oddsson afhendir Eysteini Helgasyni viöurkenningarskjal í tilefni af því að Plastprent hlaut íslensku gæðaverðlaunin 1997. Verðlaunaafhend- ingin fór fram á Kjarvalsstööum í gær. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.