Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998
Útlönd
Leyniþjónusta dönsku lögreglunnar undir smásjánni eftir sjónvarpsþætti:
Ologlegar njosn-
ir um borgarana
Leyniþjónusta dönsku lögregl-
unnar (PET) er nú undir smásjánni
og krafist hefur verið afsagnar yfir-
manns hennar eftir sýningu tveggja
þátta á sjónvarpsstöðinni TV2 á
sunnudags- og þriðjudagskvöld. Þar
kom fram að PET laumaði útsend-
urum sínum inn í raðir vinstri-
manna og njósnaði um vinnudeilur
og opinbera fundi.
í þættinum í gærkvöld var sagt
frá því að PET hefði fengið mann til
að sitja og taka upp á segulband
fund í Árósum í nóvember 1996 þar
sem rætt var um stöðu Kúrda.
Fundurinn var skipulagður af
verkalýðshreyfingunni í Árósum og
samtökum Kúrda.
Danska fréttastofan Ritzau segir
frá því að áður en þátturinn í gær-
kvöld var sýndur hafi þingmenn í
eftirlitsnefnd danska þingsins feng-
ið þau boð frá Frank Jensen dóms-
málaráðherra að starfsmenn PET
hefðu þurrkað upptökuna út eftir að
hlusta á hana. Birgitte Stampe, yfir-
maður PET, mun hafa gefið þá skýr-
ingu að innihaldið hafi ekki verið
mjög áhugavert.
Stampe lét þess hins vegar ekki
getið að PET hefðj enn í fórum sín-
um skriflega skýrslu um fundinn.
Ráðherrann harmaði það í viðtali
við Ekstra Bladet í gær.
Frank Jensen talar um klúður af
hálfu Birgitte Stampe. Aðrir þing-
menn eru harðorðari. Bjorn
Elmquist frá Radikale segir að þing-
heimur hafi verið afvegaleiddur og
Einingarlistinn vill að Stampe verði
látin víkja úr embætti. Jensen þver-
tekur fyrir það.
Meirihluti þingmanna er nú
fylgjandi því að PET verði rannsök-
uð, ef ásakanimar á hendur henni
um ólöglegar njósnir um borgarana
reynast réttar. Dómsmálaráðherra
hefur beðið Stampe um skýrslu um
málið fyrir lok mánaðarins. Vinstri-
menn telja fráleitt að PET fái að
rannsaka sjálfa sig.
í útsendingunni í gær kom meðal
annars í ljós að PET átti útsendara
í röðum nokkurra stórra hreyfinga
sem skipulögðu verkalýðsbaráttu í
byrjun níunda áratugarins.
Einum leiðtoga strætisvagna-
stjóra I Kaupmannahöfn leist ekki
meira en svo á upplýsingarnar í
þáttunum. „Við vorum ekki hryðju-
verkamenn," sagði hann.
Leyniþjónustu lögreglunnar hef-
ur frá árinu 1968 verið bannað að
skrá danska borgara eingöngu út
frá stjómmálaskoðunum þeirra. í
opinberum bæklingi frá marsmán-
uði í fyrra er lögð áhersla á að PET
hafi ekki áhuga á stjórnmálavafstri
borgaranna. Þar segir að aðeins sé
njósnað um hreyfingar lengst til
hægri og vinstri sem liggi undir
gmn um að ætla að beita ofbeldi til
að raska almannaró.
í PET eru tæplega fiögur hundruð
lögregluþjónar. Hlutverk þeirra er
að berjast gegn hryðjuverkamönn-
um og öfgamönnum og hindra út-
breiðslu gjöreyðingarvopna. Þá
stunda þeir gagnnjósnir og taka að
sér ýmsa öryggisþætti.
Ekki var fjörlegt um að litast á aðalverslunargötunni í austurhluta Jerúsalem í gær þar sem þessi drenghnokki beið
eftir foreldrum sínum. Allar verslanirnar í hverfinu voru lokaðar vegna allsherjarverkfalis. Palestínumenn efndu til
verkfallsins til að mótmæla fyrirætlunum borgarstjórans að sýna erlendum borgarstjorum arabíska hverfið.
Karl fær ekki að ala
prinsana upp einn
Diana prinsessa vildi koma í veg
fyrir að Karl Bretaprins sæi einn
um uppeldi sona þeirra, að þvi er
fram kemur í erfðaskrá prins-
essunnar sem var gerð opinber á
mánudaginn. Erfðaskráin var gerð
1. júní 1993. Þá var þegar farið að
hrikta í stoðum hjónabands þeirra
Díönu og Karls.
Það var ósk Díönu að Vilhjálmur
og Karl lifðu eins eðlilegu lífi og
hægt væri. í sex siðna langri erfða-
skrá sinni skrifaði prinsessan: „Ef
ég fell frá á undan eiginmanni mín-
um er það ósk mín að hann ráðfæri
sig við móður mína um uppeldi
bama okkar, menntun þeirra og
velferð."
í framtíðinni verður sem sagt Karl
að ráðfæra sig við Frances Shand
Kydd, móður Díönu, í öllum málum
sem varða líf Vihjálms og Harrys.
Karl Bretaprins. Símamynd Reuter.
Það hefur aldrei gerst áður að
erfðaskrá meðlims hresku konungs-
fiölskyldunnar hafi verið gerð opin-
ber. Það var þó gert núna, meðal
annars til að koma í veg fyrir
vangaveltur um innihald erfða-
skrárinnar. Sænska blaðið Afton-
bladet hefur það eftir lögmanni hjá
lögmannastofunni Lawrence Gra-
ham í London að það hafi verið syn-
ir Díönu sem hafi staðið á bak við
ákvörðunina um að birta erfða-
skrána. „Díana prinsessa var mjög
sérstök persóna og þessi ákvörðun
var tekin vegna þess hversu mikill
áhugi er á henni,“ er haft eftir lög-
manninum.
Samkvæmt erfðaskránni fá synir
Díönu ekki umráðarétt yfir öÚum
arfi sinum fyrr en þeir verða 25 ára.
Vilhjálmur fær þó dágóða upphæð
þegar hann verður 18 ára.
Clinton varar
íraka við að
óhlýðnast
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
varaði irösk stjórnvöld við því í
gær að loftárásir yröu gerðar á
land þeirra ef þau brytu sam-
komulagið sem
gert var up
vopnaeftirlits-
menn Samein-
uðu þjóðanna.
Síðar um
daginn bar
Clinton mikiö
lof á Kofi Ann-
an, aðalfram-
kvæmdastjóra SÞ, fyrir sam-
komulagið sem hann gerði við
íraka. Hann áskildi sér þó um leið
allan rétt til að grípa til hemaöar-
aögerða, jafnvel þótt Bandaríkja-
menn yrðu einir á báti I þeim að-
gerðum.
Annan sagði aftur á móti í sjón-
varpsviðtali að flest ríki í Öryggis-
ráðinu teldu að Bandaríkin yrðu að
ráöfæra sig við þau áður en gripið
yrði til hemaðaraðgerða.
Cook ræðir
Kosovo við
Milosevic
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, ræðir spennuna í
Kosovo-héraði í Serbíu við
Slobodan Milosevic Júgóslaviu-
forseta í dag. Cook mun flytja for-
setanum þau boð aö Evrópusam-
bandið auki ekki samskiptin við
Júgóslavíu fyrr en vandinn hafi
verið leystur.
Á þriðja tug manna féU i óeirð-
um í Kosovo um helgina. Níu af
hverjum tíu íbúum héraðsins eru
af albönsku bergi brotnir. Lengi
hefur verið grannt á því góða milli
þeirra og serbneska minnihlutans.
Kratarnir vilja
lægri skatta og
minni kjarnorku
Þýskir jafnaöarmenn, sem hafa
útnefnt Gerhard Schröder sem
kanslaraefni sitt fyrir kosning-
amar í haust, kynntu stefnuskrá
sína í gær. Þar kennir margra
grasa, bæði af vinstri og hægri
væng stjórnmálanna. Boðaðar eru
skattalækkanir í anda hægri-
manna og vinstrimönnum er lof-
að að kjarnorkuverum verði lok-
að, svo að eitthvað sé nefnt.
Reuter
Stuttar fréttir dv
Pólitískt öngþveiti
Flokkur hindúa sigraði í kosn-
ingunum á Indlandi en náði ekki
meirihluta. Þess vegna er gert ráð
fyrir að pólítískt öngþveiti ríki
áfram í landinu.
Morð á N-írlandi
Tveir menn voru myrtir og
tveir særðust í skotárás á bar á N-
írlandi í gær. Ekki er útilokað að
sambandssinnar hafi verið að
verki.
Koss Díönu
Lögmenn fiölskyldu Dodis Al-
Fayeds, ástmanns Díönu prins-
essu, hafa farið fram á að frönsk
yfirvöld refsi
franska tlma-
ritinu Paris-
Match fyrir að
hafa birt í fyrra
myndir af
Díönu og ást-
manni hennar,
Dodi, kyssast
um borð í bát hans. Myndirnar
birtust í bresku pressunni 10.
ágúst síðastliðinn og voru fyrsta
sönnunargagnið um að samband
þeirra væri náið.
Kærasta skrifar bók
Fyrrverandi sambýliskona
Christers Petterssons, sem grun-
aður er um morðið á Olof Palme,
greinir í bók frá því að hann sé
miklu ofbeldisfyllri en talið er.
Skammar starfsmenn
Fjölmiðlakóngurinn Rupert
Murdoch sakar starfsmenn sína
um að hafa á klaufalegan hátt
hafnaö bók Chris Pattens, fyrr-
verandi landstjóra í Hongkong.
Gagnrýnendur segja Murdoch
ekki vilja gefa bókin út af ótta við
að skaða viðskiptasambönd við
Kína.
Lítil hætta á árás
Bandaiúska utanríkisráðuneyt-
ið sagði í gær að það teldi litla
möguleika á sýklavopnaárás
íraka á nágranna sína.
Sagði sannleikann
Lögmaðurinn Vernon Jordan,
vinur Clintons Bandaríkjaforseta,
kveðst hafa
sagt allan sann-
leikann er
hann bar í gær
vitni fyrir kvið-
dómi er rann-
sakar meint
kynlífshneyksli
í Hvíta húsinu.
Jordan vísaði því á bug að vinátta
sín og forsetans væri ekki söm og
áður. Jordan verður yfirheyrður
á ný á morgun.
Frægir í veisiu Times
Bill Clinton Bandaríkjaforseti,
og Mikhail Gorbatsjov, fyrrver-
andi forseti Sovétríkjanna, voru
meðal margra frægra er fógnuðu
með tímaritinu Time vegna 75 ára
afmælis þess.
Hungursneyö yfirvofandi
Um 350 þúsund manns í S-Súd-
an eiga á hættu að deyja úr
hungri. Hungrið neyðir fólk til að
ganga 4 til 5 klukkustundir á.dag
í leit að ávöxtum.
Nyrup bjartsýnn
Þrátt fyrir að
skoðanakannanir
sýni að hægri-
menn séu að síga
á í Danmörku er
Poul Nyrup
Rasmussen for-
sætisráðherra
bjartsýnn á að hann verði áfram
við stjórnvölinn að loknum kosn-
ingunum í næstu viku. Stjórn-
málasérfræðingar segja að jafiiað-
armenn fái yfirleitt fleiri atkvæði
í kosningum en skoðanakönnun-
um.
Ríkisbáknið minnkaö
Um 8 milljónir opinberra
starfsmanna i Kína eiga á hættu
að missa vinnuna verði tillaga
um minnkun ríkisbáknsins sam-
þykkt.