Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998
35 €*
DV
Fréttir
Formaður Verðandi i Vestmannaeyjum:
Útgerðarmenn
vilja lög
DV Vestmannaeyjum:
„Þetta er hreint og klárt lögbrot.
Það er alveg ljóst að okkar menn
voru að ganga í störf sjómanna sem
eru í verkfalli. Ef til málaferla kem-
ur þá mun félagið ekki standa með
þessum mönnum. Kokkurinn er
ekki um borð þannig að einhver
verður að elda matinn,“ segir Magn-
ús Guðmundsson, skipstjóri á Berg-
vík VE og formaður Verðandi, fé-
lags skipstjóra- og stýrimanna í
Vestmannaeyjum um það að togbát-
urinn Smáey VE fór á sjó þrátt fyr-
ir verkfaU undir-
menn og vélstjóra. Ég tel að ef ríkis-
stjómin ætlar að setja lög þá séu
það brot á mannréttindum sjó-
manna. Þá fyndist mér ekkert óeðli-
legt að kæra það til mannréttinda-
dómstólsins," segir Magnús Guð-
mundsson.
Magnús sagðist siður eiga von á
átökum í Eyjum þar sem aðrir út-
gerðarmenn myndu tæplega reyna
að sprengja verkfallið og halda til
veiða. „Maður hefur heyrt orðróm
um að fleiri ætli að fara til veiða en
ég held að það sé frekar orðrómur
en staðreynd," segir Magnús. -RR
manna.
„Málið er aö út-
gerðarmenn era að
þæfa málið. Þeir
vilja fá lög. í mín-
um huga er ekki
svo flókið mál að
semja. Um 90 pró-
sent útgerðar-
manna eru að gera
góða hluti. En
kvótagreifamir,
sem era í miklum
minnihluta, virðast
því miður stjórna
þessu öllu. Ég var
búinn að spá frekar
stuttu verkfalli og
að þetta myndi haf-
ast án of mikilla
erfiðleika. Ég finn
að menn era mjög
smeykir við stöð-
una og að verkfallið
geti dregist. Þetta
er slæm staða fyrir
alla, ekki bara sjó-
menn og flölskyld-
ur þeirra heldur
alla þjóðina í heild.
Verðandi styður Magnús Guðmundsson, formaður skipstjóra- og stýri-
sína menn af öllum mannafélagsins Verðandi, segir áhöfn og útgerð Smá-
mætti, bæði sjó- eyjar hafa framið lögbrot. DV-mynd BG
Keflavíkurflugvöllur:
Starfsleyfi Suöur-
flugs stórtíðindi
- segir Hjálmar Árnason alþingismaður
DV, Suðurnesjum:
„Að Suðurflug skuli fá starfsleyfí
era stórtíðindi og ekki bara fyrir
Suðumesjamenn heldur landið í
heild. Það er verið aö opna fyrir
vaxandi umsvif á
Keflavíkurflugvelli í
atvinnugrein sem
mikill vaxtarbrodd-
ur er í - ferðaþjón-
ustunni," segir
Hjálmar Ámason al-
þingismaður.
Eins og fram kom
í DV fyrir áramót
var aðeins spurning
um daga hvenær
Suðurflug ehf. á
Keflavikurflugvelli
fengi starfsleyfi. Nú
hefur Halldór Ás-
grímsson utanríkis-
ráðherra gefíð fyrir-
tækinu leyfí til af-
greiðslu flugvéla á
Keflavíkurflugvelli.
Suðurflug býður einkaflugvélum,
minni vélum, þjónustu sína og hef-
ur sett stefnuna á að farið verði að
þjónusta minni vélar fyrir 1. júní.
Fyrirtækið á þjónustumiðstöð á
Keflavíkurflugvelli.
„Suðurflug er með ýmis fram-
sækin áform sem munu auka við-
skipti og flugtekjur þjóðarbúsins
og atvinnu á svæðinu. Á lokastigi
era athyglisverðir samningar Suð-
urflugs við stóra erlenda aðila um
viðkomu í Keflavík. Þessu fylgir
alls kyns þjónusta fyrir veitinga-
hús, hótel og aðra þjónustuaðila á
svæðinu.
Grundvöllur fyrir
rekstri Suðurflugs
hefúr veriö tryggð-
ur. Eigendur hafa
lengi undirbúið
markaðssetningu
þeirrar þjónustu
sem fýrirtækið mun
hafa í boði. Nú má
búast við að fjöl-
margar einkavélar,
sem ferjaðar era yfir
Atlantshaf á ári
hverju, hafi viðdvöl
í Keflavik.
Alþjóðaflugvöflur-
inn í Keflavík er að
auka umsvif sin
töluvert. Áætlanir
Flugleiða, m.a.
vegna aukins flugvélakosts, bygg-
ingar kæligeymslu og fjölgunar
starfa innan flugstöðvar þýðir vel á
annað hundrað ný störf á næstu
mánuðum. Þetta eru gleöitíðindi
fýrir marga,“ sagði Hjálmar, ánægð-
ur með þróun mála á Keflavíkur-
flugvelli.
-ÆMK
Hjálmar Árnason.
DV-mynd ÆMK
Ættfrccðivefur DV
œmaf&s-smm 'm.
~ rm U’* W pstTg
w&tGme#**9*' í§&
WVvW.ilV.IS www.'iv.i:, WVVW.tJy.í:, vww.'jy.i:-, «#/).'ly l:, WWW.dV is WWW.dV.iS WWW.iiV.I',www.iiv.il WWW.OV.Ift www.dv.is
www.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.tswww.dv.iswww.dv.is
. ^áftáftA****** '***.*.** *>.’-';•>' •***♦*.»■- .•» ■
^r.h i iit
IS l-T fjÁ} IN < i A
$ I IIK
(SI I M)! \ (, A
#1 I 1 I U
ÍSltl NLJINGA
íSf
ISliiNUdlNC.A
p -U J
á Netinu
w w w. d v. i s
Aðgangur ókeypis fyrst um sinn I
Frá því ættfræðisíða DV hóf göngu sína 20. júlí 1987 hafa ættfræðingar og
blaðamenn DV rakið ættir og æviágrip um 11.000 íslendinga á síðum blaðsins.
Alls koma vel á annað hundrað þúsund manns við sögu í ættrakningum DV
á vefnum. í dag eru ættfræðigreinar DV aðgengilegar almenningi
á Netinu. Á Ættfræðivef DV er hægt að fletta upp nöfnum fólks
í stafrófsröð eða teita að því með öflugri leitarvél.
Fyrst um sinn verður aðgangur ókeypis að þessum hafsjó fróðleiks.