Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998
7
sandkorn
í loftinu
Talsvert uppnám varð innan ís-
lenska útvarpsfélagsins á dögunum.
Eins og kunnugt er rekur félagið, auk
Stöðvar 2, útvarpsstöðv-
amar Bylgjuna og
Stjörnuna. Þessir f]öl-
miðlar eru að nokkru
samnýttir. Svo bar við
á dögunum að morgun-
fréttamaður Bylgjunn-
ar veiktist án þess að
boð um það bærust I
tíma þannig að hægt
væri að kalla annan í skarðið. Því kom
upp sú staða að Óli Tynes sem annast
erlendar fréttir var einn á vaktinni
þegar dró að fyrsta fréttatíma morg-
unsins. Sá fréttatími féll reyndar niður
en Óli brá skjótt við og tók að hringja
í fréttamenn tii að fá einhvem á vakt-
ina. Svo illa vildi til að hann hringdi
úr útsendingarherbergi og áttaði sig
ekki á því að opið var fyrir útsending-
artæki Stjömunnar. Þannig fóru öli
samtölin með tilheyrandi orðbragði í
loftið. Það vill til að hlustendahópur
Stjörnunnar á þessum tíma er frekar
þröngur. Þeir vom þó nokkrir
árrisulir hlustendur sem hrukku við...
Gjörningaveður
Eins og greint var frá 1 DV era
dæmi um að trillukörlum hafi verið
boðið að veiða úr kvótum verkfalls-
skipa. Þetta hefur valdiö
leiðtogum sjómanna
nokkrum pirringi.
Þannig mun Guðjón A.
Kristjánsson, forseti
Farmannasambands-
ins, hafa haft á orði í
Karphúsinu, daginn
fyrir verkfall, „að
þetta væri meiri andskotans
blíðan“. Hann sá væntanlega fyrir sér
að hvert trilluhom færi á sjó til veiða
fyrir sægreifana og á kostnað sjó-
manna. Guðjón, sem er af kyni
Strandamanna sem oftar en ekki era
bendlaðir við galdra, lýsti því yfir að
hann myndi fara með Homstrendinga-
þulu í því skyni að blása af blíðuna.
Svo er að sjá að það hafi heppnast því
á sama sólarhring og verkfall skall á
gerði vetrarveður um allt land og
norðaustangarð á Vestfjarðamiðum...
Eldvarnateppið
Slökkviliðið á Eskifirði þykir öflugt.
Þar heldur um stjómvöl Þorbergur
Hauksson og gætir þess af einstakri
samviskusemi að Esk-
firðingar og Reyðfirð-
ingar viðhafi réttar eld-
vamir. Nýverið var
Þorbergur á yfirreið á
Reyðarfirði hvar hann
tók út nýjan veitinga-
stað. Varnir voru í
hinu besta lagi að
undanskildu því að eld-
vamateppi vantaði. Eigandinn taldi
slíkt vera óþarft þrátt fyrir eftirgangs-
muni. Varð úr að slökkvistjórinn, sem
er með umboð fyrir slík teppi, færði
vertinum teppi með þeim orðum að
hann borgaði ef rekstur staðarins
gengi upp. Skömmu síðar kviknaöi í
út frá kleinufeiti á staðnum og náðist
þá að bjarga frá stórbruna með tepp-
inu góða. Vertinn lagði daginn eftir
leið sína til slökkvistjórans og borgaði
gamia teppið og fékk að auki tvö ný og
staðgreiddi. Hann lýsti því jafnframt
yfir að slík teppi ættu að vera í hverju
húsi og helst tvö ...
Gaman að hátta
Fréttir DV af þeirri ákvörðun sveit-
arstjómar í Akrahreppi að styðja við
bakið á bamafjölskyldum með því að
reiða fram 100 þúsund-
kall meö hveijum ný-
bura sem borinn er í
sveitinni hafa vakið
verðskuldaða athygli
um allt land og menn
látið fjúka í kviðling-
um til að tjá hrifhingu
sína á framtakinu.
Hér kemur einn þeirra:
Gott er líf og glatt í ár
og gaman að fara í háttinn,
þegar borgast bónus hár,
blessaðan fyrir dráttinn.
Umsjón: Reynir Traustason
Fréttir
Akureyri:
Stefnir í átök sjálfstæðismanna
- uppstillingarnefnd gerir tillögu um aö færa oddvita flokksins í 4. sæti
DV, Akureyri:
„Sem stuðningsmaður Sigurðar
mun ég leggja það til við hann að
annaðhvort taki hann 1. sæti listans
eða hann verði bara ekki á listan-
um. Það að setja Sigurð í 4. sæti er
ekkert annað en vantraust á hann,“
segir stuðningsmaður Sigurðar J.
Sigurðssonar, oddvita sjáifstæðis-
manna í bæjarstjórn á Akureyri, en
uppstillingarnefnd flokksins mun
ætla að leggja fram tillögu um að
Kristján Þór Júlíusson, fyrrum bæj-
arstjóri á ísafirði og Dalvík, skipi 1.
sæti listans en Sigurður verði færð-
ur í 4. sætið og lögð áhersla á að
vinna það sæti.
Sjálfstæðismenn á Akureyri lentu
í kröppum dansi vegna prófkjörs
sem þeir viðhöfðu fyrir kosningam-
ar 1994 og lauk með því að Jón Kr.
Sólnes tók ekki sæti á listanum. Þá
var talið að a.m.k. sumt af fylgi
Jóns Kr. hefði farið yfir á Framsókn
sem vann mikinn kosningasigur.
Nú átti að koma í veg fyrir að próf-
kjörsbarátta kæmi að stað leiðind-
um á milli manna og fela uppstill-
ingarnefnd að gera tillögu um skip-
an listans.
„Það er rétt að ég hef lýst yfir
áhuga á að skipa 1. sæti listans
áfram þannig að það er ekkert óeðli-
legt að ég sé spurður hvernig mér
lítist á þessar tillögur. Ég vil hins
vegar ekkert um þær segja að svo
komnu máli og vísa á formann upp-
stillingamefhdar," segir Sigurður J.
Sigurðsson um þetta mál. Hann hef-
ur setið í bæjarstjóm fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn nokkuð á þriðja ára-
tug og verið óumdeildur foringi
flokksins undanfarin ár.
Anna Þóra Baldvinsdóttir, for-
maður uppstillingamefhdar flokks-
ins, vildi ekkert um málið segja
annað en að nefndin mundi leggja
tillögu sína fyrir fulltrúaráðsfund í
næstu viku og þá á að ganga endan-
lega frá listanum. -gk
Amerískur
útiuistarfatnaður
Dömu og herrasniö
Léttari - Liprari
Standastkröfur
Cortina Sport
| Skólauörðustíg 20 - Sími 5521555
p,u*\'«ss'
*.v
AUSTURSTRÆTI • BARONSSTIG
GLÆSIBÆ • LAUGALÆK
LÁGMÚLA • SPORHÖMRUM
LANGARIMA • ENGIHJALLA
SETBERGSHVERFI0G FIRÐIHAFNARFIRÐI