Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Side 2
28 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 313 kvjkmyndir Tomorrow Nover Dies ★★★★ Bond þarf hér aö dlla viö athyglissjúkan fjölmiðlamógúl meö hjálp kinverskrar súper- piu. Brosnan er snillingur I því aö halda hár- fínu jafnvsegi milli sjálfsháðs og alvöru og þaö er að stórum hluta honum að þakka hve Tomorrow gengur vel upp, bæöi sem grín og hágæöa hasar. Myndin er ómissandi skemmtun I skammdeginu og Brosnan hér með yfirlýstur besti Bondinn. -ÚD L.A. Confidental ★★★★ Skuggahllðar Los Angeles sjötta áratug- arins er sögusviðiö I óvenju innihaldsrlkri og spennandi sakamálamynd sem enginn ætti aö missa af. Spilltar löggur, ósvífnir æslfréttamenn, melludólgar og glæsilegar vændiskonur eru á hverju strái. -HK Sling Blade Billy Bob Thornton (leikstjóri, handrit og aöalhlutverk) er hér aö vinna með klassisk temu, svo sem spurninguna um sakleysi, vit og muninn á réttu og röngu. Meö ótrú- lega góörl persónusköpun og vel skrifuöu handriti tekst Thornton aö skapa virkilega áhugaveröa og ánægjulega kvikmynd sem þrátt fyrir hægan gang og þungan undirtón er bæði grípandi og fyndin. -úd Event Horizon Geimskipiö Lewis & Clark leggur upp I leiöangur tii aö bjarga tilraunaskipinu Event Horizon sem hefur veriö týnt I 7 ár. Bresk áhrif leyna sér ekki hér, bæði hvaö varöar gotneska hönnun, góöan ieik og gæöa- hrylling. Með vel heppnaöri hönnun og flottu útliti, magnaöri tónlist og hágæöa iskrandi spennu er varla hægt að ímynda sér að hægt sé aö gera betur I svona geim- horrorhasar. -úd Auðveld bráð Shooting Fish segir frá tveimur munaö- arlausum svindlurum. Dylan er sjarmörinn sem getur talaö sig út úr hvaöa kllpu sem er og Jez er feimna tölvuséníiö sem veit nákvæmlega hvernig brauöristinni þinni leiö áöur en hún bilaöi. Persónusköpunin og handrltiö eru bráöskemmtileg þar sem fjárglæfrabrellur þeirra félaga eru hreint ótrúlega klikkaðar og uppátækin eru óhikað og fimlega yfirkeyrö. -úd Marvin's Room Fjölskyldukvikmynd I orösins bestu merkingu. Persónur eru djúpar, mikiö lagt I þær frá höfundar hendi og þær endurspegla það sem hverri fjölskyldu er verömætast, ræktun hennar inn á viö. Stórteikkonurnar Meryl Streep og Diane Keaton sýna snilldar- leik I hlutverkum systra og spila á allan til- finningaskalann af mikilli list. -HK Perlur og svín J ★★ Fyndin mynd um hjón sem kunna ekki að baka en kaupa bakari og son þeirra sem selur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar Jónasson hefur einstaklega skemmtilegan húmor sem kemst vel til skila og I leiöinni kemur hann viö kaunin á landanum. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Jó- hann Siguröarson eru eftirminníleg I hlut- verkum hjónanna. -HK Með fullri reisn . Eftir aö hafa hneykslast upp I háls (og veröa létt skelkaöir llka) á hinum Iturvöxnu fatafellum The Chippendales uppgötva þeir félagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark Addy) aö þaö aö fækka fötum uppi á sviöi er hlö aröbærasta athæfi. Það er varla hægt aö hugsa sér betri ávísun upp á skemmtun en svona sögu og svo sannar- lega skilaöi myndin því gríni sem hún lof- aöi, meö fullri reisn. -úd Excess Baggage ★★★ Excess Baggage kom mér skemmtilega á óvart. Styrkur myndarinnar felst I stór- skemmtilegu handriti sem þrátt fyrir hefö- bundinn og fremur ófrumlegan söguþráö hefur sig yfir alla meöalmennsku I leiftrandi samtölum og frábærum leik Benicios Del Toros sem túlkar hinn seinþreytta og sein- heppna Roche meö miklum tilþrifum. Þannig skyggir hann aftur og aftur á Sil- verstone. -GE The Peacemaker ★★ii Dæmigerö Hollywood-afþreying þar sem allt sem lagt er af staö meö gengur upp, myndin er hröö, spennandi og vel gerö en eins og með marga „sumarsmell- ina“ sem komiö hafa frá Hollywood I ár er hún innihaldsrýr og skilur ekkert eftir. Spiel- berg og félagar I Draumasmiöjunni hefðu átt að byrja af meiri metnaöi. -HK Demi Moore í strákaleik Ein jólamyndanna í ár er G.I. Jane, sem Laugarásbíó og Stjömu- bió hófu sýningar á í gær. í G.I. Jane leikur Demi Moore liðsforingj- O’Neil þarf að gera allt helmingi betur en félag- ar hennar til aö öölast viöurkenningu þeirra. ann Jordan O’Neil sem setur sér það takmark að verða fyrsta konan til að vera samþykkt sem fullgildur liðsmaður í áhættusveit bandaríska sjóhersins, SEAL. „Handritið kom í mínar hendur á réttum tíma. Ég var að lita í kringum mig eftir hlutverki sem reyndi jafnt á mig líkamlega sem andlega,” segir Demi Moore um hlutverk sitt. „Ég hafði samt ekki ein- göngu áhuga á að fara í spor karlleikara, leika hiutverk sem gæti alveg eins verið ætlað karl- mönnum, heldur hlutverk sem frekar segði til um hvaða kost konur ættu í lífinu og þetta var allt að finna í handritinu að G.I Jane.“ Handritshöfundur að G.I. Jane er skáldsagnahöfundurinn Danielle Al- exandra sem oft hefur verið lýst sem mótvægi kvenþjóðarinnar gegn Tom Clancy í skáldsagnagerð. Þegar það spurðist út að hún væri að skrifa handrit um kvenmann sem gengi til liðs við SEAL, sem er skammstöfun á áhættuherdeild sjóhersins, voru það margir fram- leiðendur sem vildu taka að sér að gera myndina. Alexandra valdi sjálf hinn reynda Roger Birnbaum sem á að baki langan og farsælan feril. Útitökur í G.I. Jane fóru að hluta til fram í Flórída og fékk kvikmyndaliðið af- not af æfmgabúðum hersins. Þegar tO kom var of mikO truflun af her- mönnum sem þarna voru í æfingabúðum þannig að fleir staðir voru valdir, meðal annars strönd- in rétt fyrir utan Jackson- vOle og aOa leið tO Suður- Karólínu þar sem stærstu útiatriðin voru kvikmynduð. Auk Demi More leika stór hlut- verk í G.I. Jane Viggo Mortensen, Anne Bancroft, Jason Beghe og Scott WOson. -HK Demi Moore, krúnurökuö í hlutverki Jordan O’Neil, liös- foringja í sjóher Bandaríkj- anna. Laugarásbíó/Stjörnubíó - G.l. Jane: Herjað á herinn ** Það mætti halda að femínismi væri í tísku. Alla vega virðist svo vera að G.I. Jane ætti einimgis að ganga fyrir þeirri hugmynd að kona geti orðið harð- ur hermaður eins og hinir strákamir. Að öðru leyti virðist myndin nokkuð mikið á reiki, að ég ekki segi týnd. Þingkona nokkur (Anne Bancroft) þykist vera aö berjast fyrir auknum réttindum kvenna og heimt- ar að kona fái að reyna sig við þjálfunarprógram inn í sjóherinn (Navy SEAL). Demi Moore er sú útvalda en er ekki fyrr búin aö sýna sig og sanna en þingkon- an selur hana fyrir þau atkvæði sem hún var allan tímann á höttunum eftir. Demi er hent út, ákærð fyrir lesbisma, en sannfær- ir Bancroft um að koma sér inn aftur rétt í tíma tO þess að taka þátt í óvæntri „alvuru” hemaðaraðgerð, með tilheyrandi Persaflóa-stemningu. Það sem fyrst virtist eiga aö vera konur gegn karlrembu breyttist sumsé í enn eina ameríska hemaðardýrkun (góðir hermenn gegn vondum pólitíkusum) með Demi sem hörkukvendi sem á sér þá ósk heitasta að verða ein af strákunum, nokkuð sem fyrir flestar konur (og femínista) er ekki beint málið. Leikstjóri Ridley Scott minnir hér meira en nokkm sinni á bróður sinn Tony en G.I. Jane virðist oft full af bergmáli úr Crimson Tide með tilheyrandi senu þar sem hlutur svertingja er borinn saman við hlut kvenna. Og þó að handbragð meistarans leyni sér ekki í tökum og myndmáli liggja gaOar G.I. Jane hreinlega í þvi að liún er fremur leiðinleg á köflum og allt of fyrirsjáanleg. Demi Moore sýnir enn og aftur að þrátt fyrir slark- færan skrokk er leikurinn ekki upp á marga fiska og hennar persóna er heldur ekki nógu vel útfærö. Einu gleðigjafamir þama vom hinn frábæri Viggo Morten- sen, sem er kannski ekki snoppufríður en alltaf góð- ur, og Anne Bancroft sem stóð fyrir sínu, mitt í öllu mglinu. Leikstjóri: Ridley Scott. Handrit: Danielle Alexandra og David Twohy. Kvikmyndataka: Hugh Johnson. Tónlist: Hugh Jones. Aðalhlutverk: Demi Moore, Viggo Mortensen, Anne Bancroft. Úlfhildur Dagsdóttir Ridley Scott Ridley Scott er enskur, fæddist í Northcumberland, en ól aldur sinn í London, Wales og Þýskalandi. Scott stundaði nám í listum þar sem hann lagði áherslu á graflk og málun áður en hann innritaðist í RADA (Royal Academy of Art). Þar útskrifaðist hann með hæstu einkunn og not- færði sér styrk sem hann fékk til að vera í Bandaríkjunum í eitt ár. Þar vann hann meðal annars með heim- ildarkvikmyndamönnunum Ric- hard Leacock og D.A. Pennebaker. Þegar hann sneri aftur til Englands réð hann sig sem hönnuð hjá BBC og stuttu síðar var hann orðinn einn af leikstjórum þar á bæ. Eftir þriggja ára dvöl hjá BBC hætti hann og stofnaði eigið fýrirtæki sem síðar varð eitt vinsælasta sjónvarpsaug- lýsingafyrirtæki i Evrópu og enn þann dag í dag er Scott í stjóm þessa fyrirtækis. Ridley Scott leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd, The Duelist, árið 1978 með ekki ómerkari leikurum en Harvey Keitel, Albert Finney, Ed- ward Fox og Keith Carradine. Fékk hann gagnrýnendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir þá mynd. Næsta kvikmynd Scotts, Alien, gerði hann nánast heims- frægan á einni nóttu. Hann fylgdi Alien eftir með Blade Runner. Eftir þessa glæsilegu byrjun hefúr hann verið mistækur en átt góða spretti þar sem mesta afrekið er Thelma and Louise. -HK Jón Páll Bjarnason. Árni Egilsson. Skúli Sverrisson. Þrír meistarar tónlistar í Ameríku Kvikmyndagerð Reykjavíkur hef- ur nú gefið út þáttaröðina Þrir meistarar í Ameríku sem fjaliar um Áma Egilsson bassaleikara, Jón Pál Bjamason gítarleikara og Skúla Sverrisson bassaleikara sem allir em búsettir í Bandaríkjunum og hafa náð undraverðum árangri á hljóðfæri sín. Þessir þrír óliku tónlistarmenn eru snillingar hver á sínu sviði og hafa náð þvílíkri fæmi að það nálg- ast fullkomnun. Persónuleiki þeirra er ekki síður áhugaverður, eins og gjamt er um fólk sem nær langt, og í þáttunum fáum við aö skyggnast inn í líf þeirra og heim. Þættirnir vom á dagskrá Sjónvarpsins í mars á þessu ári. Ámi Egilsson er í hópi bestu kontrabassaleikara heims. Hann vinnur fyrir fremstu kvikmynda- tónskáld Bandaríkjanna og leikur djass og klassíska tónlist jöfnum höndum. Ámi er einnig gífurlega athyglisverður sem tónskáld. Jón Páll Bjamason er heillandi tónlistarmaður og sennilega einn besti gítarleikari þjóðarinnar. Einn virtasti djassgagnrýnandi Banda- ríkjanna, Leonard Feather, er ekki í vafa um að hann sé gítarsnillingur. Þessir tveir listamenn búa báðir í Los Angeles og í þáttunum sjáum við margbrogið mannlíf stórborgar- innar og einnig hina hrikalegu nátt- úrufegurð Kalifomíu. Skúli Sverrisson, sem er yngstur þeirra, býr í New York og lifir og hrærist í djassheimi þessarar ótrú- lega litríku menningarborgar. Hann leiðir okkur um borgina og leikur fyrir okkur ásamt fremstu og efni- legustu tónlistarmönnum New York-borgar. Hann hefur náð þeim árangri að vera talinn í hópi efnileg- ustu tónlistarmanna New York- borgar, aðeins 29 ára að aldri. Þættimir eru eftir Steingrím Dúa Másson og Arnar Þór Þórisson sá um kvikmyndatöku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.