Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Síða 7
T>V FÖSTUDAGUR 27. MARS 1998 Mars-maraþon Grafarvogur l Reykjavík Kópavogur Breiðholt um helgina =. SÝNINGAR Galleri Fold, Rauðarárstíg. Ólöf Kjaran með sýningu á olíu- og vatnslitamyndum í baksal. Opið ■! daglega frá kl. 10-18, ld. 10-17 og sd. 1 14-17 til 5. april. Gallerí hár og list, Strandgötu 39, Hafnarfirði. Sýning Elíasar Hjörleifssonar. Gallerí Homið, Hafnarstræti 15. 28. mars hefst ljósmyndasýning Kjartans Einarssonar. Sýningin verður opin alla daga kl. 11-23.20 nema sérinngangur aðeins kl. 14-18 ; til 15. april. Gallerí Ingólfsstræti 8. Sigurður Árni Sigurösson sýnir til 29. mars. I Opið fim.-sun. 14-18. Gallerí Regnbogans, Hverfisgötu i 54. Sýning á verkum Sigurðar Ör- 1 lygssonar er opin virka daga frá kl. I 16-24 og 14-24 um helgar. Gallerí Stöðlakot, Bókhlöðustíg 1 6. Jónas Bragi Jónasson opnar gler- I listarsýningu 28. mars kl. 14.00. GaUerí Sævars Karls, Banka- 1 stræti. Sýning Bjarna Sigurbjörns- | sonar og Helga Hjaltalins Eyjólfs- I sonar til 1. aprD. Opið á venjulegum í; verslunartíma. HaUgrímskirkja. Sýning á verkum I Sveins Björnssonar listmálara. Hafnarborg, Hafnarfirði. Yfiriits- | sýning Sigurðar Þóris listmálara til 6. apríl. Opið alla daga nema þd. frá | kl. 12-18. Handverk og hönnun, Amtmanns- Istíg 1, Reykjavík. Sýning á sérhönn- uðum peysum og ullarvörum frá Ullarselinu. Opið þd.-föd. frá 11-17 og ld. kl. 12-18 til 28. mars. Kafil 17, Laugavegi. Sýning á olíu- málverkum eftir Línu Rut Karls- dóttur er opin á verslunartíma til 15. apríl. Kjarvalsstaðir við Flókagötu. í vestursal Rúrí: Paradis? - Hvenær? í miðrými Ólafur Elíasson: Hinn samsíða garður og aðrar sögur. í austursal: Verk úr Kjarvalssafni K valin af Thor Vilhjáknssyni. Sýn- Iingarnar í vestursal og miðrými verða opnar til 13. apríl en í austur- sal fram í maí. Opið kl. 10-18 alla daga. Listasafh ASÍ við Freyjugötu. Ás- mundarsalur: Sigurður Magnússon - „Þankastrik" - málverk. Gryfja: Steingrímur Eyfjörð, teikningar og ljósmyndir. Arinstofa: Ný aðföng. Sýningamar standa til 29. mars. Opiö þrið.-sun. kl. 14-18. Listasafn Akureyrar. Sýning á vatnslitamyndum Asgríms Jónsson- ar til 19. apríl. Listasafn íslands. Sýningin Erlend verk í eigu safnsins stendur til 10. maí; málverk, höggmyndir og grafík ÍI eftir íjölda listamanna, marga heimsþekkta. Opið alla daga nema mán. kl. 11-17. Ókeypis á miðv. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn. Sýningar Elíasar B. Halldórssonar, Mattheu Jónsdóttur og Einars Þor- | lákssonar standa til 29. mars. Opið I' alla daga nema mánud. kl. 12-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugamesi. „Svifandi form“, verk jí eftir Sigurjón Ólafsson. Safnið er I opið ld. og sud. kl. 14-17, aðra daga 11 eftir samkomulagi. Sýningin stend- I ur til 5. apríl. ■ Listhús 39, Hafnarfirði. Gunnar í. :: Guðjónsson sýnir verk sín. Opið virka ;: daga kl. 10-18, ld. 12-18 o_g sd. 14-18. Listhús Ófeigs Björnssonar, Skólavörðustíg 5. Jóhann G. Jó- I hannsson er með sýningu á vatns- litamyndum til 29. mars. Opið á ::: verslunartíma. Ijósmyndakompan, Kaupvangs- Í stræti 24, Akureyri. Sýning á É:; verkum Þorvaldar Þorsteinssonar. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, i Borgartúni 1. Sýning á svarthvit- ;< um ljósmyndum af látnum íslensk- p um listamönnum eftir Vladimir I' Sichov. Opið virka daga kl. 12-15.30 til 30. maí. Menningarmiðstöðin Gerðu- bergi. Sýning á verkum Guðfmnu K. Guðmundsdóttur til 10. maí. Mokka, Skólavörðustig. Nína . Magnúsdóttir sýnir íkonur til 2. april. Kaffihúsið er opið alla virka daga og ld. frá 10-23.30, sun. frá kl. ■ 14-23.30. ; Nýlistasafhið, Vatnsstíg 3b. Eftir- I farandi listamenn sýna til 29. mars: | Marlene Dumas, Þór Vigfússon, Gary Hume, Georgie Hopton, Ráðhildur Ingadóttir og Tumi Magnússon. Opið alla daga nema mán. kl. 14-18. Ráðhús Reykjavikur. Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir f sýna handgerðar mottur í Tjamarsal. Gallerí Ramma og mynda, í Kirkjubraut 17, Akranesi. Guðjón I Ólafsson sýnir teikningar af húsum á Akranesi i Kaffi Krókur, Aðalgötu 16, Sauö- : árkróki. Helga Sigurðardóttir sýn- ; h- verk sin á Kaffi Krók og í Lista- smiðju Apple-umboðsins. Café Menning, Dalvík. Sýning á § verkum Þorfinns Sigurgeirssonar. : Lónið á Þórshöfn. Freyja Önund- s ardóttir sýnir verk sín í anddyri. • Kaffi Lefolii. Eggert Kristinsson ! sýnir málverk á Kaffi Lefoiii á Eyr- arbakka. i Eden Hveragerði. Sýning Lóu Guð- ! jónsdóttur í Eden til 6. apríl. ■BjBBWWMiliiSWMIllMllllllllflillBlKI Aldrei í betra formi Á morgun munu um 25 tO 30 manns hlaupa maraþonhlaup í Reykjavík en .hlaupaleiðina má sjá á meðfylgjandi korti. Það er Félag maraþonhlaupara sem stendur fyrir hlaupinu með dyggri aðstoð Reykjavíkurmaraþons. Pétur Ingi Frantzson, skokkari og einn af skipuleggjendum hlaupsins, segir maraþonhlaup einungis vera fyr- ir snarrugiaða. „En þótt við lang- hlauparar séum nettbilaðir komum við vel undan vetri. Við höfum aldrei áður verið í jafngóðu formi á þessum tíma árs og nú. Þvi má þakka annars vegar mildum vetri og hins vegar mik- illi uppbyggingu göngustíga sem átt hefur sér stað á undanfömum árum.“ Hlaupið hefst við Sörlaskjól kl. 11 en vert er að benda áhugasömum á að hægt er að fylgjast með hlaupurunum er þeir þeysa um Elliðaárdalinn um það bil hálftíma síðar. Einnig verða drykkjarslöðvar við Gullinbrú þar sem búast má við keppendum á milli. klukkan 13 og 14. Endastöð er siðan við Ægisíðu en þangað er líklegt að hinir fyrstu mæti skömmu eftir kl. 14.30. Hafnarborg: Þjóðleikhúsið: Oskastiaman Síðasta frumsýning leikársins á stóra sviði Þjóðleik- hússins verður í kvöld á leikritinu Óskastjörnunni eft- ir Birgi Sigurðsson. Þetta er merk frumsýning því þarna er á ferðinni fyrsta leikrit Birgis i rúman ára- tug. Síðasta verk hans, Dagur vonar, var sýnt hjá Leik- félagi Reykjavíkur 1987 við gífurlegar vinsældir auk þess sem það hefur síðan verið sýnt víða um lönd. Hér er á ferðinni efnismikið átakaverk. Sögusvið leikritsins er íslensk sveit um miðjan síðasta áratug. Ung myndlistarkona snýr aftur á æskuslóðir þar sem eldri systirin tekst á viö íslenskan raunveruleika í sveitinni. Móðir stúlknanna hafði verið listræn og báðar systumar þóttu efnilegir listamenn í æsku. En líf þeirra tóku ólíkar stefnur. Það eru leikkonurnar Elva Ósk Ólafsdóttir og Hall- dóra Björnsdóttir sem bera hitann og þungann af sýn- ingunni. Með önnur hlutverk fara Valdimar Örn Flygenring, Þór Tulinius, Gunnar Eyjólfsson, Þóra Friðriksdóttir og Aníta Briem. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, ætl- ar Trió Reykjavíkur að halda tónleika á sunnudaginn kl. 20. Tríóið er tíu ára um þessar mundir og titlar tónleikana á sunnudaginn afmælistónleika. Jafnframt verða tónleikamir þeir síðustu í tónleikaröð Triós- ins og Hafnarborgar í vetur. Meðlimir Tríósins eru þau Peter Máté píanóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Pet- er Máté er sá eini sem hefur ekki starfað með Tríóinu allan starfstímann. Þegar Gunnar Kvaran var spurður að því hvort meðlimir væru orðnir þreyttir eftir allan þennan tíma kvað hann svo ekki vera. „Þvert á móti, þetta er einmitt mjög skemmtilegt um þessar mundir. Að vinna lengi með sama fólkinu er gott fyrir mann því þetta er mjög krefj- andi en afskaplega gaman, sér- staklega þegar hópurinn er orð- inn reyndur og samstilltur." Á efnisskrá tónleikanna verða flutt fjölbreytt og skemmtileg verk að mati Gunnars. Hið fyrsta er tríó op.l nr. 1 eftir Beethoven, en þar er um að ræða fyrsta verk höfundarins sem gefið var út. Einnig verður leikið trió eftir Pál Pálsson sem kallast Sommermusik og var samið 1990 fyrir Tríó Reykjavík- ur. Páll verður sjötugur á árinu og er flutningur verksins nú til heiðurs tónskáldinu. Að lokum verður flutt tríó eftir Ravel sem telst vera eitt af merkustu verk- um sem samin hafa verið fyrir pianótríó. Tríó Reykjavíkur á merkisafmæli um þessar mundir og heldur tón- leika í Hafnarborg á sunnudaginn f tilefni þess. DV-mynd Hilmar Undirgöng Göngubrýr Drykkjarstöö DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.