Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1998, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 23. MARS 1998
23
Iþróttir
Hrafnhildur Skúladóttir var atkvæöamikil í liði FH gegn Víkingi í gær og hér er hún að brjóta sér leið
framhjá varnarmanni Víkings og skora eitt af 8 mörkum sínum. DV-mynd Pjetur
Fyrsti úrslitaleikur Keflavíkur og KR um Islandsmeistaratitilinn í körfuknattleik:
Frábær vörn
- lagði grunninn að 19 stiga sigri Keflavíkurstúlkna
Keflavíkurstúlkur byijuðu ein-
vígið mjög vel í fyrsta leik liðanna
um íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik þegar þær unnu afar
glæsilegan sigur á KR, 75-54, í
Keflavík á laugardaginn.
Keflvíkingar eru með geysisterkt
og skemmtilegt lið og verður erfitt
fyrir KR að stöðva Keflvíkinga í
J»ssum ham. Hvergi er veikan blett
að finna í fimm manna liði Keflvík-
inga sem þykir það besta á landinu.
Keflvíkingar léku frábæran varnar-
leik, agaðan sóknarleik og hraða-
upphiaupin voru stórkostleg.
Mikilvægt aö byrja vel
„Það er mjög mikilvægt að byrja
einvígið vel. Ég er mjög ánægð með
leik okkar. Vömin var frábær og
það að halda þeim í 54 stigum er
mjög gott. Þá lékum við mjög vel í
sókn og létum boltann ganga vel.
Við ætlum okkur að halda áfram á
sömu braut og ekkert aö gefa eftir i
baráttunni," sagði Anna María
Sveinsdóttir, leikmaður og þjálfari
Keflvíkinga, sem lék frábærlega
vel.
„Þær spiluðu mjög vel og náðu
að pressa vel. Þær fengu einfaldlega
of mörg hraðaupphlaup og vora að
skora auðveldar körfur og við feng-
um nánast engin hraðaupphlaup.
Þær eru með gott lið en við getum
unnið þær,“ sagði Chris Arm-
strong, þjálfari KR. -ÆMK
Grótta/KR
í 1. deildina
Grótta/KR tryggði sér sæti í 1.
deild karla í handknattleik á
fostudagskvöld með sigri á
Fjölni í Grafarvogi, 18-23.
Selfyssingar voru þegar komn-
. ir upp og þeir tryggðu sér meist-
aratitil 2. deildar með sigri á
Herði á ísafirði, 19-29. -VS
Keflavík (38)75
KR (28) 54
2-0, 7-2, 7-7, 16-11, 18-18, 21-20, 30-20,
34-28, (38-28), 42-32, 4840, 5640,
5948, 6348, 67-54, 75-54.
Stig Keflavíkur: Jennifer Boucek
27, Kristín Blöndal 14, Anna María
Sveinsdóttir 11, Erla Reynisdóttir 11,
Erla Þorsteinsdóttir 10, Marín Rós
Karlsdóttir 2.
Stig KR: Tara Williams 26, Guð-
björg Norðfjörð 12, Hanna Kjartans-
dóttir 7, Linda Stefánsdóttir 4, Helga
Þorvaldsdóttir 3, Kristin Jónsdóttir 2.
Fráköst: Keflavik 26, KR 30.
Vítanýting: Keflavík 22/26, KR
14/23.
3ja stiga körfur: Keflavík 3/12,
KR 1/7.
Áhorfendur: Um 250.
Dómarar: Kristján Möller og Rún-
ar Gíslason, góðir.
Maður leiksins: Jennifer Bou-
cek, Keflavik.
Annar úrslitaleikur liðanna verður
á Seltjamamesi annað kvöld kl. 20 og
sá þriöji í Keflavík á fímmtudag.
Austanstúlkur
í úrslitin
Þróttur úr Neskaupstað er kom-
inn í úrslit íslandsmótsins í blaki
kvenna eftir sigur á ÍS, 1-3, í odda-
leik liðanna í undanúrslitum sem
fram fór í Hagaskóla á laugardag.
Hrinumar enduðu 15-11,13-15, 5-15
og 11-15. Norðfjarðarstúlkur mæta
Víkingi í úrslitunum og verður
fyrsti leikurinn í Víkinni annað
kvöld. -VS
Ekkert sumarfri hjá FH
FH kom einvíginu við
Víking í handknattleik
kvenna í oddaleik með sigri,
22-19, í Vikinni í gær. Það
var Ijóst frá fyrstu mínútu
að sagan frá því á fóstudag
átti ekki að endurtaka sig.
Þá unnu Víkingar stórsigur,
27-19, en nú voru FH-stúlk-
ur mjög ákveðnar frá byrj-
un.
Fyrri hálfleikur Víkinga
í gær var annars afar slak-
ur og þá sérstaklega í sókn.
Þá skoruðu þær aðeins 6
mörk, þar af 3 úr 19 skotum
utan af velli. FH nýtti sér
þetta, komst í 7-2 og leiddi í
hálfleik, 11-6. Víkingur kom
aftur til baka í seinni hálf-
leik en FH hélt út leikinn og
tryggði sér úrslitaleik á
þriðjudag.
Hrafnhildur Skúladóttir
stóö sig best í leiknum. Hún
fór fyrir FH-liðinu i fyrri
hálfleik og skoraði þá 7
mörk úr 9 skotum og alls 8
mörk. „Við tókum okkur
saman og gáfum aflt í þenn-
an leik. Við vorum ekkert á
því að fara í sumarfrí eftir 2
leiki,“ sagði Hrafnhildur kát
eftir leik. „Þetta eru jöfn lið,
og dagsform ræður miklu.
Slæmur fyrri hálfleikur af
okkar háflú réð mestu um
úrslitin," sagði Inga Lára
Þórisdóttir, þjálfari Víkings,
sem hélt sig enn í æfinga-
treyjunni.
Mörk Víkings: Halla María
Helgadóttir 9/5, Kristin Guð-
mundsdóttir 5, Helga Jónsdóttir
2, Anna Kristín Arnadóttir 1,
María Rúnarsdóttir 1, Heiða Er-
lingsdóttir 1. Halldóra Ingvars-
dóttir varði 7/1 skot og Kristín
Guðjónsdóttir 3.
Mörk FH: Hrafnhildur
Skúladóttir 8/4, Þórdís Brynj-
ólfsdóttir 4/1, Dagný Skúladótt-
ir 4, Guðrún Hólmgeirsdóttir 3,
Hildur Erlingsdóttir 2. Vaiva
varði 7 skot og Alda 5.
Mörk í fyrri leiknum:
Víkingur: Halla 10/5, Kristín
6/1, Heiða 4, Anna Kristín 3,
Helga 2, Maria 1, Guðmunda
Kristjánsdóttir 1.
Mörk FH: Þórdís 7, Hrafn-
hildur 4,, Guðrún 3, Björk Æg-
isdóttir 2, Dagný 2, Drifa Skúla-
dóttir 1. -ÓÓJ
Vikingur-FH 1-1
Valur náði í oddaleik
- gegn Gróttu/KR með góðum endaspretti
Keflavíkurstúlkur klappa stuðningsmönnum sínum lof í lófa eftir leikinn
gegn KR. DV-mynd Ægir Már
Þróttarar óstöövandi?
Valsstúlkur knúðu fram oddaleik
með góðum sigri á Gróttu/KR,
25-20, í Valsheimilinu á laugardag.
Það var öðru fremur góður 10 mín-
útna kafli seint í síðari hálfleik sem
tryggði þeim sigurinn þegar þær
skoruðu 6 mörk í röð. Jafnræði
hafði verið með liðunum fram að
því. Valsstúlkur náðu þó góðri for-
ystu fyrir hlé
en Gróttu/KR-
stúlkur náðu
að vinna hana upp í upphafi seinni
hálfleiks.
Þóra og Brynja voru langbestar í
liði Vals auk þess sem markvörður
þeirra varði vel á þýðingarmiklum
augnablikum. Hjá Gróttu/KR stóð
Vigdis markvörður upp úr en Anna
og Ágústa léku einnig vel.
Mörk Vals: Brynja Steinsen 8/5, Þóra
Helgadóttir 8/4, Eivor Pála Blöndal 3,
Sonja Jónsdóttir 2, Gerður B. Jóhanns-
dóttir 2/1, Hafrún Kristjánsdóttir 2. Var-
in skot: Larine Luber 14/1.
Mörk Gróttu/KR: Ágústa Edda
Bjömsdóttir 4, Edda
Hrönn Kristinsdóttir 4/2,
Helga Ormsdóttir 4/2,
Anna Steinsen 3, Sæunn
Stefánsdóttir 2, Kristin Þórðardóttir 2, G.
Þóra Þorsteinsdóttir 1. Varin skot: Vigdís
Finnsdóttir 13.
-HI
Þróttur úr Reykjavík vann auð-
veldan sigur á ÍS, 3-0, í fyrsta úr-
slitaleik liðanna á Islandsmótinu í
blaki karla á laugardag. Hrinumar
enduðu 15-7, 15-1 og 15-8 og flest
bendir tfl þess að Þróttarar vinni
tvöfalt í ár eins og undanfarin tvö
ár.
„Við erum með fantasterkt liö og
meiri breidd en ÍS og eigum að
klára þessa leiki ef einbeitingin er í
lagi. Liðið spilaði mjög vel í dag,
mun betur en í bikarúrslitunum um
siðustu helgi,“ sagði Leifur Harðar-
son, þjálfari Þróttar, við DV eftir
leikinn.
Annar leikur liðanna verður í
Hagaskóla í kvöld og sá þriðji á mið-
vikudagskvöld. Þrjá sigra þarf til að
hreppa titilinn. -VS
Ætlum að spila fram í apríl
- sagöi fyrirliði Skagamanna eftir sigur á deildarmeisturum Grindvíkinga
DV Akranesi
1Á (43) 751
Grindavík (41) 73\
11-16, 29-23, 34-35, 39-37, (4341),
5246, 54-57, 63-63, 67-67, 69-73, 75-73.
StigÍA: Damon Johnson 33, Alex-
ander Ermonlinski 14, Bjami Magn-
ússon 12, Sigurður E. Þórólfsson 7,
Trausti Jónsson 5, Brynjar Sigurðs-
son 3, Dagur Þórisson 1.
Stig Grindavíkur: Helgi Jónas
Guðfinnsson 24, Konstantionnos
Tzartsaris 22, Unndór Sigurðsson 8,
Walsh Jordan 7, Bergur Edvarðsson
4, Helgi Bragsson 4, Guðlaugur Eyj-
ólfsson 2, Pétur Guðmundsson 2.
3ja stiga körfur: ÍA 21/10, Grinda-
vik 5/22.
Vítanýting: ÍA 19/15, Grindav. 8/11.
Fráköst: IA 35, Grindavík 26.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðars-
son og Jón Bender, dómgæslan kom
niður á báðum liðum.
Áhorfendur: Um 350
Maður leiksins: Damon Johnson,
ÍA.
Skagamenn ætla að fjölmenna á leik-
inn i Grindavík i kvöld og verður boðið
upp á rútuferðir frá Skútunni kl 17.30.
„Þetta var frábær vamarleikur
hjá okkur, við stoppuðum þriggja
stiga skotin ekki nógu vel en samt
nógu vel. Ermonlinski var að pakka
Tzartsaris saman í seinni háfleik.
Við ætlum vonandi að spila eitt-
hvað fram í apríl, en það er erfitt að
leika í Grindavík. Við verðum að
leggja okkur alla fram til þess að
vinna eins og við gerðum í dag,“
sagði Sigurður Elvar Þórólfsson,
Skagamaður, eftir sigur á Grindvík-
ingum í öðrum leik liðanna í 8-liða
úrslitum Islandsmótsins í körfu-
bolta á laugardaginn, 75-73.
Liðin skiptust á að hafa forystuna
i fyrri háfleik og í þeim seinni.
Grindvíkingar komust mest í fjög-
urra stiga mun þegar rúm mínúta
var eftir af leiknum. Damon John-
son var ekki sammála og setti niður
þriggja stiga körfu og hleypti
spennu í leikinn. Grindvikingar
fengu síðan bolt-
ann en misstu,
þá fékk Johnson
aftur tækifærið
og skoraði. Grindavík missti aftur
boltann og þá var dæmdur ruðning-
ur á Johnson, síðan ruðningur á
Jordan og þá voru aðeins um 30 sek-
úndur eftir. Johnson fékk víti og
hitti úr öðru og aðeins 8 sekúndur
eftir og Skaginn með tveggja stiga
forskot. Grindvíkingar hófu sókn en
tókst ekki að skora en litlu munaði
að 3ja stiga skot frá Helga Jónasi
færi ofan í. Skagamenn fógnuðu
gríðarlega sigrinum og það fæst úr
því skorið annað kvöld hvort liðið
kemst áfram.
Bestur í jöfnu liði
Skagamanna var
sem fyrr Damon
Johnson, einnig
áttu þeir Ermonlinski og Bjarni góð-
an dag.
Vorum í svipuðum
gæðaflokki og dómararnir
„Þetta hafðist ekki í þetta skiptið,
við vorum ömurlega lélegir og vor-
um í svipuðum gæðaflokki og dóm-
aramir, án þess að maöur sé að
kenna þeim nokkuð um tapið. Það
var engin stemmning hjá okkur og
menn halda að þetta komi af sjálfu
sér og það sé nóg að mæta, það er
ekki svoleiðis í úrslitakeppni, þaö
er leyft meira og þegar við erum
svona lélegir eigum við skilið að
tapa,“ sagði Benedikt Guðmunds-
son, þjálfari Grindvíkinga, við DV
eftir leikinn.
Helgi Jónas Guðfinnsson og Ts-
artsaris voru bestir í liði Grindvík-
inga en lítið bar á snillingnum
Walsh Jordan ef snilling skyldi
kalla, því betri hafa þeir nú sést á
íslandi. -DVÓ
ÍA-Grindavík 1-1