Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgafustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Viðbjóðslegt athæfi Aftaka bandarískrar konu vekur siðmenntuðum mönnum um allan heim viðbjóð. Karla Faye Tucker, 38 ára gömul, var dæmd til dauða ásamt unnusta sínum fyrir morð á karli og konu í Houston í Texas fyrir hálf- um öðrum áratug. Unnusti hennar lést í fangelsinu. Af- brot þeirra var hrottalegt og þungur dómur eðlilegur. Dauðadómur er hins vegar aldrei réttlætanlegur, hvorki í máli nefndrar konu né annarra. Bandaríkin, forysturíki í heiminum, beita í auknum mæli þessum viUimannlegu refsingum. Borgaramir þurfa vemd fyrir hættulegum glæpamönnum. Til þess era fangelsin. Þar á að gæta þeirra, ævilangt í verstu tilvikum. Ríki hafa hins vegar ekki frekar en aðrir rétt til þess að drepa fólk. Staðreynd er að fjölmörg ríki heims beita dauðarefsingum. Sú aðferð er þó yflrleitt fordæmd og fyrirlitin á Vesturlöndum, meðal ríkja sem virða mannréttindi. Því skera Bandaríkin sig úr þeim ríkjahópi. Þau fótumtroða helgasta rétt hvers manns, hvað sem honum kann að hafa orðið á, að fá að lifa. „Það hefur enginn rétt til að taka líf nokkurs manns,“ sagði séra Ragnar Fjalar Lárusson, einn mót- mælenda aftökunnar, þegar hópur fólks kom saman við sendiráð Bandaríkjanna hér. „Það hlýtur því að vera skilyrðislaus regla kristins manns að fordæma slíkt, al- veg sama hver á í hlut,“ sagði presturinn. Aftakan í Texas vekur réttláta reiði víða um heim. Evrópuþingið hefur fordæmt hana. Þingið hefur bragð- ist réttilega við og neitar að mæta til fundar við banda- ríska þingnefnd í Houston í Texas. Sá fundur er fyrir- hugaður í júní. Það verður því að finna annan fundar- stað en illræmdan aftökustaðinn. Aftökur í Bandaríkjunum eru hvergi fleiri en í Texas. Aftaka konu nú vekur meiri athygli en ella. Þar voru í fyrra líflátnir 37 menn og þegar eru fyrirhugaðar fimmt- án aftökur. Kona verður meðal annars líflátin í apríl. Samtökin Amnesty Intemational hafa barist gegn dauðarefsingum. Samtökin benda á að dauðarefsing sé grimmdarleg, niðurlægjandi og ómannúðleg refsing. Með henni sé virtur að vettugi rétturinn til lífsins. Ekki verður aftur snúið þegar dómnmn hefur verið fullnægt. Þá er fyrir hendi hætta á að saklaus maður sé líflátinn. Samtökin segja að ekki hafi verið sýnt fram á að dauðarefsing dragi úr glæpum fremur en mildari refsingar. Amnesty er kunnugt um 4272 aftökur árið 1996 í 39 ríkjum. Sama ár voru 7107 dæmdir til dauða í 76 ríkj- um. Tölumar eru vafalaust hærri. Kínverjar ganga langharðast fram í þessum villimannlegu aftökmn. Am- nesty bárust skýrslur um 3500 aftökur í Kína þetta ár. Þá var vitað um 167 aftökur í Úkraínu, 140 í Rússlandi og 110 í íran. í þessum flórum ríkjum voru 92 prósent þeirra aftaka sem vitað er um það ár. Vitað var um margar aftökur í írak en fjöldi fékkst ekki staðfestur. í þessum ríkjahópi kjósa Bandaríkin að vera. Banda- rísk stjórnvöld fara hörðum orðum um mannréttinda- brot annarra og beina máli sínu ekki síst til íraka og Kínverja. Hvað aftökur varðar mættu þau sömu stjóm- völd líta sér nær. Um helmingur þjóða heims hefur afnumið dauðarefs- ingu. Að meðaltali hafa tvö ríki á ári bæst í þann hóp undanfama tvo áratugi. Tölur sýna að afnám dauðarefs- inga hefur ekki skaðleg áhrif og fjölgar ekki morðum. Dauði eins manns réttlætir ekki dauða annars. Dauðarefsingu ber því að fordæma. Jónas Haraldsson „Peir sem ekki taka þátt í þessum fagnaöi setja sig á vissan hátt úr samfélaginu og ganga í björg ímyndaheims- ins,“ segir Gísli i greininni. - Þorramatur í sundlaugunum. Matur og menning Nýlega var fjallað um ágæti þorramatar á umræðuvettvangi allra landsmanna í Dagsljósi Sjón- varpsins. Þar voru leidd fram þau ólíku sjónarmið að þorramatur væri annars vegar svo vondur að ógjömingur væri að skilja dálæti manna á þessu dauðmeti og hins vegar að hann væri mjög góður og eftirsóknarverður vegna þess að með honum varðveittum við eitt það merkilegasta og einstæðasta í okkar menningararfi: mjólkur- sýruna sem geymsluaðferð fyrir matvæli. Tískan og þjóöirnar Það er útbreidd skoðun hjá þotusælkerum að til sé ótvíræð mælistika um ágæti matvæla. Sú mælistika miðast einkum við smekk sem hefur þroskast við það að bragða dýra rétti af matseðlum vel metinna veitingahúsa í hin- um vestræna heimi og skola honum niður með hátt verð- lögðum vínum frá markaðs- settum framleiðendum. Slík hámenning matargerðarlist- ar er þó býsna fjarlæg neysluvenjum þorra al- mennings, ekki bara á ís- landi heldur úti um alian heim. Því að þótt ísland sé lítið land er hinn mikli umheimur líka fullur af litlum menningarsamfé- lögum og stendur fráleitt í breið- fylkingu að baki því hátt stemmda tískuliði sem fjölmiðlar sýna stundum sem fúlltrúa þess helsta „úti í heirni". Víðs vegar um veröldina eru alls kyns furðuréttir frá okkar sjónarmiði snæddir með mikilli viðhöfn. Fæstir slíkra rétta kom- -ast þó nálægt því að ná inn í hringiðu staðalsmekkráðgjafa, og geta sennilega ekki með nokkru móti talist bragðgóðir út frá þeim viðmiðunum sem þar ráða for. Það er heldur ekki sagt frá þeim á hin- um svokallaða alþjóðavett- vangi, nema helst ef ein- hver vemdun- arsamtök plantna og dýra geta hagn- ast á að mót- mæla átinu, og þeir sjást aldrei á mat- seðlum þeirra veitingahúsa sem ferðamenn koma inn á. Því er það að íslendingar stundum á finninguna Kjallarinn fá til- að Gísli Sigurösson íslenskufræðingur „A miðsvetrarblótum á þorra erum við að fagna þessu fram- lagi vegna þess að þrátt fyrir all■ an þjóðasamrunann og sjón- varpsmenninguna og alþjóðavið- skiptin þá erum við við og hinir eru hinir.“ þeir séu eina þjóðin sem ekki sé fyrir löngu farin að borða nauta- lundir og drekka rauðvín í öll mál. Franskir ostar og íslenskur hákarl En vegir tískunnar eru oft furðulegir. Af einhverjum ástæð- um hafa mygluréttir einnar þjóðar náð slíkum tökum á alþjóðlegum staöalsmekk hins vestræna heims að furðu sætir: Franskir ostar. Franskir ostir hafa stöðu heilagra kúa í matarmenningu Vestur- landa. í þeim er saman kominn kjaminn í því besta bragði sem heimsmenn á mat smjatta yfir af lotningu. Ostar sem em þjóð- arstolt vegna fjölbreytileika og lifandi gerjunar sem er svo mikilvæg að meira að segja staðlar Evrópusam- bandsins um hreinlæti og frágang matvæla verða und- an að láta. Og er þá mikið sagt. Samt eru þessir ostar ekkert annað en mygluð og skemmd mjólk sem ekki þarf lengur að geyma með svo bragðspillandi aðferð. Sama mætti segja um há- karlinn okkar. Hann er aug- ljóslega ekki fersk vara heldur illa farinn og þefj- andi af langri geymslu við úreltar aðstæður. En væri hann franskur ostur er eins víst að við gætum selt hann á okurverði í sérpökkuð- um neytendaumbúðum í dýrustu sælkerabúðum Vesturlanda. Það er því ekkert annað en van- metakennd og djúpstæð- ur misskilningur á eðli matarmenningar verald- arinnar að kunna ekki að gleðjast yfir því litla framlagi til hennar sem við höfum upp á að bjóða. Á miðsvetrarblótum á þorra erum við að fagna þessu framlagi vegna þess að þrátt fyrir allan þjóðasamrunann og sjón- varpsmenninguna og alþjóðavið- skiptin þá erum við við og hinir eru hinir. Þeir sem taka ekki þátt í þessum fagnaði segja sig á vissan hátt úr samfélaginu og ganga í björg gerviveruleika ímynda- heimsins. Sá heimur finnst hvergi á byggðu bóli en er draumsýn af sömu náttúru og allsnægtimar í veislusölunum hjá Goðmundi á Glæsivöllum þar sem „enginn þol- ir drykkinn nema jötnar" eins og Grímur Thomsen orti um. Gísli Sigurðsson Skoðanir annarra Framhaldsnám erlendis „Það myndi styrkja stöðu Háskólans verulega ef rétt verður staðið að eflingu framhaldsnáms, ekki síst í ljósi þeirra gífurlegu breytinga er orðið hafa á menntunarstigi þjóðarinnar. Færa má rök fyrir því að fyrrihlutanám á háskólastigi gegni nú svipuðu hlutverki og stúdentspróf á árum áður. ... Nú verða flestir nemendur að sækja framhaldsnám til útlanda og vissulega má segja að það hafi verið islensku þjóðfélagi verðmætt að fá til liðs við sig einstaklinga er numið hafa við virta háskóla víða um heira." Úr forystugreinum Mbl. 5. febrúar. Innherjasvik? „ Það, að tilkynnt sé þann 30. janúar 1998 að inn- herji hafi keypt í Flugleiðum 7. janúar 1997, eða rúmu ári áður, hlýtur að teljast óeðlilegt. Við sama tækifæri var tilkynnt að innherji í Flugleiðum hafi selt hlutabréf að nafnverði 1.200 þús. 19. nóvember 1997 og er kannski ekkert meira um það að segja nema hvað níu mánaða tölur fyrirtækisins voru birtar aðeins tveimur dögum síðar og lækkaði gengi hlutabréfa við það um 19%. Var ekki unnt að til- kynna um þessi innherjaviðskipti fyrr og forðast þannig að horft yrði á þau sem innherjasvik?" Óðinn í 5. tbl. Viðskiptablaðsins. Fellir Alþbl. merkið? „Alþýðubandalagið hefur á komandi hausti að baki þrjátíu ár sem stjómmálaflokkur. Árið 1968 var Alþýðubandalagið gert að formlegum flokki eftir afar erfiða siglingu flokka og flokksbrota sem þá stóðu að kosningabandalagi undir sama nafni. Þeir sem muna þá tíma geta vart verið ginnkeyptir fyrir að efna til viðlíka sambúðar og hrossakaupa. Nú kemur í ljós hvort Alþýðubandalagið heldur merki sínu áfram á lofti eða fellir það.“ Hjörleifur Guttormsson í Degi 5. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.