Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 T*>‘\7‘
iwi helgina
---------
Ármann
Helgason
klarínettuleikari
er einn af
meölimum
Camerarctica.
Nú rétt fyrir jólin heldur kammerhópurinn Camerarctica sína árlegu
kertaljósatónleika með tónlist eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Leikið
verður í þremur kirkjum á höfuðborgarsvæðinu: í Kópavogskirkju, Hafn-
atíjarðarkirkju og Dómkirkjunni í Reykjavík. Camerarctica skipa þau
Ármann Helgason klarínettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðlu-
leikari, Guðmundur Kristmundsson víóluleikari og Sigurður Halldórs-
son sellóleikari. Að þessu sinni hefur Camerarctica fengið til sín góða
gesti: ungverska píanóleikarann Miklós Dalmay, óbóleikarann Eydísi
Franzdóttur, Emil Friðfmnsson homleikara, Rúnar Vilbergsson fagottleik-
ara og Helgu Björgu Arnardóttur klarínettuleikara. Verkin sem hópurinn hef-
ur valið eftir Mozart eru Divertimento fyrir tvö klarinett og fagott, Kvartett
fyrir óbó og strengi og Kvintett í Es-dúr fyrir píanó og tréblásara. í lokin
verður að venju fluttur jólasálmurinn „í dag er glatt í döprum hjörtum"
sem einnig er eftir Mozart.
Tónleikamir em um klukkustundarlangir og verða kirkjumar ein-
ungis lýstar með kertaljósum til að skapa fallega og rólega stemningu.
Fyrstu tónleikarnir eru haldnir í Kópavogskirkju siðdegis sunnudag-
inn 21. desemher, kl. 17, en aðrir að kvöldi sama dags í Hafnarfjarð-
arkirkju. Þriðju tónleikamir verða svo í Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 22. desember, kl. 21.
Úrval verka listamannsins Gunnlaugs Schevings eru til sýnis í Listasafni íslands.
Úr smiðju listamannsins
tilheyrir þeirri kynslóð sem fram kom í lok fjórða ára-
tugarins þegar efnahagskreppa og þjóðfélagsátök beindu
mönnum til að mála manninn við vinnu sína í
stað hins hefðbundna landslagsmálverks. í
málverkum Gunnlaugs er maðurinn
alltaf i öndvegi bæði í sjávar- og sveit-
arlífsmyndum hans.
Sjónvarpsmynd um Gunnlaug frá
1992 er sýnd daglega í fyrirlestrasal
safnsins kl. 12.00 og 15.00. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl.
11-17 en verður lokað írá 22. des-
ember til laugardagsins 17. janúar
1998.
Bryndís Halla Gylfadóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir.
Nú em síðustu forvöð að sjá sýningu á einstæðum
verkum Gunnlaugs Schevings í Listasafhi íslands -
Úr smiðju listamannsins, sem er í öllum sölum
safnsins. Síðasti sýningardagur er sunnudag-
urinn 21. desember. Sýningin er úrval úr
dánargjöf Gunnlaugs en þegar hann
lést árið 1972 arfleiddi hann lista-
safnið að öllum verkum sinum,
alls um 1800 myndum.
Á sýningunni er úrval olíu-
málverka, skissur og undir-
búningsmyndir sem tengjast
þeim. Þetta er því einstakt
tækifæri að fylgjast með ferli
myndanna allt frá framdrátt-
um þeirra og síðan stig af stigi
er myndhugsunin tekur marg-
víslegum umbreytingum. Má þá
oft rekja sig frá fyrstu drögum,
sem sum eru á stærð við frímerki,
í gegnum ólíkar útfærslur þar sem
mismunandi sjónarhorn eru reynd,
að gríðarstórum flekum en stærstu
myndimar eru rúmir 4 metrar að lengd.
Gunnlaugur er einn af fremstu og ris-
mestu listamönnum íslendinga. Hann fædd-
ist í Reykjavík en fluttist snemma til Seyöis
fiarðar. Hann lagði stund á myndlist við Kon
unglegu akademiuna í Kaupmannahöfn en
flutti til íslands að námi loknu. Gunnlaugur
Ljóð án orða
Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari og Steinunn Bima Ragnars-
dóttir píanóleikari munu kynna ný-
útkomna geislaplötu sína á kaffi-
húsinu Súfistanum
við Laugaveg í
kvöld kl. 20.
Geislaplat-
an ber heit-
ið Ljóð án
orða. Þar
er m.a. að
finna tutt-
ugu róman-
tísk verk frá
Frakklandi og
Spáni. Þau
era
eft-
ir Schubert, Brahms, Chopin, Ravel
og Granados.
Bryndís Halla og Steinunn Birna
hafa áður gefið út geislaplötu með
verkum eftir Beethoven, Schumann,
Fauré og Shostakovich. Sú plata
kom út árið 1994 og hlaut góðar við-
tökur.
Mozart
við