Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1997, Qupperneq 12
' « imyndbönd
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 T>\y
MYHDBAm
★★★
Viðvaningslegir bankaræningjar
Vinirnir Kev og Smith eru báðir atvinnulausir.
Þeir drepa tímann með bjórdrykkju og sjónvarps-
glápi. Kev er mikill hrokagikkur og sífellt að koma
sér í vandræði. Mick hefur léttari lund og dundar sér
við að semja ljóð. Eftir að hafa séð ógrynni
bankarána i sjónvarpinu þykjast þeir hafa fundið út hvemig fara eigi að
og ákveða að ræna sjáifir banka. Ránið er auðvitað tómt klúður írá upp-
hafi og óvæntir hlutir gerast. Hér er alls ekki um spennu- eða hasar-
mynd að ræða heldur léttgeggjað ádeiludrama. Greinilega er verið að
sækja á sömu mið og Trainspotting og sést nafn þeirrar myndar á þrem-
ur stöðum á kápunni. Kev og Mick virðast ekki endilega vera að sækj-
ast eftir peningum, enda alls óvíst hvað þeir ættu svosem að gera með
einhveija glás af peningum. Ákvörðun þeirra um að fremja bankarán
virðist einna helst sprottin upp úr atvinnuleysisleiðindum og aðgerða-
leysi. Sagan kemst vel til skila í myndinni og veruleikafirrt leiðindaand-
rúmsloft atvinnuleysisins einnig. Leikarar skila sínu einnig vel og það
eina sem vantar upp á hér er meiri hraði í atburðarásinni og vandaðra
samspil tónlistar og myndmáls.
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: David Caesar. Aðalhlutverk: Ben Mendelson og
Jeremy Sims. Aströlsk, 1997. Lengd: 82 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Jurie:
Forboðin ást ★★★■*
Hér segir frá steinsmiðnum Jude Fawley sem les
mikið og dreymir um að komast i skóla. Konan hans
yfirgefur hann eftir stutt hjónaband og hann flytur
því til skólabæjarins Christmaster og kynnist þar
frænku sinni, Sue Bridehead. Þau verða ástfangin og
hún yfirgefur eiginmann sinn til að búa með Jude.
Þar með skapa þau sér óvild samfélagsins. Myndin
er byggð á sögu Thomas Hardy og sögusviðið er 19.
aldar England. Sagan er í klassísku harmleikjaformi
en felur í sér beitta ádeilu á miskunnarlaust samfé-
lag þess tíma, stéttaskiptingu, trúarbrögð og skort á
umburðarlyndi. Bók hans hneykslaði marga og vakti miklar deilur á
sínum tíma. Hvort sem það var ástæðan eður ei hélt hann sig við ljóð
eftir það og skrifaði ekki fleiri skáldsögur. Ádeilan kemst vel til skila í
myndinni og einnig harmleikurinn, sem er hrár og miskunnarlaus og
laus við yfirkeyrða vasaklútavellu. Christopher Eccleston og Kate
Winslet eru í hlutverkum Jude og Sue og gætu vart verið betri. Útkom-
an er mjög athyglisverð og eftirminnileg mynd.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Michael Winterbottom. Aðalhlutverk:
Christopher Eccleston og Kate Winslet. Ensk, 1996. Lengd: 117 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
The Shining:
Hryllingshótel ★★★
Myndin er gerð eftir samnefhdri skáldsögu Steph-
en King um Jack Torrance sem ásamt konu og barni
tekur að sér að gæta sumarhótels i Sierra-fjöllunum
yfir vetur. Sonurinn er skyggn og sér ýmislegt
óhreint í hótelinu en það er faðirinn sem hótelið nær
til að lokum og gerir að verkfæri sínu. Stanley
Kubrick kvikmyndaði þessa sögu í frægri mynd þar
sem Jack Nicholson lék aðalhlutverkið. Hann breytti
söguþræðinum allnokkuð og Stephen King var mjög
óánægður með útkomuna. Hann skrifar sjálfur hand-
ritið að þessari sjónvarpsmynd í tveimur hlutum.
Eins og gefur að skilja fylgir hann sögu sinni nokkuð vel og það ítarlega
að samtals eru spólumar tæplega fiórir og hálfur tími að lengd. Þessi
mynd býður upp á mjög góða sögu sem þó verður stundum svolítið lang-
dregin, enda sniðin fyrir bókaformið. Leikararnir eru miðlungsleikarar
sem ná ekki að sýna neina snilli. Þrátt fyrir góða sögu fölnar myndin í
samanburði við meistaraverk Kubrick enda eru kvikmyndir og bækur
tveir ólikir miðlar og rithöfundur, sem telur að fylgja eigi söguþræðin-
um nákvæmlega þegar bækur hans eru kvikmyndaðar, er á villigötum.
Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Mick Garris. Aðalhlutverk: Steven
Weber og Rebecca DeMornay. Bandarísk, 1997. Lengd: samtals 266 mín.
Bönnuð innan 16 ára.
Trial and error:
Réttarfarsi ★★
Lögfræðingurinn Charles Tuttle þarf að ferðast til
smábæjar í Nevada til að verja svikahrapp nokkum,
frænda yfirmanns síns. Æskuvinur hans, Richard,
leggur einnig land undir fót og skipuleggur steggja-
partí fyrir Charles kvöldið áður en hann á að mæta
í réttinn. Eftir fyllirí, slagsmál, timburmenn og óhóf-
legt verkjapilluát er Charles engan veginn í standi til
að mæta í réttarsalinn og Richard fer því í staðinn.
Þar með þarf hann að þykjast vera Charles öll rétt-
arhöldin þótt hann hafi ekkert vit á lögfræði.
Charles reynir að leiðbeina honmn eftir bestu getu
þegar hann kemst á lappir en hefur einnig um ann-
að að hugsa því að ung og fögur kona á staðnum er farinn að fylla hann
efasemdum um tilvonandi hjónaband sitt. Myndin býður upp á nokkur
sniðug atriði og ágæta brandara hér og þar en koðnar niður í formúlu-
leiðindi í lokin. Michael Richards og Jeff Daniels ná ágætum samleik í
aðalhlutverkunum en senuþjófurinn er Rip Tom í hlutverki svika-
hrappsins sem virðist lifa í ehihverri annarri veröld en samferðcunenn
hans. Lengst af er myndin þolanleg skemmtun.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Jonathan Lynn. Aðalhlutverk: Michael Ric-
hards og Jeff Daniels. Bandarísk, 1997. Lengd: 100 mtn. Öllum leyfð. -PJ
„ITI: FYRRI ; VIKUR !
) VIKfl ,Á LISTfl
25. nóvember til 1. desember
TITILL ; ÚTGEF. J j j TEG.
Liar Liar ClC-myndbönd Gaman
Fifth Element, The j j ) Skífan J j -- j Spenna
Trial and Error ! Myndform Gaman
Private Parts ) i Sam-myndbönd Gaman
Bulletproof J J J ClC-myndbönd j Spenna
Shadow Conspiracy Myndform 1 1 Spenna
Anaconda J J 1 Skrfan 1 Spenna
Saint, The J ■ ■ J j ClC-myndbönd J j Spenna
Scream Skífan Spenna
Fools Rush In j j Skífan Gaman
People VS. Larry Flynt j Skrfan Gaman
Shining,The J J Sam-myndbönd Spenna
Donnie Brasco J J Sam-myndbönd Spenna
Hostile Waters J J ! Bergvík Spenna
When We were Kings Háskólabíó Heimild
Smilla's Sense of Snow J J J J Sam-myndbönd Spenna
Executive Target Skífan Spenna
BigNight Sam-myndbönd j j Gaman
Vegas Vacation j' i j Warnermyndir j Gaman
Pallbearer, The Skífan Gaman
Þær stoppa stutt viö myndirnar í efsta sæti listans þessa
vikuna. Vísindatryllir Lucs Bessons stoppaði stutt viö og
varö aö gefa eftir efsta sætið til hins oborganlega Jims Car-
reys, sem fer á kostum í Liar Liar. í þriöja sæti er einnig ný
mynd, Trial and Error, sömuleiöis gamanmynd. Tvær aörar
nýjar myndir koma inn á listann. í 12. sæti er ný útgáfa af
The Shining. Stanley Kubrick geröi ógleymanlega mynd eft-
ir þessari frægu sögu Stephens Kings. Einhverra hluta
vegna féll útkoman í grýttan jaröveg hjá King og skrifaöi
hann sjálfur handritið aö þessari nýju mynd, sem er í tveim-
ur hlutum. Flestir sem séö hafa segja aö King heföi betur
heima setiö, hans útgáfa sé langt í frá að vera eitthvaö í lík-
ingu viö mynd Kubricks.
Liar Liar
Jim Carrey og
Jennifer Tilly
Fletcher er
hraðmæltur lögfræð-
ingur og óforbetranleg-
ur lygari. Ungur sonur
hans, Max, sem býr
hjá mömmu sinni, hef-
ur margsinnis þurft að
sitja heima svikinn af
loforöum foður síns.
Þegar Max blæs á kert-
in á fimm ára afmæli
sinu á hann sér aðeins
eina ósk, að pabbi
hans hætti að ljúga þó
ekki væri nema í einn
sólarhring. Og viti
menn. Óskin rætist og
Fletcher kemst að þvi
sér til hrellingar að
skyndilega getur hann
ekki sagt ósatt orö og
það liður ekki á löngu
þar til lögfræöiferill-
inn er í hættu.
The Fifth El-
ement
Bruce Willis,
Milla Jovovich
og Gary Oldham
Eftir 250 ár stafar
jörðinni hætta af illum
öflum sem hyggjast
ráðast á hana. Vöm
jarðarinnar er fimmta
frumefnið en þar sem
ailar þær verur sem
vissu hvar frumefnið
var eru dauðar eru erf-
iðleikar fram undan.
Visindamönnum tekst
að rækta kvenveru úr
vefjum hinna dauðu.
Sú kvenvera verður
mjög hrædd þegar hún
vaknar til lífsins og
tekst að flýja úr búri
sínu og sleppur út í ið-
andi umferðina þar
sem hún endar í aftur-
sæti leikbíls sem
stjómað er af fyrrum
flugforingja, Corben
Dallas.
Trial and
Error
Jeff Daniels og
Michael Richards
Charles er efnilegur
lögfræðingur og er að
fara að giftast hinni
fógm dóttur yfir-
manns sins. Áður
verður hann að taka
að sér að verja frænda
yfirmannsins sem hef-
ur lifað á svikastarf-
semi undanfarin 50 ár.
Charles heldur til
Nevada þar sem réttar-
höldin fara fram og
honum til mikillar
undmnar tekur besti
vinur hans, Richard, á
móti honum með
óvæntu steggjapartíi.
Charley verður svo
drukkinn að daginn
eftir getur hann sig
ekki hreyft og Richard
ákveður þvi að mæta í
hans stað i réttarsal-
inn.
Private Parts
Howard Stern og
Robin Quivers
Við fylgjumst með
Howard Stem, vin-
sælasta útvarpsmanni
Bandaríkjanna, allt frá
því hann var bam og
til dagsins í dag. Stem
deilir í myndinni með
öflum sem vilja sorg-
um sínum og sigrum á
leið sem oft var þym-
um stráð eins og gefur
að skilja. Menn verða
ekki vinsælir án þess
að þurfa einhvem tim-
ann að pissa upp í
vindinn, segir Stem en
sjálfur mátti hann una
við það að vera talinn
vonlaus langt fram eft-
ir ævi.
Bulletproof
Adam Sandler og
Damon Wayans
Archie Moses og
Rock Keats vom mikl-
ir mátar. Nú, þegar
annar þeirra er oröinn
lögga og hinn er smá-
krimmi, telja þeir hvor
annan svikara. Þetta
leiðir til þess að þeir
þola ekki hvor annan
og láta hrakyrðin
dynja á víxl hvenær
sem færi gefst. Það er
samt stutt i vinskap-
inn og þeir eiga einn
sameiginlegan óvin,
eiturlyfjakónginn Col-
ton (James Caan) sem
þeir þurfa að samein-
ast gegn þvi Colton vill
þá báða undir græna
torfú og sendir morð-
ingja út af örkinni til
að koma þeim fyrir
kattamef.