Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Qupperneq 29
28
+
íþróttir
Bland í poka
Heimsbikarmóti í svigi, sem fram
átti að fara í Madonna Di Campiglio
á Ítalíu í gær, varð að aflýsa en Krist-
inn Bjömsson hugðist taka þátt í
mðtinu. Hlýindi voru á keppnisstaðn-
um í gær og mikil þoka lagðist yfír
flallið svo ekki reyndist unnt að keppa
Patrick Ewitig, mið-
herjinn snjalli hjá
New York Knicks,
leikur ekki meira
með á þessu timabili.
Eins og kom fram i
DV í gær meiddist
hann á fæti i leik
gegn Milwaukee um helgina og nú er
ljóst að hann þarf að gangast undir
aðgerö á hægri rist.
Greg Norman frá Ástralíu er efstur á
síðasta styrkleikalista alþjóða golf-
sambandsins sem gefinn var út í gær.
Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods er
I öðru sæti og Nick Price frá
Zimbabwe er í þriðja sætinu.
íþróttafréttamenn á Spáni völdu í
gær Raul Gonzalez, leikmann
spænska landsliðsins og Real Madrid,
leikmann ársins á Spáni. Jafnir í 2.-3.
sæti urðu Femardo Hierro, Real Ma-
drid, og Luis Enrique, Barcelona.
tgsp----sa Brasilíski landsliðs-
maðurinn Ronaldo,
W £ fe ^ Inter Milan, var í gær
9 útnefndur knatt-
f spyrnumaður ársins í
fluj Evrópu en franska
Football stóð að kjör-
inu. Júgóslavneski landsliðsmaður-
inn Predrag Mijatovic, Real Madrid,
varð annar og franski landsliösmað-
urinn Zinedine Zidane, Juventus, þriðji.
Ronaldo, sem kjörinn var besti
knattspyrnumaður heims 1996, leik-
maður ársins 1996 og 1997 af World
Soccer tímaritinu og handhafi
gullknattarins fyrir að vera marka-
hæsti leikmaðurinn í Evrópu á síð-
asta ári, er fyrsti S-Amerikumaður-
inn sem hlýtur titilinn Knattspymu-
maður ársins í Evrópu.
Dennis Bergkamp, leikmaöur
Arsenal og hollenska landsliðsins,
varð Qórði i kjörinu, Brasilíumaður-
inn Roberto Carlos hjá Real Madrid
fimmti, Andreas MöUer, Dortmund,
sjötti, Raul, Real Madrid, sjöundi,
Peter Schmeichel, Man. Utd, áttundi,
Jtirgen Kohler, Dortmund, níundi og
Matthias Sammer, Dortmund, tíundi.
-GH
Klinsmann til Spurs
Jiirgen Klinsmann gekk í gær í
raðir Tottenham Hotspur og mun
leika með liðinu út þessa leiktíð.
Klinsmann hefur í vetur leikið með
Sampdoria á Italíu. Þar hefur hann
ekki náð sér á strik og Tottenham
og Sampdoria komust að samkomu-
lagi um helgina um leigusamning
sem gildir fram til júní á næsta ári.
Klinsmann er ekki ókunnugur
herbúðum Tottenham en hann lék
með liðinu keppnistímabilið
1994-95. Klinsmann fann sig ein-
staklega vel í búningi Tottenham,
skoraði 29 mörk fyrir félagið og var
útnefndur knattspymumaður árs-
ins.
Frá Tottenham fór hann til síns
gamla félags í Þýskalandi, Bayem
Múnchen, og síðastliöiö sumar
gerði hann samning við Sampdoria
en mörg félög vom þá á höttunum
eftir honum, meðal annars Tottenham.
Forráðamenn Tottenham vona
að með tilkomu Klinsmanns liggi
leið liðsins upp á við en það er í
botnbaráttu úrvalsdeildarinnar.-GH
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997
Þorvaldur til Oster?
- sænska liðið hefur boðið honum 3ja ára samning
Líklegt er að Þorvaldur Makan
Sigbjömsson, framherji Leift-
ursliðsins í knattspymu, gangi í
raðir sænska úrvalsdeildarliðsins
Öster. Þorvaldur æíði með liðinu á
dögunum og í kjölfarið vildu for-
ráðamenn liðsins gera við hann
samning
„Þeir buðu mér þriggja ára
samning en ég var ekki sáttur við
lengd hans. Ég vil ekki binda mig
lengur en í tvö ár. Ég sendi nú í
morgun (í gær) tillögu frá mér
sem þeir koma til með að skoða
næstu dagana. Ég á svona frekar
von á að þetta gangi saman hjá
okkur enda vill þjálfarinn fá mig
til liðsins. Mér leist mjög vel á lið-
ið og allar aðstæður em hinar
bestu,“ sagði Þorvaldur í samtali
við DV í gærkvöldi.
Fari svo að hann semji við öst-
er verða tveir íslendingar í her-
búðum félagsins á næsta tímabili
en fyrir er Skagamaðurinn Stefán
Þórðarson sem á eitt ár eftir af
tveggja ára samningi sínum við fé-
lagið.
Nokkur félög hér heima hafa
sett sig í samband við Þorvald
með það í huga að fá hann í sínar
raðir. Eyjamenn eru þar á meðal
og nái hann ekki samningi við
Öster er ekki ósennilegt að hann
gangi í raðir íslandsmeistaranna.
-GH
Þorvaldur M. Sigbjörnsson.
NBA körfuboltinn í nótt og fyrrinótt:
Malone magnaður
- tryggði Utah góðan útisigur á Atlanta
Karl Malone var Utah
mikilvægur rétt eina
feröina í nótt þegar lið
hans vann góðan útisig-
ur í Atlanta, 99-101.
Malone skoraði 11 stig
í síðasta leikhluta, þar á
meðal körfúna sem kom
Utah 5 stigum yflr hálfri
mínútu fyrir leikslok.
Þetta var þriðji sigur
Utah í flmm leikja
keppnisferð. „Það er ekki
hægt að kvarta yfir þess-
ari útkomu og tapleikina
tvo hefðum við getað
unnið,“ sagði John
Stockton, hinn snjalli
leikmaður Utah.
Lakers gerði þó enn
betur og vann fjórða leik-
inn af flmm á sínu ferða-
lagi, 83-94 í Houston.
Táningurinn Kobe Bry-
ant lék mjög vel með
Lakers, hóf leikinn á
bekknum en varð samt
stigahæstur.
„Þetta er i fyrsta skipti
sem þeir vinna okkur á
sannfærandi hátt. Þeir
spiluðu mjög vel allan
leikinn og það sem gerði
útslagið var að þeir hittu
vel en við ekki,“ sagði
Clyde Drexler, sem skor-
aði mest fyrir Houston.
Cassell frábær
Sam Cassell átti frá-
bæran leik með New
Jersey sem sótti góðan
sigur til Orlando. Leikur-
inn var hnífjafn þar til
Cassell tók til sinna ráða
á lokasprettinum. Þetta
var fjórða tap Orlando í
röð eftir gott gengi lengst
af í vetur.
Úrslit leikja í nótt:
Atlanta-Utah .... 99-101
Laettner 20, Smith 18, Re-
casner 16 - Malone 27,
Homacek 15, Stockton 13.
Charlotte-Toronto . 81-79
Mason 17, Rice 16, Wesley
11, Geiger 11 - Stoudamire
21, Camby 13, Wallace 13.
New York-Dallas . . 79-67
Houston 19, Johnson 18,
Starks 13 - Scott 18, Finley
13, Pack 11.
Orlando-N. Jersey . 88-99
Price 23, Grant 18, Seikaly 16
- Cassell 28, Gill 18, Douglas
16, Van Hom 16.
Philadel.-Detroit . . 92-96
Coleman 23, Jackson 20,
Thomas 18 - Hill 22, Hunter
17, Stackhouse 17, B. Wiil-
iams 17.
Houston-LA Lakers 83-94
Drexler 17, Barkley 14, Bull-
ard 13 - Bryant 19, Campbell
18, Jones 17.
Milwaukee-Wash. 79-110
Robinson 22, Hill 11, John-
son 10 - Howard 25, Webber
23, Strickland 19.
Phoenix-G. State . . 91-76
McDyess 17, Ceballos 17,
Chapman 14 - Delk 15, Smith
13, Coles 12.
Sacram.-Minnesota 89-79
Richmond 27, Williamson 13,
Stewart 13 - Gugliotta 19,
Marbury 15, Gamett 11.
Úrslitin í fyrrinótt:
Cleveland-Utah . 106-101
Kemp 24, Anderson 23, Ilg-
auskas 16 - Malone 24, Keefe
16, Russell 13.
Boston-LA Clippers 99-77
Walker 23, Barros 17, Mercer
14 - Rogers 20, Wright 14,
Barry 10.
Vancouver-Portland 88-86
Rahim 28, B.Edwards 15,
Chilcutt 14 - Rider 19, Sab-
onis 18, Wallace 14.
-VS/GH
John Stockton kemur sér þægilega fyrir á bakinu á Wes-
ley Person hjá Cleveland og skorar fyrir Utah í leik liðanna
í fyrrinótt. Reuter
Sendid tð:
íþróttamaöur ðrsins
ÐV - Þverholti 11
105 Reykjavík
Nafn íþróttamanns
1____________________
ENGLAND
Leik Wimbledon og Arsenal í úrvalsdeildinni í
gær var hætt á fyrstu mínútu síðari hálfleiks þeg-
ar slökknaði á flóðljósunum á Selhurst Park,
heimavelli Wimbledon. Staðan var þá markalaus í
frekar tilþrifalitlum leik. Eftir 20 mínútna hlé
kviknaði á ljósunum aftur en þau dðu út i þann
mund sem liðin vom að gera sig klár.
Þetta er í annaó sinn á skömmum tíma sem bil-
uð flóðljós koma i veg fyrir aö hægt sé að ljúka
leik í úrvalsdeildinni en fyrir nokkrum vikum
slokknaði á ljósunum þegar West Ham og Crystal
Palace áttust við á Upton Park, heimavelli Palace.
Þetta er hins vegar í annað sinn sem leikmenn
Wimbledon lenda í slíku en fljóðljósin biluðu þeg-
ar Derby tók á móti Wimbledon í fyrsta heimaleik
félagins á Pride Park.
Crystal Palace leikur án ítalanna Attilio
Lombardo og Michele Padovano í leikjunum gegn
Southampton og Blackburn um jólahátíöarnar.
Þeir eiga báðir við meiðsli að stríða og ætla að
fara í meðferð til lækna i Torínó.
Brian Laudrup, Daninn snjalli hjá Glasgow
Rangers, er mjög eftirsóttur en samningur hans
við Rangers rennur út í vor. Manchester United er
eitt þeirra liða sem hafa sýnt Dananum mikinn
áhuga en forráðamenn Ajax i Hollandi telja sig
nokkuð visa með að klófesta Laudrup. Eldri bróð-
ur Brians, Michael Laudrup, leikur með Ajax.
Jiirgen Klinsmann fékk hlýjar móttökur hjá
stuðningsmönnum Tottenham í gær. Fjölmargir
stuðningsmenn mættu á White Hart Lane, heima-
völl Tottenham, og fögnuðu Klinsmann enda var
hann dáður og elskaður af stuðningsmönnunum
þegar hann lék með liðinu fyrir tveimur árum.
Sviinn Martin Dahlin hjá Blackburn er loks bú-
inn að ná sér af meiðslum sem hafa hijáð hann
síðustu þrjá mánuðina og er klár í slaginn fyrir
jólatömina. Dahlin verður þó sennilega að sætta
sig við að vera utan við liðið eitthvað lengur því
Blackbum-liðinu hefur gengið allt í haginn að
undanfomu.
Dean Jones, leikmaöur Bamsley, var í gær
dæmdur í þriggja mánaða keppnisbann af aga-
nefnd enska knattspymusambandsins. Jones féll á
lyfjaprófi sem hann fór í i lok október og við rétt-
arhald viðurkenndi hann að hafa neitt fíkniefna á
næturklúbbi.
Christian Gross, stjóri Tottenham, er að reyna að
styrkja liö sitt fyrir baráttuna fram undan. í gær
bættist Júrgen Klinsmann í hópinn og Gross ætl-
ar ekki að láta það duga. Hann hefur sýnt áhuga
á að fá Lee Carsley, hinn 23 ára gamla miðvallar-
leikmann Derby, til félagsins og er reiðubúinn að
borga 3 milljónir punda. -GH
Essen hefur
boðið Patta
nýjan samning
- skoraði 12 gegn Magdeburg
Patrekur Jóhannesson átti
sannkallaðan stjörnuleik
með liði Essen í fyrradag
þegar liðið tapaði, 26-27,
fyrir Magdeburg í þýsku
úrvalsdeildinni í hand-
knattleik.
Patrekur skoraði 12 mörk í
leiknum, öll með þrumu-
skotum, og leikmenn Mag-
deburg réðu hreinlega ekkert við hann.
Minn besti leikur
„Jú, þetta var örugglega minn besti leikur
með Essen frá upphafi en því miður dugði
það ekki til sigurs. Við vorum með leikinn í
okkar höndum. Þegar um 15 mínútur voru
eftir var forysta okkar 6 mörk en á hreint
ótúlegan hátt glopruðum við þessu niður.
Annars var liðið að leika nokkuð vel og með
sama áframhaldi komumst við vonandi á
sigurbraut. Við lékum án Aleksanders
Tutsckins, sem er á spítala vegna bak-
meiðsla, og með hann innanborðs hefðum
við farið með sigur af hólmi," sagði Patrek-
ur í samtali við DV.
„Ég var ákveðinn að sýna þjáifaranum
hvað í mér býr í þessum leik enda hefur
hann fryst mig í sóknarleiknum í undan-
förnum leikjum," sagði Patrekur í samtali
við DV.
Fleiri félög hafa sýnt Patreki áhuga
Samningur Patreks við Essen rennur út í
vor og hafa forráðamenn félagsins þegar
boðið honum nýjan samning. Patrekur sagði
í samtali við DV í gær að hann ætlaði að
skoða málin nánar en DVhefur heimildir
fyrir því að að minnsta kosti tvö félög hafi
sýnt áhuga á að fá hann i sínar raðir fyrir
næsta tímabil.
-GH
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997
29
íþróttir
Tiu efstu i kjori
íþróttamanns ársins
- kjörinu verður lýst í 42. sinn þann 29. desember
Birgir Leifur Hafþórsson - golf.
Geir Sveinsson - handknattleikur.
Guðrún Arnardóttir - frjálsar.
Halldór Svavarsson - karate.
Jón Arnar Magnússon - frjálsar.
íþróttamaður ársins verður kjörinn 29. desember. Tíu efstu
íþróttamenn í kjörinu eru eftirtaldir, í stafsrófsröð: Birgir
Leifur Hafþórsson kylfmgur, Geir Sveinsson handknatt-
leiksmaður, Guðrún Amardóttir frjálsíþróttakona, Halldór
Svavarsson karatemaður, Jón Arnar Magnússon frjálsi-
þróttamaður, Kristinn Bjömsson skíðamaður, Ólafur Stef-
ánsson handknattleiksmaður, Sigurbjöm Bárðarson hesta-
maður, Vala Flosadóttir frjálsíþróttakona og Örn Arnars-
on sundmaður.
Kjörið að þessu sinni er það 42. í röðinni. Sá fyrsti sem var
útnefndur íþróttamaður ársins var Vilhjálmur Einarsson
frjálsíþróttamaður en alls hreppti hann þennan eftirsótta
titil fimm sinnum. Vilhjálmur hefur oftast allra verið út-
nefndur íþróttamaður ársins. Einar Vilhjálmsson frjálsí-
þróttamaður, sonur hans, hefur þrisvar verið kjörinn eins
og Hreinn Halldórsson kúluvarpari.
Kjörið þann 29. desember verður haldið á Hótel Loftleið-
um eins og undanfarin ár og hefst það klukkan 21.
Leifur Geir Hafþórsson
Leifur Geir Hafþórsson, atvinnumaður í golfi, stóð sig vel
á árinu, jafnvel framar vonum. Hann reyndi að komast inn
á evrópsku mótaröðina næsta sumar en þvi miður gekk
það ekki eftir í þetta skiptið. Leifur Geir reynir aftur að ári
en í staðinn fer hann inn á svokallað Challenge Tour.
Hann á framtíðina fýrir sér í golfmu og bíða eflaust marg-
ir eftir framgöngu hans í mótum á komandi ári.
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson, fyrirliði landsliðsins í handknattleik og
leikmaður þýska liðsins Wuppertal, hefur verið í hópi
sterkustu línumanna heims um árabil. Hann var fyrirliði
landsliðsins sem náði þeim glæsilega árangri að hafna í
fimmta sæti á heimsmeistaramótinu í Kumamoto í Japan
á sl. vori. Þetta er besti árangur landsliðsins á heimsmeist-
aramóti frá upphafi. Besti árangurinn áður var 6. sætið í
Sviss 1986. Geir hefur sl. ár leikið með liðum á Spáni,
Frakklandi og nú með Wuppertal í Þýskalandi.
Guðrún Arnardóttir
Guðrún Arnardóttir, hlaupakona úr Ármanni, var í sviðs-
ljósinu á árinu. Hún var af mörgun talin „gulldrottning
Smáþjóöaleikanna" sem haldnir voru hér á landi sl.
sumar. Guðrún náði ennfremur góðum árangri í 400 metra
hlaupi á HM innanhúss sem haldið var í París. Hún bætti
síðar tíu ára gamalt íslandsmet í greininni. Hún setti á
árinu íslandsmet í 200 metra hlaupi og 400 metra grinda-
hlaupi. Á alþjóðlegum mótum, ekki síst á stigamótum cd-
þjóða frjálsíþróttasambandsins, náði hún ennfremur góðum
árangri.
Halldór Svavarsson
Halldór Svavarsson karatemaður náði mjög góðum árangri
á árinu. Hann hreppti brons á opna skandinavíska meist-
aramótinu í Eslöv í Svíþjóð. Síðar vann Halldór gull á opna
enska meistaramótinu í London. Hann varð íslandsmeist-
ari í sínum þyngdarflokki á sl. hausti. Halldór hlaut einnig
gull á opna danska meistaramótinu í kumite sl. vor.
Jón Arnar Magnússon
Jón Arnar Magnússon varð í þriðja sæti í sjöþraut á
heimsmeistaramótinu innanhúss í París. Hann setti um
leið Norðurlandamet í greininni. Jón Amar var nálægt því
að fara alla leið en brást bogalistin í stangarstökkinu.
Hann setti íslandsmet í 110 metra grindahlaupi á Smá-
þjóðaleikunum, hljóp fyrstur manna vegalengdina á undir
14 sekúndum. Jón Amar setti síðan íslandsmet í tugþraut
á móti í Götzis í Austurríki. Hlaut hann þar alls 8.470 stig
en gamla metið var 8.274 stig.
Kristinn Björnsson
Kristinn Bjömsson skíðamaður byrjaði árið með því að
sigra á alþjóðlegu móti i Val Gardena á Ítalíu. Fékk hann
fyrir það 8,26 punkta sem var besti árangur til þessa. Á
þessu móti keppti Kristinn við marga af bestu skíðamönn-
um heims og skaut þeim öOum ref fyrir rass. Kristinn sló
síðan rækilega í gegn á heimsbikarmóti í Park City í Utah
í síðasta mánuði. Kristinn kom þá annar í mark í svigi og
vakti sú framganga mikla athygli í skíðaheiminum. Krist-
inn var þá um leið búinn að skapa sér nafn i íþróttinni á
alþjóðlegum vettvangi. Hér heima varð hann þrefaldur ís-
landsmeistari í stórsvigi og risasvigi og annar í svigi.
Kristinn vann síðar alþjóðlegt mót sem haldið var á Dal-
vík.
Ólafur Stefánsson
Ólafur Stefánsson hefúr leikið í Þýskalandi undanfarin
tvö ár við góðan orðstír. Framganga Ólafs í vetur með
Wuppertal hefur vakið verðskuldaða athygli og lýstu
mörg af bestu liðum Þýskalands áhuga á að fá þennan
snjaOa leikmann í sínar raðir. Það fór svo að stórliðið
Magdeburg vann kapphlaupið um eina bestu vinstri
handarskyttu heims í dag. Ólafur lék einnig mjög vel með
landsliðinu á árinu og ekki hvað síst á heimsmeistaramót-
inu í Kumamoto í Japan.
Sigurbjörn Bárðarson
Sigurbjöm Bárðarson er yfirburðamaður í hestaíþrótt-
um hér landi. Á heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Nor-
egi í sumar varð Sigurbjöm tvöfaldur heimsmeistari í
samanlögðu og gæðingaskeiði. Þetta var þriðja heims-
meistaramótið í röð sem Sigurbjöm vinnur sigur i gæð-
ingaskeiðinu. Hann vann 32 guOverðlaun á árinu, þar af
fem á íslandsmótinu; í 150 og 250 metra skeiði, í saman-
lögðu stigum og hindmnarstökki.
Vala Flosadóttir
Vala Flosadóttir setti í upphafi ársins glæsUegt heims-
met unglinga í stangarstökki á stórmóti ÍR í Laugardals-
höOinni. Hún var þar yfir 4,20 metra. Á heimsmeistara-
mótinu innanhúss í París fór hún aðeins yfir 4,00 metra
og komst ekki í úrslit. Vala átti svo við meiðsli að stríða.
Það verður gaman að fylgjast með framgöngu hennar á
nýju ári en hún hefur skipað sér á bekk meðal bestu
stangarstökkvara heims í kvennaflokki.
Örn Arnarson
Öm Arnarson fór í B-úrslit í 200 metra baksundi á Evr-
ópumeistaramótinu. Hann náði með þessum árangri lág-
mcU’ki fyrir heimsmeistaramótið sem verður hcddið í
Perth í Ástralíu í næsta mánuði. Enginn annar íslenskur
sundmaður náði lágmörkunum og verður hann fyrsti ís-
lendingurinn sem kemst á HM í sundi síðan 1992 en þar
kepptu þá Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragnheiður Run-
ólfsdóttir. Öm náði svo í þessum mánuði frábæmm ár-
angri á Norðurlandamóti unglinga í Ósló, setti þar meðal
annars Norðurlandamet í baksundi. Öm er mesta efni
sem fram hefur komið í sundinu hin síðari ár. Hann á tví-
mælalaust glæsta framtíð fyrir sér.
Stig gefin samkvæmt reglugerö
Eins og áður kom fram verður kjörinu lýst á Hótel Loft-
leiðum og verður það sýnt í beinni útsendingu í ríkissjón-
varpinu. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa
að útnefningunni en samtökin vom stofnuð 1956. Tuttugu
og einn félagi er nú í Samtökum íþróttafréttamanna, frá
Morgunblaðinu, DV, Ríkissjónvarpinu, íslenska útvarps-
félaginu (Stöð 2, Bylgjunni og Sýn) og Degi. Hver félags-
maður í samtökunum setur saman lista með nöfnum tíu
íþróttamanna og þeim era síðan gefið stig skv. reglugerð
um kjörið.
í hófmu 29. desember verða tíu efstu íþróttamenn í
kjörinu heiðraðir með veglegri bókagjöf frá Máli og menn-
ingu eins og síðustu ár. Þrir efstu í kjörinu fá eignargripi.
Styrktaraðilar SÍ vegna kjörsins að þessu sinni em Mál
og menning og Hótel Loftleiðir. íþróttamaður ársins fær
svo vitaskuld tU varðveislu styttuna glæsUegu sem fylgt
hefur nafnbótinni frá upphafi. Þess má geta að öUum fyrr-
um íþróttamönnum ársins er boðið í hófið á Hótel Loft-
leiðum.
Senn kveöur gott íþróttaár
Árið sem senn kveður er fyrir margir sakir gott íþrótta-
ár. Landsliðið í handknattleik stóð fyrir sínu á HM í Jap-
an en því miður tókst ekki að fylgja þeim árangri eftir í
forkeppni Evrópumótsins. Frjálsíþróttafólk var í sviðs-
Ijósinu og stóð sig i mörgum tilfeUum með stakri prýði.
Skíðamenn geta glaðst yfir árangri sinna manna en á
meðal þeirra era að koma fram góðir og efnUegir skíða-
menn. MikU uppsveifla virðist hjá karatemönnum og ber
frammistaða þeirra á mótum hér heima og á alþjóðavett-
vangi glöggt merki um það. Svona mætti lengi telja og er
óhætt að bíða spenntur eftir þvi hvað nýja árið ber í
skauti sér i heimi iþróttanna. -JKS
Kristinn Björnsson - skíði.
Ólafur Stefánsson - handbolti.
Sigurbjörn Bárðarson - hestar.
Vala Flosadóttir - frjálsar.
Örn Arnarson - sund.