Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1998, Page 1
MÁNUDAGUR 23. MARS 1998
w
/Jz *
«H
#*t*
FH náöi í
oddaleik
Bls. 23
Lilja Rós Jóhannesdóttir og Guö-
mundur Stephensen, íslands-
meistarar í borötennis 1998.
DV-mynd Pjetur
Einar samdi
við Lyn
Einar Öm
Birgisson,
knattspymu-
maöur úr
Þrótti 1
Reykjavík,
samdi á laug-
ardag til
tveggja ára
viö norska 1.
deildarliðiö Lyn írá Osló. Hann
fer alfarinn utan á miðvikudag
og skrifar þá formlega undir
samninginn.
Einar var markahæsti leik-
maöur Þróttara í 1. deildinni í
fyrra og skoraði þá 14 mörk í
deild og bikar.
Hann fór meö Lyn í æfinga-
ferð til Spánar á dögunum, lék
tvo leiki og skoraði í báöum. Lyn
vann þá tvö önnur norsk 1. deild-
arlið, Skeid og Eik, bæði 3-0.
Lyn féll úr úrvalsdeildinni í
fyrra en hefur tvisvar orðið
norskur meistari og átta sinnum
bikarmeistari og leikur heima-
leikina á þjóðarleikvangi Nor-
egs, Ullevaal. -VS
Rúnar vann Svíana
- stigahæstur og sigraði í þremur greinum á sænska meistaramótinu í fimleikum
Rúnar Alexandersson varð stiga-
hæsti einstaklingurinn á sænska
meistaramótinu í áhaldafimleikum
sem fram fór í Mahnö um helgina.
Hann varð efstur i þremin- grein-
um og fékk bestan samanlagðan ár-
angur, 49.750 stig.
Rúnar sneri þó ekki heim með
verðlaun því hcmn keppti sem gest-
ur á mótinu. Sænskur meistari
varð Anders Petersson frá
Haimstad sem fékk
samtals 49.500 stig.
Datt tvisvar á
bogahestinum
Rúnar var hæst-
ur í gólfæfingum
með 8,1 í einkunn,
á tvíslá með 8,4 og
á svifrá með 8,5.
Hann datt tvisvar í
bestu grein sinni,
bogahestinum, en
var samt með næst-
hæstu einkunnina
þar, 8,7. í hringjun-
um missti hann eitt
erfiðleikagildi sem
kostaði hann nokk-
uð í stigum og fékk
7,8, og fyrir stökk
fékk Rúnar 8,25.
„Ég er að sjálfsögðu ánægður
með þennan árangur og hann gef-
ur mér byr undir báða vængi fyrir
Norðurlandamótið í byijun apríl.
Ég mun nýta tímann fýrir það mót
eins vel og ég get og síðan verður
bara að koma í ljós hvemig tekst
til,“ sagði Rúnar við DV.
-AIÞ/VS
Kærumálið ætlar engan enda að taka:
„Er að verða
ansi leiðinlegt“
- nýja dómara þarf í dómstól HSÍ
Snæfell í
úrvalsdeild
Snæfell úr Stykkishólmi er komið
í úrvalsdeildina í körfuknattleik á
ný eftir tveggja ára fjarveru. Hólm-
arar unnu Þór i Þorlákshöfn í gær,
63-82, og fylgdu þar með eftir
stórsigri sinum í fyrri leiknum í
Stykkishólmi á föstudagskvöldið,
113^65.
Árangur Snæfells í vetur er sér-
lega glæsOegm-. Liðið vann alla 18
leiki sína í 1. deild og alla fjóra leik-
ina í úrslitakeppninni. Betur er
ekki hægt að gera. -VS
Kæmmál Vals og Fram vegna
bikarúrslitaleiksins í handknattleik
ætlar engan endi aö taka. Málið er
búið veltast til og frá á milli dóm-
stóla síðustu vikumar og á laugar-
daginn komst dómstóll ÍSÍ að þeirri
niðurstöðu að dómaramir þrír sem
sitja i dómstól HSi, þeir Valgarður
Sigurðsson, Jón Auðunn Jónsson og
Sigurður I. Halldórsson, væra van-
hæfir til þess að dæma í málinu og
bæri því að víkja sæti.
„Ég er nú ekki búinn að sjá rök-
semdimar fyrir þessum úrskurði en
þessi niðurstaða kemur okkur
Frömuram mjög á óvart. Þrátt fyrir
þetta bíðum við bara rólegir eftir
því að einhverjir dómarar fjalli um
þetta. Við kærðum máliö til dóm-
stóls HSÍ og okkur er svo sem alveg
sama hvaða dómarar skipa hann,“
sagði Knútur G. Hauksson, formað-
ur handknattleiksdeildar Fram, við
DV í gær.
„Þetta er að verða ansi leiðinlegt
og eftir allan þennan tíma er engin
efhisleg niðurstaða komin. Það er
alveg ljóst að íþróttahreyfingin þarf
að fara endurskoða allt sitt dóms-
kerfi. Manni finnst þrjú dómsstig í
íþróttum orðið ansi mikið þegar
þau era bara tvö úti í þjóðfélaginu.
Okkur óraði ekki fyrir því þegar við
lögðum fyrst fram kæra í þessu
máli að þetta væri enn óútkljáð
svona löngu seinna og að þetta
myndi snúast upp í það að fjalla um
dómskerfi í sjálfú sér heldur en að
þaö væri tekið á þessu málefna-
lega,“ sagði Knútur ennffemur. -GH
Héðinn samdi
við Dormagen
til ársins 2000
Héðinn
Gilsson hand-
knattleiks-
maður hefur
framlengt
samning við
þýska liðið
Bayer Dor-
magen til árs-
ins 2000. í samningi Héðins kem-
ur fram að þó svo að liðið falli úr
1. deildinni muni hann leika
með því áffam.
Viggó vildi fá Héöin
Nokkur þýsk félög vora á hött-
unum eftir Héðni. Eitt þeirra var
íslendingaliðið Wuppertal.
„Ég haföí mikinn áhuga á aö
fá Héðin og ræddi við hann um
helgina en hann sagðist vera bú-
inn að ákveöa að vera áffam hjá
Dormagen," sagði Viggó Sigurðs-
son, þjálfari Wuppertal, i samtali
við DV í gær. -GH
Víðtækt
hlutafélag
Knattspymudeild KR stofnaði á
föstudag hlutafélagið KR-SPORT hf.
með það að markmiði að endur-
skipuleggja rekstur meistaraflokka
deildarinnar.
Tilgangur félagsins, samkvæmt
samþykktum þess, er aö taka þátt í
rekstri á sviðum íþrótta, menning-
ar, lista og afþreyingar og auk þess
smásala, heildsala, umboðsverslun,
ráðgjöf, rekstur fasteigna, lánastarf-
semi og skyldur rekstur, eins og
segir í fréttatilkynningu.
Formaður félagsins er Björgólfúr
Guðmundsson, sem jafhframt er for-
maður knattspymudeildar KR. Fé-
lagið er í eigu deildarinnar en stefnt
er að samvinnu við innlenda eða er-
lenda íjárfesta. -VS
Lottó:
25 26 32 35 37 B: 9
Enski boltinn:
21x 12x xll 121x