Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Síða 13
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 13 I>V Fréttir Sameiningarkosningar í Flóanum: Óttast að örnefn- ið Sejfoss hverfi - boðið upp á Árborg, Árbyggð, Flóann og Flóabæ Á morgun kjósa íbúar fjögurra sveitarfélaga í vestanverðum Flóa um sameiningu þeirra. Sveitarfé- lögin eru Eyrarbakkahreppur, Sandvikurhreppur, Selfossbær og Stokkseyrarhreppur. Ef sameining verður samþykkt verður til nýtt sveitarfélag með 5472 íbúa. í tillög- um sameiningarnefndar er gert ráð fyrir því að aðalstöðvar nýs sveit- arfélags verði á Selfossi. Ekki liggur fyrir nein könnun á fylgi við sameininguna. Telja menn að eftir kynningarfundi hafi menn færst frekar í átt að sameiningu. Sameiningarsinnar halda því fram að stærra sveitarfélag sé mun hagkvæmari eining og muni auð- velda sveitarfélögunum að standa við þær skuldbindingar sem ríkið lagði á þau með flutningi grunn- skólans. Þeir telja einnig að stórt sveitarfélag sé betur í stakk búið að sinna samtryggingarmálum, eins og þau er varða aldraða. Einn helsti ásteytingarsteinninn er nafn á nýja sveitarfélaginu. Sel- fossbúar hafa margir lýst yfir áhyggjum sínum af að örnefnið Sel- Frá Eyrarbakka. foss muni hverfa. íbúar við strönd- ina kvíða því að langt verði í aðal- stöðvar sveitarfélagsins og einnig að stærð Selfoss verði yfirþyrm- andi innan nýs sveitarfélags. Skuldir Stokkseyrar hafa einnig verið til umræðu en þær eru tals- vert hærri á hvern mann heldur en DV-mynd GVA í hinum sveitarfélögunum. Skúli Steinsson, íbúi á Eyrar- bakka, er einn þeirra sem eru á móti sameiningunni. Hann telur að ekki hafi verið staðið nægilega vel að undirbúningsvinnu og að hræðsluáróður hafl verið notaður, t.d. í umræðu um samtryggingar- JasBoa ittwi ISi Frá Selfossi. DV-mynd Rasi mál. Hann segir sameiningamefnd- ina ekki hafa kynnt sameininguna af nægilegri hlutlægni heldur hafi verið einblínt á björtu hliðamar. „Þessi þorp hér samanstanda af alls konar hagsmimahópum sem eru að reyna að bjarga sér á einn eða annan hátt. Þegar stærri stjómir koma inn í þetta gætu hagsmunir okkar verið i hættu þótt engin reynsla sé komin á það og ekki sé hægt að fullyrða nokkuð um það. Mér finnst sameining vera uppgjöf." Grétar Zóphaníasson, oddviti á Stokkseyri, hefur setið í sameining- amefnd og er fylgjandi samein- ingu. Hann segir margt mæla með sameiningu: „Með sameiningu náum við fram meiri hagkvæmni og sfækkum eininguna. Þannig náum við meiri hagkvæmni í rekstri og betri nýtingu á skatttekj- um. í sameiningarnefndinni höfum við vegið og metið kosti og galla sameiningar og kostirnir vega miklu þyngra en gallarnir." Sameiningarnefndin ákvað að aðeins yrði boðið upp á fjögur nöfn á hið sameinaða sveitarfélag. Það em nöfnin Árborg, Árbyggð, Fló- inn og Flóabær. -sm Snæfellsbær: Fáir án vinnu DV, Vesturlandi: Atvinnuástandið í Snæfellsbæ er óbreytt miðaö við það sem hef- ur verið undanfarin misseri, að sögn Jóhannesar Ragnarssonar, formanns Verkalýðsfélags Snæ- fellsbæjar. „Að minu mati hefur atvinnu- ástandið hvorki batnað né versn- að. Nokkur kvóti og skip hafa þó fariö úr byggðarlaginu og því minna um vinnu hjá fiskverkun- arfólki. Um áramót voru 17 á atvinnu- leysisskrá og ég held að þaö sé heldur minna en fyrir ári á sama tíma. Ég held að skýringin sé nokkuð fólgin í því, þó ég þori ekki að fullyrða það, að fólki hafi fækkaö í bæjarfélaginu," sagði Jó- hannes í samtali við DV. -DVÓ Snjór er til ýmissa hluta nytsamlegur. Það er ekki bara hægt að renna sér á honum á skíðum, það er líka hægt að byggja úr honum ... og boröa hann. DV-mynd E.ÓI. Albert Eymundsson skólastjóri ávarpar gesti viö vígsluathöfnina. DV-mynd Júlía ár hafa þurft að starfa við þröngan húsakost. Um 25 ár eru liðin frá því að gamla skólahúsið var stækkað. Börnum úr þrem fyrstu bekkjum grunnskólans er ekið í Nesjaskóla þar sem ekkert pláss var í Hafnar- skóla. Verður svo áfram þrátt fyrir þessa viðbót. í eldri hluta skólans verður aðstaða fyrir sérkennslu og vinnuaðstaða kennara. Skólastjóri er Albert Eymundsson, fyrrum nemandi Hafnarskóla, síðar kenn- ari þar og nú skólastjóri. Skólanum bárust fjölmargar gjafir og heilla- óskir og fjöldi fólks var viðstatt vígsluna. -JI HornaQöröur: Hafnarskóli stækkaður DV, Höfn: Tekin hefur verið í notkun og vígð ný viðbygging við Hafnarskóla á Homafirði. Húsið er tæplega 1000 m2 að stærð og þar 8 kennslustofur. í hverri stofu er eldunaraðstaða fyr- ir nemendur, það er lítil eldavél, grill, örbylgjuofn og kæhskápur. Einnig tvær margmiðlunartölvur með aðgangi að Intemetinu og sér snyrtiaðstaða og fatageymslur em í hverri stofu. Kostnaður við bygginguna er um 110 milljónir króna og er það 10 milljónum undir upphaflegri áætl- un. Arkitektar að skólanum vom þeir Árni og Sigurbjöm Kjartans- synir hjá Arkitektastofunni Kim en þeir voru öll sin barnaskólaár í Hafnarskóla. Byggingcirverktaki var íbyggð og tók bygging skólans rúm- leg níu mánuði. Mikil þörf var á stækkun skóla- hússins og bættri aðstöðu fyrir nemendur og kennara sem í mörg „VlHliPlillf' -fyrir þá sem forðast kulda en vilja líta vel út! Wooly Pully flispeysa: Þessi peysa hefur slegio í gegn á Norðurlondunum. j Hentar sérlega | vel til allrar útivistar. >7 Vatnsheld. W Verð aðeins 8.900, REIÐLIST SKEIFAM 7 - SfMI: 5SMOOO ■ FAX: Sll 1071 Jakkar 3-900- aður 17.900- ÚlpUr 4.900— áöur 12.900- KápUr 7.900— áður 15.900- Nýtt heimitísfang: Suðurlandsbraut 12, sími 588 1070. ffCápusalan ^ Suöurlandsbraut 12, sfmi 588 1070 J Stórútsala

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.