Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Page 4
FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998 i8 utn helgina Eitt verka Níelsar Hafstein. Bjöm Bjamason menntarnálaráð- herra mun í kvöld kl. 20 opna sýning- una Ný aðfóng í Listasafni íslands. Sýningin er sú fimmta í röð sýninga á nýjum aðfóngum safnsins, kaupum og gjöfum. Þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni Ný aðfóng að þessu sinni em: Amar Herbertsson, Ásta Ólafs- dóttir, Erla Þórarinsdóttir, Finnbogi Pétursson, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Hulda Hákon, Ivar Valgarðsson, Kjart- an Ólason, Kristinn G. Harðarson, Kristín G. Gunnlaugsdóttir, Kristján Daviðssson, Kristján Steingrímur Jónsson, Níels Hafstein, Ólafur S. Gíslason, Sigtryggur B. Baldvinsson, Steingrímur Eyflörð Kristinsson, Tryggvi Ólafsson, Vilhjálmur Bergs- son, Þorri Hringsson, Þór Vigfússon og Þórarinn B. Þorláksson. Verk Finnboga, ívars, Ólafs S. Gísla- sonar og Níelsar Hafstein eru einna fyrirferðarmest á sýningunni. Verk Finnboga Péturssonar, PendúU, er tnnamótaverk í sögu íslenskrar sam- tímamyndlistar. Finnbogi hefur tOeink- að sér raftækni með áhrifaríkum hætti og rannsakað samspil hljóðs og rýmis. Verk ívars Valgarðssonar, Polyfilla innanhúss og Polyfilla alhliða, em unnin úr venjulegu spartslefni. Verkin era unnin eftir þeim reglum módem- ismans að svipta allri blekkingu af tungumáli listarinnar. I verki Níelsar Hafstein, Svartir og gylltir hestar, leikur Níels sér að goð- sögulegu viðfangsefhi sem á djúpar rætur í menningu allra þjóða. Árið 1991 auglýsti Ólafur Gíslason að hægt væri að panta listaverk hjá honum 1 ákveðnum stærðum og hlut- fóllum. Með verkinu Myndpöntun leit- ast Ólafur við að ijúfa félagslega ein- angrun listarinnar og kalla bæði lista- manninn og samfélagið til ábyrgðar. Þór Vigfússon viö hluta af einu verki sínu. A sýningu Lavazza er kaffi hlutgert í formi karlmanns. Gallerí Sævars Karls: Galdradrykkurinn I Galleríi Sævars Karls að Banka- stræti 7 hefur verið opnuð ljós- myndasýning á verkum unnum fyr- ir almanök ítalska kaffiframleiðand- ans Lavazza. Listamennirnir eru nokkrir af frægustu starfandi ljósmyndurum Evrópu, s.s. ítalinn Marino Parisotto sem valinn var einn af tíu bestu ljósmyndurum heims af Photo France. Parisotto tók myndir fyrir alman- ak ársins 1998 sem vísa í hina kunnu óperu Donizettis, Ástar- drykkinn. Þar er kaffið hlutgert í formi karl- manns sem spilar á tilfinningar kvenna, við undirleik hins magnaða drykkjar. Ástardrykkur Donizettis átti einmitt að leysa úr læðingi eld- heitar ástriður. Sýningin stendur til 6. febrúar. Bjöggi aftur á Hótel ísland Sýningar á hinni glæsilegu tón- listardagskrá Björgvins Halldórs- sonar hefjast aftur annað kvöld á Hótel íslandi. Þar fer Björgvin á kostum með frábærri stórhljómsveit undir stjórn Þóris Baldurssonar. Aðrir söngvar- ar sem taka þátt í sýningun- um eru Guð- rún Gunnarsdóttir, Eyjólfur Krist- jánsson, Ingi Gunnar Jóhannsson og Pétur Guðmundsson. Gestir koma einnig i heimsókn og taka lagið. Kynnir er Jón Axel Ólafsson, útsetn- ingar annaðist Þórir Baldursson og um sviðsetningu sá Björn G. Björns- son. Útvarpið er miðill dægurlagatón- listar Björgvins Halldórssonar. Fjöldamörg lög sem hann hefur hljóðritað hafa hljómað á öldum ljósvakans í næstum þrjátíu ár. Dagskráin á Hótel íslandi hefur yfir sér ákveðinn út- varpsblæ. Þar er stillt á ýmsar bylgjulengdir. Allir ættu því að geta fundið sína rás, s.s. Gospel, ís- landslög, lög úr kvikmynd- um og söngleikjum, Elvis- lög og íög með Brimkló. Björgvin Halldórsson mun án efa halda uppi fjörinu á Hótel íslandi. Serpentsveitin heldur á morg- un, kl. 17, stórtónleika í Háteigs- kirkju. Um er aö ræða brasstónleika (málmblásturshljóðfæri). Aðal- verk tónleikanna verða Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky og Sonata al4 eftir Tryggva Bald- vinsson. Önnur verk á tónleikunum eru St. Edmundsbury Fanfare eftir Benjamin Britten og Festlicher Einzug eftir Richard Strauss. Myndir á sýningu er eitt vin- sælasta verk sinfónískra tón- mennta. Sú staðreynd er áhugaverð í ljósi þess að upphaflega var verk- ið skrifað fyrir píanó. Myndir á sýningu er það verk sem oftast hefur verið umskrifað fyrir hin ýmsu hljóðfæri. Eftir því sem næst verður komist er verkið til í um tuttugu útsetningum. Verk Tryggva Baldvinssonar er áhrifaríkt verk sem ekki hefur áður verið flutt á íslandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.