Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Page 28
44 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 DV nn Ummæli Höldum enn velli „Alþýðubandalagið held- ur enn velli en veraleg hætta er á að þar fari á sama veg og með Kvennalistann ef forysta flokksins gætir ekki að sér.“ Hjörleifur Gutt- ormsson alþingismaður, í Degi. Hvað tefur orminn langa? „Þróunin er öll í átt til nánari samvinnu þeirra flokka sem nú eru í stjórn- arandstöðu á Alþingi og því er von að fólk spyrji nú hvað tefji orminn langa þeg- ar að landsmálunum kem- ur. Bryndís Hlöðversdóttir al- þingismaður, í DV. Þíða kemur eftir frost „í málinu er frostmark en yf- irleitt kemur þíða eftir frost.“ Þórir Einarsson sáttasemjari, í Morgunblaðinu. Svörtu sauðirnir fremstir „í þessari stétt manna gildir hins vegar hið forn- kveðna, að misjafn sauður er jafnan í mörgu fé. Gall- inn er líka sá að svörtu sauðirnir standa fremstir meðal forsvarsmanna út- gerðarmanna.“ Jóhann Halldórsson, einn lögmanna sjómannasam- takanna, um útvegsmenn, i Morgunbiaðinu. Vita ekki afleiðingarnar „Það sýnir í hvernig sjálf- heldu deilan er þegar menn vita ekki einu sinni afleiöingar krafna sinna.“ Kristján Pálsson alþingismaður, í DV. Búgreifar Er að verða til stétt bú- greifa við hliðina á sægreif- unurn?" Ari Skúlason, fram- kvæmdastj. ASÍ, í Degi. Jón Auðunn Guðmundsson, fyrrum bóndi: Hætti búskap og keypti bókabúð DV Siglufirði: „Ég hef alltaf haft áhuga á bók- um. Sem ungur maður starfaði ég við blaðamennsku og las mikið. Fyrir 10 árum byrjaði ég að fást við útgáfu á bókum. Búskapurinn hafði verið að dragast saman og sömuleið- is ferðaþjónusta sem fjölskyldan var búin að starfrækja allt frá 1979. Þegar ég frétti að bókabúð væri til sölu á Siglufirði varð niðurstað- an sú að hætta búskapnum og kaupa verslunina," sagði Jón Auð- unn Guðmundsson, fyrram bóndi á Bæ í Króksfirði í A-Barðastrandar- sýslu, nú eigandi bókabúðar Siglu- tjarðar. Jón tók við rekstrinum á miðju ári 1997 og flutti til Siglufjarðar sl. haust þegar hann var búinn að skila af sér jörðinni í hendur nýrra eig- enda og farga bústofni sem að hans sögn var ekki orðinn nema 30 kind- ur. Jón var bóndi 1 34 ár, fyrst í Borgarfírði en flutti að Bæ ásamt fjölskyldu 1977. Bær er stór jörð með nokkru æðarvarpi. Þar er gott að reka sauð- fjárbú og fé afurðagott. Auk búskapar starf- ræktu þau gistingu fyr- Jón A. Guömundsson. DV-mynd Örn ir ferðafólk og söluskála en með til- komu Breiðafjarðarferjunnar Bald- urs varð gisting nánast alveg úr sög- unni. Jón missti konu sina 1988 og fór Maður dagsins þá að draga saman í búskapnum. Hann sér eftir jörðinni og kindun- um en staðreyndin var sú að þetta var ekki orðið líf- vænlegt og því ekki um annað að ræða en að hætta og fara. Það var 1988 sem Jón keypti bóka- útgáfuna Hildi og með því hófst starf hans við bækur og bókaútgáfu. Á næstu áram gaf hann út alls 26 titla. „Ég hafði mjög gaman af að standa í útgáfustarfsemi en pen- ingalegur ágóði var ansi misjafn. Sumar bækur seldust allvel, aðrar miður. Þannig er það alltaf í bókaút- gáfu. Það gengur enginn að vissri sölu fyrirfram. Hins vegar er ekki skortur á fólki sem vill láta gefa út eftir sig. Ég er með nokkur handrit en hef haldið að mér höndum með útgáfu síðustu árin, heldur viljað minnka svolítið lagerinn. Ég hef keypt nokkur smærri útgáfufyrir- tæki og eignast þannig talsvert af bókum. Núna á ég um 190 titla. Það er oftast róleg sala i gömlum bókum en reytist þó eitthvað á hveiju ári,“ sagði Jón og er ánægður með mót- tökur Siglflrðinga. Þeir hafa tekið honum vel. -ÖÞ Þeir sem vilja fara á fata- fellusafniö þurfa aö fara til Kaliforníu. Sérstök söfn Mörg skrýtin söfn eru til í veröldinni. í Kaliforníu er til að mynda Striptease Museum. í þessu safni er að finna hluti og fatnað sem voru í eigu frægra nektar- dansmeyja. í Los Angeles er að finna Loftræstinga- og is- Blessuð veröld skápasafnið þar sem má sjá ýmislegt sem tengist upp- götvunum á þessu sviði og er sérstakur bás tileinkaður Willis Carrier sem fann upp loftræstingarkerfið árið 1902. Lásasafnið í Terryville í Bandaríkjunum inniheld- ur 22.000 lása af ýmsum gerðum. Mörg fyrirtæki hafa komið sér upp merk- um söfnum sem eiga sér fáar eftirlíkingar. Má þar nefna Campbell Museum of Soup Tureens. Eins og nafn- ið bendir til er það stærsta súpufyrirtæki í heimi, Campbell Soup, sem hefur komið sér upp þessu safni. Vert er svo að geta þess að á Bretlandseyjum er safn sem heitir Museum of the Mousetrap. Þetta er ekki stórt safn en geymir 150 músagildrur og er sú elsta frá Egyptalandi. Myndgátan Sambiðlar Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði. Málverk eftir Jón Bergmann Kjartansson. Fjórar sýningar 1 Nýlistasafiiinu standa nú yfir fjórar sýningar. í gryfju safnsins sýnir Guðrún Vera Hjartardóttir teikningar og skúlptúra sem tengjast sögu manneskjunnar í bland við núverandi ástand. Vera vinnur gjaman með mótsagnir sem búa í okkm öllum og hug- leiðir hvaða áhrif dómar eins og rétt og rangt, gott og illt, himna- ríki og helvíti hafi á okkur. Jón Bergmann Kjartansson sýnir málverk í forsal. í verkun- um veltir Jón fyrir sér raunveru- leikanum. Hann gengur út frá því að það sem við sjáum og upplif- um sé að mestu takmarkað við hugann og sé því frekar hug- myndaveruleiki en raunveru- leiki. Sýningar Sólveig Þorbergsdóttir sýnir í Bjarta sal verk sem hún vinnur beint inn í rýmið til að undir- strika traust á styrkleika augna- bliksins, finna hræðsluna sem kemur upp og lika njóta þess sem rýmið kallar á. í SÚM-sal sýnir Gretar Reynis- son og er yfirskriftin 1997. Á síð- asta ári gerði Gretar 365 sjálfs- myndir unnar með ýmsum að- ferðum á pappír og 365 teikningar með blýanti á krossviðarplötur, sem hann kallar „platta" en gætu eins heitið „dagar". Bridge í desembermánuði síðastliðnum var spilað Rússlandsmót í tvímenn- ingi. Nýkrýndir Rússlandsmeistar- ar eru Anatoly Pavlov og Anrey Shudnev frá Moskvu. Þetta skemmtilega spil kom fyrir á mót- inu og felur í sér fallega þvingun. Sagnir gengu þannig, vestm gjafari og NS á hættu: 4 ÁG854 44 KG65 ♦ D * 652 * K972 V D10 ■f Á63 * ÁG108 N V A S 4 63 WÁ842 4 G105 * KD73 4 D10 44 973 4 K98742 * 94 Vestm Norður Austur Suður 14 pass 1 grand pass 2 «4 pass 3 «4 p/h Norðm valdi ágætis útspil, lágan tígul. Suður fékk fyrsta slaginn á kónginn og spilaði laufníunni til baka. Sagnhafi fékk að eiga slaginn á kónginn, spilaði spaða úr blindum og lagði gosa á tíu suðms. Norður drap á kónginn, lagði niðm laufás og gaf félaga sínum stungu í laufi. Síðan spilaði suður lágum tígli. Vestur trompaði og staðan var þessi: 4 Á854 «4 KG6 4 - *■ - Sagnhafi tók siag á hjartakóng, spilaði hjartagosa á ásinn og renndi niður hjörtunum. Norður var þving- aður i þremm litum og ákvað að henda spöðum. Síðustu slagir sagn- hafa komu því á 8 5 i spaða. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.