Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Síða 11
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 11 Fréttir Frá fundi Skipulagsnefndar I Vérslunarskólanum þar sem rætt var um nýtt bílastæöahús vlö Krlngluna. DV-mynd Pjetur íbúar Kringl- unnar óánægðir Nokkurrar óánægju gætir hjá íbúum viö Kringluna vegna fyrir- hugaðra breytinga á bílastæðum verslunarmiðstöðvarinnar Kringl- unnar. Óánægjan kom fram á kynn- ingarfundi Skipulagsnefndar Reykjavíkur í Verzlunarskólanum í gær. Kringlan fyrirhugar í samvinnu við Reykjavíkurborg að byggja bíla- stæðahús sem myndi rúma um 380 bíla, á homi Listabrautar og Kringl- unnar. íbúar em ekki sáttir við til- lögur skipulagsnefndar og telja að umferð um Kringluna muni aukast með tilheyrandi mengun. -sm tank Guömundur Breiðfjörö og móöir hans, Marla J. Guömundsdóttir, glaöbeitt ó svip, enda veröa þau á Karíbahafinu eftir örfáar vikur. Vinningshafinn í Titanic-leiknum: Með mömmu til Karíbahafsins Guðmundur Breiðfjörð og móðir hans, María J. Guðmundsdóttir, em á leiðinni í lúxussiglingu um Karíba- hafið á vegum DV, Bylgjunnar og Skifunnar. Guðmundur sigraði glæsilega í spurningakeppni sem markaði lokapunkt í stóra Titanic- leiknum sem fyrirtækin stóðu að. Guðmundur er vel að sigurlaunun- um kominn. Hann náði 100% árangri i erfiðri spumingakeppni og eins og sannur „séntilmaður" býður hann mömmu með í siglinguna miklu. „Það vill einmitt svo vel til að ég verð þrítugur þann 20. mars og við stefnum á að halda upp á þrítugsaf- mælið mitt á Karíbahaflnu," sagði hinn ánægði vinningshafi í samtali við DV. Guðmundur fékk tíu spumingar svaraði öllum fúUkomlega rétt. Síð- ar kom á daginn að hann er hafsjór fróðleiks um kvikmyndir, auk þess að vita mikið um Titanic. -KJA Ágústa og Hrafn höfð fyrir rangri sök í Dagfara í gær var sagt að Ágústa Johnson og Hrafn Frið- björnsson rækju World Class. Þetta er rangt. „Þetta er vitleysa. World Class er rekið af Birni Leifssyni sem er í samkeppni við okkar fyrirtæki, Stúdíó Ágústu og Hrafns. Þess vegna er slæmt þegar okkar nöfn era svert þegar verið er að tala um aðrar likamsræktarstöðvar en okk- ar eigm,“ segir Hrafh vegna þessa. „Þama fer fram mjög neikvæð umræða um okkur,“ sagði Ágústa Johnson, „sérstaklega þegar ver- ið er að draga þátttöku mína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík inn í þetta. Þarna fer fram mjög persónuleg umræða um okkur vegna máls sem kemur okkur ekkert við.“ DV biðst afsökunar á rang- færslum sem fram komu í um- ræddri grein. Réttarhald í máli Tálknfirðinga vegna Þryms BA: Neita að hafa sökkt Þrym BA Tveir Tálknfirðingar, sem hafa verið ákærðir fyrir að hafa dregið Þrym BA 7 út á Tálknafjörð í nóv- ember og sökkt honum þar, neituðu sök þegar héraðsdómari bað þá um að gera grein fyrir afstöðu sinni til sakarefna. Mennimir mættu í þing- festingu málsins á Patreksfirði í gær. Tálknfirðingunum tveimur er gef- ið að sök að hafa laugardagskvöldið 15. nóvember farið á farþegaskipinu Lindu að fjörunni við athafnasvæði Vélsmiðjunnar Skanda hf. Þaðan hafi þeir dregið Þrym, 196 brúttó- lesta skip, út á Tálknafjörð og sökkt skipsskrokknum á þeim stað sem kafari frá varðskipi fann flakið nokkru síðar. Þrymur var fyrir löngu talinn ónýtur og hafði hrepp- urinn kvartað yfir því við eiganda að hann væri til óþurftar við at- hafnasvæði hafnarinnar. Milijónir kostar að eyða bát af þessari stærð. Þrátt fyrir að neita sök um ásetn- ing viðurkenndu mennimir við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa dregið Þrym á tilteknu farþegaskipi. Þeir hafi hins vegar verið að flytja bátinn á milli staða - en hafi ekki ætlað að sökkva honum. Hvað sem þessu líður tilkynntu mennimir ekki um „óhappið". Auk sakargifta um að brjóta lög um vamir gegn mengun sjávar meö því að sökkva Þrym er annar mann- anna einnig ákærður fyrir að brjóta siglingalög og lög um lögskráningu sjómanna með því að hafa siglt Lindu án þess að skrá áhöfn á skip- ið. Jónas Jóhannsson, héraðsdómari Vestfjarða, hefúr ákveðiö að þegar vitnaleiðslur fara fram í málinu, sennilega í mars, muni dómurinn verða fiölskipaður. Hann mun því skipa með sér tvo „sérfræðinga". Jón H. Snorrason saksóknari fer með málið af hálfu ákæruvaldsins og hafa sakbomingunum verið skip- aðir verjendur. -Ótt Hverfafundir með borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfa- fundi með Reykvíkingum á næstu vikum. Fundirnir verða sem hér segir: Fyrsti fundurinn verður haldinn mánudaginn 9. febrúar með íbúum Vesturbæjar, Miðbæjar og Austurbæjar vestan Snorrabrautar. Fundarstaður: Ráðhúsið kl. 20.00. 2. fundur verður haldinn mánudaginn 16. febrúar með íbúum íTúnum, Holtum, Norðurmýri og Hlíðum. Fundarstaður: Kjarvalsstaðir kl. 20.00. 3. fundur verður haldinn mánudaginn 23. febrúar með íbúum Háaleitis-, Smáíbúða-, Bústaða-, Fossvogs- og Múlahverfis. Fundarstaður: Réttarholtsskóli kl. 20.00. 4. fundur verður haldinn mánudaginn 2. mars með íbúum Seljahverfis, Efra- og Neðra Breiöholts. Fundarstaður: Gerðuberg kl. 20.00. 5. fundur verður haldinn mánudaginn 9. mars með íbúum Laugarness-, Lækja-, Teiga-, Langholts-, Sunda-, Heima- og Vogahverfis ásamt Skeifunni. Fundarstaður: Langholtsskóli kl. 20.00. 6. fundur verður haldinn mánudaginn 16. mars með íbúum í Árbæjar-, Ártúnsholts- og Seláshverfi. Fundarstaður: Ársel kl. 20.00. 7. fundur verður haldinn mánudaginn 23. mars með íbúum Grafarvogshverfa. Hamra-, Folda-, Húsa-, Rima-, Borga-, Víkur- og Engjahverfi. Fundarstaður: Fjörgyn kl. 20.00. 8. fundur verður haldinn mánudaginn 30. mars kl. 20.00 með ungu fólki í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fundarefni: Framtíðarborgin Reykjavík. Á fundunum mun borgarstjóri m.a. kynna áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Sýndar verða teikningar og myndir af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Sjá hvertafundi á heimasíðu Reykjavíkurborgar: WWW.reykjavik.iS Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.