Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 9
JL>V FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
hljómplHui
Herbalizer/Blow Your Headphones:
Eðaldanstónlist ★★*
Trip Hop er tón-
listarstefha sem er
að mestu ættuö frá
Bretlandi. Undan-
farin ár hefur upp-
gangur hennar ver-
ið mikill og hafa
hljómsveitir á borð
við Portishead og
Massive Attack
blásið ferskum
vindum inn á vin-
sældalista í kjölfar
þessa. Það er samt
eðli sumra tónlist-
armanna sem við
stefnuna fást að
flétta hana saman
við auðmelta
popptónlist sem er að verða nokkurs konar vinsældapopp þessa ára-
tugar. Herbalizer, sem gefur út undir merkjum Ninja Tune, hefur
enn ekki fallið í poppgildruna. Hann fer sínar eigin leiðir og á Blow
Your Headphones kokkar hann tært og ómengað trip hop að hætti
Zen-meistara. Hann fær til liðs við sig breska rappara og gefur það
plötunni skemmtilegan blæ. Framburðurinn er mun skýrari en
gengur og gerist í bandarísku rappi og er greinilegt að góðir hlutir
eru að gerast í bresku rappi þessa dagana. Fyrsta lag plötunnar er
hið geysisterka lag, The Blend, sem gefur svo tóninn að því sem á
eftir fylgir. (Hlustið ekki á þessa plötu í heyrnartólum.)
Jón Atli Jónasson.
Stolía/Flýtur vatn:
íslensk framúrstefna ★★★★
Hljómsveitin
Stolía leikur
„instrumental
fusion-tónlist“ sem
á engan sinn líka á
íslandi í dag.
Á breiðskífunni
Flýtur vatn fer
hljómsveitin gjör-
samlega sínar eigin
leiðir, án þess að
gefa markaðssjónar-
miðunum gaum, og
það er að miklu
leyti það sem gerir
hana svo öfluga.
Kröftugar laga-
smíðar og góður
hljóðfæraleikur er
það sem heldur plöhmni uppi og þó svo stemningin á henni sé þung
þá nær hún að fanga athyglina algjörlega. Tónlist Stolíu minnir á
köflum á það sem breska hijómsveitin Red Snapper hefur verið að
gera en annars eiga hljómsveitimar fátt sameiginlegt. Tónlist Stol-
iu er þung og í fyrstu ekki mjög aðgengileg. Það þarf að gefa sér tíma
til að uppgötva galdurinn sem liggur að baki. Umslag plötunnar er
einnig vel heppnað og tíbeski munkurinn, umvafinn rafmagnssnúr-
um, ætti að kveikja hugmyndir um það sem á geislanum býr. Fram
er komin ný íslensk hljómsveit sem gerir hlutina á eigin forsendum
og kemst upp með það. Jón Atli Jónasson.
Lonesome Organist/Collector of Cactus Echo Bags:
Öflugur organisti ***
Öðru hverju kem-
ur út breiðskífa sem
er svo sérstök að
maður getur ekki
annað en hrifist
með. Ein þessara
breiðskifa er
Collector of Cactus
Echo Bags þar sem
tónlistarmaðurinn
Lonesome Organist
lætur gamminn
geisa. Hann er fjar-
skyldur ættingi Mo-
ney Mark og Beck í
tónlistinni en geng-
ur skrefínu lengra.
Hann leikur á öll
hljóðfæri sjálfúr og tekst ágætlega upp. Lög plötunnar minna á allt
það sem sem Tom Waits var að gera allt frá Swordfish Trombones
til tilraunakenndrar sambatónlistar. Það hafa sjálfsagt ekki allir
smekk fyrir Lonesome Organist en það er öruggt að tónlist hans á
sér engan líka í heiminum í dag. Jón Atli Jónasson.
Sigga Beinteins gaf fyrir skömmu
út aðra sólóplötu slna. Hún ber heit-
ið Sigga og er gamall draumur
Siggu um að gera rólega og róm-
antíska plötu.
„Já, þetta er gamall draumur hjá
mér og platan er búin að vera í
höfðinu á mér í tvö ár. Ég safnaði
saman mörgum lögum og þau hefðu
auðveldlega fyllt tvær plötur."
Hvar var platan tekin upp?
„Ég ákvað að skella mér til
London og taka hana upp þar. Þar
er meira næði og síminn ekki sífellt
klingjandi. Ég þurfti gott næði því
ég tók sönginn upp á aðeins fimm
dögum. Ég kann vel við London og
get vel hugsað mér að búa þar.“
Hverjir unnu plötuna með þér?
„Friðrik Karlsson sá um útsetn-
ingar ásamt John Savannah. Svo
tók Óskar Páll Sveinsson upp allan
söng og Ben Cape á heiðurinn af
hljóðblöndun plötunnar sem ég held
Bugsy Malone
Út er komin geislaplata sem inni-
heldur lögin úr söngleiknum Bugsy
Malone sem er gerður eftir sam-
nefndri kvikmynd Alans Parkers frá
árinu 1976. Söngleikurinn verður
frumsýndur i Loftkastalanum í leik-
stjóm Baltasars Kormáks þann 25.
janúar næstkomandi. Tónlistarstjóri
er Jón Ólafsson sem er að verða
manna flinkastur í því að stýra tón-
list á fjölum leiksviða borgarinnar.
Á geislaplötunni er að finna lög sem
krakkamir, sem fara með hlutverk í
Bugsy Malone, syngja. Þetta er ný-
mæli þar sem Alan Parker fékk full-
orðna söngvara til að syngja í mynd
sinni. Þess má til gamans geta að það
var óskarsverðlaunahafinn Jodie
Foster sem fór með hlutverk Tallúlu
í mynd Alans Parkers og var þetta
eitt af fyrstu hlutverkum hennar á
hvíta tjaldinu.
að hafi tekist einstaklega vel. Það er
gott sánd á plötunni.“
Er Ben Cape stórt nafn í tónlist-
inni í Bretlandi?
„Hann er afar fær og hefur meðal
annars unnið með Oasis og Et-
emal.“
Hvernig er að vera sóló?
„Það er erfitt að standa í þessu
sjálf en það er líka mjög gott að geta
tekið allar ákvarðanir sjálf. Það
eina er að það verður ómögulegt
fyrir mig að halda tónleika í kring-
um plötuna þvi kostnaðurinn er of
mikill. Ég var með vissar hugmynd-
ir um að fá sjónvarpsstöðvarnar til
liðs við mig og halda flottan konsert
þar sem ég flytti lög af báðum sóló-
plötunum mínum. Það verður
kannski að vemleika seinna meir.“
- tíu vinsælustu danslögin vlkuna
18. tll 25. október 1997 -
1. The Groove
Global Communication
og The UFC Band
2.
3.
4.
5.
6.
Monte Carlo
Joey Negro
Polson / Protein
Mark Green
Acot
Lex
Lonely / Wlsh Tonite
Corrina Joseph
Mlssion Impossible
Dimitri From Paris
Á
<
7. To Be In Love
Masters At Work
8. Stella vs. Sunday
Glasgow Underground
9. Subname
Throb
A
10. Happy Feellng
Mateo og Matos