Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 15 Þar sem enginn þekkir mann Ég hef verið að strit- ast við að vera kurteis frá því að ég man eftir mér sem er þónokkuð lengi þótt núna muni ég ekkert lengur en í fimm mínútur frekar en vin- ur minn, Þorbjörn Gíslason. Þetta stafar af því að virknin í heilan- um á mér er eins og í nefinu á Guðmundi Jónssyni sem snýtir sér eingöngu í þeim til- gangi að rýma fyrir nýj- um tóbaksbirgðum. Ég er sem sagt ekki fyrr búinn að anda að mér einhverri bölvaðri vit- leysu en ég þarf að fá rúm fyrir aðra. Kjallarinn Benedikt Axelsson hástökkvari „Mér hefur skilist að á hverju þingi séu sett um það bil tvö hundruð lög. Sum eru alveg Ijóm- andi góð, eins ogþau sem kveða á um upphæð vörugjalds af sykruðum ávöxtum. Önnur eru lakari. Þótt alþingismenn fylgist vel með og taki mið af nútím- anum í gerð laga setja þeir samt vonandi ekki lög um það að héð- an í frá skuli allir bölva þingmann- inum sínum tvisvar á dag, að við- lagðri refsingu.” Ég er samt ekki eins illa hald- inn og málarar, sem ég kannast við, sem halda því fram að þeir séu svo illa farnir af vondum efn- um að heilinn í þeim sé orðinn slíkur hrærigraut- ur og þeir séu vart hæfir til annars en að sitja á þingi. Sagt er að kurt- eisi kosti ekki pen- inga en það er ekki þar með sagt að ókurteisi kosti neitt heldur. Um daginn var maður sýknaður af ákæru um ókurteisi vegna þess að sá sem varð fyrir skömmunum var stjómmálamað- ur en samkvæmt íslenskum lögum virðist mega segja nánast hvað sem er um pólitíkusa. Meira að segja sannleikann. Erfitt fyrir suma Eins og allir vita er uppeldi fólks mismunandi. Sumir eiga ör- ugglega mjög auðvelt með að fara eftir lögun- um sem gera ráð fyrir því að illa sé talað um póli- tíkusa en aðrir lenda í klemmu. Þegar ég ætlaði að fara að nota þessi réttindi min og tala illa um alla núlifandi stjórnmálamenn í fyrstu atrennu (svo ætlaði ég að snúa mér að öllum hinum) komst ég að raun um að vegna galla í uppeldinu yrði ég að fá einhvem til að gera þetta fyrir mig. Ég gat Frá Alþingi. Greinarhöfundur segist eiga t erfiöleikum meö aö tala illa um stjórnmálamenn. til dæmis ekki sagt neitt ljótt um Davíð Oddsson en ég ætlaði að sjáifsögðu að byrja á toppnum í rógsherferðinni og færa mig svo niður á við og enda á manninum sem er alltaf að ganga í Alþýðu- flokkinn. En það er hins vegar alveg klárt mál að þetta vefst ekki fyrir öðr- um. Ég hef til að mynda heyrt fólk tala svo ifla um suma stjómmála- menn að það ætti skilið að komast á spjöld sögunnar ekki síður en þeir sem bundnir era þagnareiði og hugsanlega orðnir elliærir en buna samt út úr sér starfsglöpum sínum eins og þeim sé borgað fyr- ir það. Þessir menn væru ábyggilega betur komnir með minnið okkar Þorbjöms. Ekki almennilegt Mér hefur skilist að á hverju þingi séu sett um það bil tvö hund- ruð lög. Sum eru alveg ljómandi góð, eins og þau sem kveða á um upphæð vörugjalds af sykruðum ávöxtum. Önnur eru lakari. Þótt al- þingismenn fylgist vel með og taki mið af nútímanum í gerð laga setja þeir samt vonandi ekki lög um það að héðan í frá skuli allir bölva þingmanninum sínum tvisvar á dag, að viðlagðri refsingu. Þett yrði nefnilega svo erfitt fyr- ir marga. Ég gæti þetta ekki, eins og að framan greinir, af uppeldisá- stæðum og ég er hræddur um að þetta myndi vefjast fyrir ágætum frænda mínum sem getur ekki sagt neitt ljótara en - þetta er nú ekki almennilegt ef honum mislík- ar eitthvað. Við yrðum alveg voðalegir lög- brjótar á örfáum dögum og færum i tukthús fyrir páska. Benedikt Axelsson Sóknarstýringin Hinn tryllti dans um gullkáifa kvótakerfisins, sem eykst með hverjum degi, hefir loksins skilað þeim árangri að hafið er virkt and- óf gegn þessari sérhagsmuna- stefnu hinna fáu útvöldu. Kvóta- kerfið var stofnað af Framsókn en sá flokkur hefir frá upphafi fylgt þeirri stefnu að beita ríkisvaldinu í þágu sinna samtaka og samherja. Þeir hafa fundið sér góðan sam- herja í núverandi sjávarútvegsráð- herra sem enn heldur að hann sé framkvæmdastjóri VSÍ en viil ekki taka að sér ráðherrahlutverkið að gæta hagsmuna almennings í landinu. Framsókn hefir á kvóta- tímabilinu frá 1984 hækkað hlut- deild sína úr um 30% í næstum helming í þorskveiðunum en þetta endurspeglaðist í sölumálunum þegar ÍS stakk SH af með upp- kaupin á Gelmer í Frakklandi. Það fer lítið fyrir árvekninni í Sjálf- stæðisflokknum þessa dagana. Hann er greinilega ekki flokkur allra landsmanna lengur og bíður ákvörðunarlaus og vanbúinn næstu kosninga. Skellurinn getur orðið stór. Umræðan um kvótakerfið hefir verið furðuleg. Hannes Hólm- steinn hefir stýrt henni með um- fjöllun um ails óskylda hluti. Þetta hefir reynzt kvótaeigendum vel því að sundrung andstæðinganna er bezta vopn þeirra. Markús Möll- er hefir styrkt hann með einskis- verðum greinum. Ég viðurkenni fúslega að eg skil hann ekki. Sama gildir um Jón í Járnblendinu en eg marglas grein hans í Mbl. Menn verða að koma sér saman um kjama málsins. Umræðan á Alþingi og af- nám kvótanna Alþingi setti kvótakerfið á og það þarf aðeins einfalt samþykki Alþingis til að fella það niður. Það er mikil and- staða við kvóta- kerfið í næstum öllum flokkum á Alþingi en því miður binda flokks- böndin eins og venjulega. Sundr- ungin dugar einnig kvótamönnum vel þar. Alþýðubandalagið viil af- nema kvótakerfið á 5 áram og greiða veiðigjald í sjóð. Alþýðu- flokkurinn vill veiðileyfagjald í ríkissjóð strax, 2000 milljónir á Umræðan um kvótakerfið hefir verið furðuleg. Hannes Hólm- steinn hefír stýrt henni með um- fjöllun um alls óskylda hluti. Þetta hefír reynzt kvótaeigendum vel því að sundrung andstæðing- anna er bezta vopn þeirra. Markús Möller hefír styrkt hann með einskisverðum greinum. í botnfiskveiðum ári, þar af 40 milljónir frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Allt er þetta óskilgreint klúður sem þjónar þeim tilgangi einum að sundra andstöð- unni og viðhalda kvótakerfinu. Sam- þykkt á veiðigjaldi er öraggasta leiðin til að viðhalda kvótakerfinu og eyða fiskibyggðum landsins. Afnám kvótakerf- isins Vöxturinn í sjávar- útvegi er mest að þakka stórauknum veiðum á uppsjávar- fiski, þ.e. loðnu og síld. Þessar veiðar verða aðeins stundaðar með stórvirkum og dýr- um skipum og eðlilegast að þeim verði stjómað af LÍÚ. Þeir geta sett sína skipakvóta á þessar veið- ar að vild. Annar vaxtarbroddur er landvinnslan sem hefir stórauk- ið verðmæti landaðs afla af hvers konar botnfiski með pökkun í neytendapakkningar. Stærsta vandamál hennar er ónógur land- aður afli. Við þvi verður að bregð- ast strax með afnámi kvótanna á botnfiski og kröfu um að öllum afla af grunnmiðum sé skilað á land til vinnslu. Veiðum á grunn- miðum verður að stjórna með um- hverfisvænum veiðarfæram, þ.e. krókaveiðum og netaveiðum (með ákveðnum þröngum skilyrðum). Þar kemur fyrst og fremst til athugunar að ákveða mörk fyr- ir grunnmiðin, og væri þá eflaust fyrst til athugunar að banna alla togveiði innan við 50 mílna mörkin hans Lúð- víks, en þau vora í raun sniðin við grunnmiðin á þeim tíma. Þetta er hægt að gera strax með einföldu samþykki alþingismanna. Þorskstofninum var bjargað með banni við togveiðum á upp- eldisstöðvunum fyr- ir norðan og austan land. Samtímis hafa togveiðarnar eytt grálúðustofnin- um að mestu og karfastofninum, enda unnt að drepa allan fisk með núverandi tækni í togveiðum. Við verðum að sjá um að stofhunum verði ekki eytt með algjöra fyrir- hyggjuleysi og smáfiskadrápi, ann- ars verður þetta land ekki byggi- legt til frambúðar. Það þarf enga kvóta á landróðrarbáta. Umsjón með þeim veiðum ætti að vera í höndum sveitarstjóma á hveijum stað. Dæmi um þetta eru nú þegar við Vestmannaeyjar og á Breiða- firði og hafa reynzt vel. Við verð- um að leysa okkur undan þeim illu örlögum sem sjávarútvegs- ráðuneytið hefir búið íslendingum að undanfómu með kvótakerfinu. Önundur Ásgeirsson Kjallarinn Önundur Asgeirsson fyrrverandi forstjóri Olís Meö og á móti Dómgæslan í körfuboltanum í vetur Guöjón Þorsteinsson, liðsstjóri KFÍ og faöir körfuboltans á ísafiröi. Samkvæmir sjálfum sér „Ég er mjög ánægður með dómgæsluna í vetur að því leyt- inu til að dómararnir eru miklu samkvæmari sjálfum sér nú en í fyrra. Þeir dómarar sem sístir voru í fyrra hafa tek- ið stórstígum framförum. Það vantar hins vegar meiri samræm- ingu hjá þess- um 12 dómur- um sem dæma í úrvalsdeild- inni. Til dæmis er fyrirsjáanlegt að einn dómari í deildinni dæmir alltaf tækniviti þegar maður mótmælir dómi en annar gefur tækifæri áður en hann dæmir. Mér fjnnst dómar- amir hafa leyft leiknum að njóta sín meira fyrir augað og menn fengið að takast meira á undir körfunni heldur en í fyrra. Það gerir leikinn miklu skemmtilegri. Við ísfirðingar höfúm lent illa í því eins og öll önnur lið þegar dómararnir gera mistök en ég er sannfærður um að mistökunum hefur snarfækk- að. Að endingu vil ég nefna að það era 2-3 'dómarar sem eiga fyrir löngu að vera komnir í hóp þeirra bestu. Ég er ekki að fela það að einn þeirra er Guðmund- ur Stefán Maríasson. Mér þykir það með ólíkindum að hann skuli ekki dæma í úrvalsdeild- inni.“ Afturför „Mér finnst hafa verið aft- urför í dóm- gæslunni. Það eru fimm góðir dómarar en hitt eru allt meðalmenn sem hafa ekki sýnt framfarir í mörg ár. Sumir þessara meðalmanna eru búnir að dæma i allt að 10 ár en ég merki ekki neinar framfarir hjá þeim. Við eigum mjög góða dómara sem era alveg örugglega fram- bærilegir á Evrópumælikvarða en bilið milli þeirra og annarra er oröið mjög breitt. í ár er miklu meira um erfiöa leiki held- ur en í fyrra og þegar liðin í 3.-8. sæti deÚdarinnar eigast við er nær undantekningarlaust um að ræða hörkuleiki. Þvi er mjög mikilvægt að dómararnir séu vel með á nótunum. Það hefur reynt mikið á þá í mörgum þessara leikja og í allt of mörgum tilfell- um hafa dómararnir klikkað. Þeir era alveg örugglega á kafi í reglunum, hafa verið duglegir að halda námskeið og dómara- nefndin á allt mjög gott skilið. Þetta hefur hins vegar ekki skil- að sér alla leið. Nærtækt dæmi um slaka dómgæslu var viður- eign okkar Keflvíkinga við Skagamenn í síðustu viku. Þar fóra dómararnir algjörlega á taugum og gerðu sig seka um mörg slæm mistök á örlagarik- um augnablikum og ekkert sam- ræmi var í dómum þeirra." -GH Siguróur Valgeirsson, liösstjóri íslands- og bikarmeistara Keflvíkinga. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.