Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Síða 11
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 tónlist Prope heads ller- í Tunglinu í kvöld Þeir Alex Gifford og Will White, sem mynda hljóm- sveitina Propellerheads, eru staddir hér á landi og munu þeyta skífur í Tunglinu í kvöld. Uppgangur Propellerheads hefur verið mikill upp á síðkastið og sitja þeir nú ofarlega á íslenska listanum með gamla James Bond- slagarann On Her Majesties Secret Service. Þeir fengu gömlu sönggyðjuna Shirley Bassey til liðs við sig í nýjasta laginu sínu sem ber heitið Hi- story Repeating. Það lag er nú í 19. sæti breska listans og er spáð toppsætinu þar í landi fyrir jólin. Propeller- heads eru þekktir fyrir það að vera miklir stuðboltar þegar þeir koma fram og má til gamans geta að síðast þegar þeir komu hingað var stemningin á tónleikum þeirra svo mikil að svitanum rigndi úr loftinu í Ingólfs- kaffi. Tónleikar Oasis enda með ósköpum Hljómsveitin Oasis gekk af sviði á tónleikum sínum í Glasgow eftir að gestur á tónleikunum henti flösku í bassaleikara hljómsveitarinnar. At- vikið átti sér stað í tónleikahöllinni SE&CC fyrir nokkrum dögum og þegar hljómsveitin gekk af sviðinu hafði hún einungis flutt nokkur lög af prógramminu. Liam Gallagher, söngvari Oasis, hætti að syngja Wonderwall þegar flaskan flaug upp á svið og tilkynnti í hljóðnemann að tónleikunum væri lokið. Að svo búnu stormaði hljómsveitin af sviði og sást ekki meir. Mikill fjöldi áhorfenda hópaðist í kringum sviðið og neitaði að yfir- gefa hljómleikahöllina. Slagsmál brutust út og voru sæti rifin upp og eyðilögð. Á endanum varð að kalla tU lögreglu til að fjarlægja fólk úr húsinu. Ellefu manns voru hand- teknir fyrir slagsmál og skemmdir á eignum. Tónleikahaldarar neituðu fólki auk þess um endurgreiðslu þar sem þeir töldu hljómsveitina hafa leikið megnið af prógramminu svo ekki væri við hana að sakast. Tals- maður Oasis sagði að hljómsveit- inni þætti þetta afar leiðinlegt en þeir voru ekki tilbúnir til að halda áfram að spila eftir að flöskunni var kastað þar sem þeim fannst þeir vera í hættu. „Flaskan hæfði bassa- leikara hljómsveitarinnar í annan fótinn og það hefði geta farið verr ef hún hefði brotnað," sagði talsmað- urinn. Endalok þessara tónleika voru ekki til að bæta um betur fyr- ir Oasis þar sem tónleikahald þeirra hefur gengið hálfbrösuglega upp á síðkastið. Á tónleikum í Dublin fyrr í mánuðinum neyddist Noel Gallag- her til að syngja aðalrödd í stað bróður síns þar sem hann var radd- laus. Níu þúsund manns sem keyptu sig inn á tónleikana var gef- ið færi á að fá endurgreiðslu en ein- ungis 30 manns tóku þann kostinn. Pramkvæmdast jóri Martha Troup, framkvæmdastjóri INXS, hefur nú loks tjáð sig um dauða Michaels Hutchence sem hengdi sig á hótelherbergi í Sydney í Ástralíu á dögunum. Hún sagöi veftímaritinu Addicted to Noise að Mich- ael hefði lagt tvenn skilaboð inn á símsvarann hennar stuttu áður en hann fannst látinn á hótelherbergi sínu á Ritz Carlton. Hún sagði einnig að sjálfsmorö söngvarans væri stundarbrjálæði að kenna. „Hann missti hreinlega vitið. Hann var undir miklu álagi og því fór sem fór.“ Martha talaði síðast við Michael nóttina áðui' en hann fannst á hótel- herbergi sínu. „Hann var í góðu skapi þegar við ræddum sarnan," sagði Martha. „Hann var að hugsa um að hefja feril í kvikmyndum og var aö öllu leyti hinn hressasti í símanum. Ég held að öll vandræðin og fjöl- tniðlaumfjöllunin í kringum samband hans við Paulu Yates og Bob Geldof hafi orðið honum aö bana. Bob Geldof kom afar illa fram við Paulu og það hafði mikil áhrif á Michael. Martha neitaöi þeim getgátum að söngv- arinn hefði látið lífið í kynlífsleik þar sem belti er sett um háls annars þátttakandans og hert að. „Það er alls ekki það sem gerðist," segir Martha. „Ég hef eytt miklum tíma með lögreglunni við rannsókn þessa máls og það er ekkert sem bendir til þess að dauða Michaels hafi borið að með þeim hætti. Það kemur allt í ljós þegar lögreglan sendir frá sér opinbera skýrslu um þetta mál. „Ungur maður í Bretlandi hefúr nú svipt sig lífi á svipaðan hátt og Michael Hutchence, söngvari INXS. Þessi ungi maður var mikill aðdáandi hljómsveitariimar og varð gjörsamlega eyöi- lagður þegar honum bárust fréttir af sjálfsmorði Michaels. Hann hafði ný- lega slitið sambandi við ófríska unnustu sína og segja nágrannar hans að daginn sem hann framdi sjálfsmorð hafi hann leikið hljómplötur INXS allan daginn á miklum styrk. Hutchence 1 1 1 Lv: g ■ LS P’ Kaffi Amster- dam Hinir landsfrægu og mar- grómuðu Papar leika á Kaffi Amsterdam í kvöld og annað kvöld. Skítamórall á Akranesi Hljómsveitin Skítamórall hyggst gleðja og kæta Ak- umesinga um helgina. Sveitin leikur á Langa- sandi á Akranesi bæði í kvöld og annað kvöld. Skýjum ofar Hljómsveitin Skýjum ofar skemmtir Hornfirð- ingum yfir jól og áramót. Sveitin leikur í Víkinni á Höfn í Homafirði á ann- an í jólum og laugardags- kvöldið 27. desember frá kl. 23 til 3. Meðlimir Skýjum ofar leika einnig á gamlárs- kvöld í Víkinni frá mið- nætti. Jóladansleikur á Hótel íslandi Háskólanemar halda einn af sínum árlegu jóla- dansleikjum á Hótel ís- landi annað kvöld. Þar mun Sálin hans Jóns míns halda uppi stans- lausi fjöri frá kl. 23 til 3. Renaissance á íslandi Annað kvöld heldur breski súperklúbburinn Renaissance innreiðsína í Reykjavík. Klúbburinn stendur fyrir rena- issance-kvöldi á veitinga- húsinu Ingólfscafé í kvöld. Einnig koma fram plötu- snúðar Party Zone og hljómsveitin Housebuild- ers.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.