Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Page 2
i6 &ikmyndir
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1998 UV
KVIKMYIÍDA
ÍJflJilYj'JJ
Bíóhöllin - Rocketman:
Líflaust á Mars **
Disneymyndin
Rocketman fylgir fast á
hæla velheppnaðrar
ómannaðrar rannsókn-
arferðar til Mars og
nær því óvenjuglæsi-
legri veruleikatengingu
(er Mars nýja Di-
sneylandið?). Með
blöndu af vísunum i at-
burðina í kringum
Appollo 13. og samspili
við samnefnda bíó-
mynd er hér kominn
ansi góður grunnur fyr-
ir ósköp venjulega
barna- og fjölskyldu-
mynd. Og fyrri hluti
Eldflaugarmannsins
nær vissulega að halda
uppi skemmtilegri
stemningu, þar sem tölvunördinn Fred Z. Randall (Harland Williams)
rústar NASA á nokkrum vikum. Fred hefur alltaf dreymt um að verða
geimfari (og greinilega aldrei séð Alien, né Mars Attacks) en sem næst-
besta kost hefur hann hannað tölvuforritið fyrir mannaða ferð til Mars.
Því miður kann einn leiðangursmanna ekki gott aö meta og misreiknar
sig á forritinu með tilheyrandi líkamsmeiðingum (varúð, þið þarna lé-
legir stærðfræðingar), og þá opnast glufa fyrir Fred. Eftir mjög skemmti-
legt æfingaprógramm, þar sem lúðinn Fred sýnir líkamsstyrk á við þjálf-
uðustu menn, fær hann lottóvinninginn, far til Mars. Því miður tekst
honum ekki aö halda uppi sama fjöri þar og heima á jörðu og sannar
þar með endanlega að ekki er liflegt á rauðu plánetunni.
Helsti húmorinn úti í geimi virðist vera klósetthúmor, sem hefur
ákaflega takmarkað skemmtigildi til lengdar, þrátt fyrir að strumpa-
bláminn í sótthreinsileginum væri ákaflega ánægjulegur. Grínistinn
Harland Williams er nokkuð fyndinn og skondinn sem súpernördinn of-
ursjarmerandi, þó ekki nái hann upp í Gæludýralöggu Jims Carreys, en
hann hefur einfaldlega ekki nægan sjarma til þess að halda uppi heilli
mynd. Aðrir leikarar eru ágætir en helst til litlausir, sem gerir það að
verkum að allt hvílir á Williams; helsti keppinauturinn - eða stuðning-
urinn - um skemmtigildi er keppinautur Freds um ferðina, Gordon A.
Peacock (Blake Boyd), en hann er skiljanlega ekki lengi með. Það má
skemmta sér ágætlega á Rocketman, sérstaklega fyrir hlé, og litli
simpansinn var æði. Kannski Disney ætti að halda sig við dýramyndir?
Leikstjóri: Stuart Gillard. Handrit: Craig Mazin & Greg Erb. Aöalhlutverk:
Harland Williams, Jessica Lundy, William Sadler, Jeffrey DeMunn, Beau
Bridges, Blake Boyd, simpansinn Raven. Úlfhildur Dagsdóttir
Stjörnubíó - Air Bud:
Körfuboltahundurinn **
Air Bud kostaði
framleiðendurna
aðeins 3 milljónir
dala og skilaði
hagnaði upp á 25
milljónir í Banda-
ríkjunum einum.
Þá er eftir að telja
heimstekjurnar og
hagnað af mynd-
bandsspólunni
sem væntanlega
kemur út síðar á
árinu. Það þarf þvl
engan að undra
þótt þessi lítt
merkilega mynd sé
þegar búin að geta af sér framhald sem er í sama anda. Air Bud 2:
Golden Receiver kemur út siðar á þessu ári og fjallar um „golden retri-
ever“ sem spilar fótbolta.
Air Bud er formúlumynd frá upphafi til enda. Ungur drengur, Josh
Framm (Kevin Zegers) flytur í nýjan bæ og á erfítt með að eignast vini.
Lát foður hans ári áður einangrar hann enn frekar og það er ekki fyrr
en hann kynnist hundinum Buddy að hann fer að líta lífið bjcutari aug-
um. Buddy hefur ekki heldur lifað neinu sældarlífi. Læstur inni i búri
féll hann af pallbíl á ferð en eigandi hans er drykkfelldur og illskeyttur
trúður (Michael Jeter) sem nýtur þess að berja hann með samanvöfðu
dagblaði. Josh langar til að leika körfubolta með skólaliðinu en skiln-
ingslaus þjálfari fær honum það starf að þvo búninga skólafélaga sinna.
Það er ekki fyrr en þjálfarinn er rekinn fyrir að níðast á einum af
drengjunum að Josh fær tækifæri. Undir handleiðslu svarta húsvarðar-
ins (Arthur Chaney), sem var einu sinni körfuboltastjama í úrvalsdeild-
inni, kemst liðið i fylkisúrslitin. Öllum á óvart kemur í ljós að hundur-
inn Buddy er afbragðsgóður í körfubolta og þegar tveir drengjanna
meiðast í úrslitaleiknum er hann settur inn á. Það stendur jú hvergi í
reglunum að hundur megi ekki spila körfubolta. Það kemur eflaust fæst-
um áhorfendum á óvart að trúðurinn skuli mæta á staðinn og heimta
hundinn sinn aftur.
Af leiknum er fátt eitt að segja, en þó þótti mér Michael Jeter nokkuð
skemmtilegur sem illskeytti trúðurinn Norm Snively. Þetta er vanþakk-
látt hlutverk og nægir að nefna hinn ágæta leikara Harvey Keitel sem
var hræðilegur í sams konar rullu í Monkey Trouble (1994). Það sem
mér þótti reyndar merkilegast við Air Bud var að engar tölvubrellur
hefðu verið notaðar við gerö hennar, eins og auglýst var.
Leikstjóri: Charles Martin Smith. Aðalhlutverk: Kevin Zegers, Wendy
Makkena, Bill Cobbs og Michael Jeter.
Shirley MacLaine og
Kvöldstjarnan
„Ég er ekkert ánægð með það að vera
sú leikkona sem sögð er fá öll bestu
hlutverkin. Ef mig langar til að vinna,
sem er ekkert allt of oft þessa dagana,
þá vel ég að sjálfsögðu það sem mér
líkar best og hentar mér best.“
Shirley MacLaine, sem er systir
Warrens Beattys, var dansari í fýrstu
og í nokkrum kvikmyndum sínum frá
fyrri árum sést hversu stórkostlegur
dansari hún hefur verið, má nefna
Can Can og Sweet Charity. Hún hefur
leikið í yfir fjörutiu kvikmyndum.
Þegar Shirley MacLaine fékk ósk-
arsverðlaunin fyrir Terms of Endear-
ment var hún orðin harður tals-
maður fyrir framhaldslífi og tók
sér frí frá kvikmyndum í fimm
ár, skrifaði metsölubækur og lék
í sjónvarpskvikmynd sem gerð
var eftir bók hennar Out on a
Limp. Hér að ofan er listi
yfir helstu kvikmyndir
hennar. -HK
Shirley MacLaine í
hlutverki Auroru
Greenway í
The Evening Star.
m
„Ég elska Auroru, hún er hluti af
mér og það var góð tiifmning að fmna
fyrir henni aftur,“ segir Shirley
MacLaine um eitt frægasta hlutverk
sitt, Auroru Greenway, í The Evening
Star sem Sam-bíóin taka til sýningar
i dag. The Evening Star er framhald
Terms of Endearment, sem gerð var
1983 og fékk mörg óskarsverðlaun,
meðal annars fékk Shirley MacLaine
óskarinn sem besta leikkonan í aðal-
hlutverki: „Aurora hefir mjög vítt
tiifmningasvið. Mér líkar vel
við þessa persónu, sem getur
verið um of dramatísk,
ómöguleg í sambúð, ást-
úðleg, óútreiknanleg,
traust, gribba og
margt fleira,“
segir
MacLaine
um Auroru.
„Margt í fari
hennar er
einnig í mínu
fari, meðal annars
það að leyna tilfmningum.
öllum persónum sem ég hef
leikið er hún líkust
mér.“
Óhætt er að
að Shirley Mac-
iÆÍne sé goðsögn
í lifanda lifi. Á
mjög svo fjöl-
breyttri ævi sinni
hefur hún leikið í
mörgum klass-
iskum kvik-
myndum og
alltaf verið á
toppnum, aldrei
þurft að taka nið-
ur fyrir sig eins
og svo margir
frægir leikarar
þegar aldurinn
færist yfir þá.
MacLaine er
leikkona sem
allir bera
virðingu
fyrir og
þótt hún
reyni
að
vera sem eðlilegust við imga leikara
sem eru mótleikarar hennar þá finn-
ur hún fyrir vissri taugaspennu hjá
þeim: „Ég skil ekki af hverju fólk
verður stressað af að vinna með mér.
Ég læt heyra í mér þegar mér fmnst
eitthvað ekki vera í lagi, en hver ger-
ir það ekki sem er með snefil af sjálfs-
virðingu. Ég er ekkert betri leikkona
en flestir mótleikarar mínir. Það sem
ég hef fram yfir er persónuleikinn og
það er kannski þess vegna sem ég er
kvikmyndastjama.
Shirley MacLaine er 62 ára
\ gömul og fær enn bestu hlut-
verkin fyrir sinn
aldursflokk
inn á sitt
borð. Marg-
ar aðrar
leikkonur
eru pirraðar
; segja að hún
fái að velja úr öll-
um hlutverk-
og
scg
Around the World in 80 Days, 1956
The Matchmaker, 1958
Some Came Running, 1958
Ask any Girl, 1959
Can Can, 1960
The Apartment, 1960
Two Loves, 1961
The Children's Hour, 1962
Two for the Seasaw, 1962
My Geisha, 1962
Irma La Douce, 1963
The Yellow Rolls Royce, 1964
Gambit, 1966
Woman Times Seven, 1967
The Bliss of Mrs. Blossom, 1968
Sweet Charity, 1969
Two Mules for Sister Sara, 1970
Desperate Characters, 1971
The Possession of Joel Delany,
1972
The Turning Point, 1977
Being there, 1979
Loving Couples, 1980
A Change of Seasons, 1980
Terms of Endearment, 1983
Madame Soussatzka, 1988
Steel Magnolias, 1989
Waiting for the Light, 1990
Postcards from the Edge, 1990
Used People, 1992
Wrestling Ernest Hemingway, 1993
Guarding Tess, 1994
Mrs. Winterbourne, 1996
The Evening Star, 1997
Jack Nicholson leikur aftur geimfarann sem hann fékk oskarsverölaun fyrir áriö 1983: „Þaö var dasamlegt að fá aö
endurtaka dansinn okkar," segir Shiriey MacLaine: „Viö þurftum ekkert að æfa þaö atriöi, þetta var eins og aö fara í
gamla skó sem passa vel. Jack haföi veriö aö skemmta sér kvöldið áður og var ekki sem best fyrir kallaður þegar
hann kom um morguninn. Ég gaf honum morgunmat og fljótt vorum viö komin á flug í samræöum og þá fjóra daga
sem hann var á tökustaö geröum viö lítiö annaö en tala um börnin okkar, barnabörn og allt milli himins og jarðar.
Myndin er af Shirley MacLaine og Jack Nicholson í samræðum meöan á tökum stóö.