Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998
Spurningin
Gengur þú í ullarbrók?
Ragnhildur Benediktsdóttir
nemi: Nei, bara á skíðum.
Kristín Gunnarsdóttir kennari:
Nei það geri ég aldrei. Ég fer frekar
í kuldagalla.
Kristján Benediktsson nemi: Já,
um helgar þegar ég er úti að
skemmta mér.
Gunnar Geir Gunnarsson vöru-
bílstjóri: Þetta er einhvers konar
bómullarbrók.
Arnbjörg Jónsdóttir ellilífeyris-
þegi: Ég hef aldrei verið í prjóna-
brók. Ég þoli ekki ull.
Hrefna Magnúsdóttir deildar-
stjóri: Nei, aldrei.
Lesendur
Drykkja unglinga
öðruvísi mórall
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Engum blandast lengur hug-
ur um að drykkja og óregla
hvers konar hefur færst neðar
í aldursstigann. Þeir sem falla í
þessa freistingu eru yngri nú
en algengt var fyrir t.d. 30
árum. I dag er ekki óalgengt að
sjá drukkin börn, tólf þrettán
ára, slangra um götur. Vissu-
lega ömurleg sjón og á fráleitt
að vera í þessum farvegi.
Þegar ég var í skyldunáminu
var hugsun um áfengi ekki
uppi hjá mínum aldurshópi.
Krakkar í þann tið beindu ekki
athygli sinni að þessum hlut-
um. Brennivínsneysla var eitt-
hvað sem fullorðið fólk, sumt
hvert, föndraði við en ekki
börn. Enginn sagði okkur
þetta. En i þessum farvegi var
andrúmsloftið þá.
í aðeins eitt skipti á skyldu-
námsárum mínum man ég eft-
ir þess háttar atviki. Það frétt-
ist sem sagt um einn nemanda
sem hafði komist í tæri við
Bakkus. Mér er atvikið enn
minnisstætt. Og það fullyrði ég
að drengurinn sem verknaðinn
framdi skammaðist sín svo
mikið að hann fór með veggjum í
marga daga á eftir og hafði ekki í
sér kjark til að horfa á nokkurn
mann fyrir skömm.
Krakkar á þessum árum voru
hvorki verri né betri en nú gerist.
En áfengi og vímuefni - engin leiddi
hugann að þessu. Svona almennt
séð. Að vísu voru einstaka sinnum
haldnar ýmsar uppákomur, skóla-
böll og fleira. Og mætti maður svo
sem á þau. En þá fyrst og fremst til
Menn skyldu ekki gera lítið úr móralnum á hverjum tíma, segir Konráð í bréfinu.
að hlýða á nýjustu Bítlatónana, HoU-
is eða Kinkshljómana. AUtaf var von
tU þess að einhverjum úr hópnum
hefði áskotnast eittiivað af þessum
plötum og kæmi með þær. En áfengi
kom þar ekki inn fyrir dyr og enginn
reyndi heldur neitt til þess.
Mikið er nú rætt um þessi mál og
aUtaf er verið að koma með tiUögur
sem eiga að bæta ástandið. En til-
lögur einar og sér eru fáum tU góðs
ef verkin vantar.
Það sem ég er hér að tala um er
„móraUinn". Menn skyldu ekki gera
lítið úr honum. „Mórallinn" hefur
ægivald i öUu samfélagi manna og
áhrif bæði tU góðs og Uls og fer eft-
ir straumum á hverjum tíma. Besti
árangurinn í hvers kyns forvömum
er að krakkamir sjái að sér og vilji
sjálfir breyta ástandinu í eigin hópi.
Hugsunin komi innan frá. Þannig
faUa virki ódámsins eitt af öðru. Og
einungis þannig.
Halldór Blöndal að blóraböggli
Indriði Pálsson skrifar:
Ég átti von á að einhver tæki upp
hanskann fyrir HaUdór Blöndal sam-
gönguráðherra í allri umfjöUuninni
sem orðið hefur um hans málaflokk.
Það hafa m.a. verið uppi ásakanir
um klúður í sjóslysarannsóknum,
sbr. Æsumálið, í leigumálum Sigl-
ingastofnunar, í málefnum Lands-
símans og íslandspósts, í málefnum
Flugmálastjómar og við úthlutun
fjár og skipan nefnda í ferðamálum.
Sagt hefur verið í blöðum og út-
varpi að lög og reglur. þ.á m. Evr-
ópusambandsins, hafi verö brotnar
o.s.frv. o.s.frv.
Auðvitað ber ráðherrann pólitíska
ábyrgð en hann er ekki sá sem und-
irbýr, skrifar og hefur sérþekkingu á
málum. Ég veit að Halldór er af góð-
um og vönduðum ættum, m.a. syst-
ursonur Bjama heitins Benedikts-
sonar og frændi þeirra bræðra í Sjó-
vá-Almennum og af hinni traustu
ætt úr Blönduhlíðinni. Þetta fólk er
vant að virðingu sinni og er þekkt að
ráðvendni.
Fyrrgreind vandamál virðast öll
vera af lögfræðilegum toga. Ég þyk-
ist vita að lögfræöideild sé innan
samgönguráðuneytisins. Af hverju
er forstöðumaður eða forstöðumenn
hennar ekki kallaöir til ábyrgðar og
yflrheyrslu hjá fjölmiðlum? Ég
sakna þess og vil skora á DV að hafa
viðtal við viðkomandi embættis-
mann eða -menn og láta þá standa
fyrir máli sínu. Þessir menn eru
þjónar þjóðarinnar og verða að vera
ábyrgir gagnvart henni. - Það gagn-
ar ekki að ráðherrann sé gerður að
blóraböggli.
Þjóðarkúgun og skattaánauð
Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif-
ar:
Ég hélt lengst af að svona nokkuð
gerðist ekki undir stjórn Sjálfstæð-
isflokksins. En auðvitað liggur það
ljóst og beint við, þegar tíminn leið-
ir í ljós afleiðingar undirbúnar af
einokunarvaldi og þjóðnýtingaröfl-
um Alþýðuflokks og fyrrverandi
kommúnista þegar þeir binda sam-
an bækur sinar í skattaánauð og
þjóðnýtingu. Frjáls viðskipti og
framtak á að drepa endanlega í borg
og bæ, og ráðamenn sjóða aldraðra
vinna þannig að ekki er lífvænt
öldraðum á þeim bótum sem þeir fá
úr lífeyrissjóðum sínum, þótt hund-
ruð milljarða séu í innstæðum
þeirra.
yH&QM þjónusta
allan sólarhringii
i sima
»0 5000
nlilli kl. 14 og 16
Bréfritari lýsir Alþingi ábyrgt fyrir milljarða króna fjárkúgun á þjóðina.
Og nú rekur Alþingi á vegum rík-
isins fyrirtæki sem hefur það að
markmiði að traðka niður frjáls við-
skipti fólks og kúga undir fengið
vald frá Alþingi með milljarða
króna fjárkúgun á þjóðina. Auðvit-
að á ég við Ríkisútvarpið. Allir vita
að Ríkisútvarpið á að standa undir
sínum eigin rekstri eins og fijálsu
stöðvamar virðast fara létt með.
Einhvers staðar verður RÚV að fá
rekstrarfé sagði mér sá ráðherrann
sem þetta fyrirtæki heyrir undir. Ég
hélt að ráðherrann gæti ekki sagt
svona. Tekin hefur veriö aftur upp
heiftarleg valdbeiting og einokun
varðandi innheimtugjöld þessa rík-
isfyrirtækis. Maður spyr sig hvað
þjóðarkúgun og skattaáþján geti
gengið langt áður en yfir lýkur.
Sigmar má upp-
lýsa meira
Lúðvík hringdi:
Undanfarið hafa verið sýndir
nokkrir þættir þar sem Sigmar B.
Hauksson lýsir erlendum borgum
og öðrum fróðleik. Nefhi ég þætt-
ina um Edinborg, Sri Lanka og
síðast Barcelona. Edinborgarþátt-
urinn t.d. var frábær og þótt mað-
ur hafi komið þar fyrir allmörgum
árum var þetta góð viðbót fyrir
næstu heimsókn. En það er alltaf
eitthvað... Ég hefði viljað - og ég
hef heyrt aðra nefha það - fá upp-
lýsingar um verð á hinu og þessu
í viðkomandi borg eða landi. Hvað
með hótelgistingu, matarverð á
veitingahúsum? Hvemig kemst ég
til Sri Lanka með sæmilega viðun-
andi hætti kostnaðarlega? Hvað,
hvar og hvernig...?
Nú er gott í
Mosfellsbæ
S.S. hringdi:
Nú verður gott að búa í Mos-
fellsbæ. Hér er friður og ró í bili,
fáir eða enginn köttur á ferli.
Kær kveðja, við spörfuglarnir.
Veðravítin í
Bandaríkjunum
Hallgrímur skrifar:
Það hafa verið nokkuð tíðar
fréttir frá Bandaríkjunum af hör-
mungum vegna veðravítis, ýmist
fellibylja, skýstróka (sem eru
einna hættulegastir mönnum og
eignum) og flóða vegna hins ný-
lega uppgötvaða E1 Nino loft-
straums. Hörmulegt er að horfa á
ósköpin og tjónið. Enginn hér
minnist einu orði á þessi válegu
tíðindi, hvað þá á aðstoð til handa
íbúunum. Ekki stendur á okkm- að
æskja hjálpar þegar slíkar uppá-
komur verða hér og ætlumst raun-
ar til þess að allur heimurinn
komist í uppnám. Það er hins veg-
ar fróðlegt að sjá hversu vel
Bandaríkjamenn eru viðbúnir
þessum vágestum sem náttúra-
hamfarir era. En viö gætum nú
sýnt hluttekningu engu að síður.
Ekki satt?
Engin vínkaup
um helgar
Kristín Magnúsdóttir skrifar:
Margir era undrandi á þrjósku
ráðamanna (les; alþingismanna) á
aö leyfa ekki verslun með vín,
einkum létt vín, eins og aðra vöra-
flokka. Þetta kom sér afar illa fyr-
ir mig sl. laugardag. Til okkar
hjóna hringdi erlendur kunningi
okkar sem hér hafði komið síðdeg-
is frá Evrópu á leið vestur um haf.
Við buðum honum umfsvifalaust í
kvöldverð heima hjá okkur. Okkur
langaði að nota rauðvin með steik-
inni og það áttum við ekki. Við
brugðum því á það ráð að hringja
í hótel eitt þar sem við þekkjum til
og fengum lánaða flösku af víni
sem við borguðum svo á mánu-
degi. Svona atvik koma upp víða.
Er virkilega ekki nokkur von til
þess aö hér skapist eðlilegt ástand
í verslun með áfengi?
R-listaáróður
á Rás 2
Björn Sig. hringdi:
Það er áberandi hve dagskrár-
gerðarfólk á rás 2 virðist samtaka
um að koma borgarstjóranum,
Ingibjörgu Sólrúnu, á framfæri
hvenær sem færi gefst. Ég tek sem
dæmi sl. fimmtudag; þá var svo-
kallaður gestaþáttur og auðvitað
sat borgarstjóri fyrir svörum. Og
það var ekki nóg að enda þáttinn
samkvæmt venju um kl. 18.30. Nei,
það varð að framlengja þvi inn-
hringjendur voru svo óskaplega
margir sem vildu hafa samband
við borgarstjórann sinn. Það er
mikið kallað í borgarstjórann eða
R-listaliðið til að gefa „komment"
á hitt og þetta. Þetta er líka ríkis-
útvarp og það verður að hlýða
kalli og væntingum starfsfólks
síns.