Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1997, Blaðsíða 2
30
MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 1997
íþróttir
Knattspyma:
íslandsmótið
innanhúss
Búið er að draga í riðla á
íslandsmótinu í innanhúss-
knattspyrnu sem fram fer í
janúar. Keppnin í 1. deild verður
i Laugardalshöllinni 10. og 11.
janúar og lítur riðlaskiptingin
svona út:
A-riðill. KA, Fram, Dalvík og
Leiftur.
B-riðill ÍA, ÍBV, Keflavík og
Leiknir.
C-riðilI Þróttur, R, KR,
Stjaman og Þór, Akureyri.
D-riðill Fylkir, FH, Grindavík
og Selfoss.
Þróttur, Reykjavík, á titil að
verja í 1. deild karla.
2. deildin verður spiluð í
Laugardalshöllinni 18. janúar. í
A-riðli leika Höttur, Ægir, HK
og Magni. B-riðill: KS,
Skallagrímur, Völsungur og
Smástund. C-riðill: Valur,
Víkingur, Grótta og Þróttur, N.
D-riðill: Breiöablik, ÍR, Sindri
og Fjölnir.
Keppni í 3. deild fer fram í
Austurbergi 17. janúar. í A-riðli
leika HSÞ-b, Léttir, Kormákur
og GG. B-riðill: Haukar,
Huginn, Afturelding, KSÁÁ. C-
riðill: Bolungarvík, KVA, Hvöt
og ÍH og D-riðill: Einherji,
Njarðvík, Ármann og Víðir.
Keppni í 4. deild fer fram í
Austurbergi 11. janúar. í A-riðli
eru Emir, Bmni, KFR og Neisti
D. B-riðiU: Víkingur Ó,
Eyfellingur, Leiknir F, Neisti H.
C-riðiU: TindastóII, Leiftur,
Eldborg og Nökkvi og D-riðiU:
Reynir, S, Ökklinn, Hamar,
Þróttur, V, og Framherji.
Keppni í 1. deild kvenna fer
fram í Laugardalshöll og í
Austurbergi 10. og 11. janúar.
Riðlamir hjá kvenfólkinu í 1.
deiid era tveir.
A-riðiU: KR, Stjaman, ÍA,
Haukar og Afturelding.
B-riðiU: Breiðablik, Valur,
ÍBV, Reynir, S, ÍBA.'
2. deild kvenna veröur leikin i
Austurbergi 18. janúar. í A-riðU
leika FH, Selfoss, Hvöt og KVA
og I B-riðU Grindavík, Fjölnir,
KS og Einherji.
-GH
Handbolti:
Dregið í
bikarnum
Á laugardaginn var dregið í 8-
liöa úrslitin í bikarkeppni HSÍ í
handknattleik.
í karlaflokki lítur drátturinn
þannig út:
Fylkir-HK
Afturelding-ÍBV
Grótta/KR-V alur
Fram-Haukar
Hjá kvenfólkinu drógust
eftirtalin lið saman:
Haukar-ÍBV
Grótta/KR-Fram
FH-Víkingur
Stjaman-Valur
Leikimir í 8-liða úrslitunum
eiga að fara fram 11. janúar.
„Líst vel á dráttinn"
„Mér líst vel á þennan leik.
Þetta hafa verið jafnir og
spennandi leikir á milli þessara
liða. Viö verðum að vinna
þennan leik til að vera inni í
keppninni. Við höfum aldrei
fengið neitt annað en fyrstu
deiidar lið i keppninni i nokkur
ár. Ég held að heimavöllurinn
komi ekki til með að ráða miklu.
Okkur hefur gengið vel að spila í
Framhúsinu, það er fínt að spiia
þar og vonandi fjölmenna
Haukamenn á leikinn og þá
verður þetta ekkert mál,“ sagði
Aron Kristjánsson, leikmaður
Hauka, eftir bikarútdráttinn við
DV.
-GH/-RS
íslenska sundfólkið við komuna til landsins síðdegis í gær. Þaö var ástæða til að kætast í Leifsstöð enda komu sundmennirnir heim með tólf verölaun í
farteskinu. Þetta var besti árangurinn á Norðurlandamóti unglinga til þessa sem segir okkur aö bjart er fram undan í sundinu. DV-mynd Ægir Már
Norðurlandamót unglinga í Ósló um helgina:
Örn stal senunni
- setti Norðurlandamet og var stigahæsti sundmaður mótsins
íslenskir unglingar stóðu sig með
prýði á Norðurlandamóti unglinga
sem lauk í Osló í gær. Hafnfírðing-
urinn Örn Amarsson stóð þó upp úr
og sýndi frábæra frammistöðu í sín-
um bestu greinum. Öm sigraði í 100
metra baksundi og setti íslandsmet.
Hann synti á 55,71 sekúndu og var
öraggur sigurvegari.
Hann sýndi einnig mikið öryggi í
200 metra baksundi, synti á 1:58,27
minútu sem er íslands- og Norður-
landamet unglinga. í mótslok var
Öm síðan heiðraður fyrir frammi-
stöðuna en hann var stigahæstu
sundmaður mótsins.
Árangur Amars í Ósló undir-
strikar hve hann er orðinn sterkur
sundmaður. Öm er tvímælalaust í
hópi efhilegustu sundmanna sem
komið hafa fram hér á landi og
verður gaman að fylgjast með hon-
um í framtíðinni enda aðeins 16 ára
aða aldri.
Örn hefur í nógu aö snúast
á næstunni
Öm hefur í nógu að snúast á
næstunni en fram undan er þátttaka
í heimsmeistaramótinu sem verður
í Perth í Ástralíu í næsta mánuði.
Skagastúlkan Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir stóð sig einnig mjög vel
lenti í þriðja sæti í 50 metra skriö-
sundi á 24,22 sekúndum.
Piitalið íslands lenti í þriðja sæti
í tveimur boðsundum, í 4x100 metra
fjórsundi og 4x100 metra skriðsundi.
Ails lenti islenska keppnisfólkið tólf
sinnum á verðlaunapalii.
Sviar unnu til 48 verðlauna og
vora langefstir. Danir hlutu 19 verð-
laun og íslendingar komu í þriðja
sætinu með tólf verðlaun. Finnar
vora í fjórða sætinu með níu verð-
laun, Eistar, sem kepptu sem gestir,
vora í fimmta sætinu meö þrenn
verðlaun og Norðmenn vora sjöttu
með aðeins tvenn verðlaun.
„íslenska sundliðið stóð sig frá-
bærlega og þetta er tvímælaiaust
besti árangur sem náðst hefur á
Norðurlandamóti unglinga. Það er
greinileg uppsveifla í sundinu og
margt ungt og upprennandi sund-
fólk að koma fram í sviðsljósið. Öm
Amarsson stal hiklaust senunni á
mótinu með frammistöðu sinni.
Hann er ekki lengur efniiegur held-
ur þrælgóður. Hann hefur alla burði
til að vera framúrskarandi sund-
maður,“ sagði Eyjaskegginn Magn-
ús Tryggvason, annar þjáifara liðs-
ins, í samtali við DV eftir komuna
frá Ósló sídegis í gær.
-JKS
en hún sigraði í 50 metra skriðsundi
á 26,57 sekúndum. í 100 metra skrið-
sundi vann hún til silfurverðlauna
og í þremur greinum vann hún
bomsverðlaun.
Kolbrún synti 100 metra skrið-
sund á 57,54 sekúndum og varð önn-
ur. Hún varð þriðja í 100 metra
baksundi á 1:05,29 mínútum, þriðja í
200 metra baksundi á 2.19,88 mínút-
um og í sama sæti í 200 metra fjór-
sundi á 2:23,27 mínútum.
Anna Lára Ármannsdóttir, ÍA,
lenti í þriðja sæti í 200 metra
flugsundi, synti á 2:28,37 mínútum.
Friðfinnur Kristinsson, Selfossi,
Örn Arnarsson brosir breitt enda í sjöunda himni með uppskeruna frá
Noröurlandamótinu í Ósló.
Ingólfur og Edda
- bikarmeistarar í karate
Ingólfur Snorrason, Selfossi, og
Edda Blöndal, Þórshamri, vora
krýnd bikarmeistarar í karla- og
kvennaflokki í karate en síðasta
mótið fór fram í Hagaskóla á
laugardaginn.
Ingólfur sigraði í +74 kg flokki
á mótinu en Ólafur Nielsen, Þórs-
hamri, varð annar. í -74 kg flokki
sigraði Jón Ingi Þorvaldsson,
Þórshamri, en Bjarki Birgisson,
KFR, varð annar.
í kvennaflokki sigraöi Sólveig
K. Einarsdóttir, Þórshamri, og
Katrín Haraldsdóttir, Þórshamri,
varð önnur. Edda Blöndal hafði
þegar tryggt sér bikarmeistaratit-
ilinn og tók hún þvi ekki þátt í
þessu móti til aö gefa öðrum
stúlkum tækifæri.
Ingólfur Snorrason, Selfossi,
fékk 18 stig úr mótunum fjórum.
Jón Ingi Þorvaldsson, Þórshamri,
varð annar með 15 stig og Ólafúr
Nielsen, Þórshamri, þriðji með 13
stig.
Edda Blöndal fékk 15 stig í
kvennaflokki. Sólveig K. Einars-
dóttir, Þórshamri, varð önnur
með 11 stig og Katrín Haralds-
dóttir, Þórshamri, þriðja meö 3
stig. -GH
Kristján Ara tók fram skóna
DV, Fáskrúðsfirði:
Kristján Arason, einn fremsti handknattleiksmaður þjóðarinnar, tók
fram skóna eftir þriggja ára hlé og lék með FH gegn Haukum í vígsluleik
nýs og glæsilegs íþróttahúss á Fáskrúðsfirði á laugcndaginn.
„Þetta þýöir ekki að ég ætli að spila í vetur heldur var bara um þennan
eina leik að ræða,“ sagði Kristján Arason i samtali við DV.
Leikur Hafnarfjarðarliðanna var hörkuspennandi og fjörugur og endaði
með jafntefli, 28-28, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik, 16-16.
Guðmundur Pedersen jafnaði metin fyrir FH úr vítakasti eftir að
leiktíma lauk en hann skoraði fyrsta mark leiksins og þar með fyrsta
markið í nýja húsinu. -VS
Lið Odense tapaði
íslendingaliðið Odense tapaði fyrir Hörsholm, 103-93 í dönsku
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gær. Valur Ingimundarson skoraði 19 stig
fyrir Odense, Henning Henningsson 18, Kristinn Friðriksson 12 og Pétur V.
Sigurðsson 5. iÆikurinn var grófur og fóra fimm leikmenn Odense út af með
5 villur. -GH