Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Qupperneq 2
i6 &ikmyndir FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998 JLlV Slæmt ár hjá Universal Það ríkir ekki mikil gleði í her- búðum Universal. Ekki nóg með að risafyrirtækið náði aðeins að senda frá sér tólf myndir á síðasta ári heldur voru það aðeins tvær mynd- ir sem verulegur hagnaður var af, The Lost World: Jurassic Park og Liar Liar. Aðrar myndir ollu von- brigðum, meira að segja Dante’s Pekak, sem náði að hala inn 67 milljónum dollara, náði ekki þeirri K aðsókn sem búist hafði verið við. Aðrar myndir, þar á meðal McHale’s Navy, Fierce Creatures, Leave It to Beaver, A Sumple Wish, That Old Feeling og Kull the Conqueror hurfu nánast jafnfljótt af hvíta tjaldinu og þær birtust. Tuttugu myndir 1998 Þeir hjá Universal eru samt ekki dauðir úr öllum æðum, búið er að blása í herlúðrana og á þessu ári verða væntanlega tuttugu myndir af stærri gerðinni gerðar á vegum Universal, má þar nefna Mercury Rising með Bruce WiIIis og Alec Baldwin, Out of Sight með George Clooney, Primary Colors með John Travolta, leikstýrð af Mike Nichols, Meet Joe Black með Brad Pitt, Fear and Loathing in Las Vegas með Johnny Depp, leikstýrð af Terry Gilliam, Patch Adams neð Robin Williams og framhaldsmynd- ina Babe, Pig in the City. Vinsælasta pólska myndin endurgerð Pólska kvikmyndin Kiler er orð- in vinsælasta kvikmynd sem sýnd hefur verið í PóUandi. í stað þess að hún fái almennilega dreifingu í Bandaríkjunum hafa tvö banda- rísk kvikmyndafyrirtæki verið að bjóða í réttinn til að endurgera hana og fór það svo að Hollywood Picture hafði vinninginn yfir 20th Century Fox og þurfti að borga 600.000 dollara fyrir. Myndin, sem er gamasöm spenmunynd, segir frá leigubílstjóra sem í misgripum er tekinn fyrir atvinnumorðingja og handtekinn af lögreglunni. I fang- elsinu kemur mafían honum til hjálpar og frelsar hann úr prísund- inni svo hægt sé að nýta hæfileika hans. Fyrsta sýnin Þekktur sálfræðingur og rithöf- undur, Olver Sachs, skrifaði skáld- sögu sem byggð var á sönnum at- burðum um ungan mann sem hafði verið blindur en fær sjónina. Bókin vakti athygli kvikmyndaleikstjórans og framleiðandans Irvins Winklers sem keypti réttinn á bókinni og er að hefja tökur á myndinni. I hlutverki blinda mannsins er Val Kilmer, Mira Sorvino leikur unnustu hans og Nathan Lane leikur lækni hans. Aðr- ir leikarar eru Kelly McGillis og Steven Weber. Saman á ný Tom Hanks og Meg Ryan vora eins og sköpuð hvort fyrir annað í Sleepless in Seattle og má ör- uggt telja að leikstjóri og hand- ritshöfundur Sleepless hafi ekki veðjað á rangan hest þegar hún vildi fá þau saman aftur. Hóf hún að skrifa annað handrit með þau tvö í huga. Þegar hún svo sýndi þeim handritið af You Have a Mail voru þau bæði til í að endur- taka leikinn og hefjast tökur á þessu ári. Þess má geta að You Have a Mail er byggð á gamalli kvikmynd, The Shop around the Comer, en í henni léku aðal- hlutverkin James Stewart og Margareth Sullivan. r . í :j' S 1 BJ * í/ eiga möguleika á sigri þarf hann að brjóta fómarlambið niður, fá kviðdóminn til að efast um sögu ungrar stúlku sem ákærir kenn- ara sinn. Og Lomax vinnur málið og fagnar sigri þrátt fyrir að hann í Devil’s Advocate er djöfullinn lögfræðingur og einhvem veginn fer það honum vel að hafa þetta starfsheiti fyrst hann þarf á annað borð að birtast okkur mannlegum verum. Og hver er betri til að túlka djöfulinn í gervi lögfræðings en A1 Pacino sem þykir fara á kostum í The Devil’s Advocate, sem Sam-bíóin hefja sýningar á í dag. Á jörðu finnur svo djöfull- inn sinn Fást sem einnig er lögfræð- ingur. Keanu Reeves leikur ungan lög- fræðing, Kevin Lomax, sem geng- ur allt í haginn. Hann er mikilsmet- inn í réttarsalnum þar sem sigrar hans era orðnir margir og í einkalífinu gengur hon um ekki síður vel - hamingjusamlega giftur fallegri konu og er í góðu sambandi við fjölskyldu sína og vini. Líf hans virðist sem sagt dans á á rósum. En það er bara svo í hans augum. Lomax er nefnilega ekkert öðruvísi en aðrir lögfræð- ingar, það sem skiptir máli er sigur í réttarsalnum og þá er honum sama Djöfullinn og lærisveinninn: Al Pacino og Keanu Reeves sókn og er honum tjáð að stórt og voldugt lögfræðifirma hafi gert sér grein fyrir getu hans og vilji fá hann hlutverkum sínum. ist mikill ljótleiki, kemst að því að í stað þess að Lomex hafi himin höndum tekið færist hann nær og nær víti.. Keanu Reeves leikur Lomax og A1 Pacino leikur Milton. Með- al annarra leikara má nefna Jef- frey Jones, Judith Ivey, Charlize Theron . og Craig T. Nelson. Leikstjóri er Taylor Hackford. Hann segir að réttarsalir hafi lengi heillað sig: sem þar Al Pacino leikur lögfræðinginn John Milton sem á nóg af öllu og lætur engan sleppa frá sér sem hann á annað borð nær tangarhaldi á. hvem hann ver og hvað sá er ákærður fyrir. Dag einn er Lomax að verja bamaníðing. Til þess að sjálfur hafi aldrei verið í vafa um sekt skjólstæðings síns. Stuttu síðar fær Lomax heim- til New York til viðræðna um starf. Lomax fer þrátt fyrir aðvar- anir móður sinnar og í New York hittir hann lögfræðinginn John Milton, sem skjallar hann og býð- ur honum starf viö lögfræðifyrir- tæki sitt. Lomax tekur tilboði hans, undirritar samning og flyst ásamt konu sinni í lúxusíbúð í New York. Eftir því sem Lomax verður háðari lúxuslífinu verður sú til- finning sterkari að hann verði að vinna. Eiginkona hans tekur eftir því að ekki er allt eins og það á að vera í fyrirtækinu, enginn sýnist hamingjusamur þrátt fyrir vel- gengni. Lomax lætur aðvörunaorð hennar sem vind um eyra þjóta og verður aðeins enn háðari hinum dularfulla Milton. Móðir hans kemur til að kanna málið og sú er fljót að átta sig á að undir yfir- borði lögfræðifyrirtækisins leyn- sigra eru lögfræðingar sem láta ekkert stoppa sig og með gerð The Devil’s Advocate vildi ég færa rétt- arsalinn í víðara form láta hann tákna muninn á réttu og röngu.“ Hackford segir að í sínum huga hafi aldrei komið neinn annar til greina til að leika John Milton en A1 Pacino: „Ég var heppinn. Þegar ég útlistaði fyrir honum hlutverk- ið sagði hann já í hvelli. Pacino er þekktur fyrir að neita hlutverkum og ég hafði alveg eins átt von á þvi að ég þyrfti að ganga á eftir hon- um i margar vikur.“ Myndin er að mestu leyti tekin í New York og þess má geta að íbúð viðskiptajöfúrsins, sem ákærður er fyrir morð, er lúxusíbúð Don- alds Trumps á Fifth Avenue, en hann lánaði íbúð sína í þessum til- gangi. -HK Hackford fyrir fáum dögum að hann hefði verið að giftast sam- býliskonu sinni til margra ára, leikonunni góðkunnu, Helen Mirren. Hér á eftir fer listi yfir helstu myndir sem Taylor Hack- ford hefur leikstýrt: The Idolmaker, 1980 An Officer and a Gentleman, 1982 Against all Odds, 1984 White Nighs, 1985 Everybody's All-American, 1988 Chuck's Berry's Hail! Hail! Rock'n Roll, 1987 Blood in, Blood out, 1993 Dolores Claiborne, 1995, The Devil's Advocate, 1997 -HK Taylor Hackford Taylor Hackford hefur átt mis- góða daga í kvikmyndheiminum. Þegar honum tekst vel sendir hann frá sér vandaðar og góðar skemmtimyndir en hann hefur einnig átt sína slæmu daga. Hackford þykir hafa náð sér vel á strik í The Devil’s Advocate sem bæði hefur fengið góða dóma hjá gagnrýnendum og einnig verið í góðri aðsókn í Bandaríkjunum. Þá fékk einnig mynd hans sem hann gerði fyrir tveimur árum, Dolers Claihorne, sem hann gerði eftir skáldsögu Stephens Kings, ágætar viðtökur. Fyrsta kvikmynd sem Taylor Hackford leikstýrði var The Idolmaker (1980). í kjölfarið fylgdi An oíficer and a Gentlem- an, mynd sem sló eftirminnilega í gegn. Hlaut hún fimm óskarstil- nefningar og tvenn óskarsverð- laun. Hackford hefur síðan bæði verið í hlutverki leikstjóra og framleiðanda, meðal kvikmynda sem hann hefur aðeins framleitt í gegnum fyrirtæki sitt, New Vision, má nefna La Bamba, The Long Walk Home, Queens Logic, Defenseless og Mortal Thoughs. Þær fréttir bárast af Taylor

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.